Morgunblaðið - 08.01.1978, Side 27

Morgunblaðið - 08.01.1978, Side 27
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1978 stríðsádeila, sem jafnframt er op- in til miklu dýpri túlkunar á mannlegri náttúru. Verdoux er ósköp venjulegur bankastarfs- maður, en hann þarf að sjá fyrir syni slnum og veikri eiginkonu, Þegar honum er sagt upp starfi, tekur hann upp þá iðju að giftast á laun ýmsum rfkum konum, myrðir þær og notar peningana til að sjá sér og fjölskyldu sinni fyrir þokkalegu lffsviðurværi. Hann elskar fjölskyidu sfna meir en nokkuð annað f þessum heimi, en sökum þessara miklu umsvifa getur hann nær aldrei verið heima. Hann vanrækir það sem hann elskar, á sama tfma og hann berst hatrammlega f þágu ástar sinnar. Túkunarfletir myndarinn- ar eru margvfslegir og strfðssam- líkingin er aðeins einn flöturinn; við höfum einnig samlfkinguna við hið daglega Iff, hina aðskildu heima atvinnunnar og heimilsins, efnishyggjunnar og innri verð- mæta. Við sýningu myndarinnar sagði Chaplin: „Það var ætlun mfn að skapa meðaumkun með öllu' mannkyninu við ákveðnar að- stæður“. Aðsókn myndarinnar sannaði, svo ekki varð um villst, að honum hafði tekist þetta. Áhorfendur forðuðust myndina. Hver vill horfast f augu við sfna eigin veikleika? Eða eins og Richard Griffith segir: „Verdoux er móðgun við okkur, vegna þess að við erum móðgun við okkur sjálf. Umrenningurinn kvaddur Með Monsieur Verdoux er Chapiin með vissum hætti kom- inn heilan hring f listsköpun sinni — og lffi. Tilraun hans með alvar- legt efni 1923 (A Woman of Paris) hafði brugðist, hvað áhorfendur snerti, þó mikilvægi myndarinnar f sögulegu sam- hengi væri ótvírætt. Með svipu talmyndanna yfir sér, tók hann aftur á sig gervi umrenningsins til að þjóna duttlungum áhorf- enda, en um leið og hann hefur stigið yfir þröskuld talmyndanna, kastar hann gervinu — með sama árangri og áður. Og Ifkt og ádeilan og snilldin dýpka f Mosieur Verdoux miðað viðfyrri myndina, verður slúður og dylgjur f garð Chaplins hatrammara en fyrr. Mörgum þótt myndin staðfests orðróm um vinstri villu Chaplins. og í leiftrandi leitarljósum McCarthy-ismans mögnuðust skuggar þessarar grýlu út yfir öll mörk. Saman við þessar skugga myndir tvinnuðust minningar al- mennings um vafasöm kvennamál Chaplins. Almenningur leit hann hornauga og þrýstihópar í Banda- rfkjunum komu þvl til leiðar, að sýningum myndarinnar var hætt. Fyrrverandi aðdáendur hans dæmdu hann miskunnarlaust án þess að nokkur vörn færi fram. Chaplin, sem nú var kominn undir sextugt, vissi hvert stefndi, en vonaði 1 lengstu lög að of- sóknaræðið rynni af þjóðinni. Fyrst á eftir hafði hann hug að að setjast f helgan stein, en hann hafði ekki eirð f sér til þess. Um- renningurinn, sem hann skildi eftir með biðjandi og þjáningar- fullt andlit f City Lights, átti enn eftir að fá úrlausn. I Limelight, 1952, sem er sjálfsævisögulegasta mynd Chaplins, gerði hann stöð- una upp og kvaddi trúðinn og umrenninginn. Mörg atriði f myndinni minna á fyrstu myndir Chaplins, t.d. One A.M. og f stærra samhengi á The Kid, jafn- framt þvf sem hann fær til liðs sig f einu atriði Buster Keaton og það er lfkt og þrjátfu ár gufi upp þegar þessi tveir látbragðskóngar leggjast á eitt. Þeir eru enn meistarar í list sinni og ferskleiki þeirra virðist jafnvel méiri en áð- ur, vegna þess að þeir eiga enga fylgjendur, list þeirra er æ fáséð- ari. Að loknu þekktasta atriði myndarinnar, flóadansinum, sem Chaplin framkvæmir af rnikilli innlifun, gengur hann fram á sviðið til að taka við lófataki áhorfenda. En það er enginn 1 salnum. Chaplin hefur kynnst dýpstu örvæntingu (istamannsins á ferli sfnum, en nú, á sjötugs- adlri, er hann hafinn yfir þjáning- ar. Ævistarfi trúðsins er lokið. En það er ekki öll von úti. 1 upphafi myndarinnar bjargar hann ungri stúlku, Terry, frá sjálfsmorði, vekur lfflöngun hennar á ný og það er ekki fyrr en að hann sér ungu stúlkuna dansa yfir sviðið að hann deyr, einn og yfirgefinn að tjaldabaki. Umrenningurinn Charlie hafði gert upp reikning- ana við þennan heim. Eftirleikurinn mun flestum kunnur. Þegar Charlie var á leið til Evrópu, til að fylgja Limelight úr hlaði, var honum tilkynnt, að hann hefði verið gerður brottræk- ur frá Ameríku. Eftir þetta gerði hann tvær myndir f Bretlandi, báðar misheppnaðar. Sú fyrri, A King ín New York, 1957, var ein- föld ádeila á Bandarfkin, kommúnistaofsóknirnar og kaida strfðið. A Countess From Hong Kong, 1967, var litlaus og merk- ingarlaus gamanmynd. Margir hafa eflaust hugsað það sama og George Perry segir f bók sinni, The Great British Picture Show: „Þrátt fyrir snilldarleg Chaplin- augnablik f báðum þessum mynd- um, er það ef til vill sorglegt, að hin frábæra mynd Limelight, 1952, skyldi ekki vera sfðasta yfir- lýsing Chaplins í kvikmynd". Eftir brottrekstur Chaplins frá Amerfku segir Richard Griffith f bókinni The Movies: „I einni af gömlu myndunum sínum, The Pilgrim, endar Chalie í einskis- mannslandi milli landamæra Bandarfkjanna og Mexikó, hvorugt landið vill hann og hon- um er ógnað f báðum, hann er dæmdur til að tölta um landa- mærin til eilffðarnóns. Ef til vill er það þar, sem Charlie stendur 1 dag. Ef til vill er það þar, sem hann hefur alltaf staðið og hefur viljað standa". Sunnyside 1919. Modern Times: Óvenjuleg s.<n f lokin. Meó Paulelle Goddord. hann giriisl þella sama 4r.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.