Morgunblaðið - 08.01.1978, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1978
17 bátar
meðloðnu
í GÆRMORGUN höfðu 17 bátar
tilkynnt afla til loðnunefndar af
miðunum undan Melrakkasléttu
samtals 3400 lestir. Flestir bát-
anna voru með slatta enda bræla
á miðunum. Spáð er skánandi
veðri í dag.
í Mbl. í gær voru nefndir 10
bátar, sem tilkynnt höfðu afla í
fyrrakvöld en eftirtaldir 7 bátar
tilkynntu afla eftir það: Gullberg
230, Gísli Árni 240, Grindvíkingur
280, Náttfari 160, Jón Finnsson
100, Helga II 130 og Eldborg 100
lestir.
íASÍMINN ER:
22480 ('0>1
Bt»rcu>iblnbib
— Munum benda
sendiráðinu
Framhald af bls. 48
yrði stöðvuð. — Ég á nú ekki von
á því, þar sem þetta blað er gefið
út hálfsmánaðarlega og þeir ættu
því að hafa tímann fyrir sér og
breyta útgáfufyrirkomulaginu,
þvf við höfum enga ástæðu til að
halda annað en þeir taki þessa
ábendingu strax til greina, sagði
Hendrik Sv. Björnsson að lokum.
— Lillehammer-
maður
Framhald af bls. 1
in kynni." Wahbi er nýtekinn
við af Hammani, sem myrtur
var f Lundúnum s.l. miðviku-
dag. Hann lét þessi ummæli
falla f sfmtali við fréttaritara
blaðsins f borginni. Hann viidi
ekki gefa upplýsingar um
ástæðuna fyrir þvf að Bouchiki
hefði verið sendur til starfa f
Noregi.
Ahmed Bouciki, sem var Mar-
okkómaður, var skotinn fyrir
utan heimili sitt í Lillehammer.
Kona hans var með honum, en
hún slapp ómeidd. Isrelsku
hermdarverkamönnunum tókst
að komast undan, en sex þeirra
voru síðan handteknir og
dregnir fyrir rétt. Fjórir hlutu
fangelsisdóma fyrir hlutdeild
að morðinu, einn var dæmdur
fyrir að stunda njósnir, en sá
sjötti var sýknaður.
— Víetnamar
Framhald af bls. 1
um að hafa lagt blessun sína yfir
hryðjuverk Kambödíumanna, en
hins vegar hefur Pekingútvarpið
birt fréttatilkynningar jöfnum
höndum frá báðum deiluaðilum
og virðist því stjórn Kina veigra
sér við að lýsa fullum stuðningi
við stjórn Rauðu Khmeranna.
Hefur hún lýst þvf yfir að hún
vonist til að hægt verði að setja
deiluna niður friðsamlega. Ekki
er vitað með vissu hve margir
vfetnamskir hermenn eru í Kam-
bódiu, en heyrst hefur að þeir séu
60 þúsund.
— Sadat einn af
Framhald af bls. 1
þeim tfma lagt að baki um
30 þúsund km. Carter sagði
við heimkomuna að hann
hefði hvarvetna hlotið
hlýjar og góðar viðtökur og
sagðist stoltur af þeirri
vináttu, sem sér hefði ver-
ið sýnd og þeirri vináttu,
sem hann hefði skilið eftir.
Hann sagðist hafa gert sér
grein fyrir því er hann
faðmaði Anwar Sadat
Egyptalandsforseta að sér,
að hann væri einn af hug-
rökkustu mönnum verald-
ar.
Carter veitti 6 blaðamönnum
viðtal á leiðinni heim frá Brlissel
til Washington þar sem hann m.a.
lýsti þvi yfir að hann væri enn
andvígur stofnun sjálfstæðs rfkis
Palestínumanna, þar sem þaðan
væri hægt að halda uppi undir-
róðursstarfsemi. Carter sagðist
telja að hægt væri að finna bráða-
birgðalausn á Palestínuvandamál-
inu með stofnun samstjórnarrfkis
fyrir vesturbakka Jórdanár og
Gazasvæðið, sem Israel, Jórdanía,
Palestfnumenn og hugsanlega
Sameinuðu þjóðirnar ættu aðila
að um óákveðinn tíma, en eftir
það tfmabil fengju Palestínu-
menn rétt til að taka ákvörðun
um framtfð sina. Aðspurður um
hvort hann teldi að hægt væri að
kalla slika áætlun sjálfsákvörð-
unarrétt Araba svaraði forsetinn:
„Ég hef aldrei talið og tel ekki að
það sé ráðlegt fyrir okkur, Mið-
austurlöndin og heiminn, að sjálf-
stætt ríki verði stofnað milii Isra-
els og Jórdanfu. Ég tel að heima-
land Palestínumanna ætti að vera
bundið sterkum böndum við
Jórdaníu."
Forsetinn íýsti ánægju sinni
með árangur ferðar sinnar og
sagðist hafa viljað koma fram sem
fulltrúi þjóðar, sem byggði grund-
völl sín á því, sem væri rétt og
gott, styrkja lýðræðishugtakið
meðal iðnríkjanna og þróunar-
rfkjanna og vinna að lausn Mið-
austurlandadeilunnar. Hann
sagði að ferðin hefði verið tákn-
ræn, Bandaríkjamenn litu ekki á
sig sem yfirburðaþjóð, og hefðu
komið fram við þær þjóðir, sem
heimsóttar voru, á jafnréttis-
grundvelli.
— Þar styðja
Framhald af bls. 3.
og benti í átt að húsi þeirra
hjóna.
Begum Nasi Wali Khan,
eiginkona Wali Khans, hefur
ákaflega fastmótaðar skoðanir
á stjórnmálaafskiptum sínum.
Hún er formaður flokks, sem
stofnaður var skömmu eftir að
stjórnvöld bönnuðu flokk eigin-
manns hennar, Þjóðlega
Awami-flokkinn, og hún hefur
alls ekki í hyggju að leggja
stjórnmálin á hilluna.
Erlendur fréttaskýrandi
komst svo að orði að aðeins
tveir menn væru fullfærir um
að stjórna Pakistan, Bhutto og
Wali Khan. Að vissu leyti á
þetta enn við. Senn fellur dóm-
ur í máli Bhuttos og verði hann
fundinn sekur, má búast við að
kona hans taki við formennsku
flokks hans, og stefna hennar
yrði örugglega að berjast með
odd og egg gegn núverandi
stjórn landsins.
Þeir Bhutto og Wali Khan
stefna báðir að því að koma
herstjórninni frá völdum, en
óvíst er hvort Wali Khan mun
fara sömu leið í þeim efnum.
Hvort sem hann gerir það eður
ei, mun kona hans fylgja hon-
um í einu og öllu. í Pakistan
eiga stjórnmálamenn vísan
stuðning fjölskyldu sinnar.
— Dagspítali
Framhald af bls. 27
Guðmundsson (S) vildi fella það
inn I heildarskipulag öldrunar-
þjónustu og fresta ákvörðun unz
sérstök nefnd, er fjallar um heil-
brigðisstofnanir borgarinnar,
hefði skilað áliti. Stöku borgar-
fulltrúar töldu spursmál, hvort
starfsemi þessi ætti að tengjast
skurðdeild Borgarspítalans með
ráðgerðum hætti, en aðrir töldu
vel fara á því, að dagspitalinn
hefði slíkan bakhjarl, ekki sízt
hvað heilbrigðisþjónustu viðvéki.
Slíkt væri hvort tveggja, hag-
kvæmnisatriði i rekstri og
öryggisatriðj.
Adda Bára Sigfúsdðttir (Abl)
og Páll Gfsiason (S) véku bæði að
þessurn þætti hagkvæmnis og
öryggis varðandi dagspítalann.
Fleiri borgarfulltrúar tóku til
máls, þó að mál þeirra verði ekki
rekið hér. Borgarstjórn frestaði
lokaákvörðun til næsta fundar,
eftir u.þ.b. hálfan mánuð.
Merktu viö
umboðs
manninn þinn
Umboðsmenn HHl eru ágætt fólk, sem keppist við að veita
viðskiptamönnum okkar alla þá þjónustu, sem hægt er að veita.
Upplýsingar um númer, flokka, forgangskaup, trompmiða og
raðir eru ávallt til reiðu. Umboðsmenn okkar vita líka að Happ-
drætti Háskólans er þó nokkuö meira en venjulegt happdrætti.
Þrátt fyrir það að HHl sé með hæsta vinningshlutfall í heimi,
greiði 70% veltunnar í vinninga, stendur það einnig undir mik-
ilsverðum tækjakaupum og byggingaframkvæmdum Háskóla
(slands. HHl leggur þannig stóran skerf til menntunarmögu-
leika okkar sjálfra og barna okkar.
Merktu viö umboðsrnanninn þinn, eða þann sem þú gætir
hugsað þér að rabba við um miðakaup. Þeir kalla okkur ekki
„Happdrættið" fyrir ekki neitt!
REYKJAVlK:
AÐALUMBOÐIÐ, Tjarnargötu 4, sími 25666
Arnarval, Arnarbakka 2 sími 71360
Arndís Þorvaldsdóttir, Vesturgötu 10 sími 19030
Bókabúðin Álfheimum 6 sími 37318
Bókabúð Fossvogs, Grimsbæ sími 86145
Bókabúð Jónasar Eggertssonar, Rofabæ 7, sími 83355
Bókaverslun Ingibjargar Einarsdóttur, Kleppsvegi 150
sími 38350
Bókabúð Safamýrar, Miðbæ, Háaleitisbraut 58-60 sími 35230
Frímann Frímannsson, Hafnarhúsinu sími 13557
Neskjör, Ægissíðu 123, sími 19832
Ólöf Ester Karlsdóttir, c/o Rafvörur, Laugarnesvegi 52
sími 86411
Ólöf og Rannveig, Laugavegi 172 sími 11688
Verslunin Straumnes, Vesturbergi 76, sími 72800
Þórey Bjarnadóttir, Kjörgarði, sími 13108
KÓPAVOGUR:
Anna Sigurðardóttir, Hrauntungu 34, sími 40436
Borgarbúðin, Hófgerði 30, sími 40180
Halldóra Þóröardóttir, Litaskálinn, Kársnesbraut 2
sími 40810
GARÐABÆR:
Bókaverslunin Gríma, Garðaflöt 16-18, sími 42720
HAFNARFJÓRÐUR:
Keramikhúsiö, Reykjavíkurvegi 68, sími 51301
Reynir Eyjólfsson, Strandgötu 25, sími 50326
Verslun Valdimars Long, Strandgötu 41, sími 50288
Umboðsmenn á Reykjanesl
Grindavík Ása Einarsdóttir Borgarhrauni 7s ími 8080
Flugvöllur Erla Steinsdóttir Aðalstöðinni sími 2255
Sandgerði Hannes Arnórsson Víkurbraut 3 sími 7500
Hafnir Guðlaug Magnúsdóttir Jaðri sími 6919
Keflavík Jón Tómasson versl. Hagafell sími 1560
Vogar Halla Árnadóttir Hafnargötu 9 sími 6540
MOSFELLSSVEIT:
Kaupfélag Kjalarnesþings, c/o Jón Sigurðsson, sími 66226
KJÓS:
Hulda Sigurjónsdóttir, Eyrarkoti
Umboðsmenn á Vesturlandl
Akranes
Fiskilækur
Melasveit
Grund
Skorradal
Laugaland
Stafholtstungum
Reykholt
Borgarnes
Hellissandur
Ólafsvík
Grundarfjörður
Stykkishólmur
Búðardalur
Mikligarður
Saurbæjarhreppi
Geirmundarstaðir
Skarðsströnd
Bókaverslun Andrésar Nielssonar
sími 1985
Jón Eyjólfsson
Davíð Pétursson
Lea Þórhallsdóttir
Steingrímur Þórisson
Þorleifur Grönfeldt Borgarbraut 1
Söluskálinn s/f sími 6671
Lára Bjarnadóttir Ennisbraut 2 sími 6165
Sigurrós Geirmundsdóttir Hlíðarvegi 5
sími 8709
Ólavía Gestsdóttir Lágholti sími 8308
Óskar Sumarliðason sími 2116
Margrét Guðbjartsdóttir
Jón Finnsson
HAPPDRÆTTI HASKÓLA ÍSLANDS
Hæsta vinningshlutfall í heimi!