Morgunblaðið - 11.11.1977, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. NOVEMBER 1977
Syni Sakharovs
var vikið úr skóla
Moskvu 10. nóv. Reuter.
HAFT VAR eftir mannréttinda-
manninum Andrei Sakharov í
dag, að yfirvöld hefðu reynt að
beita hann nýjum þvingunum
með þvf að reka son hans,
Semionov, úr skóla.
Semionov, sem er 21 árs að
aldri og kvæntur, var í síðustu
viku vísað úr Rfkiskennaraskól-
anum í Moskvu, aðeins sjö mánuð-
um áður en hann gat útskrifazt
eftir fimm ára nám. Sagði dr.
Sakharov að þetta hefði átt sér
stað eftir að kvörtun kom fram
frá herdeild skólans, en fullyrti,
að hér væri einungis um að kenna
tengslum Semionovs við sig.
„Þetta er hefnd fyrir félagsleg
afskipti mín og tilraun til þving-
unar“, sagði Sakharov.
í afriti af bréfi frá forseta
deildarinnar til rektors skólans
sagði, að Semionov hefði tvisvar
mistekizt á prófi við lok skyldu-
þjálfunar í hernum um sumarið
og hefði hann brotið heraga af
ásettu ráði.
Sakharov, á hinn bóginn, lýsti
því yfir að stjúpsonur sinn hefði
leyst af hendi fyrrgreind próf
Örlög
gíslanna
átta
óráðin
Brússel 10. nóv. Reuter.
POLISARIO-hreyfingin,
sem berst fyrir sjálfstæði
Vestur-Sahara og nýtur
fulltingis Alsírs, viður-
kenndi í dag að hún héidi í
gíslingu átta Frökkum.
Talsmaður hreyfingarinn-
ar í Evrópu, Alini Sayed,
skýrði svo frá, að heilla-
vænlegrar lausnar á máli
Frakkanna átta væri bráð-
lega að vænta.
Samtökin hafa haldið sex
gislanna síðan í maí, en
tveir í viðbót hurfu í
Máritaníu í síðasta mánuði.
Þótt mönnum væri ekki
grunnlaust um afdrif
þeirra, hafa skæruliðarnir
nú í fyrsta skipti gengizt
við að hafa rænt þeim.
Viðræður milli foringja
skæruliða og fransks sendi-
manns fóru út um þúfur
síðastliðinn sunnudag.
Sayed, talsmaður skæru-
liðanna, kvað þá reiðubúna
hvenær sem er að hverfa
aftur að samningaborðinu.
„Við sjáum lausnina fram-
undan“, sagði hann. Aftur
á móti lýsti hann því ekki,
hvenær skæruliðar hygð-
ust láta fangana lausa, eða
með hvaða skilyrðum.
með ágætri einkunn og væri með
hæstu nemendum á árinu. Bætti
Nóbelshafinn við að rannsókn
málsins hefði bersýnilega verið
framkvæmd á mjög hlutdrægan
hátt.
Sagði Sakharov, að e.t.v. þyrfti
Semionov að flytjast úr landi, ef
hann ætti að geta sinnt hugðar-
efnum sinum, einnig óttaðist
hann að verða kallaður í herinn,
þar eð hann væri ekki lengur í
skóla.
Liverpool
reisir
styttu af
Bítlunum
Liverpool 9. nóv.
Reuter.
BORGARRAÐ Liver-
pool ákvað í gær, að reist
skyldi st.vtta af Bítlun-
um, en áður hafði það
komizt að þeirri niður-
stöðu, að Bítlarnir væru
ekki þess verðugir.
Bítlarnir, sem allir eru
ættaðir frá Liverpool,
hættu fyrir sjö árum en
þeir voru frægir um all-
an heim. Sú ákvörðun
borgarinnar, að reisa
ekki styttu af þeim,
mætti mikilli andspyrnu
og þótti aðdáendum Bítl-
anna sem borgarráðið
sýndi þeim óvirðingu.
Lögun styttunnar hef-
ur enn ekki verið ákveð-
in, en ein hugmyndin er
sú að hafa bítlana í líki
kentára og hafa hátalara
inni í styttunni miðri
sem tónlist bítlanna bær-
ist sífellt frá.
Hefur stolið
3,511
reiðhjólum
Tokíó 9. nóv. AP.
LÖGREGLAN í Tokfó hefur
handtekið mann, sem kveðst
hafa stolið 3,511 reiðhjólum á
síðustu 45 árum.
Yukio Miyazaki, sem oft hef-
ur komizt undir manna hend-
ur, segir að þegar hann hafi
verið f fangelsi sfðast, hafi
hann hitt annan fanga, sem
stærði sig af þvf að hafa stolið
3.500 reiðhjólum. Yukio ákvað
að slá honum við og stal 71
reiðhjóli á tfmabilinu júlf til
október, er hann var handtek-
inn.
Reynslan hefur kennt Yukio
að fyigja eftirtöldum reglum:
stela alltaf ólæstum reiðhjól-
um, stela aldrei þegar rignir,
taka sér ávallt frí um helgar,
stela helzt á hjólreiðastæðum
og stela aldrei nýjum reiðhjól-
um, þar sem mun erfiðara sé
að selja þau en notuð.
Þessir skriðdrekar af gerðinni T-72 voru sýndir almenningi f fyrsta skipti á 60 ára byltingarafmælinu i
Moskvu. Hér drynja þeir yfir Rauða torgið í veglegri hersingu.
Hæstiréttur styður
fangelsun Bhuttos
Islamabad, 10. nóv. AP.
HÆSTIRÉTTUR Pakistans vísaði
á bug í dag beiðni eiginkonu
Zulfikar Ali Bhuttos fyrrverandi
forsætisráðherra um að honum
yrði sleppt úr haldi en skoraði á
leiðtoga herforingjastjórnarinn-
ar, Mohammed Zia UI Haq hers-
höfðingja, að boða til þingkosn-
inga eins fljótt og auðið væri.
Rétturinn sagði að pakistanska
þjóðin hefði yfirleitt sætt sig við
að herforingjastjórnin færi með
völdin í landinu til bráðabirgða,
en Zia yrði að standa við gefin
loforð um nýjar kosningar.
Forseti hæstaréttar, Anwarul
Haq kvað réttinn hafa fengið þær
upplýsingar frá lögfræðingi Zia
hershöfðingja að herforingja-
stjórin ætlaði að efna til kosninga
jafnskjótt og málaferlum gegn
Bhutto væri lokið.
Stjórnin hefur skýrt hæstarétti
frá þvi að búizt sé við að málaferl-
unum gegn Bhutto Ijúki eftir sex
mánuði og að kosningar verði
haldnar tveimur mánuðum síðar.
Bhutto hafði farið fram á að
hæstiréttur lýsti herforingja-
A síðustu átjári mánuðum hefur
bylgjutíðni innan sendiráðsins að
jafnaði ekki verið meiri en tvö
míkróvött. En nú brá svo við, eins
og talsmaður ráóuneytisins sagðj,
að síðan 7. september hefði hún
aukizt við og við í allt að klukku-
stund í einu. Til dæmis hefðu 9
míkróvatta hámarksstyrkleiki
mælzt tvisvar á þaki ráðuneytis-
Ali Bhutto.
stjórnina ólöglega, en rétturinn
neitaði að fallast á það sjónarmið.
Bhutto hefur sjálfur mætt fyrir
réttinum og haldið því fram að
Zia reyni að losa sig við leiðtoga
Pakistanska þjóðarflokksins.
ins ,en við opna glugga um sex
míkróvött á sama tima.
Kvörtunum hefur hvað eftir
annað verið komið á framfæri við
rússnesk yfirvöld og hefur utan-
ríkisráðuneytið lagt það verkefni
fyrir vísindamenn John Hopkins-
háskólans að kanna hugsanleg
langtíma áhrif útsendinganna á
heilbrigði manna.
Rétturinn sagði i svari við til-
mælum frú Bhutto að hann teldi
það ekki í sínum verkahring að
ákveða hvenær kosningar færu
fram. Urskurðurinn var sam-
þykktur einróma.
Sendi
mönnum
refsað
Belgrad, 10. nóv.
JUGÖSLAVNESK yfirvöld komu
í gær I veg fyrir blaðamannafund,
er kallaður var saman af fimm
áhrifamiklum þingmönnum
Norðurlandanna, eftir að þeir
höfðu dreift skjölum á öryggis-
ráðstefnunni f Belgrad.
Ráðstefna þessir fjallar um
meint brot Sovétmanna á mann-
réttindum, ofsóknir þeirra gegn
Gyðinum og endurskoðun Hels-
inki-samningsins frá 1975. Var
þingmönnunum sagt að þeir
hefðu ekki það leyfi, til fundar
haldsins er krafizt er samkvæmt
júgóslavneskum lögum. Er þetta
þriðja þingmannanefndin er beit
ir sér fyrir réttindum rússnesk’
um Gyðingum til handa á ráð-
stefnunni.
Fram kom á miðvikudag tillaga
frá Efnahagsbandalagslöndunum
niu, auk Kanada, Noregs, Portú-
gals og íslands, er kveður á um að
almenningi i kommúnistalöndum
Austur-Evrópu verði auðveldað
að fá vegabréf og brottfararleyfi.
Einnig er m.a. krafizt einföldunai
i meðferð mála og að tryggt sé að
menn sæti ekki málsókn eða missi
vinnuna, er þeir sækja um vega-
bréf.
Önnur tillaga segir að blaða
menn skuli ekki sæta gerræðis-
legum brottrekstri frá löndum
Austur-Evrópu.
Sendiráðsstarfsmenn
fá ekki frið í Moskvu
Washington 10. nóv., Reuter.
FRÁ ÞVÍ var skýrt f bandaríska utanríkisráðuneytinu í dag, að
örbylgjusendingar að bandaríska sendiráðinu í Moskvu hefðu magn-
azt, en ekki virtist sem heilsu starfsmanna stafaði enn hætta af.
Þú ert ung og sæt