Morgunblaðið - 03.11.1977, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. NÖVEMBER 1977
27
Séra Bernharður Guðmundsson skrifar frá Afríku:
Meðal Araba
Plastsætin eru óhrein, rifin og
nöturleg, drungalegar mannverur
bera sig að því að sópa gólfin, sem
greinilega hafa ekki verið sópuð
lengi. Við erum á flugstöðinni i
Kairo og vart verður þverfótað
fyrir pilagrímum, flestum óhrein-
um mjög. Konumar eru sveipaðar
svörtum dúk svo aðeins sést í
andlit þeirra. Þær virðast afundn
ar við karla sína, sem hins vegar
skeggræða fjörlega sin á milli.
Flestar hafa þær brúsa við hlið
sér, svipaða mjólkurbrúsunum
sem voru til á flestum heimilum i
.slenzku þéttbýli áður en fernur og
hyrnur komu til sögunnar. Brús-
arnir geyma heilagt vatn.
Það er þungt loft og skuggsýnt
og okkur er dapurt i geði. Við
stöndum upp til að fá okkur
hressingu og pöntum samloku.
Gegnum op á veggnum sjáum við
afreiðslumann skera kjötsneiðar,
líklega á samlokumar. Hann
bregður sér frá, trúlega til þess að
sækja brauðið, á meðan kemur
litil mús og tritlar eftir eldhúsborð-
inu og fer að gæða sér á kjötinu.
Við afþökkum samlokurnar!
YFIRFULL BORG
Kairo er erfið borg að heim-
sækja og við erum fegnir að vera á
förum. Það ólgar í þjóðlifinu, her-
vörður er á öllum fjölförnum götu-
hornum. Samskipti manna eru
spennt og almenn tortryggni
gagnvart náunganum. Og náung-
inn er hvarvetna. Borgin er bók-
staflega talað að springa utan af
fólksmergðinni. Borgarbúum hef-
ur fjölgað um milljónir síðasta ára-
tug, en ekkert hefur verið gert til
að mæta þeim auknu þörfum sem
af þvi skapast. Umferðin er með
ólíkindum, þröngar götumar geta
engan veginn fleytt fram bila-
mergðinni, svo að bílstjórarnir
skeyta skapi sinu á flautunni og
láta hina ökumennina hafa það
óþvegið, enda virðast umferðar-
reglur fremur brotnar en haldnar!
Verst er þó ástandið í holræsa og
sorphreinsunarmálum. Holræsin
eru einfaldlega full og geta ekki
tekið við meiru, þannig að skolpið
þrýstist upp á yfirborðið aftur. Við
heimsóttum kunningja i einu af
betri hverfum borgarinnar. Innan
við garðshliðið voru stiklur að
aðaldyrunum, svo að gestir vökn-
uðu ekki í fætur. Tjarnimar þær
urðu semsé ekki til við regn af
himni!
Það þarf ekki að taka það fram
að farsóttir lifa blómatima i Kairo
um þessar mundir.
TENGDIR
Við ferðafélagarnir röltum inn i
skyrtubúð meðan við biðum eftir
bíl til brottfarar. Við ræddum sam-
an á skandinavisku og allt i einu
kemur eigandi verzlunarinnar að-
vifandi. Þetta er ungur og hressi-
legur náungi, greinilega Egypti.
— Ég heyrði að þið voruð að
tala skandinavisku, segir hann, ég
býð öllum Skandinövum sérstök
kjör, ég er nefnilega næstum
Skandinavi.
Við spyrjum hvers kyns sé.
Jú, hann var á leið til Skandin-
aviu til að gifta sig, reyndar var
unnustan ekki alveg skandin-
avisk, hún er islenzk, en það er
næstum alveg það sama — bætir
hann við.
Daninn, ferðafélagi minn, kynn-
ir mig viðstöðulaust.
Og það tók átján yfir, — það
var engu likara en ég væri
væntanlegur tengdafaðir i heim-
sókn. Allt var okkur falt, við gæt-
um fengið bil hans að láni, búið i
húsi hans og auðvitað fengum við
skyrtur í kveðjugjöf. Annað gátum
við ekki þegið, þar sem við vorum
á förum.
En vonandi verður Ahmed ham-
ingjusamur með Siggu sinni!
PÝRAMÍDAR
Að sjálfsögðu eru okkur sýndir
pýramidamir. Þeir liggja í útjaðri
borgarinnar, svo þetta er likast því
að skjótast upp að Árbæ. Við ök-
um eftir malbikuðu breiðstræti og
skyndilega blasa pýramidarnir við
að baki háhýsa Kairo.
Það er næstum óraunverulegt
Gönguferð í eyðimörkinni
að virða fyrir sér þessi stórkost-
legu byggingarundur. Óskiljan-
legt, hversu hægt var að raða upp
þessum risabjörgum með þeirra
tima tækjum. Skil fortíðar og nú-
tíðar upphefjast frammi fyrir þess-
um fornu minjum, sem i einfald-
leika stils sins hafa fólgið í sér
ólýsanlegt aðdráttarafl. Það er erf-
itt að slíta augun af pýramidun-
um.
En það verða ferðamenn að
gera, sölufólkið sér um það. Það
leggst að mönnum eins og gamm-
ar með minjagripi sina og kamel-
dýr. Og þetta er fólk, sem kann
sinar aðferðir. Áður en varði og
gegn okkar vilja, erum við komnir
á bak kameldýrum með Arabadúk
á höfði. Kameldýrin reisa sig, við
viljum af baki, en maður stekkur
ekki svo auðveldlega af kamel-
dýri! Egyptarnir skellihlæja, en
okkur er ekki hlátur í hug. Við
höfðum nefnilega hitt blaðakonu
fyrir skömmu, sem sætti þessari
sömu meðferð, nema kameldýrið
tók á rás út i eyðimörkina og var
þar á hlaupum i nokkra tima! Trú-
lega var sagan ýkt, en við vorum
engu að siður þvi fegnastir að
komast á jörðu niður. Við fórum
inn i bilinn til að geta horft nægju
okkar á pýramidana.
VALDABARÁTTA
Egyptar hafa nokkra sérstöðu
meðal Arabarikjanna. Þeir eru fá-
tækir, þvi að þeir hafa enga olíu i
landi sinu. Hinir ríku nágrannar
þykjast þvi geta leyft sér sitthvað i
samskiptum við þá. Hins vegar
eiga þeir mest af menntamönnum,
og stór hópur ungra háskóla-
menntaðra Egypta vinnur trún-
aðarstörf i nágrannarikjunum og
láta æ meir til sin taka. Þar við
bætist að i Egyptalandi er þróaður
kvikmyndaiðnaður. Oliugullið hef-
ur gert Aröbum kleift að eignast
sjónvörp og sækja kvikmyndahús,
og á þeim skjám er það venjulega
egypsk framleiðsla sem þeir horfa
á og mótast af. Það verður fróð-
legt að fylgjast með framvindu
þessara mála innan Arabaríkj-
anna.
ANDSTÆÐUR
OG AFSTÆÐI
Nokkuf hópur Egypta er krist-
inn. Þeir hafa jafnvel sinn eigin
páfa. Hin koptiska kirkja, eins og
hún nefnist, hefur um langan ald
ur verið móðurkirkja ortodoxu
krikjunnar i Eþiópiu, þótt þau
tengsl hafi nú rofnað. Koptiska
kirkjan leggur mikla áherzlu á til-
beiðsluna og hið mystiska i helgi-
haldinu. Kirkjurnar eru afar fagrar
og guðsþjónustan ógleymanleg.
Helgimálverk, — íkornar —
gerðir af mikilli list, framandi en
heillandi tónlistin, bænariðjan, hin
mikla lotning fyrir hinu heilaga,
allt þetta gerði guðsþjónustuna,
sem við sóttum, blessaða og ó-
gleymanlega.
Hversu fjarri vorum við ekki
öskrandi umferð og erli götunnar í
Kairo — Andstæður — þær er
alls staðar að finna í Egyptalandi,
þvi furðulandi, þar sem timinn
verður afstæður.
kynningar og skemmtikvöld
í Þórscafé sunnudaginn 6. nóvember
Húsið opið kl. 7 til 1. i
Tízkusýning
-r, Hinn umtalaði
W ítalski tízkufatnaður
n frá verzluninni
Matse
Stjórnandi
Pálina Jónmundsdóttir
Tvær ferðir til KAAARi™
og ein ferð til
Samvinnuferöir
Samvinnuferða verður c
in i Þórscafé allt kvöldið
Sérstakur
kynningarafsláttur