Morgunblaðið - 14.10.1977, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. OKTÖBER 1977
5IMAK
28810
24460
bilaleigan
GEYSIR
BORGARTÚNI 24
car rental
LOFTLEIDIR
C 2 11 90 2 n 38
n
® 22 0-22*
RAUDARÁRSTÍG 31
FERÐABÍLAR hf.
Bilaleiga, sími 81260.
Fólksbílar, stationbílar, sendibíl-
ar, hópferðabílar og jeppar
Þykkar
sokkabuxur
6 litir
Verzlunin
Bankastræti 3.
ÞÚ AUGLÝSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
Haustsýning FÍM
1 vestursalnum á Kjarvals-
stööum stendur nú yfir hin
heföbundna Haustsýning
Félags íslenskra myndlistar-
manna. Þessi sýning er án
nokkurs efa elsti og heföbundn-
asti listviðburður ársins. Ekki
veit ég fyrir vissu, hve lengi
þetta fyrirtæki hefur veriö í
gangí, en ég held, aö það hafi
veriö allt frá þvi er gamli Lista-
mannaskálinn viö Kirkjustræti
var byggöur, og má vel vera, aö
þessi sýning hafi litiö dagsins
ljós áöur, en meö þaö þori ég
ekki aö fara. Samt man mín
kynslóð eftir sýningum í Garö-
yrkjuskálanum viö Garöa-
stræti, sem var fyrirrennari
skálans viö Kirkjustræti. Um
tima var þessi sýning á hrak-
hólum, en svo komu Kjarvals-
staöir, og þar hefur hún verið
til húsa seinustu árin. Þaö er
því löng og mikil saga aö baki
þessari sýningu, en i upphafi
mun hún aö nokkru hafa veriö
sniöín eftir fyrirmyndum bæði
frá Kaupmannahöfn og Ösló.
Þessi sýning hefur miklu
hlutverki aö gegna í íslensku
myndlistarlifi, og eru þeir
ótaldir listamennirnir, sem
fyrst hafa komiö fyrir al-
menníngssjónir á þessari sýn-
ingu, og auövitaö hefur þaö
æxlast þannig til, aö sumir hafa
oröiö mætir myndlistarmenn
en aðrir dottiö upp fyrir, eins
og gengur og gerist á öllum
sviðum þjóölífsins. Þaö má með
sanni segja, aö alltaf hafi eitt-
hvaö eftirtektarvert komið
fi am á þessari sýningu, en hinu
veröur heldur ekki neitað, aö
oft hefur Haustsýning verið
misjöfn aö gæðum, og getur þar
margt komiö til. Eg nefndi hér
áðan. aö hliöstæöar sýningar
væru í Kaupmannahöfn og
Ósló. Sumar þessar sýningar
hef ég séð og lesið um aörar.
Þrátt fyrir mannfæö okkar held
ég, aö Haustsýning í Reykjavík
sé á stundum ekkert ómerkara
fyrirbæri en stöllur hennar í
nágrenninu, og ef þaö er rétt
hjá mér, þá megum við sannar-
lega vel viö una og jafnvel vera
svolítið montnir.
Mér viröist sem, margar sýn-
ingar af þessu tagi hafi veriö
veigameiri og haft betri verk-
um á aö skipa, en sú sýning sem
nú hangir á Kjarvalsstöðum.
Þessi Haustsýning er nokkuð
ósamstæö, og því miður vantar
þátttöku margra af okkar bestu
listamönnum. Sýningin er opin
öllum þeim, er senda vilja verk
sín undír dóm sýningarnefnd-
ar, hvort heldur þeir eru félag-
ar í FÍM eða ekki. Síöan er þaö
innsenda flokkaö eftir geðþótta
Myndllst
eftir VALTÝR
PÉTURSSON
sýningarnefndar og reynt að
koma sem bestu gæðamati aö
við val verka i hvert sinn. Auö-
vitað getur brugöið til beggja
vona meö niðurstöður svo fjöL-
mennrar nefndar, og þaö fer
ekki framhjá neinum, aö svo
vill veröa hverju sinni. Nefndin
er skipuð átta listamönnum, og
er Eiríkur Smith formaöur
hennar aö þessu sinni. Það eru
rúmlega fjörutíu sýnendur á
þessarí Haustsýningu, og er þaö
ótrúleg tala, þegar þess er gætt,
aö mikiö hefur verið um sýn-
ingar aö undanförnu, og ótrú-
lega margar sýningar hafa
verið í gangi á sama tima i ekki
stærri borg en Reykjavik er.
Það er því ekkert einkennilegt,
þótt fram hafi komið sú skoðun
að undanförnu, að markaður
fyrir listsýningar væri alger-
lega mettaður að sinni. Samt er
ekkert lát á þeirri elfu, sem
fram streymir, og ýmislegt mun
á næstu grösum.
Guömundur Benediktsson
myndhöggvari er sérstakur
heiöursgestur Haustsýníngar-
innar að þessu sinni og stendur
sig prýðilega. Hann hefur unn-
ið að list sinni með einstakri
natni og náð ágætum árangri i
bæði tré og járni. Nú er það eir,
sem heillar hann. og ef til vill
hefur honum ekki tekist betur
en einmitt nú. Nefni ég því til
sönnunar nr. 44. 47, 49, og 40.
Þarna er Guðmundur að höndia
ný viðfangsefni, sem ekki eru
gripin úr lausu lofti, og það er
persónulegur blær yfir þessum
verkum, sem gefur þeim
sérstakt gildi.
Af yngra fólkinu var það
Ásgeir Lárusson, sem vakti
mesta eftirtekt mína með vatns-
litamyndum sínum. Þar virðist
mikill hæfileikamaður á ferö,
sem hefur sérstaklega næma
tilfinningu fyrir litnum í verk-
um sinum. Björg Þorsteins-
dóttir kom mér nokkuð á óvart
með vel unnum verkum sínum,
en ekki er hægt að segja að hún
sé sérlega frumleg að sinni.
Einar Hákonarson á þarna tvö
verk, og finnst mér hann
heldur pússa Björn Th. En
bæði þessi verk standa vel á
þessari sýningu. Hringur
Jóhannesson er nokkuð áber-
andi, en betri verk hef ég séð
eftir hann. Einar Þorláksson er
léttari og leiknari í þessum
verkum, sem hann nú sýnir, en
áður var. Bragi Hannesson á
þarna eina mynd, nr. 26, sem
mér finnst bera af öðrum verk-
um hans. Móðir nótt, eftir
Guðberg Auöunsson er fram-
bærilegt verk. Gunnlaugur St.
Gíslason stundar enn mjög líka
myndgerð og hann sýndi á
einkasýningu sinni í Norræna
húsinu fyrir nokkru. Hörður
Ágústsson kemur ekki sérlega
sterkur út á þessari sýningu.
Verk hans eru að vísu viðkvæm
en þaö er allt. Hafsteinn Aust-
mann virðist í gööri framför.
Elías B. Halldórsson sýnir tvær
pastellmyndir, sem eru nokkuö
frábrugðnar því, er hann sýndi
siðast. Anton Einarsson er einn
af yngri mönnum, sem stendur
sig vel með blandaða tækni.
Ágúst Petersen sýnir þrjár and-
litsmyndir, og Gunnar Berg-
mann virðist mér sterkust, en
allar eru þessar myndir sér-
kennilegar, eins og allt er frá
þessum listamanni kemur. Ás-
gerður Búadóttir sýnir ágæt
teppi, nr. 12 fannst mér bera af.
Helgi Gíslason sýnir lágmyndir
í steinsteypu og hefur verið
komíö fyrir á ópússuðum vegg í
gangi. veggirnir gleypa þessi
verk og því ekki gott að gera
sér grein fyrir þeim. Hallsteinn
Sigurðsson er sjálfum sér líkur,
en verk hans nr. 63 sýnir, aö
hann er aö endurnýja verkefna-
val sitt. Leifur Breiðfjörð á
þarna skemmtilega hluti, unna
í gler. Ómar Skúlason olli mér
nokkrum vonbrigðum. Sama er
að segja um hina stóru rúðu
Ragnars Kjartanssonar, það er
fyrst og fremst efnið, sem ég
kunni ekki viö. Jón Re.vkdal
virðist hneigjast meir og meir
að sjálfu landslaginu í verkum
sínum, en þau eru lagleg, en
vantar styrkleika. Ragnheiður
Jónsdóttir Ream er mjög sjálfri
sér lík í tveim olíumálverkum,
sem standa sig með prýði.
Sveinn Björnsson er með bláa
fugla og minnir um margt á
Karl Henning í expressionisma
sinum. Sævar Daníelsson er
ansi nálægt kennara sínum i
nosturlegum verkum. Valgerð-
ur Bergsdóttir sýnir dúkristur,
sem sanna hæfileika hennar.
Vilhjálmur Bergson hefur litið
breytt um stefnu. Þórður Hall á
þarna sáldþrykk i sérflokkb
Örlygur er bestur í mynd sinni
Á skáldabekk.Örn Þorsteinsson
breytir lítið til og er dálítiö
hrár í litnum.
að mætti vissulega margt
annað upp telja hér, en ég læt
þetta nægja :ð sinni. Það er
sjálfsagt ýmislegt, sem ég hef
ekki gert þau skil, sem æskileg
eru, en tilveran er nú einu
sinni svo, að eftir því sem skrif-
að mál er styttra á atómöld, eru
meiri líkur á að það sé lesið. Og
eitt er víst, að ef erlend skrif
eru borin saman við þá lang-
loku, sem kokkuð er fyrir is-
lenska lesendur, þá kemur í
Ijós, að umsagnir hérlendis eru
þeir langhundar, sem enga eiga
sér líka í heimsbyggðinni. Þvi
læt ég þetta nægja. Þetta er
snotur Haustsýning, en heldur
ekki meir.
Vallýr Pélursson.
Útvarp Reykjavlk
VEÐIRFREGNUM vvrður útvarpað frá Veðurstol'-
unni kl. 01.00, 07.00, 08.15, 10.10, 12.25, 16.15, 18.55 og
22.15 verkfallsdag;ana. A söniu tíniuni verður útvarpað
tilk> nninííurn frá tilkynningaskyldunni, löf'rejílu,
vitamálastjóra, almannavörnum. Slysavarnafélagi Is-
lands hjörgunarsveitum, svo og nauðsynlegar tilkynn-
ingar stjórnvalda varðandi öryggisvörslu og heilsu-
gæslu.