Morgunblaðið - 10.01.1978, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 10.01.1978, Blaðsíða 23
1 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1978 23 Eysteinn Tryggvason, jarðeðlisfræðingur: Goshættan eykst eft- ir því sem umbrotin halda lengur áfram Frá blaðamanni Mbl. 1 Mývatnssveit, Þórleifi Ólafssyni: „ÞESSI umbrot núna eru að sumu leyti Ifk þeim sem á und- an hafa verið, en að þessu sinni komu engir jarðskjálftar áður en landsig hófst og er atburða- rásin þvf nokkuð Ifk þvf, sem gerðist f september sl.,“ sagði Eysteinn Trygfvason, jarðfræðingur, þegar Morgun- blaðið ræddi við hann f Mývatnssveit. „Þó svo að yfirstandandi um- brot hafi að nokkru leyti verið lík þeim sem voru í september, „Það er hins vegar athyglis- vert að þetta kvikuhlaup fór nú til norðurs og því lengra sem kvikan hefur hlaupið í þá átt hefur sigið verið hægara," sagði Eysteinn. Við þær mælingar sem gerðar hafa ver- ið hefur komið i ljós að neðst í Gjástykki er gliðnunin orðin um einn metri. Jafnframt má geta þess að í Bjarnarflagi gliðnaði land um 2 metra í náttúruhamförunum í apríl sl. Hins vegar getur land átt eftir að gliðna nokkuð enn i Gjá- stykki. Annars hefur gliðnun sinni, því að yfirleitt hefur gos komið í byrjun umbrotanna. Hins vegar höfum við ekki nógu mörg dæmi um þetta né nægilega reynslu til að geta fullyrt nokkuð um þetta atriði." Þá sagði Eysteinn að hann teldi að kvikumagnið sem nú væri á ferðinni, væri með því mesta sem runnið hefði í iðrum jarðar á þessum slóðum, frá þvi að umbrotin hófust, en kvaðst reikna með að það hefði mest orðið í umbrotunum i april sl. eða 70 milljónir rúmmetra. Blaðamaður Mbl. kíkir ofan í eina sprunguna í Gjá- st.vkki. Páll Einarsson, jarðeðlisfræðingur: Óvíst hvað Vísindamenn bera saman bækur sfnar við Leirhnúk í gær. Eysteinn Tryggvason er fyrir miðju á myndinni. þá hafði stöðvarhúsið í Kröflu ekki risið i nokkrar vikur, svo að merkjanlegt væri og að þvi leytinu er þetta þvi frábrugðið umbrotunum i september. I þessu sambandi má benda á að á undan látunum i apríl á síð- asta ári komu jarðskjálftar áður en landsig byrjaði. Þá var landris nú hærra en nokkru sinni fyrr, en það hefur líka gerzt í hvert sinn sem land hef- ur sigið, að þegar land hækkar hér á ný, rís landið hærra í kjölfarið en áður hefur verið, þannig að fari svo að landið taki að rísa á ný að þessari hrinu lokinni, verður landrisið meira en nokkru sinni áður,“ sagði Eysteinn. Hann var spurður að þvi hvort landsigið nú hefði ekki komið síðar en menn áttu von á. „Þetta var allt nokkru seinna á ferðinni en maður átti von á. Hins vegar komu umbrotin í september fyrr en við reiknuð- um, og aprílhrinan var síðar á ferðinni en við höfðum spáð. A þessu sést að við getum ekki spáð með neinni vissu um hvenær þessar hrinur eða land- sig verða. Þar getur skeikað jafnvel mánuði til eða frá.“ Eysteinn Tryggvason sagði, að hann gæti ekki skýrt með neinni vissu hvernig stæði á því að landsig virtist nú hægara en i síðustu umbrotum. Hins vegar væri talið að sig hefði verið hægara þegar umbrotin í Mývatnssveit hófust í desember 1975 og ennfremur hefði sigið í september 1976 verið ákaflega hægfara og landsigið þá verið um 10 sm við Kröflu á 5 dögum. I næsta sigi, á eftir hefði aftur á móti allt gengið yfir á einum sólarhring. Slíkt hið sama hefði verið i apríl sl. og síðan i september á minna en einum sólarhring. lands orðið meiri en einn metri í fimm hrinum af þeim sjö sem komið hafa síðan í desember 1975. Eysteinn var ennfremur spurður að þvi hvort jarðvís- indamenn hefðu ekki síður átt von á því að kvikan hlypi til norðurs i þetta skipti. „Við átt- um vart von á þvi að kvikan færi nú til norðurs. I fyrri hrin- unum hefur kvikan ávalt farið styttra til norðurs í hvert sinn og stefnt yfir í Bjarnarflag. Um eldgos er það að segja, að ég tel óliklegt að það gjósi að þessu Margt benti til að kvikumagnið nú væri lítið eitt minna. „Það er ekkert sem bendir til þess að umbrotin á þessu svæði séu í rénun. Ég á von á að innan nokkurra mánaða hafi land ris- ið I sömu hæð eða jafnvel meiri en það var í þegar sig byrjaði fyrir helgina, en reikna má með að minnsta kosti þrír mánuðir líði áður en svo verði komið ef við reiknum með sama hraða og áður. Þá neita ég því ekki að goshætta fer stöðugt vaxandi eftir því sem þessi umbrot halda lengur áfram.“ breytthegð- an þýðir... „JARÐSKJALFTAHRINAN nú er að þvf leyti svipuð þeim er fyrr hafa komið, að allar hafa þær byrjað á svipuðum stað eða f öskjunni við Leir- Páll Einarsson, jarðeðlisfræðingur, kennir áhugasömum lærisveini að lesa á jarðskjálftamælana. Ljósm. Mbl.: Rax. hnúk. Sfðan hafa skjálftarnir ávallt leitað út eftir sprungu- kerfinu hér,“ - sagði dr. Páll Einarsson, jarðeðlisfræðingur, þegar rætt var við hann á skjálftavaktinni f Reynihlfð. Þegár Páll var spurður hvort mikill munur væri á þeim skjálftum sem fylgdu yfirstand- andi hrinu og þeim sem á und- an hefðu komið, sagði hann að munurinn væri helzt sá að atburðarásin nú hefði öli verið hægari og sagðist hann álita að þessi litli sighraði táknaði að gliðnun lands yrði minni en áð- ur. Þá gæti spenna í berginu beggja vegna sprungunnar ver- ið orðin minni en áður og þvi opnaðist jörðin ekki að sama skapi. „Liklegasta framhaldið er að þessi hrina fjari hægt út. Að visu hafa flestar hrinurnar fjarað fljótt úr, en þær sem verið hafa i Gjástykki dáið hægt og rólega. Það er ekki gott að segja hvert framhaldið verð- ur. Nú höfum við séð að um breytta hegðan er að ræða á umbrotasvæðinu, sem við vit- um ekki í hverju er fólgin. Það verður þvi forvitnilegt að vita þegar land byrjar að rísa á ný hvort það verður hægara en áður eða hvort rishraðinn verð- ur hinn sami. Hægara ris þýðir að aðstreymi að neðan er farið að minnka", sagði Páll að lok- um.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.