Morgunblaðið - 10.01.1978, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANUAR 1978
21
Konráð Jónsson er í miklum ham um þessar mundir. Hann skoraði 12 mörk á móti HK á sunnudaginn og
á móti Leikni f Reykjavíkurmótinu í sfðustu viku skoraði hann 16 mörk. Konráð sést hér sækja að vörn
HK og skömmu síðar hafði hann skorað eitt marka sinna.
ÞRÓTTUR NÁÐI
TOPPLIÐUNUM
STAÐA Þróttar f annarri deild karla i handknattleik lagaðist til muna við sigur á efsta liði í deildinni IIK
á sunnudagskvöld í Garðabæ. Úrslit urðu 26—22. Eru nú bæði liðin með 9 stig ásamt KA og Fylki.
HK byrjaði leikinn vel og tókst
að ná forystu i leiknum og komst i
7—5 en Þróttarar sigu á og náðu
tökum á leiknum og í leikhlé var
staðan 14—10 Þrótti á hag.
Þróttarar héldu forustunni út
leikinn. þrátt fyrir að HK revndi
að taka Konráð Jónsson ur um-
ferð í byrjun seinni hálfleiks.
Þróttur spilaði þennan leik yfir-
vegað og rólega með góðum
árangri. HK spilaði hins vegar
sennilega sinn lakasta leik á
keppnistimabilinu.
Konráð Jónsson var besti
maður Þróttar i þessum leik og
var illstöðvandi fyrir vörn HK. Þá
var Halldór Bragason góður. Besti
maður HK var Jón Einarsson
(Knattspyrnumaður úr Val).
Mörk Þróttar Konráð 12 (4v)
Halldór 5. Jóhann 5.
Mörk HK Björn Bl. 7 (2) Jón E.
5. Ragriar 4(1). Hilmar 3, Krist-
inn 2, Lárus 1.
— ÞR
ÁHUGALEYSI GRÓTTU
LEIKUR Gróttu og Stjörnunnar f
annarri deild í handknattleik á
sunnudagskvöld í Garðabæ var
frekar slakur en þó brá fyrir góð-
um leikköflum hjá leikmönnum
Stjörnunnar, Gróttumenn voru
hins vegar mjög áhugalausir um
leik sinn og blasir ekkert við hjá
liðinu nema fall niður f þriðju
deild ef það einbeitir sér ekki
meir að leik sfnum.
Stjarnan hafði forustu í leikn-
um allan tfmann og f leikhléi var
staðan 13—9, en sigur Stjörnunn-
ar var 10 mörk 28—18. Bestu
menn Stjörnunnar voru þeir
Magnús Teitsson og Hörður Hilm-
arsson. Enginn af Gróttumönnum
lék betur en annar.
Markhæstir í liði Stjörnunnar:
Hörður :6, Magnús Teits 5,
Magnús A. 4.
Markhæstir f liði Gróttu: Grét-
ar 5, Gauti 4,.Gunnar 4. ÞR.
KA OG Leiknir leiddu saman hesta sfna á Akureyri f 2. deildinni í handknattleik á laugardaginn og er
skemmst frá því að segja að yfirburðir KA voru algjörir. Stórsigur Norðanmanna 30:14, í leikhléi 16:6.
Gangur leiksins var i stuttu
máli sá að KA hafði skorað 5
mörk áður en Leiknir komst á
blað og voru þá 11 mínútur liðnar
af leik. KA jók siðan forskot sitt
stöðugt og i lokin var stórsigur
KA staðreynd, 30:14.
KA-liðið lék að þessu sinni
einn sinn bezta leik á vetrinum,
en þess ber að gæta að Leiknis-
menn voru afar slakir. Að vísu
vantaði tvo af lykilmönnum
Leiknis að þessu sinni, þá Hörð
Sigmarsson og markvörðinn Finn-
boga Kristjánsson.
Magnús Gauti átti stórleik í
marki KA, en annars vakti sér-
staka athygli i liðinu ungur piltur
að nafni Friðjón Jónsson, sem
þarna lék sinn annan leik. Hann
er tvimælalaust maður framtíðar-
innar í KA.
Mörk KA: Jón Hauksson 8 (3v),
Þorfeifur Ananiasson 7, Friðjón
4, Jón Árni og Hermann 3 hvor,
Jóhann 2, Guðbjörn, Páll og Sig-
urður Sigurðsson 1 hver.
Mörk Leiknis: Hafliði P. 4, Haf-
iiði Kr. 4, Guðmundur Kr. og As-
mundur 2 hvor, Árni og Guð-
mundur Kj. 1 hvor.
— Sigb. G.
ALLT í JÁRNUM
FRAMSTÚLKúRNAR léku
sennilega sinn lélegasta leik f háa
herrans tfð á móti Armanni á
sunnudagskvöldið og svo sannar-
lega mátti lið Fram þ'akka fyrir
sigurinn. Úrslitin urðu 13:12 og
var jafnt allt fram á sfðustu mfn-
útur leiksins, en þá voru Ár-
mannsstúlkurnar gjörsamlega
sprungnar enda höfðu þær enga
skiptfmanneskju f leiknum.
Framstúlkurnar gerðu sig sekar
um slíkar byrjendavitleysur í
leiknum á sunnudaginn að ótrú-
legt er að liðið skuli vera með í
keppninni um meistaratitilinn.
Hvað eftir annað sendu þær
knöttinn beint i hendur Ármanns-
stúlkna — eða þá beint út af. I
Ármannsliðinu var mikil barátta
að þessu sinni og liðið kom svo
sannarlega á óvart. Það er þó ekki
hægt aö ætlast til þess að liðið geti
spilað vel í heilar 50 mínútur með
aðeins 7 leikmenn. Beztar voru
Guðrún Sigurþórsdóttir, Magnea
og Auður. Af Framstúlkunum á
engin hrós skilið.
Mörk Fram: Oddný 3, Guðríður
3, Sigrún 2, Arnþrúður 2, Jenný 1,
Kristin 1, Jóhanna 1.
Mörk Ármanns: Guðrún 7, Erla
3, Auður 1, Jórunn 1. (
Yfirburðir KR
FYRRI hálfleikurinn í viðureign Víkings og KR í 1. deild kvenna á
laugardaginn var mjög jafn og munaði aðeins einu marki, 8:7 f.vrir
KR, í leikhléi. í seinni hálfleiknum var hins vegar nánast aðeins eitt
lið á vellinum og KR vann hálfleikinn 7:1 og úrslitin urðu þvf 15:8
fyrir Vesturbæjarliðið.
Hjördís og Hansína báru hita og þunga dagsins f KR-liðinu, en Olga
gerði laglega hluti fyrir lið sitt þegar mest á reið. Í Vfkingsliðinu voru
þær Stella og Sigurrós beztar.
MÖRK KR: Hjördfs 6, Hansína 2, Olga 3, Karólfna 2, Anna Lind 1,
Sigrún 1.
MÖRK VÍKINGS: Stella 4, Ingunn 3, Sigurrós 1.
—áij
Sigrar hjá
KR og Ármann
SÍÐASTA umferð Reykjavlkurmótsins i handknattleik hófst í Höllinni á
föstudagskvöldið og birtust þá fyrst Fylkir og KR og siðan Ármann og ÍR.
Skiptu leikir þessir litlu máli um úrslit mótsins og voru gæðin eftir þvi.
Fylkir hafði forystu lengst af gegn KR og var staðan i hálfleik 8—7 Fylki i
hag. Er liða tók á siðari hálfleik náðu KR-ingar að jafna og skriða yfir og sigra
loks 22—18 sem var i alstærsta lagi miðað við gang leiksins. Bestur hjá
Fylki var markvörðurinn Jón Gunnarsson. en hjá KR átti Haukar góðan teik i
siðari hálfleik. er hann skoraði 7 mörk.
Siðan tóku við Ármann og ÍR og er um þann leik að segja. að Ármann náði
fljótlega góðum tökum á leiknum. hafði yfir. 15—11 i hálfleik og sigruðu
23—21. Pétur og Þráinn voru drýgstir að skora fyrir Ármann. en þeir
Vilhjálmur og Jóhannes fyrir ÍR.
Dómgæslan i leikjunum var siður en svo til fyrirmyndar, einkum i þeim
síðari, en þá var sumt er þeir svartklæddu dæmdu beinlinis sprellfyndið.
Enn tapar Delfs
fyrir Svend Pri
SVEND Pri átti ekki í erfiðleik-
um með að sigra Flemming Delfs
í úrslitum einliðaleiksins á opna
sænska meistaramótinu. Urðu úr-
slitin 15:13 og 15:8 og hefur Delfs
alls ekki náð að sýna hvers hann
er megnugur eftir að hann tók
heimsmeistaratitilinn frá Pri í
Malmö á síðasta vetri.
Lena Köppen hélt uppteknum
hætti og var ósigrandi í kvenna-
flokki. í einliðaleik sigraði hún
ensku stúlkuna Jane Webster
11:5 og 11:2, en sú enska kom
mjög á óvart á mótinu. í tvíliða-
leik kvenna sigruðu Nora Perrv
og Anne Statt frá Englandi holí-
enskar stúlkur 15:5 og 15:6. í
tvenndarkeppni unnu Nora Perry
og Mike Tredgett sigur á Köppen
og Skovgaard 15:5 og 15:6.
Delfs og Skovgaard fengu þó
nokkrar sárabætur er þeir unnu í
tvíliðaleiknum, en það var þó ekki
fyrr en eftir gífurlega baráttu að
þeir innbyrtu sigurinn. Þeir léku
á móti sænsku heimsmeisturun-
um Kihlström og Fröman og úr-
slitin urðu 15:18 15:9 og 15:8.
Fengu Svíar því engan titil á
þessu móti.
HM-LIÐIN
f LEIKJUM
UNGVERJAR unnu Norðmenn 23:19 i landsleik i handknattleik i Skien i
Noregi á sunnudaginn. í leikhléi var staðan 13:11. Peter Kovacs skoraði átta
mörk fyrir Ungverja, eitt viti. Ole Gundem gerði 7 af mörkum Noregs i
leiknum.
í fimm landa keppni i handknattleik. sem hófst á Spáni um helgina. urðu
úrslit meðal annars þau að Rússar unnu Japani 30:16 og Spánverjar unnu
Frakka 19:17. Eins og kunnugt er leika bæði lið Sovétmanna og Spánverja i
riðli með íslendingum i Heimsmeistarakeppninni i handknattleik. Fimmta
liðið. sem tekur þátt í mótinu eru rúmensku heimsmeistararnir.
Opið meistara
mót hjá TBR
NÆSTKOMANDI sunnudag, 15.
janúar, hefst nýtt badmintonmót í
sögu TBR og nefnist það Meist-
aramót TBR. Mótið verður i þrem-
ur áföngum og i þeim fyrsta
verður keppt í einlióaleik. Siðar
verður keppt i tvíliða- og tvennd-
arleik og einnig í öðlingaflokki,
en í þeim flokki eru badminton-
menn 40 ára og eldri. Öðlinga-
flokkur er nýtt nafn á flokki „old
boys“ og þarf ekki að hafa mörg
orð um hve miklum mun betra
hið nýja nafn er.
Sigurvegarar í meistaraflókki
fá nafnbótina TBR-meistarar
1978 og skiptir þá engu máli hvort
þeir eru félagar i TBR eða ekki,
en mót þetta er opið. Er keppnis-
formið nýtt og til þess fallið að
njóta vinsæida þegar fram í sæk-
ir.
HINN bráðefnilegi norski skiðagöngumaður Lars Erik Eriksen vann á sunnu-
daginn nokkuð óvæntan sigur i „Monolit" skiðagöngunni i Frogner-
garðinum i Ósló. Er þessi ganga 25 kilómetra löng og fékk Eriksen timann
1:53.41.
Thomas Wassberg frá Sviþjóð varð annar, en annar efnilegur Norðmaður.
Anders Bakken. varð þriðji. Ivan Garnin, Rússlandi. og Magne Myrmo.
Noregi, urðu i 4. og 5. sæti. Pað er félagið Lyn i Ósló. sem genst árlega fyrir
þessu móti og var þvi lýst yfir í lokinni þessari 25. keppni i garðinum. að ein
milljón manna hefðu séð keppnina frá upphafi