Morgunblaðið - 08.01.1978, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JANUAR 1978
15
„Þegar skammt var liðið á myndina tók
Bokassa að gerast ófrýnn í framan”
(Sjá: Misheppnuð krýning)
NATTURUHAMFARIR
Er hægt að
hemja felli-
byljina?
FELLIBYLJIR valda, eins og
kunnugt er, gífurlegu tjöni á ári
hverju, bæði mann- og eignatjóni.
Lengst af'hefur orðiö lítið um
varnir við þessum náttúruham-
förum. Að vísu verður byljanna
oft vart alllangt undan löndum,
svo að menn geta forðað sér
þaðan, sem þeim er mest hætta
búin. En það er auðvitað helzt í
þeim löndum þar sem samgöngur
eru greiðar að menn eiga sér und-
ankomu von; í vanþróuðum ríkj-
um eiga menn yfirleitt engan
kost en eru til neyddir að bíða
þess, sem verða vill, enda valda
fellibyljir þar oftlega miklum
hörmungum. Er t.d. skammt að
minnast þess, er fellibylur varð
að bana 20 þúsundum manna á
Indlandi.
Það eru því gleðitíðindi að nú
hyllir undir það, að takist að eyða
fellibyljum á hafi úti áður en þeir
ná löndum, eða draga svo úr þeim
kraft, að þeir valdi tiltölulega
litlu tjóni. Bandaríska haffræði-
og loftfræðistofnunin hefur geng-
izt fyrir tilraunum um þetta. Eru
þær byggðar á rannsóknum
Tilraunastofnunar í veðurfræði,
sem mjög hefur fengizt við athug-
anir á fellibyljum. Það er engin
furða, að Bandarikjamenn beita
sér fyrir þessu; fellibyljir ganga
þar upp á land nokkrum sinnum á
ári hverju og valda miklum usla,
eins og kunnugt er úr fréttum.
Við tilraunirnar eru notaðar
tvær leitarflugvélar af Lockheed-
gerð, sérstaklega búnar við felli-
byljum, en þeim til aðstoðar eru
þrjár vélar aðrar. Áhafnir vél-
anna fylgjast með byljunum
langar leiðir, mæla stefnubreyt-
ingar, stækkun, hvirflamyndun
o.fl. Þegar hvirfill myndast í byln-
um má dreifa í hann ísi og fer þá
að rigna. Það getur skipt miklu,
því að byljir bera oft í sér geysi-
legt vatnsmagn upp á land og
valda stórflóðum.
Eins og fyrr sagði hefur löngum
orðið lítið um varnir við fellibylj-
um. Hins vegar hafa menn lengi
verið að reyna að finna ráð við
þeim. Hingað til hefur lítt gengið
að draga kraft úr þeim, en aftur á
móti hefur ,,fellibyljaspá-
mennsku" fleygt mjög fram,
einkum síðast liðna þrjá áratugi.
A fyrri hluta aldarinnar var hlut-
fall manntjóns og eignatjóns af
völdum fellibylja í Bandaríkjun-
um nálægt því, að 400 manns biðu
bana er 10 milljóna dollara eignir
eyðilegðust. En nú orðið lægzt að
jafnaði aðeins einn maður er 10
milljóna eignir eyðileggjast i felli-
byl. Og þess skyldi gætt, að eigna-
tjón í fellibyljum er yfirleitt mun
minna nú en áður var. Hlutfallið
hefur líka breytzt þeim mun
meira til batnaðar.
Tilraunir þær, sem nú fara
fram á vegum Loftfræðistofnun-
arinnar bandarísku „miða ekki að
því að berja fellibyljina niður,
heldur stinga á æð svo að þeim
blæði út“, eins og segir í fregnum,
og er þessi líking ekki fjærri lagi.
Þannig er mál með vexti, að felli-
byljir verða til yfir heitum
höfum, þegar lægðir ganga þar
yfir. Kalt loftið sýgur upp heitan
raka og lyftist í miðri lægð. Nýtt
loft streymir þá inn í staðinn. Það
streymir hratt og hraðinn eykst
stöðugt og getur numið 100 hnút-
um eða meiru nálægt miðju.
Snúningur jarðar veldur þvi, að
suðurjaðar fellibyls á norðurhveli
dregst í austurátt og loftmassinn
fer að snúast rangsælis; á suður-.
hveli mundi hann snúast réttsæl-
is. Þannig æðir hann áfram þang-
að til hann eyðist. En nú er það
ætlun vísindamanna að reyna að
komast í tæka tíð að loftsúlunni,
sem verður i miðjunni og áður var
getið — og dreifa ís þar yfir, svo
að fari að rigna áður en b.vlurinn
kemur upp á land. Þannig vonast
þeir til þess að geta komið í veg
fyrir stórflóð og auk þess dregið
afl úr bylnum að því marki a.m.k.
að hann rífi ekki þök af húsum.
— ANDREW WILSON.
„Lísa“ hét mannskæóasti fellihylurinn sem geklwfir Mexico á síðast-
liðnu ári. Hér húkir fjölskylda í rústum heimilis síns. Bylurinn
grandaði að minnsta kosti 600 mönnum.
REYKINGAR
Fimm ára
áætlunin
og tóbakið
1 Sovétríkjunum er komin upp
mikil deila um tóbaksreykingar.
Heilbrigðismálaráðuneytið hefur
gengizt fyrir blaðaherferð gegn
reykingum og vill nú láta prenta
aðvaranir á sígarettupakka, svo
sem tíðkast víða á vesturlöndum.
Landbúnaðarráðuneytið og ráðu-
neytið fyrir léttaiðnað hafa bins
vegar lagzt eindregið gegn þessu.
Heilbrigðisyfirvöld í Sovét-
ríkjunum hafa lýst yfir þungum
áhyggjum af því, að reykinga-
mönnum fari stórfjölgandi, og
einkum þvi, að það sé orðið
óhugnanlega algengt, að börn um
fermingaraldur reyki að stað-
áldri. Létu yfirvöldin athugatíðni
reykinga ekki alls fyrir löngu og
kom þá i ljós, að fleiri en 60%
sovézkra karla reyktu, en 10%
kvenna. Hafa tóbaksreykingar
aukizt jafnt og þétt þrátt fyrir
mikinn áróður yfirvalda gegn
tóbaki. Konur eru og farnar að
reykja í meiri mæli en áður fyrr.
Kemur það heim og saman við
niðurstöður könnunar, sem fram
fór á vegum Alþjóðlegu heil-
brigðisstofnunarinnar. Þar kom í
ljós, að lungnakrabbi verður æ
algengari meðal kvenna og er það
talið stafa m.a. af breyttum við-
horfum þeirra til reykinga.
Menntamálaráðuneytið sovézka
bannaði nýlega reykingar í skól-
um og lagði svo fyrir, að upp
skyldi tekin almenn skyldu-
fræðsla um reykingar og hætturn-
ar af þeim, jafnt í grunnskólum
sem og æðri skólum. Þá hafa
íþróttayfirvöld bannað tóbakssölu
á íþróttaleikvöngum og lagt einn-
ig bann við reykingum á sund-
stöðum og íþróttahúsum. Reyk-
ingar eru líka bannaðar á veit-
ingastöðum, og í leikhúsum viða,
svo og í samgöngutækjum. Þó má
reykja i flugvél, ef flugferðin tek-
ur meira en fjóra tíma. . . Loks má
nefna, að Heilbrigðisráðuneytið
hefur bannað læknum og öðru
hjúkrunarliði að reykja í viður-
vist sjúklinga og nema.
Deila ráðuneytanna þriggja um
Framhald á bls. 32.
lands, Botros Ghaly, kvæntur
Gyðingi. Dálkahöfundur nokkur,
Mustapha Amin, komst og svo að
orði í dagblaði í Kaíró fyrir
skömmu, að örðugleikar Gyðinga í
Egyptalandi hefðu eingöngu ver-
ið að kenna illindum EgyjTta og
ísraelsmanna. Egyptar hefðu í
rauninni aldrei verið andsnúnir
Gyðingum. „Það hefur aldrei þótt
löstur á manni hér í landi, að
hann væri Gyðingur. Þess má líka
minnast, að Gyðingur var kosinn
á þing hér árið 1924 og urðum við
t.d. langt á undan Bandaríkja-
mönnum til þess“. Annar framá-
maður í Kaírö tók svo til orða, að
Gyðingar væru börn guðs, rétt
eins og kristnir menn og Mú-
hammeðstrúarmenn og það væri
synd að níðast á þeim ...“ En
málsvari Gyðinga í Kaíró hafði
þetta að segja: „Komist Egyptar
og ísraelsmenn að friðarsamning-
um munu margir egypzkir Gyð-
ingar vilja snúa heim aftur. Og
það væri ágætt í sjálfu sér. En
þess ber þó að geta, að það mundi
valda ýmsum fyrirsjáanlegum
vanda. Til dæmis að nefna, yrði
að útvega þessu fólki íverustaði
og atvinnu. A hinn bóginn er á
það að líta, að margir egypzkir
Gyðingar erlendis eru í góðum
efnum og ófáir auðugir og það
yrði til hagsbóta, ef þeir hefðu
eignir sínar með sér ...“
— CHAYAM BHATIA.
:a gerðist líka ...
Mansal
Vestur-þýsk stjórnvöld gerðu æði óvenjuleg „jólainnkaup“ að þessu
sinni. segir í frétt í London Times. Þau heimtu sumsé um áttatíu
Vestur-Þjóðverja úr austur-þýskum fangelsum gegn „allverulegri"
lóknun fyrir hvern og einn, eins og það er orðað í fréttinni. Sumt af
iessu fólki hafði verið fangelsað fyrir að re.vna að hjálpa austur-
jýskum borgurum að forða sér yfrum múrinn, en annað verið handtek-
íð fyrir hrot á gjaldeyrislöggjöf Austur-Þjóðverja eða jafnvel fyrir
umferðarlagabrot. Um fjögur hundruð Vestur-Þjóðverja gista samt
ennþá fangelsin á þessum slóðum.
A uppleið
Ef allt fer sem horfir verður
þrjátíu og átta ára gömul móðir
fyrsta „geimkona" Bandarikja-
manna. Geimferðastofnunin
þeirra þar vestra tilkynnti nafn
hennar núna undir áramótin og
lét fjölmiðlum samtímis f té
aðskiljanlegar myndir af
frúnni í geimfarabúningi og
meðal annars þá sem hér flýtur
með. Geimfreyjan væntanlega
heitir Ann Whitaker og er
eðlisfræðingur að mennt og á
eina dðttur barna. Hún er bú-
sett í Huntsville í Alabama og
vinnur í geimferðastöð sem þar
er staðsett.
Hálft tonn á klukkustund
Það er langtum of mikið á þær -lagt. stúlkurnar sem standa við
peningakassana í stóru sjálfsafgreiðsluverslununum. Sú er að minnsta
kosti skoðun stjórnskipaðrar nefndar vestur-þýskrar, sem á dögunum
gerði opinberar niðurstöður rannsóknar, sem hún lét gera í svona
verslunum. Jafnvel heilsu þessara kvenna er stefnt í voða (segir í
álitinu) enda liggi það fyrir, að þá annir séu mestar handleiki þær allt
að hálfu tonni af varningi á klukkutíma; og þegar mest gengur á —
á föstudögumsíðdegisogframað
hádegi laugardagsins - fara allt
að sex tonn af vörum um hend-
urnar á sömu afgreiðslustúlk-
um. — í skýrslunni er líka
fundið að aðbúnaði fyrrgreinds
starfsfólks á vinnustað. Ba'ði er
haft orð á að hávaðinn sé einatt
jærandi og að auki séu básarnir
þar sem afgreiðslan fari fram
iðulega „of þröngir og kaldir".
Villta vestrið heldur austur
Fyrsta sovéska kúrekamyndin er loksins að sjá dagsins Ijós að
hermir í Reutersskeyti. Hún heitir meira að segja því æsispennandi
nafni: „Vopnaður og stórhættulegur". Þetta er þó ekki fyrsta kúreka-
myndin sem framleidd er austan tjalds. Austur-Þjóðverjar hafa til
dæmis búið til svona myndir um nokkurra ára skeið. En hinni
hefðbundnu athurðarás er aftur á móti kúvent hjá þeim. Þarna um
slóðir eru indíánarnir nefnilega hafðir fyrir hetjurnar en hvítu
mennirnir eru þorpararnir.
Misjafnlega illt
Samkvæmt skýrslu sem birt var í Washington íiúna undir áramótin,
sitja nú fleiri saklausir menn í fangelsum í Argentínu einni saman en
í öllum hinum Suður Ameríkuríkjunum samanlögðum. Ekkert land í
gjörvallri álfunni er þó með hreinan skjöld í þessum efnum, að tekið
er fram í skýrslunni. Ásamt með Argentínu skeyta Uruguay og Chile
minnst um almenn mannréttindi, og í Paragua.v, Bolivíu. Niearagua,
E1 Salvador og Guatemala er ástandið litlu skárra. Venezuela fær
oiiina skásta einkunn, og Brazilíumenn eru lieldur sagðir vera að taka
sig á.
Skáldið & skattarnir
Það fer ekki hátt, en
Svisslendingar telja sig
eiga allt að 1>00,000
franka (ta'par 53 milljón-
ir) hjá Alexander
Solzhenitsyn í vangoldn-
uin sköttum. Þeir munu
| þegar hafa gert honum
| reikning upp á þetta, en
' fara samt undan í flæm-
| ingi þegar fréttamenn
I spyrjast fyrir um málið.
„Við erum í sambandi við
I skáldið," er svarið hjá
I skattheimtunni í Ziirich.
Solzhenitsyn var búsettur þarna frá þvi I febrúar 1974 þar til í ágúst
I 1976 þegar hann tók sér bólfestu í Bandaríkjunum. En áður en
| Sovétmenn fluttu hann nauðugan úr landi, voru tekjur hans af þeim
. ritverkum. sem gefin voru út á vesturlöndum, lagðar inn á svissneskan
I bankareikning.