Morgunblaðið - 10.01.1978, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 10.01.1978, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANUAR 1978 5 Kaupstaðarréttindi fyrir Sélfoss: Já sögðu 751 nei sögðu 27 8 „ÞETTA er skýlaus niðurstaða og hreppsnefndin mun nú taka málið til afgreiðslu, sem ég býst við að verði f vikunni, og ef fer, eins og ég álft, þá verður næst leitað til þingmanna Suðurlands- kjördæmis um að þeir flytji á Alþingi frumvarp um kaupstaðar- réttindi handa Selfossi," sagði Oli Þ. Guðbjartsson, oddviti á Sel- fossi, f samtali við Mbl. f gær, en af 1045 sem atkvæði greiddu f skoðanakönnuninni um helgina, var 751 fylgjandi þvf að sækja um kaupstaðarréttindi, en 287 voru á móti. Óli sagði, að á kjörskrá Wefðu verið 1944. Sem fyrr segir greiddu 1045 atkvæði, eða um 56%. Já sögðu 751 eða 71,87% þeirra, sem atkvæði greiddu, og nei sögðu 278 eða 26,6%. Auðir seðlar voru 16. Þegar atkvæði voru greidd um þetta sama mál 1973 voru yfir 60% þeirra, sem atkvæði greiddu þá, á móti kaupstaðarréttindum. „Ég tel að nú hafi verulega ráðið vilji ungra manna," sagði Óli. „En þess ber að geta að þegar kosið var um kaupstaðarréttindi 1973 var einnig kosið um annað mál, Votmúlamálið svonefnda, sem ég tel engan vafa leika á um að hafi ráðið niðurstöðu beggja málanna þá.“ Forrædi rannsóknar óskorað í höndum Rannsóknarlögreglu — segir Hallvarður Einvarðsson rannsóknarlögreglustjóri HALLVARÐUR Einvarðsson rannsðknarlögreglustjóri hefur beðið Morgunblaðið að birta eftir- farandi athugasemd: Vegna ummæla, sem viðhöfð hafa verið í fjölmiðlum um rann- sókn á meintri fjártöku deildar- Chaplin Sigurður Sverrir Pálsson skrifaði greinina um Charles Chaplin, sem birtist á fjórum síðum í Mbl. s.l. sunnudag. Nafn hans sem höfundar féll því miður niður. stjóra ábyrgðardeildar Lands- banka íslands, þess efnis, að Landsbankinn „skammti gögn í hendur rannsóknarlögreglunnar" þykir rétt að taka fram eftirfar- andi: Eins og áður hefir verið frá greint barst rannsóknarlögreglu- stjóra rfkisins kæra og beiðni um rannsókn vegna þessa atferlis frá stjórn Landsbanka Islands. Er þar frá því greint, að um háar fjárhæðir sé að ræða, sem teknar hefðu verið í ákveðin skipti á all- löngum tíma. I þágu rannsóknar þeirra alvarlegu kæruefna, sem hér um ræðir, hefir verið leitað eftir ýmsum sönnunargögnum og Framhald á bls. 24. Fyrir nokkru útskrifuðust þessir sjúkraliðar frá F-holli Sjúkraliðaskóla lslands. Efsta röð frá vinstri: Guðrun Agnes Sigurðardóttir, Þórstfna Sóley Ólafsdóttir, Asgerður Hlynadóttir, Guðbjörg Pálsdóttir, Helga Björg Björnsdóttir, Anna Sigrfður Jörundsdóttir, Linda Vilhjálmsdóttir, Kristjana Kristjáns- dóttir, Margrét Ryel, Gunnhildur Knútsdóttir, Sigrfður Ellen Konráðsdóttir og Jóhanna Krog. Miðröð frá vinstri: Björk Magnúsdóttir, Eygló Ósk Einarsdóttir, Anna Ólafsdóttir, Hrafnhiidur Valbjörnsdóttir, Sigrún Jóhannesdóttir, Hrefna Einarsdóttir, Auður Erna Höskuldsdóttir, Guðlaug Björk Benediktsdóttir, Agnes Svavarsdóttir, Júifanna Arnadóttir og Sigrfður Helga Einarsdóttir. Fremsta röð t.v.: Lovfsa Einarsdóttir, Jenný Nfelsdóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir kennari, Kristbjörg Þórðardóttir kennari, Marfa Ragnarsdóttir, María Rögnvaldsdóttir og Björg Sigurðardóttir. Verkalýðsfélag Raufarhafnar: Mótmælir leigu Norglobal Raufarhöfn, 9. janúar. STJÓRN Verkalýðsfélags Raufar- hafnar samþykkti á fundi sfnum 8. janúar sl. að mótmæla þeim verkum stjórnvalda að leyfa leigutöku á Norglobal á yfirstand- andi loðnuvertfð. 1 samþykkt verkalýðsfélagsins segir: „Þvf furðulegri er leyfisveiting þessi ef höfð eru f huga þau orð útvegs- manna og forystu LlU að sfðasta loðnuvertfð hafi skilað veruleg- um hagnaði til útgerðarinnar þrátt fyrir fjarveru Norglobals þá. 1 sfldarverksmiðjunni á Rauf- arhöfn hafa farið fram nokkrar endurbætur að undanförnu og eins hefur sveitarfélagið lagt f mikinn kostnað við vatnsveitu. Hvort tveggja var gert f þeirri trú að slfkt myndi skila byggðarlag- inu og þjóðarbúinu auknum tekj- um. Af þeim sökum varð þátttaka Framhald á bls. 24. 4 HJÓLA drif afgreiðslu frá verksm. í febrúar. QUATRATRACK Pöntunum veitt móttaka 4 cyl. 86 ha Áætlað verð 2.4 millj. HÁTTOG LÁGT DRIF 16 " FELGUR ÞRIGGJA DYRA Bifreiðar & Landbúnaðarvélar hf. Nuiliirliimlshraul U - llrjkjinik - Ními illllilKI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.