Morgunblaðið - 10.01.1978, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.01.1978, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR 7. tbl. 65. árg. ÞRIÐJUDAGUR 10. JANUAR 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Kambódía: Áróðursstríð í stað átaka Bangkok, Moskvu og Peking 9. janúar AP. — Reuter. KAMBÓDÍUSTJÓRN hélt þvi fram í dag, að her sinn hefði unnið fyrsta sigurinn gegn innrásarher Vietnama, en leyniþjðn- ustuheimildir í Bangkok hermdu hins vegar að her- sveitir Vietnams hefðu treyst stöðu sína innan landamæra Kambódíu. Heimildirnar hermdu að Vietnamar, sem sagðir eru beita bandarískum vopn- um og hernaðartækni, sem þeir notuðu í Vietnam- stríðinu, hefðu aðeins orð- ið fyrir minniháttar áföll- um í Ha Tienhéraði, syðst við iandamærin og við borgina Snoul, u.þ.b. 20 km innan landamæra Kambódíu. Svo virðist sem átökin TniHi aðila hafi hjaðnað niður og snúizt yfir i áróðursstríð. Útvarpið í Kambódíu lýsti í dag stórkostleg- um sögulegum sigrum gegn Vietnömum og útvarpaði bréfi frá Sihanouk prins, fyrrum þjóðar- leiðtoga Kambódíu, þar sem hann kallaði Vietnama „árásarleppa- lúða“. Leyniþjónustuheimildir í Bangkok sögu að staðhæfingar út- varpsins í ^Phnom Penh væru fáránlegur áróður og það, að stöð- ugt væri staglazt á einingu í fréttasendingum af daglegum átökum, benti til mikils kvíða meðal ráðamanna Kambódíu. Stjónmálafréttaritarar telja að staðan í þessu máli sé nú sú, skv. leyniþjónustuheimildum, að Vietnamar hafi sótt eins langt inn í Kambódiu og þeir ætli sér, og vinni nú að því að treysta stöðu sína með harðar samningavið- ræður i huga. Hersveitir Kambódíu eru taldar hafa gert nokkrar smáárásir, en ekki gert ráð fyrir að ráðamenn muni hætta á veruleg hernaðarátök, enda Vietnamar taldir hafa um 60 þús- und manna herlið i Kambódiu. Vietnamskar sveitir hafa nú lok- að birgðaflutningaleiðinni við Mekongborgina Neak Luong, 55 Framhald á bls. 24. Sadat og Iranskeisari í Aswan í gær. Sfmamynd AP. By ggðarlög lsraela helzta deiluefnið Asvvan, Jerúsalem, Washington og Tel- Aviv 9. janúarAP—Reuter. MOHAMMED Reza Palavi Iranskeisari kom í dag til Aswan í Egyptalandi til viðræðna við Sadat forseta um friðarviðræðurnar við tsraela. Keisarinn, sem er einn helzti stuðningsmað- ur Sadats í þessu máli, ítrekaði stuðning sinn við komuna í dag. A sama tfma skiptust tsraelar og Egypt- Myndar Soares stjórn á morgun? Lissabon 9. jan. AP-Reuter. DAGBLAÐ sósfalista í Portúgal, A Luta, sagði f dag að viðræður Mario Soaresar um nýja stjórnar- myndun væru komnar svo vel á veg að Eanes forseti myndi út- nefna hann á ný forsætisráðherra á miðvikudag að loknum fundi byltingarráðs landsins. Er þessi frétt f framhaldi af ummælum Soaresar f gær, er hann kom af fundi landsst jórnar Sósfalista- flokksins, en þá tilkynnti hann að hann teldi vfst að hann gætij myndað stöðuga meirihlutastjórn til að takast á við vandamál, Soares þjóðarinnar, eftir mánaðarstjórn- arkreppu. Landsstjórn Sósfalistaflokksins samþykkti tillögur Soaresar um að breikka stjórn landsins með því að taka inn í hana sem ráð- herra menn úr öðrum flokkum, en þó þannig að þeir væru þar sem einstaklingar en ekki fulltrú- ar flokks síns. Er þetta málamiðl- unartillaga í stað hreinnar sam- steypustjórnar, sem Soares hafði alfarið hafnað. Ráðherrar þessir munu koma úr röðum hins hægri- sinnaða Miðdemókratasambands og jafnaðarmanna. Talsmenn úr röðum íhaldsafla sögðu i kvöld að svo virtist sem Framhald á bls. 24. ar á harðorðum orðsend- ingum um byggðarlög ísra- ela á Sinai og öðrum her- teknum svæðum. Þessi byggðarlög, sem ísraelar vilja halda, er friður verð- ur saminn, eru að verða eitt helzta ágreiningsatrið- ið á eftir Palestínuvanda- málinu. Sadat forseti lýsti þvi yfir i gær, að hann myndi ekki samþykkja einn einasta ísraelskan hermann né óbreyttan borgara á fyrrum egypzkum landsvæðum. Sadat sagði á sameiginlegum blaða- mannafundi f Khartoum, höfuð- borg Súdans, með Nimeiri for- seta, að ísraelar yrðu að falla frá gömlum kreddum, annars myndu Egyptar grípa til gagnaðgerða. Begin forsætisráðherra ísraels sagði í dag að ísraelsstjórn myndi standa með öllum byggðarlögum Gyðinga í Sinai og v-bakka Jórdanár og sagði að ísraelar kynnu að draga friðártillögur sínar til baka ef Sadat sýndi ekki meiri sveigjanleika og meiri var- kárni í orðum. iranskeisari sagði við frétta- menn við komuna til Aswan, að hann hefði komið til fundar við I Sadat tii að tjá aðdáun sina og vináttu við hann. Hann sagði að þetta væru sögulegir timar og hann vonaðist til að umleitanir Sadats yrðu árangursríkar, þær væru að sinum dómi hárrétt stefna. Keisarinn fer á morgun til S-Arabíu til viðræðna við Khaled konung, sem er lykilmaður í hugsanlegum friðarsamningi vegna áhrifa hans í Arabalöndun- Framhald á bls. 24. Ráðherrar snúast gegn Gandhí Nýju-Delhf 9. janúar AP — Reuter. INDIRA Gandhf fyrrum forsætis- ráðherra Indlands kom í dag fyrir þá stjórnskipuðu nefnd, sem á að kanna meint misferli hennar meðan hún var við völd f landinu. A fundi nefndarinnar f Nýju- Delhf var einkum fjallað um formsatriði og kom upp ágrein- ingur milli formanns nefndarinn- ar, E.J.C. Shahs, fyrrum forseta hæstaréttar, og lögfræðings frú Gandhf um formsatriði, einkum um rétt hennar til að draga f efa Framhald á bls. 24. Frakkland: Kosningabaráttan hafin Klofningur vinstrimanna alger París 9. janúar AP — Reuter. kosningabarAttan í Frakklandi fyrir þingkosning- arnar í marz nk. byrjaði fyrir alvöru f gær, er helztu stjórn- málaflokkarnir kynntu stefnu- mál sfn, en klofningurinn ineð- al vinstri manna virðist meiri en nokkru sinni fyrr. Georges Marchais, leiðtogi franska kommúnistaflokksins, réðst um helgina harkalega f ræðu á sósfalista og leiðtoga þeirra, Franeois Mitterand, og útilok- aði nær algerlega möguleika á kosningabandalagi vinstri manna. Mitterand ávarpaði á sama tíma varnarmálaráðstefnu sósíalista, en það voru varnar- mál, sem einkum ollu banda- lagsslitum við kommúnista, og sagði þar að Frakkland ætti að vera áfram í stjórnmálasam- baridi við Atlantshafsbanda- lagið, þótt það stæði utan við sameiginlega herstjórn þess. Kommúnistar höfðu krafizt þess að Frakkar slitu algerlega sambandi við NATO og beindu her sínum gegn óvinum í vestri jafnt sem austri. Raymond Barre forsætisráð- herra Frakklands flutti í gær stefnuræðu samsteypustjórnar sinnar, þar sem hann gaf ýmis loforð, þ.á m. auknar fjöl- skyldubætur og engar skatta- hækkanir næstu 2 ár. Barre flutti ræðu sína að loknum rfk- isstjórnarfundi með Valery Framhald á bls. 24. Indira Gandhf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.