Morgunblaðið - 08.01.1978, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JANUAR 1978
37
1 eldhúsi Giriami fólksins.
hátt verð fyrir vöru sína, og ekki
var óalgengt að menn borguðu
aðeins fimmta hluta þess, sem
sett var upp í upphafi, eftir hefð-
bundið prútt, sem gat tekið all-
langan tíma og flestir höfðu gam-
an af. Aberandi var mikið fram-
boð af alls kyns verndargripum,
sem áttu að vernda menn gegn
ýmsum sjúkdómum, illum öndum
o.s.frv. Einna vinsælast meðal
innfæddra virtist vera armband,
sem færa átti mönnum hamingju
og heppni. Var það gert úr gróf-
um hárum, sem fengin voru úr
fílshala en einnig var mikið fram-
boð af eftirlíkingum, og til þess að
tryggja, að menn keyptu það
rétta, var venjulega borinn eldur
að armbandinu en fílshárinn
brenna ekki fremur en fílabein.
HJATRÚ og
TÖFRALÆKNAR
Innfæddir virtust vera í meira
lagi hjátrúarfullir og svartigaldur
og voodú mun vera stundað þar af
mörgum ættbálkum. Eitt sinn sá
ég þriggja ára barn, sem hafði
stóran leðurpoka í bandi um háls-
inn. Velti ég því fyrir mér nokkra
stund hvert innihald hans væri,
eða þar til móður þess bar þar að.
Spurði ég hana um hvað væri í
Kenya, sem mun vera einn sá
stærsti í heimi. Þar má sjá yfir
þrjúhundruð villtar dýrategund-
ir, sem ráfa um sléttur og i skóg-
inum. Eitt af fyrstu dýrunum,
sem við sáum var vælandi hýena,
en þar gat einnig að líta ljón,
sebrahesta, giraffa, antílópur,
buffalóa, apa af ýmsum tegund-
um og strúta, svo eitthvað sé
nefnt. Þjóðgarðurinn er eins og
áður sagði mjög stór og gátum við
ekki komizt yfir að skoða, nema
örlítinn hluta hans, þótt við eydd-
um þar 4 klukkustundum. Við
hliðið á þjóðgarðinum er skilti,
þar sem gestum er vinsamlega
bent á að yfirgefa ekki bifreiðar
sínar. Sé það gert er það algjör-
lega á þeirra ábyrgð. Skammt frá
þeim stað, sem við höfðum séð
þrjú ljón liggjandi á hól og sleikj-
andi sólskinið, ókum við fram á
hjón, sem gengu eftir veginum í
átt til Nairobi. Þar sem slíkt uppá-
tæki var ekki talið með öllu
hættulaust innan um öll villidýr-
in, stönzuðam við og spurðum um
ferðir þeirra. Sögðust þau þá hafa
ekið út af aðalveginum og fest
bifreið sína inni á sléttunni. Var
þeim siðan boðið far í einni af
bifreiðum okkar, enda þótt pláss
væri ekki mikið fyrir aukafar-
þega. Urðu þau að vonum fegin,
ekki hvað sízt vegna þess að tekið
pokanum, en hún færðist undan
að svara. En þegar ég spurðí aftur
sagði hún mér að barn sitt hefði
verið afmyndað af bólum i andliti
strax eftir fæðingu. Sagðist hún
því hafa leitað til töfralæknis,
sem hefði sagt sér, að barnið
þyrfti að fá ,,Eliis“ en svo nefndi
hún leðurpokann. Hún sagðist því
hafa gert svo sem læknir hennar
bauð og viku síðar hefðu allar
bólur verið horfnar af andliti
barnsins. Ekki veit ég um sann-
leiksgildi sögu hennar, en eitt er
vist að barnið var ekki með neina
bólu í andliti þann dag sem ég sá
það, hvernig sem það hefur verið
útlitandi áður.
Eftir dvölina í Mombasa var
flogið til Nairobi aftur og höfð
þar viðdvöl í tvo daga. Strax eftir
komu okkar þangað fórum við á
þremur bifreiðum út fyrir borg-
ina og héldum inn í þjóðgarðinn i
var að skyggja og löng leið til
byggða.
EFNAÐUR FORSETI
Kenyabúar þeir sem ég ræddi
við voru allir fegnir að vera lausir
undan stjórn Breta og sögðu, að
þegar þeir hefðu ráðið landinu,
hefðu öll fyrirtæki og eignir verið
á hendi fárra útvaldra manna, en
síðan Jómó Kenyatta og stjórn
hans hefði tekið við væri skipting
lífsgæðanna jafnari og réttlátari.
Það vakti því ekkUitla undrun, er
við komumst að því, að þrátt fyrir
hina réttlátu skiptingu, var Jómó
Kenyatta sagður eiga flest betri
hótel landsins. Annars voru allir
viðmælendur minir sammála um,
að þeir hefðu bezta forseta í allri
Afríku og töldu þeir að framtið
Framhald á bls. 21.
Kennsla hefst
mánudaginn 16. janúar
Fullsetið er í öll námskeið í vetur.
Innritun nýrra nemenda
hefst í september n.k.
Hanna fnmansdóttir.
sími 38126
lÁttadaga
ferö
5.- H.febrúar
í þessari háborg lista, verslunar og
viðskipta er margt að sjá og skoða og
þaðan er auðfarið til nálægra borga.
Fararstjóri okkar í Lundúnum aðstoðar
við og skipuleggur hvers konar skoðana-
ferðir t.d. í söfn, leikhús og á vöru-
sýningar
Benda má á að dagana 5. — 9. febr.
stendur yfir stór alþjóðleg búsáhalda- og
gjafavörusýning í Birmingham og 8 febr.
verða undanúrslit í deildarbikarnum og
1 1 febr. keppa
Chelsea — Manchester Utd.
West Tam — Bristol City.
Norwich — Everton
★ TRYGGÐ HEFUR VERIÐ GISTING Á
TVEIMUR HÓTELUM í HJARTA
LUNDÚNAPARKPLAZA OG
CHARLES DICKENS.
★ TRYGGIÐ YÐUR í TÍMA FRÁBÆRA
FERÐ Á HAGSTÆÐU TÆKISFÆR-
ISVERÐI.
★ LEITIÐ NÁNARI UPPLÝSINGA í
TÍMA
femir
Ferðaskrifstofa-Austurstræti 12 sími 2-7077
AUGLÝSINGASTOFA