Morgunblaðið - 04.12.1977, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.12.1977, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1977 Hestaalmanak Iceland Review fyrir Evrópu I ANNAÐ sinn er nú gefið út á alþjóðlegum markaði almanak til- einkað íslenzka hestinum. Hesta- almanakið 1978 hefur nýlega bor- izt til landsins — og á því eru 12 stórar, litprentaðar myndir af hestinum á íslandi — á öllum árstíðum. Þetta almanak er mjög stórt eins og hið fyrra — eða 42x56 cm. Eins og í fyrra standa Iceland Review og Boom Ruygrok í Hoi- landi að þessari útgáfu — í sam- vinnu við EEIF, sem er Evrópu- samband samtaka þeirra í ýmsum löndum, sem eigendur íslands- hesta hafa stofnað til, og eru félög í níu löndum í sambandinu. Almanakið er prentað í Hollandi og sjá hestamannafélögin í hinum ýmsu löndum um að koma því á framfæri við félagsmenn, en Ice- land Review flytur takmarkaðan hluta upplagsins hingað til lands. Mbl. innti Harald J. Hamar, rit- stjóra og útgefanda Iceland Review, eftir því í gær hvernig til hefði tekizt í fyrra — og sagði hann, að almanakið hefði fengið mjög góðar viðtökur á meginland- inu — og ekkert undanfæri að gefa það út aftur. Hann sagði að tafir hefðu hins vegar orðið á flutningi þess til landsins þá, það hefði ekki komið fyrr en um jól — og þvi lítill tími gefizt til að kynna almanakið hérlendis. Það litla, sem flutt var inn, seldist þó upp. ,,Það var fyrir beiðni FEIF að ég hafði frumkvæði að þessu á sínum tíma — og fékk til liðs við mig hollenzka prentsmiðju, sem bæði prentar almanakið og sér um dreifingu þess erlendis. Og þar eð þegar hefur komið í ljós að útgáfa þess er mjög jákvætt inn- legg í almenna íslandskynningu víða um lönd var ekki um annað að ræða en halda þessu áfram. Ég efast hins vegar ekki um að marg- ir íslendingar kunna að meta þessar flennistóru myndir jafnvel og fólk í útlöndum — og þess vegna tek ég smáhluta af upplag- inu hingað heim," sagði Haraldur. Hann lét þess hins vegar getið að eintakafjöldinn væri ekki það mikill að honum fyndist taka því að senda almanakið í verzlanir, heldur ætlar hann að dreifa þvi beint frá skrifstofu lceland Review. Fyrsta bréfskák- þinginu iokið JÓN Pálsson, Kópavogi, og Krist- ján Guðmundsson, Reykjavík, deila með sér titlinum Bréfskák- meistari Islands 1976, en þeir urðu efstir og jafnir á fyrsta bréf- skákþinginu hérlendis með 10,5 vinning hvor. í þriðja sæti varð Frank Her- lufsson, Ólafsfírði, með 814 vinn- ing, Áskell Örn Kárason, Reykja- vík, fékk 8 vinninga, Trausti Björnsson, Eskifirði, 7!4 vinning, Bjarni Magnússon, Reykjavík, 7 vinninga, Guðmundur Aronsson Lézt af heila- blóðfalli GUÐJÓN Tómasson, Grundar- gerði 8, Reykjavík, lézt á gjör- gæzludeild Borgarspítalans í fyrradag. Hann fékk heilablóðfall s.l. þriðjudagskvöld þar sem hann var að aka bíl sínum niður Lauga- veginn eins og Mbl. skýrði frá. Bíllinn lenti í húsagarði við Hátún. 6!4 vinning og í áttunda sæti varð Gunnar Finnlaugsson, Selfossi, með 6 vinninga. Á bréfskákþinginu var kepptí 4 styrkleikaflokkum og voru kepp- endur 50 talsins. Sigurvegarar í, B-flokki urðu Árni Stefánsson, Reykjavík, og Þórður Egilsson, Seltjarnarnesi, með 9 vinninga hvor og Haukur Kristjánsson, Hafnarfirði, og Árni B. Jónasson, Kópavogi, hlutu 8!4 vinning hvor. I C-flokki sigraði Magnús Þor- steinsson, Borgarfirði eystra, með 8!4 vinning og Björn Sigurpáls- son, Vík í Mýrdal, hlaut 7 vinn- inga. 1 fyrsta riðli D-flokks sigraði Gunnar Örn Haraldsson, Reykja- vik, með 7 vinninga af sjö mögu- legum og í öðrum riðli sigraði Jón Þ. Björnsson, Borgarnesi, með 5!4 vinning af sex mögulegum. Annað bréfskákþing Islands hefst 15. janúar n.k. og verður þá keppt í landsliðsflokki, meistara- flokki, 1. og 2. flokki. Nú stendur yfir landskeppni í bréfskák við Svía og tefia 20 keppendur tvær skákir. Staðan er nú 13!4 gegn 11Í4 Svíum í hag. Fyrir dyrum stendu'r önnur lands- keppni í bréfskák við Finna. Kastið ekki steinum Ný ljóðabók eftir Gunnar Dal MORGUNBLAÐINU hefur borizt Ijóðasafnið Kastið ekki steinum, eftir Gunnar Dal. Það er Víkurút- gáfan, sem gefur bókina út. Hún er 191 bls. að sta>rð og aftast er efnis.vfirlit, en formálsorð skrifar Jóhannes Helgi og kynnir hann Ijóðin með tilvitnunum. I for- málsorðum Jóhannesar Helga er minnt á, hve sjaldga-ft það sé, að prestar þjóðkirkjunnar skreyti ræður sínar með tilvitnunum í lifandi Ijóðskáld og noti helzt ekki Ijóð annarra en dauðra höf- unda, „sem nánast jafngildir lög- gildingu". Jóhannes Helgi minnir jafnframt á það í formálanum, að „heil háskóladeild er á launum Framhald á bls. 31 Frá hinum rúmgóðu salarkynnum Bókasafns Vestmannaeyja. A efri mvndinni er Haraldur Guðnason bókavörður að ganga í salinn, en neðri mvndin er frá opnun nýja safnsins. Ljósmvndir Mbl. Sigurgeir Jónasson. 1000 bækur lánað- ar út fyrsta daginn Bókasafn Vestmannaeyja í nýju og glæsilegu húsnæði BÓKASAFN Vestmannaeyja opnaði í nýjum húsakynnum i Safnahúsi Vestmannaeyja s.l. fimmtudag, en hið nýja hús- næði bókasafnsrns er um 600 fermetrar að stærð auk geymslu í kjallara. Sámkvæmt upplýsingum Haralds Guðna- sonar bókavarðar eru um 24 þús. bindi í Bókasafni Vest- mannaeyja en það var stofnað árið 1862 og var Bjarni Einar Magnússon sýslumaður for- vígismaður að stofnun þess ásamt séra Brynjólfi Jónssyni á Ofanleiti og Jóhanni Pétri Bryde. Fjöldi gesta var við opnunina og voru safninu færð- ar margar gjafir, m.a. bækur, myndir, blóm og Kiwanis- klúbburinn Helgafell gaf safn- inu 250 þús. kr. til húsbúnaðar. í stuttu spjalli við Harald bóka- vörð sagði hann, að safnið hefði flutt alls 9 sinnum að öllu leyti eða að hluta síðan hann tók við starfi bókavarðar 1949, en að- sókn að safninu hefur stöðugt aukizt. miklir áhugamenn um bækur. Á föstudag, fyrsta dag eftir opnun, var geysileg um- ferð í safninu og voru lánaðar út yfir 1000 bækur á þeim 4 klukkustundum sem safnið var opið. Var margt um manninn og höfðu margir orð á þeim miklu breytingum sem orðið hafa í aðstöðu safnsins. M.a. • var barnadeildin. sem er sú stærstá á landinu, þétt setin allan dag- inn. Árið 1976 voru lánuð út úr safninu 47 þús. bindi og var það nýtt met hjá safninu, en þó var safnið þá til húsa í aðeins einni skólastofu í Barnaskóla Vest- mannaeyja. Meðal gjafa sem safninu bár- ust var einnig bóka- og fata- kista Bjarna sýslumanns, en Bátaábyrgðarfélag Vestmanna- eyja gaf safninu hana. Áður hafði Páll Arnason bóndi í Þorlaugargerði vestra átti kist- una. Versnandi sætanýting bíóanna SÆTANÝTING kvik- myndahúsanna versnaði á árinu 1976 frá því sem var árið næst á undan. í Reykjavík var sætanýting kvikmyndahúsanna 30,8% á móti 32,2% 1975 og í öðr- um kaupstöðum landsins var sætanýtingin 38,8% á móti 41,3% árið 1975. Tala sýningargesta hækkaði lítillega, en á móti kom, að sýningum fjölgaði einnig, þannig að í raun var um minnkandi heildaraðsókn að ræða. Þrjú fram- boð í Eyjum FRAMBOÐSFRESTUR til próf- kjörs sjálfstæðismanna í Vest- mannaeyjum rann út í gær og bárust þrjú framboð, frá Arna Johnsen, blaðamanni, Birni Guömundssyni, útgerðarmanni, og Guðmundi Karlssyni, for- stjóra. Prófkjörið fer fram dagana 10. og 11. desember, en utan- kjörstaðakosning verður í Vest- mannaeyjum og Reykjavík 7., 8. og 9. desember. Af 247 kvik- myndum voru 160 bandarískar AF 247 löngum kvikmyndum sem sýndar voru í kvikmyndahúsum Reykjavíkur í fyrra voru flestar bandarískar, eða 160, en alls voru sýndar 247 kvikmyndir. Næstflestar voru brezkar kvik- myndir 31, frá Ítalíu komu 21, frá Frakklandi 13, Svíþjóð 10, Dan- mörku 5, V-Þýzkalandi 3, frá Tékkóslóvakíu 2 og ein frá Noregi og ein frá Póllandi. Færeyskir leikarar í heimsókn: „Samvinnan við Islendinga hef- ur ávallt borið góðan árangur” TVEIR færeyskir leikarar Elin Mouritsen og Öskar Hermanns- son, frá Havnar Sjónleikafélagi hafa dvalið í Reykjavík s.l. viku til þess að kynna sér það sem er á fjölunum í leikhúsum borgar- innar um þessar mundir, efla samvinnuna við íslenzkt leik- húsfólk og afla fanga fyrir leik- félagið í Þórshöfn. Mun ákveöið að Saumastofan eftir Kjartan Ragnarsson verði sett á svið í Færeyjum næsta haust. Mun Oskar þýða leikritið á fære.vsku, en Elin mun leikstýra því. Öskar og Elín eru i hópi kunnustu leikara Færeyja. Öskar vann á Islandi sem prentari um árabil og Elín er fædd hér á landi en hefur lengst af átt heima í Færeyjum. „Ferð okkar hingað er í fram- haldi af dvöl Steindórs Hjörleifs- sonar hjá okkur í haust við að sviðsetja Hitabylgju. Þegar Stein- dór dvaldi hjá okkur fórum við að tala um næstu verkefni fyrir Havnar Sjónleikafélag og talið barst að Saumastofunni," sagði Elín, „en þess má geta að sam- bandið milli Leikfélags Reykja- víkur og Havnar Sjónleikafélags hefur lengi verið mjög gott og við höfum oft fengið aðstoð og hjálp frá Islandi, leikstjóra og fleira." „Þessi samvinna við Islendinga hefur ávallt borið ■góðan árangur," sagði Óskar, „en með ferð okkar hingað vildum við einnig sjá hvað þið eruð að gera hér í leikhúslífinu og einnig vinnum við að því aö auka sam- skipti leikfélaganna, fylgjast með þróuninni. Við leitum út til þess að fá innblástur og þá er gott að koma til tslands, nú förum við í gegnum verkefni leikhúsanna og Havnar Sjónleikafélag sýnir um þessar mundir Hitabylgju ?em Leikfélag Reykjavíkur sýndi fyrir skömmu, en aðsókn að Hita- bylgju i Færeyjum hefur verið sérstaklega góð og er nú búið að sýna verkið 31 sinni og verður sýningum haldið áfram eftir ára- mót. Alls hafa rúmlega 5000 manns séð Hitabylgju, en Óskar kvað talsvert um það að fólk utan af landsbyggðinni í Færeyjum kæmi á sýningar í Þórshöfn eftir að hið góða vegasamband komst á um Eyjarnar. tölum við leikhúsfólk." Elín og Öskar. Ljósmynd Mbl. RÁX.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.