Morgunblaðið - 08.01.1978, Síða 18

Morgunblaðið - 08.01.1978, Síða 18
18 MÖRGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JANUAR 1978 Rœtt við Helga Támasson Helííi Tómasson ísaml Marlyn konu sinni og sonunum tveimur, Kristni 11 áraog Erik 6 ára. Fyrir nokkuð mörgum árum gekk ungur, fríður maður á fund mððurbróður síns og ræddi við hann um framtíðaráætlanir sínar. Frændinn sem bar hag unga mannsins fyrir brjósti og þótti hann hinn efnilegasti ráðlagði honum að fara í háskólanám í stað þess að leggja fyrir sig ballett, sem væri nú frekar við hæfi kvenfólks en karlmanna. Pilturinn var ekki sama sinnis, ballettinn átti hug hans allan en hann vildi engu að síður ráðfæra sig við sér eldri og reyndari. Frændinn reyndist skilningsríkur og ráðlagði unga manninum að koma til sín að viku liðinni, skyldi hann á þeim tíma hugsa sig vandlega um og ef hann væri enn sama sinnis skyldi honum veittur allur sástyrkur er fjölskyldan gæti látið honum í té. Vika leið og ungi maðurinn hitti frænda sinn aftur. „Nú hef ég hugsað málið vel og vandlega,“ sagði hann. „Að hvaða niðurstöðu hefur þú kom- izt?“ spurði frændi hans. „Ég hef hugsað um flesta þá möguleika bæöi í námi og starfi, sem gætu hugsanlega komið til greina. Ég hef aðeins komizt að einni niðurstöðu og hún er sú að ég vil dansa.“ Frændinn gerði sér ljóst að piltinum yrði ekki snúið og sagði því: „Ef svo er skaltu stefna að einu og það er að komast eins langt og þú getur. Þú skalt stefna hærra en þig kannski dreymir um innst inni að þú nokkurn tíma náir. Þú skalt stefna á toppinn og þú skalt stefna að því að halda þér á toppnum." Þegar frændinn gaf þessi ráð hefur hann ef til vill ekki órað fyrir því að hinn ungi systursonur hans ætti eftir að ná eins langt og hugur hans stefndi. Helgi Tómasson er í dag í röð fremstu ballettdans- ara í heimi. Vegurinn til frægðar og frama hefur verið þyrnum stráður. Hann er yngsti íslendingur- inn sem sæmdur hefir verið riddarakrossi (1974), hann er heiðursborgari í New Orleans-fylki í Banda- ríkjunum, þar sem hann dansaði með Harkness- ballettinum. Hann hlaut silfurverðlaun í listdans- keppninni í Moskvu árið 1969 en stærsti sigur hans sem ballettdansara er þó líklega sá að tveir fremstu listdanshöfundar í heiminum í dag semja verk sér- staklega fyrir hann, þeir George Balenchine og Jerome Robbins hjá New York City Ballet, þar sem Helgi hefur dansað síðastliðin sjö ár. Sá dansflokkur þykir ekki aðeins einn sá fremsti í Bandaríkjunum heldur í heiminum öllum. „Glæsileiki hans og tign hafa aldrei komið betur í Ijós" ,,Mér var þó einu sinni tjáð að ég gæti aldrei komizt að hjá New York City Ballet af því að ég vaéri of lágvaxinn,“ sagði Helgi Tómasson í samtali við Morgunblaðið rétt áður en hann hélt aftur til New York eftir að hafa dansað á fjölum Þjóðleikhússins í Hnotubrjótn- um. Aður en Helgi kom til Islands ásamt fjölskyidu sinni var hann fenginn til að dansa Alþrecht í Giselle í Óperunni í París með elzta listdansflokki í Evrópu. Helgi dansaði hlutverk Al- brechts þrjú kvöld í röð við geysilega góðar undirtektir. „Þetta var mikill heiður sem og viðurkenning fyrir mig. Rússneska dansaranum Barys- nikov var einnig boðið að dansa á sviði Parísaróperunnar og fór hann síðar í desembermánuði eða á eftir mér. Hann hefur verið einn aðaldansari við New York City Ballet í langan tíma.“ Bandaríski listgagnrýnand- inn Clive Barnes, ógnvaldur flestra listamanna þar um slóð- ir, skrifaði meðal annars um Helga i hlutverki Albrechts: „Stjarna New York City Ballettsins, Helgi Tómasson, átti miklum sigri að fagna i fyrsta sinn, sem hann dansar á fjölum Óperunnar. Mótdansari hans var Noella Pontois. Dans þeirra í Giselle var listviðburð- ur í París ... Helgi Tómasson hefur áður spreytt sig á hlut- verki Albrechts, ekki oft — hér hlotnaðist honum tækifæri til að dansa hlutverkið þrjú kvöld í röð við stórkostlegar undir- tektir. Hann var frábær. Þetta tilefni kallaði fram í honum þá sérstöku einbeitni, sem hann býr yfir. Glæsileiki hans og tign hafa aldrei komið betur í Ijós. Dans hans og Pontois var hrein unun.“ „Það takmark hefur fært mig þangað sem ég er kominn nú" Helgi Tómasson þykir einn þeirra fáu listdansara, sem ekki reynir að troða eigin persónu- leika fram í sviðsljósið enda segir hann sjálfur enn sem fyr,r að ekkert skipti máli á sviðinu nema dansinn. Það er ekkert óekta við hann, skrifaði einn gagnrýnandinn. Hann reynir ekki að helga sér hlutverkið heldur helgar hann sig hlut- verkinu. Óhætt mun að fullyrða um að fáa íslenzka listamenn hefur eins mikið verið skrifað á erlendum vettvangi og Helga Tómasson. En það virðist í fáu hafa breytt persónuieika mannsins ef tekið er mið af framkomunni, sem er látlaus og hógvær. Ur svip hans öllum skín þó ákveðni, einkenni þeirra, sem hafa sett sér visst takmark og náð því. Það hefur ekki verið dans á rósum fyrir Helga Tómasson. „Það er erfitt að halda sér á toppnum þegar þangað er kom- ið,“ segir hann. „Því lengra sem maður nær, því harðar verður maður að leggja að sér. Sam- keppnin er hörð og því meiri sem frægðin er því kröfuharð- ara verður fólkið og um leið ég sjálfur. Það er enginn tími til hvíldar og svo kemur að því að líkaminn getur ekki meira. Starfsævi ballettdansara er stutt en meðan hún varir verð- ur maður að leggja alla sál sína og allan sinn kraft í dansinn. Hvað viltu fá út úr lífinu er sú spurning sem vegur þyngst á metunum. Sumir þola ekkí það taugastríð, sem fylgir frægð- inni og auknum kröfum. Fyrir suma dansara er það nóg að dansa — en ég hef alltaf stefnt að fullkomnun i dansinum, henni hef ég að sjálfsögðu ekki náð en það takmark hefúr fært mig þangað sem ég er kominn nú.“ Helgi Tómasson er annar að- aldansarinn við New York City Ballet, hinn heitir Peter Mar- tins og er danskur, alger and- stæða Helga í útliti, mjög há- vaxinn og Ijós yfirlitum. „Balenchine, aðalhöfundur New York City Ballettsins, er eins og Picasso meðal dansara,“ segir Helgi. „Hann flúði frá Rússlandi tvítugur að aldri en hann er um sjötugt núna og þykir einn sá fremsti í sínu fagi. Hann hefur breytt svip ballettsins, skapað alveg nýjan stíl og þykir mjög framúr- stefnulegur. Ahrifa hans í ball- ettinum gætir út um allan heim.“ „Á sigurinn í Moskvu var lítið minnzt" „Eins og við vitum er heims- pressan mjög pólitísk og það er hún sem ræður mestu um frægð manna. Frægustu list- dansarar heims síðustu áratugi hafa flestir verið rússneskir flóttamenn, eins og til dæmis Rudolf Nurejev en því er ekki að neita að hann var virkilega góður dansari. Vart er þó til sú blaðagrein skrifuð um hann, þar sem þess er ekki getið að hann sé rússneskur flóttamað- ur. Þegar ég vann silfurverð- launin í Moskvu árið 1969 hringdi i mig fréttaritari frá einu bandarísku stórblaðanna og vildi hafa við mig viðtal. Er leið á samtalið spurði hann mig hvort það væri ekki öruggt að ég væri bandarískur ríkisborg- ari. Ég neitaði því, kvaðst enn íslenzkur ríkisborgari þótt ég hefði keppt fyrir hönd Banda- ríkjanna. Þar með var viðtalið á enda og á sigurinn í Moskvu var lítið minnzt. Annars tel ég mig bandarísk- an dansara, þar hef ég hlotið mína þjálfun, en ég er Islend- ingur í húö og hár. Þó gæti ég vart hugsdb mér að dansa ann- ars staðar en í New York, sem er orðin miðstöð ballettsins og listdansflokkar, sem vilja við- urkenningu, sækjast allir eftir því að dansa í New York. Það hafa orðið miklar framfarir í bandarískum ballett undanfar- in ár og Bandaríkjamenn eiga í dag án efa beztu listdansara í heimi. Þar er samkeppnin harð- ari en hjá ríkisleikhúsunum í Evrópu, dansararnir verða að leggja meira á sig, en þeir fá eingöngu borgað þegar þeir vinna. Þeir, sem vinna hjá rík- isleikhúsunum í Evrópu eru á föstu kaupi. Manni virðist það allt orðið frekar formfast og Ég má aldrei gleyma hver ég er — hvaðan ég kom og úr hverju... *

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.