Morgunblaðið - 10.01.1978, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 10.01.1978, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANUAR 1978 37 og alls staðar í þjóðfélagi okkar; væri ekki hægt að verja nokkru meiri fjárupphæð til slysavarna í umferðinni en gert er nú? Mörg verkefni eru brýn í um- ferðarfræðslunni og sjálfsagt er það ekki minnst brýnt að herja á okkur sem fullorðin erum með alls konar fræðslu og áróðri. Börnin eru beztu vegfarendurnir hef ég heyrt sagt. Af hverju skyldi það vera? Er það ekki vegna þess að hjá þeim er mikil umferðarfræðsla og þau eru sam- vizkusöm og fara eftir því, sem þeim er kennt? Þau eru heldur ekki ökumenn, sem geta f arið öðr- um að voða með gáleysislegum akstri. En það þarf að stórefla alla umferðárfræðslu hjá fullofðnu fólki og sjálfsagt má byrja strax hjá þeim sem eru að læra; án efa má vekja strax þar enn meiri ábyrgðartilfinningu og benda á hvað ungir ökumenn eru með I höndunum þegar þeir setjast und- ir stýri. Það er ekki svo lítil ábyrgð að mega aka bíl. Það þarf ekki langa gáleysisstund til að illa geti farið. Á augabragði getur verið komið barn út á akbrautina, eða bíll hefur skyndilega stöðvast fyrir framan hinn unga ökumann. Hvað gerist? Ég sá hann ekki, verður svarið í lögregluskýrsl- unni. Þannig er umferðin, allt getur komið upp óvænt og því þurfa ökumenn sífellt að vera við- búnir hinu óvænta. Þá held ég aðmegi taka fastari tökum á bless- uðum gamlingjunum í umferð- inni. Hversu oft hafið þið ekki séð gamlan mann aka jafnvel á rangri akrein á móti allri umferðinni, eða silast i rólegheitum yfir gatnamótin á rauðu Ijósi og við- komandi heyrir kannski varla þótt flautað sé á hann úr öllum áttum. Allir stöðva og vorkenna aumingja gamla manninum og segja að svona gamalt fólk ætti nú ekki að hafa bilpróf. En ekkert er meira gert. Ég fagna þeim umræðum, sem orðið hafa á Alþingi um umferð- armál og nú mun vera til meðferð- ar eitthvert lagafrumvarp um þessi mál. Mig minnir að eitthvað komi ökukennslan til umfjöllunar þar og er það sjálfsagt vel. Á þessu nýbyrjaða ári þarf að vekja og viðhalda umræðu um umferð- armál og fylgja henni eftir með aðgerðum, sem enginn lætur fara fram hjá sér, aðgerðum undir kjörorðum eins og til dæmis — meiri fræðslu — færri slys eða eitthvað í þessum dúr. Ég eftirlæt umferðarráðamönnum að velta málinu fyrir sér og vonandi er ég ekki einn um þessa skoðun, að umferðarfræðslu þurfi að stór- auka meðal okkar fullorðinna. Einn fullorðinn." % Skipulagsleysi? Símnotandi: — Ég hef fylgst með frétt- um af alvarlegu ástandi í síma- málum þjóðarinnar sem að und- anförnu hafa birzt í blöðum. Skilst mér að t.d. sums staðar sunnanlands sé mjög löng bið eft- ir nýjum síma bæði í Reykjavik og nágrenni og þeir, sem t.d. hyggjast flytja í ný hverfi á þessum stöðum geta ekki fengið síma fyrr en seint og um siðir. Ef þetta er allt saman rétt og satt má það teljast allundarlegt svo ekki sé meira sagt, að ekki skuli þess gætt þegar ný hverfi eru skipu- lögð, að gera ráð fyrir þvi að fólk- ið sem þangað flyzt þurfi síma og því þurfi að leggja leiðslur og reisa simstöðvar og tilheyrandi. Nú er ég ekki að sakast við eina eða neina simamálastjóra eða um- dæmisstjóra, en að þessu má vel spyrja og um leið hver eigi að sjá um að þetta sé í Iagi. Er það hlutverk skipulagsyfirvalda, við- komandi símayfirvalda eða ein- SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á miklu alþjóðlegu kvenna- skákmóti i Novosibirsk i Sovét- ríkjunum i fyrra kom þessi staða upp i skák þeirra Ljubörskuju Sovétríkjunum, sem hafði hvitt og átti leik, og Chonkich, Ung- verjalandi: 24. Hxfti! Svartur gafst upp. Hann er varnarlaus eftir 24 . .. gxf6, 25. Dg7 — Hf8, 26. Bh6. Sovézka skákkonan Kozlovskaja sigraði á mótinu, hlaut 11 '/> vinning af 15 mögulegum. hverra allt annarra? Mér hefur oft fundizt að svona hlutir hafi gerzt hjá okkur, t.d. að ýmsir hlut- ir af þessum toga liggi á milli hluta í skipulagningu alls konar. Það eru svo margir aðilar, sem hér koma við sögu, að erfitt er að fylgjast með þvi að öllum þáttum skipulagsins sé sinnt. Nú hlýtur sfmi að teljast til nauðsynlegra tækja og því má það heita undar- legt að ekki skuli séð fyrir að útvega hann í nýjum hvérfum. Að vísu hefur það komið fram í frétt- um líka að yfirvöld hafa skorið niður það sem simayfirvöld hafa viljað fá til framkvæmda svo kannski á þetta sér eðlilegar skýr- ingar, en hvaða réttlæti er í því að skera niður þessar framkvæmdir þannig að heilu hverfin verða símalaus? Hér vantar sjáifsagt meira samband milli f járveitinga- valds og viðkomandi yfirvalda eða eitthvað i þá átt. En ég endurtek, þetta er ekki hugsað sem nein árás, heldur vil ég aðeins minna á þetta til að benda á að það hlýtur að þurfa að samræma hina ýmsun þætti skipulags í svona tilvikum. HOGNI HREKKVISI . . ©It78 ? McNaogjbt 8 r»4.. Iac. Vegna veðurofsans og ófærðar fellur kennsla niður i barnaskólum bæjarins í dag! DALE CARNEGIE NÝ NÁMSKEIÐ ERU AÐ HEFJAST — Námskeiðið mun hjálpa þér að: Á" Öðlast meira hugrekki og sjálfstraust. Á' Tala af ÖRYGGI á fundum. Á- Stækka vinahóp þinn, ávinna þér virðingu og viðurkenningu. Ár Starfa af meiri lifskrafti — heima og á vinnustað. ■Á Halda áhyggjum í skefjum og draga úr kvíða. KYNNINGARFUNDUR Verður 12. janúar — fimmtudagskvöld kl. 8.30 að Síðumúla 35. Innrítun og upplýsingar í síma ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA STÓRKOSTLEG ÚTSALA Á HLJÓMPLÖTUM OG KASSETTUM Verð frá kr. 395 til kr. 2.295,- AÐEINS í 3 DAGA heimilistæki sf Hafnarstræti 3 - 20455.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.