Morgunblaðið - 08.01.1978, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1978
brenna
Álfa-
ÞAÐ var mikið um dýrð-
ir á Smárahvammsvelli í
Kópavogi í fyrrakvöld er
þar fór fram álfabrenna
á þrettándanum. Álfa-
drottning og kóngur
komu í heimsókn og púk-
ar voru á ferð með blys.
Ennfremur birtust síð-
ustu jólasveinarnir, sem
kíktu við á leið sinni
heim í fjöllin. Margt
fleira var til skemmtun-
ar og álfabrennunni lauk
með flugeldasýningu.
Það var Björgunarsveit-
in Stefnir í Kópavogi,
sem hafði veg og vanda
af brennunni og dag-
skráratriðum. Meðfylgj-
andi myndir tók RAX á
Smárahvammsvelli í
fyrrakvöld.
Sveinn á Egils-
stöðum 85 ára
SVEINN Jónsson á Egilsstöðum,
einn mesti bændahöfðingi lands-
ins er 85 ára í dag. Sveinn er
landskunnur maður, sem gengt
hefur fjölmörgum trúnaðarstörf-
um fyrir bændur sem heima-
byggð sína, þar sem hann hefur,
tekið virkan þátt í sveitar-
stjórnarmálum. Hann hefur verið
búnaðarþingsfulltrúi í áratugi og
átt sæti í stjórn Búnaðarsam-
bands Austurlands. Þá hefur
hann um langt árabil verið bæði
oddviti Vallarhrepps og Egils-
staðahrepps.
Morgunblaðið sendir Sveini á
Egilsstöðum og fjölskyldu hans
árnaðarsókir á þessum merkis-
degi í lífi hans.
Útlánaþak fyrir
árið 1978 ákveð-
ið í næstu viku
1 NÆSTU viku verður haldinn
fundur Seðlabankans og við-
skiptabankanna til þess að ákveða
útlánatakmörk fyrir næstu mán-
uði og á þessum fundi verður
væntanlega ákveðin útlánastefna,
sem fylgja ber á þessu ári.
Samkvæmt upplýsingum Jónas-
ar Haralz bankastjóra Landsbank-
ans var útlánaþakið á siðastliðnu
ári miðað við 20% aukningu fyrir
utan endurseld lán. Það var svo
misjafnt hjá hinum einstöku
bönkum hvert markið var. Jónas
sagði að I lánsfjáráætlun ríkis-
stjórnarinnar, sem lögð var fyrir
Alþingi fyrir jólin, hefði verið
gengið út frá vissri útlánahækkun
hjá bönkunum eða rétt um 30%.
Hann sagði að á fundinum í næstu
viku yrði stefnan endanlega
mörkuð og væri ljóst að útlána-
markið yrði sett vel fyrir innan
verðbólgustigið.
Rafsuða orsakaði
brunann á Hrauki
— bóndinn kastaðist nokkra metra
er hann reyndi að komast að eldinum
TJÓNIÐ vegna eldvoðans að
Hrauki í Þykkvabæ s.l. miðviku-
dag hefur ekki verið kannað til
hlftar, þó liggur Ijðst fyrir að
tjónið vegna eyðileggingar þeirra
sex hundruð tunna af kartöflum
sem urðu eldinum að bráð nemur
að minnsta kosti 8 milljónum
króna sagði Eðvald Malmquist
ráðunautur f samtali við Morgun-
blaðið f gær.
Aðdragandinn að þessu er að
verið var að vinna við flokkun á
kartöflum, þá varð smábilun og
bóndinn þurfti að rafsjóða og lag-
færa. Síðan var gengið frá
geymslunni um kvöldið, en klukk-
an átta um morguninn þegar
bóndinn ætlaði að taka til þá
sendingu sem átti að fara á
Reykjavíkurmarkaðinn, þá þeytt-
ist hann frá dyrunum nokkra
metra og var þá kartöflugeymslan
sem er um 300 ferme.trar full af
reyk og gasi.
Síðan tókst bóndanum að koma
hurðinni aftur og hringt var á
hjálp á nærliggjandi bæi, en
þarna er mjög stutt milli bæja. og
ennfremur á slökkviliðið á Hvols-
velli, sem kom innan tíðar. En það
sem bjargaði því að þarna varð
ekki enn meira tjón en raun ber
vitni var fyrst og fremst það, að
milli 10 og 20 bændur komu þar
að með handslökkvitæki og tókst
með hjálp þeirra að halda eldin-
um niðri, þar til slökkviliðið á
Hvolsvelli kom á staðinn. Heildar-
tjón af völdum brunans er mjög
mikið, á húsi og góðri geymslu,
sem byggð var 1948 og eins og
áður segir eyðilögðust um 600
tunnur af kartöflum að verðmæti
um 8 milljónir króna, sagði Eð-
vald að lokum.
Haustsýning í Ás-
grímssafni að ljúka
I DAG lýkur haustsýningu
Ásgrímssafns. Myndirnar á
sýningu þessari eru málað-
ar á hálfrar aldar tímabili,
og nær eingöngu vatnslita-
myndir. Nokkrar þeirra
eru haustmyndir frá Þing-
völlum.
Safnið verður lokað um
tíma, en næsta sýning þess
verður hin árlega skólasýn-
ing.
Ásgrímssafn, Bergstaða-
stræti 74, er opið í dag frá
1,30—4.
Bankastarfsmönnum
óheimilt að starfa ut-
an bankans án leyfis
1 FRAMHALDI frftta þess efnis
að Haukur Heiðar fyrrverandi
deildarstjóri Ábyrgðardeildar
Landsbanka Islands hafi setið I
stjórn hlutafélagsins Dropans í
Reykjavfk, sem stjórnarfor-
maður, kannaði Morgunblaðið á
hvern hátt væri háttað reglum um
réttindi starfsmanna Landsbank-
ans til að taka þátt í atvinnu-
rekstri.
„I reglugerð um þetta segir, að
starfsmenn bankans megi ekki
hafa á höndum launað starf, né
stunda aðra atvinnu ne'ma með
leyfi bankastjórnarinnar", sagði
Jónas H. Haralz bankastjóri
Landsbankans í samtali við Mbl. í
gær.
— „Nú getur það auðvitað
verið álitamál hvað er að stunda
atvinnurekstur, en það eru til for-
dæmi fyrir því að seta í stjórn
fyrirtækja krefjist samþykkis
bankans. Deildarstjóranum fyrr-
verandi hefur því verið alveg
óheimil þessi þátta, þar sem hún
var ekki með vitund bankans,
sagði Jónas H. Haralz bankastjóri
að lokum.
Lá við
stórtjóni
hjá Fróni
MINNSTU munaði að stórtjón
yrði í kexverksmiðjunni Fróni
þegar eldur kom upp á 1. hæð
verksmiðjunnar laust fyrir há-
degi í gær.
Mikill eldur var i húsinu en
þegar slökkviliðið kom á vettvang
hafði hann slokknað af sjálfsdáð-
um, líklega vegna skorts á súr-
efni. Töluvert tjón varð i verk-
smiðjunni jafnvel þótt svona vel
hafi til tekizt.
Laust eftir hádegi kom upp eld-
ur í mannlausu herbergi á 4. hæð
háhýsisins í Æsufelli 4. Mikill
reykur barst um ganga hússins
áður en slökkviliðið réð niðurlög-
um eldins.