Morgunblaðið - 11.11.1977, Side 1
32 SIÐUR
241. tbl. 64. árg.
FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Carter varar við
stórfefldum átökum
Tilræði
í stað
rána?
Bonn, 10. nóvember.
Reuter.
VESTUR-þýzki ríkissak-
sóknarinn, Kurt Rebmann,
segir í viðtali sem birtist í
blaðinu Welt á morgun að
hann geri ráð fyrir því að
hryðjuverkamenn muni
snúa sér að hanatilræðum
og hverfa frá mannránum.
Hann telur ólíklegt að þeir taki
fleiri gísla þar sem stjórnvöld
neituðu að ganga að kröfum ræn-
ingja iðnrekandans Hanns-
Martins Schleyers, en er viss um
að þeir reyni að hefna Baader-
Meinhof-leiðtoganna sem létust i
Stammheimfangelsi, með laun-
morðum.
Rebmann segir að yfirvöld taki
alvarlega hótun sem mun vera
komin frá Baader-
Meinhof-skæruliðum um að vest-
ur-þýzkar farþegáflugvélar verði
sprengdar upp á flugi í hefndar-
skyni við dauða leiðtoga þeirra.
Flugfélagið Lufthansa hefur
hert á öryggisráðstöfuniífn og ráð-
stafanir hafa meðal annars verið
gerðar gegn hugsanlegri flug-
skeytaárás.
Vestur-þýzka lögreglan leitar
enn 16 skæruliða sem lýst var
eftir vegna morðsins á dr.
Schleyer, Siegfried Buback fyrr-
varandi ríkissaksóknara og
Jiirgen Ppnto bankastjóra.
Aðspurður hvers vegna leitin
hafi ekki borið meiri árangur
segir Rebmann saksóknari: ,,Þeir
eru bráðgáfaðir og einstaklega
fágaðir glæpamenn. Þeir breyta
útliti sínu reglulega.. . Sem
stendur eru hættulegustu hryðju-
verkamennirnir erlendis."
Washington, 10. nóv. Reuter.
AP.
CARTER forseti varaði við því á
blaðamannafundi f dag að löndin
fyrir botni Miðjarðarhafs römb-
uðu á barmi stðrfelldra átaka
vegna ástands-
ins f IJbanon og
þar sem beinar
viðræður væru
ekki hafnar
miili Araba og
Israelsmanna
um heildar-
lausn. Hann
hvatti aðiia til
þess að hætta
deilum um formsatriði í sam-
bandi við nýja Genfarráðstefnu
um ástandið f Miðausturlöndum
og sagði að Arabar og tsraels-
menn ættu þegar í stað að taka
upp viðræður um mál sem stæðu f
vegi fyrir friði.
Forsetinm harmaði eldflauga-
árásir Palestínumanna á ísraelska
landamærabæi og hefndarárásir
ísraelskra flugvéla í gær á Suður-
Libanon. Hann neitaði að for-
dæma ísrael og kvað það ekki
aðalatriði heldur hitt að hefndar-
árásir væru ónauðsynlegar ef
engum ögrunum væri til að
dreifa.
Carter fagnaði þeim undirtekt-
um sem tillögur Bandaríkja-
manna um formsatriði á fyrirhug-
aóri Genfarráðstefnu hefðu feng-
ið í Israel og hrósaði Anwar Sadat
Egyptalandsforseta fyrir þá yfir-
lýsingu að hann sé jafnvel reiðu-
búinn að fara til Jerúsalem og
taka þátt í umræðum á þinginu,
Knesset, til að stuðla að friði í
Miðausturlöndum.
Askorun Carters um að friðar-
viðræður verði hafnar án tafar
virðist aðallega beinast að Hafez
Assad Sýrlandsforseta sem krefst
þess að Frelsissamtök Palestínu
(PLO) fái sæti á nýrri Genfarráð-
stefnu og bandarískir em-
bættismenn segjast vona að Assa-
ad reyni að bjarga málunum úr
þeirri sjálfheldu sem þau hafa
komizt í.
Framhald á bls 18.
„Bandaríkin hafa selt okkur fyrir
olíuhagsmuni — Eina þjóðin sem
hjálpar okkur eru ísraelsmenn”
— segir líbanskur herforingi við
blaðamann Morgunblaðsins
Frá hlaðamanni Morgunblaðsins, Jóhönnu Kristjónsdóttur.
Tel Aviv, 10. nóvember.
SPRENGJCDRUNCR kváðu við á landamærum Israels og Lfban-
on er óg kom þangað síðdegis í gær. Libanska þorpið sem ég kom
til heitir Good Fence eða Góðagcrði og þar hafði verið kyrrt lengi
vel en síðustu dægur hafa Palestfnumenn gert árásir á þorp sem
eru afskekkt og einangruð frá öðrum þorpum. Einni slíkri var að
Ijúka. er ég kom á staðinn, en um mannt jón var ekki vitað.
Litlu siðar hófu Palestínu-
menn aðra árás og var sú nokk-
uó þyngri. Libanskar og isra-
elskar sveitir svöruðu um hæl
og litlu siðar sást til israelskra
flugvéla i árásarferð á stöðvar
frelsishreyfingar Palestinu-
manna. Á milli hrina náði ég
tali af yfirmanni libönsku sveit-
anna, Sad Haddad, og sagði
hann:
„Við erum umkringdir og get-
um ekkert farið. Okkar eini
kostur er að verjast og reyna að
vernda þessi þorp, land okkar,
konur og börn. Stjórnin i Beir-
ut er gjörsamlega undir hæl
Sýrlendinga og getur enga
björg okkur veitt, og vill það
kannski ekki. Svona hefur
þetta verið i marga mánuði og
ef Israelsmenn hjálpuðu okkur
ekki væri löngu búið að murka
Framhald á bls 18.
Móðir með tveimur börnum er særðust í loftárásum
ísraelsmanna í sjúkrahúsi í Suður-Líbanon.
Ríkum
manni
rænt
Vín 10. nóv. AP. Reuter.
ÖKUNNIR menn rændu austur-
ríska auðmanninum Walter
Palmers úr bifreið hans f Vín í
dag, komust undan með hann i
öðrum bíl og skildu eftir miða
með kröfu um lausnargjald að
upphæð 50 milljónir schillinga
(um 600 milljónir fslenzkra
króna).
Mannránið er nauðalíkt ráninu
á hollenzka auðmanninum
Maurits Caransa fyrr í þessum
mánuði. Lögreglan í Vin telur þó
að ekkert samband sé á milli þess-
ara mála annað en það að ræn-
ingjar Palmars kunni að hafa
fengið hugmyndina frá Caransa-
málinu.
Palmers á meirihluta hluta-
bréfa í stóru austurrísku kven-
fatafyrirtæki. Vitni lögreglunnar
segja að hann hafi verið dreginn
út úr bifreið sinni þegar hún
hafði numið staðar skammt frá
heimili hans i morgun. Mannræn-
ingjarnir ýttu honum upp i annan
bil og óku á brott.
Lögreglan hefur enn enga vís-
Framhald á bls 18.
Korchnoi
í bílslysi
Wolilon, Sviss. 10. nóvember. Reuter.
Stórmeistarinn Viktor
Korchnoi lenti f alvarlegu bfl-
slysi á þriðjudaginn en vonast
samt til að geta teflt við Boris
Spassky í Belgrad 15. nóvem-
ber um réttinn til að skora á
heimsmeistarann Anatoly
Karpov eins og ráðgert hefur
verið.
Korchnoi sagði fréttamönn-
um að hann hefði enn ekki
beðið um að viðureigninni yrði
frestað og bætti því við að
hann væri ekki viss um hvort
slysið mundi valda nokkrum
töfum á einvíginu.
Slysið varð með þeim hætti
að leigubíll sem Korchnoi var í
rakst á svissneska herflutn-
ingabifreið á veginum milli
Frauenfeldt og Ziirich. Bíllinn
fór nokkrar veltur og lenti á
hvolfi.
Korchnoi slapp ómeiddur, en
leigubílstjórinn meiddist al-
varlega. Aðstoðarmaður
Korchnois í einvíginu við
Spassky, brezki stórmeistarinn
Raymond Keene, var í aftur-
sætinu, en hann slapp ómeidd-
ur.
Grigorenko
fær að fara
Moskvu. 10. nóv. Reuter.
PYOTR Grigorenko hershöfðingi
og kunnur andófsmaður í Sovét-
rfkjunum lét hafa eftir sér í dag,
að honum og fjölskyldu hans
hefði verið veitt leyfi til þess að
heimsækja Bandarfkin og
dveljast þar um sex mánaða
skeið.
Grigorenko sagði fréttamöm
um, að hann mundi gangast undu
uppskurö í Bandarikjunum og
heimsækja son sinn, er fluttist til
New York fyrir tveimur árum.
A sínum tima var Grigorenko
sæmdur mörgum orðum en á end-
Franihald á bls 18.