Morgunblaðið - 08.01.1978, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JANUAR 1978
47
Þetta
gerðist
SUNNUDAGUR 8. janúar.
Nokkur brot af blöðum sög-
unnar frá AP.
1976. Chou En-lai forsætisráð-
herra Kina lézt 78 ára að aldri.
1972. Sheik Mujibur Rahman
leiðtogi Bangladesh iátinn laus
úr fangelsi i Pakistan.
1959. Charles de Gaulle verður
forseti 5. franska lýðveldis-
sinna.
1956. Rússar senda fyrsta
sendiherrann til V-
Þýzkalands.
1926. Ibn Saud verður konung-
ur Hejas eftir aó Hussein kon-
ungur var rekinn frá völdum
og nafni konungsdæmisins
breytt i S-Arabiu.
1815. Orustan um New Orleans
byrjar.
1642. Italski stjarnfræðingur-
inn Galileo lézt 77 ára að aidri.
Höggþungur
afgreiðslu-
maður
LAUST eftir miðnætti i fyrrinótt
kom maður einn á bílastöð í mið-
borginni og ætlaði að fá far með
einum af bílum stöðvarinnar.
Maðurinn var allmjög við skái og
var honum neitað um akstur.
Þessu vildi maðurinn ekki una og
kom til stimpinga milli mannsins
og afgreiðslumanns stöðvarinnar.
Varð endirinn sá, að afgreiðslu-
maðurinn veitti hinum drukkna
þungt högg f andlitið svo hann
þrfbrotnaði, kinnbeins-, nef- og
kjálkabrotnaði.
AUOLVSINGASÍMINN ER:
22480
J JR»reunbIatiiti
FRÁ LEIÐBEININGASfÖÐ HÚSMÆORA
Hvað er varefakta?
„Varefakta" kalla Danir þær
vörulýsingar sem birtar eru
með því merki sem hér er sýnt.
Eflaust hafa margir tekið eftir
merkinu á dönskum vörum þeg-
ar jólainnkaupin voru gerð.
„Varefakta" má finna t.d. á
dósamat, prentað utan á dósirn-
ar, á pokum og öðrum umbúð-
um eða á litlum miðum, sem
festir eru við þá vörutegund
sem á f hlut.
Það er nefnd sem heitir
„Dansk Varedekiarations-
nævn“ sem stendur að merk-
inu. Það er auga innan f þrí-
hyrning og er ætlun nefndar-
innar að benda neytendum þar
með á að gefa þeim vörulýsing-
um („Varefakta") auga sem
fylgja merkinu.
Að sjálfsögðu fara upplýsing-
arnar sem látnar eru f té eftir
því um hvaða vöru eða vöru-
flokk er að ræða. T.d. kunna að
vera upplýsingar um nettó-
þunga vörunnar, stykkjatölu,
ytra mál, rúmmál o.þ.h. Einnig
er oft gefin upp samsetning
vörunnar, úr hvaða efnum hún
er gerð. Þar að auki má finna
ýmsan fróðleik um eiginleika
vörunnar og hvernig eigi að
halda henni við. Tilgangurinn
með þessum upplýsingum er að
auðvelda kaupandanum vöru-
valið.
„Dansk Varedeklarations-
nævn“ hefur það markmið að
veita neytendum betri vöru-
fræðslu / með vörulýsingum,
sem framleiðandinn lætur f té
af fúsum vilja. Nefndin sam-
þykkir þær upplýsingar sem
birtast með merki hennar og
semur forskriftir fyrir hverja
vöru eða vöruflokk með ákvæð-
um um hvaða upplýsingar eigi
að koma fram og hvernig eigi
að rannsaka hvort þær séu
sannar og réttar. Nefndin hefur
eftirlit með þeim upplýsingum
sem birtast með merki hennar.
Nefndin fær sérfræðinga í lið
með sér þegar á að semja for-
skrift að vörulýsingu. Aður en
hún er samþykkt endanlega er
hún send fyrirtækum og
stofnunum til umsagnar. Það
standa þvf margir sérfræðingar
á bak við þær upplýsingar sem
neytandanum eru látnar f té
undir „Varefakta". En þar sem
þessar upplýsingar eru settar
fram eftir ákveðinni forskrift
getur kaupandi borið saman
þær vörur sem á boðstólum eru
og þar með valið samkvæmt eig-
in óskum og þörfum.
„Dansk Varedeklarations-
nævn“ var komið á fót árið 1957
og í síðustu ársskýrslu hennar
var sagt frá því að nú séu meira
en 2100 mismunandi vörur í
Danmörku með „Varefakta".
Samsvarandi nefndir starfa
einnig á hinum Norðurlönd-
unum, en þó ekki hér á Islandi.
Hér á landi gera framleið-
endur ekki mikið að þvf að láta
hagnýtar upplýsingar fylgja
þeim vörum sem þeir fram-
leiða. Rannsóknaraðstaða hefur
ekki heldur verið fullnægjandi
fram að þessu en nú hefur að-
staða verið bætt til að rannsaka
efnasamsetningu matvæla o.fl.
Þar með gætum við komið á fót
vörumerkingarnefnd sem starf-
aði á svipuðum grundvelli og á
hinum Norðurlöndunum. Væri
þá unnt að láta neytendum f té
stuttar og nákvæmar upplýs-
ingar um hvernig varan er sam-
sett, til hvers á að nota hana og
hvaða eiginleika hún hefur.
Þeir þyrftu þá síður að kaupa
köttinn f sekknum. Sennilega
yrði það farsælli lausn fyrir
okkur Islendinga að stuðla að
því að láta neytendur fá betri
vörufræðslu með vörulýs-
ingum, sem framleiðandinn
lætur í té af fúsum vilja, en að
setja lög og reglur þar að lút-
andi. Eflaust gætum við margt
lært af reynslu nágrannalanda
okkar f þeim efnum og fengið
að hagnýta okkur þeirra for-
skriftir. Það þyrfti því ekki að
vera mjög erfitt að koma upp
fslenskri vörumerkingarnefnd.
VAREFAKTÁ
L
Útsala
-//
r \ %uí
r a\\abU% a8°° \ soV^
i6a' —ut \AS0 \ soVcVcat
0'Put
. vcápuí
,r 19°° \ jaViV1®1
6&0 \ ^ö'a*
\ 2&0 \ jóV»r
5VtKabu
-vsoo
AðO
^OO
peVsUÍ
peVsUt
peVsUt
SVOf
-vsoo
500
S<oe
ptVs
VcWP
i\Vs
390
A90
3000
6000^
2000
2S00
66°°rti
2000'
2.000
itoí
Bleiki
pardusinn
v/Bankastræti
eú
a\"r
■\6 ára'
•'Tíi ■',8'
. .u
| 'T000 “ ■
Xorskti táninga-húsgögnin
Ný gerð af svefnsófum, borðum og
stólum á mjög góðu verði.
Húsgögn fyrir alla aldursflokka.
Bílastæði og inngangur er einnig
Hverfisgötumegin.
Verið velkomin
P