Morgunblaðið - 11.11.1977, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. NÖVEMBER 1977
5
U mf erdarsly s-
in verda síf ellt
alvarlegri
UMFERÐARRÁÐ hefur nýlega
sent frá sér bráðabirgðatolur um
umferðarslys fyrstu 9 mánuði árs-
ins 1977 eða til loka september.
Þar kemur m.a. fram að slysum,
sem hafa i för með sér meiri háttar
meðsli, fer sífellt fjölgandi og slys
in verða sífellt alvarlegri. Til loka
september I ár hlutu þannig 217
manns meiri háttar meiðsli i um-
ferðarslysum, en á sama tima i
fyrra 185 manns. Þá skal nefna að
það sem af er árinu hafa verið
lagðir á sjúkrahús 33 fleiri en i
fyrra vegna meiðsla eftir um-
ferðarslys.
Alls hefur 391 maður slasazt og
26 látizt í 313 slysum fyrstu 9
mánuði ársins og eru hinir slösuðu
jafn margir og í fyrra. Á fyrstu 9
mánuðum ársins 1976 höfðu hins
vegar 13 látizt svo hér er um all-
mikla fjölgun að ræða milli ára. Fyrir
október mánuð liggja enn ekki fyrir
tölur um slys, nema dauðaslys, og
1 nóv. alls 30 manns látizt af
völdum umferðarslysa. Heildartala
látinna allt árið í fyrra var 1 9 og má
sem dæmi nefna að í september það
ZV
ár lézt 1, en 5 létust i september í
KALLAR
Á AUKNA AÐGÆZLU
Ýmsar fleiri tölur er að finna í
þessum töflum Benda má m a á að
6 ökumenn á aldrinum 1 7—20 ára
hafa látizt, 5 á aldrinum 21 —24 og
1 6 á aldrinum 25—64 Meðalaldur
látinna i slysum þessa árs er 37 ár
og hefur verið á milli 31 árs og 43
ára síðustu 5 árin
Árin 1966 — 1977 (til 1. nóv.)
hafa alls látizt 248 manns í um-
ferðarslysum eða að metaltali 20 á
ári. Ef litið er á fyrri helming þessara
ára (6 ár) má sjá að 98 hafa látizt
% Framhald á bls 1S.
Dauðaslys í janúar — október (1 0 mánuðir) árin 1973- -1977.
Ár: 1977 1976 1975 1974 1973
í dreifbýli: 14 5 12 7 11
í þéttbýli: 12 10 12 9 11
Samtals dauðaslys 26 15 22 16 22
Látnir voru:
Karlar: 15 12 17 13 7
Konur: 7 2 3 2 10
Börn: 7 2 4 1 6
30 16 24 16 23
Látnir voru:
Ökumenn bifreiða: 9 8 8 6 3
Okumenn bifhjóla: 1 1 1 0 0
Ökumenn vélhjóla: 0 0 1 1 0
Ökumenn reiðhjóla: 2 1 3 1 1
Farþegar: 10 2 5 2 8
Gangandi: 8 4 6 6 11
30 16 24 16 23
Atvik dauðaslysa:
Árekstur: 8 6 8 5 5
Bilvelta/ útafakstur: 9 5 9 5 6
Ekið á gangandi: 7 4 6 6 12
AnnaS: 2 0 1 0 0
26 15 24 16 23
Hér að ofan hefur verið sett upp í töflu hvar og hvernig dauðaslysin verða
og nær hún yfir árin 1 973-^ 1977, mánuðina janúar til október
Myndin var tekin á æfingu fyrir háskólatónleikana. Gudrún og Ólafur
við píanóið, — söngvararnir (frá vinstri talið): Sieglinde, Rut, Sigurð-
ur og Halldór.
Ástarl j óðav alsar
Brahms á ljóða-
tónleikum
A háskólatónleikum I Félags-
stofnum stúdenta á morgun, laug-
ardag, eru sönglög á efnisskránni
en flytjendur eru fjórir einsöngv-
arar og tveir pfanóleikarar. Sig-
urður Björnsson syngur lög eftir
Emil Thoroddsen, Halldór Vil-
helmsson syngur lög úr Söngbók
Garðars Hólm eftir Gunnar Reyni
Sveinsson, Siegiinde Kaham
syngur lög eftir Hugo Wolf og
Rut Magnúsdóttir syngur ensk
sönglög. Undirleikararnir eru
Guðrún Kristinsdóttir og Ólafur
Vignir Albertsson.
Lokaatriði tónleikaskrárinnar
eru Astarijóðavalsar Brahms op.
52. Þar syngja allir söngvararnir
saman og Guðrún og Ólafur leika
fjórhent á píanóið. Ástarljóða-
valsarnir hafa sjaldan verið flutt-
ir hér á tónleikum, en í vor fluttu
sömu listamenn þá á tónleikum á
Akureyri.
Háskólatónleikarnir hefjast að
þessu sinni kl. 16, og er aðgangur
öllum heimill. Miðar fást við inn-
ganginn.
TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
TlZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS
dtii) KARNABÆR
AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a Simi frá skiptiborði 28155