Morgunblaðið - 10.01.1978, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 10.01.1978, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1978 ALLT Á VALUR SUÐUPUNKTI, ER SIGRAÐI UMFN Fvrir troðfullu húsi áhorfenda leiddu UMFN og Valur saman hesta sína í einum af úrslitaleikjum íslandsmótsins í Njarðvík á laugardaginn. Leikurinn, sem var mjög skemmtilegur á að horfa, lauk með aðeins tveggja stiga sigri Vals, 93 stigum gegn 91, eftir æsispennandi lokamínútur, þar sem ekki var séð fyrr en flautað var af, hvort liðið myndi fara með sigur af hólmi. Það var Ijóst strax í upphafi, að um mikinn baráttuleik yrði að ræða. Valsmenn -með tvö töp á bakinu máttu ekki við því þriðja, sem þýddi, að þeir yrðu úr leik í baráttunni um Islandsmeistaratit- ilinn. Njarðvíkingar, sem voru hii.s vegar eina taplausa liðið fram að þessu, hafði stigið stórt skref á áttina að titlinum með sigri í þessum leik. Valsmenn mættu mjög ákveðn- ir til leiks og höfðu frumkvæðið allt frá upphafsmínútu. Munur- inn var þó aldrei mikill, oftast 4—6 stig, en þess á millí náðu Njarðvíkingar einstöku sinnum að jafna. Eftir 10 mínútna leik var staðan til að mynda jöfn, 22:22. Þar á eftir náðu Valsmenn mjög góðum kafla, þar sem saman fór mjög góð vörn og góð hittni I sókninni og voru þeir komnir með 10 stiga forskot, 44:34, þegar 5 mínútur voru til leikhlés. Með mikilli baráttu og áköfum stuðn- ingi áhorfenda náðu Njarðvíking- ar að minnka þennan mun niður i tvö stig fyrir lok fyrri hálfleiks og var staðan i leikhléi 48:46 Val í vil. Sama sagan endurtók sig í sið- ari hálfleiknum, Valur hafði ávallt frumkvæðið og náði mest 9 stiga forskoti, þegar tæpar 7 mín- útur voru til leiksloka. Upp frá því hófst æsispennandi lokakafli. Þegar rúmar 3 mínútur voru eftir höfðu Njarðvíkingar náð að minnka muninn í 3 stig. Skömmu síðar fær Torfi Magnússon sina 5. villu og er staðan þá 90:84 fyrir Val. Kári Marisson minnkar mun- inr. í 2 stig með 4 stigum úr vítum. Valsmenn skora sitt 91. stig úr viti, en Gunnar Þorvarðarson minnkar muninn í 1 stig með tveimur vítaskotum. Kári nær sið- an að jafna við gífurlegan fögnuð áhorfenda, og þegar 21 sekúnda er til leiksloka fær Rick Hockenos tvö vítaskot og þau hafna bæði i körfunni og staðan er 93:91 fyrir Val. Njarðvikingar hefja sókn, sem endar með skoti frá Kára, þegar 3 sekúndur eru eftir, og munaði litlu að það færi ofan i og meðan leikmenn börðust um frá- kastið rann leiktíminn út. Njarð- vikingar höfðu þar með tapað sín- um fyrsta leik í vetur og Vals- menn ennþá með í baráttunni um titilinn. Um liðin er það að segja, að þau hafa bæði sýnt mun betri leiki i vetur, þó sérstaklega Njarðvík- ingar. Var hittni þeirra slök fyrir utan og þeir náðu ekki að nýta hraðaupphlaupin eins og í fyrri leikjum sínum. Af leikmönnum UMFN bar Kári Marisson af. Hann hafði það erfiða hlutverk að gæta Rick Hockenos og tókst það mjög vel. Einnig byggði hann upp flestar sóknarlotur Njarðvikinga Gunnar Þorvarðarson var að venju mjög drjúgur, en aðrir leik- menn léku undir getu nema Árni Lárusson, sem stóð sig þokkalega. Af leikmönnum Vals ber fyrst að nefna Hafstein Hafsteinsson, sem átti þarna örugglega sinn bezta leik með Val til þessa. Stóð hann sig mjög vel í vörninni og hirti fjölda frákasta auk þess sem hann skoraði mörg stig á þýðing- armiklum augnablikum. Þá voru þeir Rick Hockenos og Torfi Magnússon mjög góðir, en aðrir léku undir getu. Það gerðist markvert að leik loknum, að þjálfara Njarðvikinga, Hilmari Hafsteinssyni, var sýnt rauða spjaldið þrivegis fyrir mjög ósæmilega framkomu við báða dómara leiksins. Stigahæstir hjá Val: Torfi Magnússon 23, Rick Hockenos 20, Rfkharður Hrafnkelsson 13 og Hafsteinn Hafsteinsson 10. Stigahæstir hjá UMFN: Kári Marisson 26, Gunnar Þorvarðar- son 19, Þorsteinn Bjarnason 14. I leiknum voru dæmdar 26 vill- uráVal, en 27 á UMFN. Dómarar voru Jón Otti Ölafsson og Guðbrandur Sigurðsson og dæmdu þeir erfiðan leik mjög vel. GJ/ÁG HNUTUKAST Á BÁÐA BÓGA OG ÞRJÚ RAUÐ SPJÖLD Á LOFTI ÞAÐ ÓVENJULEGA atvik gerðist eftir leik Vals og UMFN á laugardaginn, að þjálfara UMFN, Hilmari Hafsteinssyni, var sýnt rauöa spjaldið þrisvar sinnum fyrir svívirdingar í garð beggja dómara leiksins, þeirra Jóns Otta Ólafssonar og Guðbrands Sigurðssonar. Við ræddum við nokkra aðila að leik loknum. Jón Otti Ólafsson: ,,Ég fór til Njarðvíkur til þess að dæma þennan leik eftir beztu getu og að sjálfsögðu alveg án tillits til þess, hvaða lið áttu í hlut. Ég veit það, að þessi leikur var ekki ílla dæmdur. Svivirðingar Hilmars i garð okkar dómaranna voru þvi- iíkar, að ég hef aldrei vitað annað eins. Það var ekki um annað að ræða en að sýna manninum rauða spjaldið þrisvar vegna þess hve alvarleg hegðun hans var. Þessi framkoma Hilmars mun að sjálf- sögðu veróa kærð til Aganefndar KKÍ.“ Guðbrandur Sigurðsson: „Ég minntist á það eftir leikinn, að ég hefði fengið grjót í höfuðið með- an leikurinn stóð yfir og að rétt- ast hefði verið að reka áhorfend- ur út úr húsinu. Þá æstist Hilmar allur upp og jós yfir mig svivirð- ingum og ég sá mér ekki annað fært en að sýna honum rauða spjaldið, en þá bætir hann grát#( ofan á svart hrækjjM framan i mig við eigum að 111 iin<-f ununi Það að ég hugsa mig um'tviHváf áður en ég dæmi Ieik í Njarðvik aftur." Hilmar Hafsteinsson: „Ég er al- veg sannfærður um. að Jón Otti konx-hirtgáð suður eftir eingöngu i þeiltvdlgangi að láta UMFN tapa. Það er fyrst og fremst persónuleg óvild hans í minn garð sem þessu veldur, en einnig hafði félag hans hag af því að við töpuðum. Ég mun senda KKl bréf, þar sem ég fer fram á, að Jón Otti dæmi ekki fleiri leiki hjá UMFN. Mér finnst að dómarar verði að undirbúa sig fyrir leiki rétt eins og leikmenn og ástandið í dómaramálunum er svo slæmt, að margir dómaranna kunna alls ekki reglurnar." Gunnar Þorvarðarson, fyrirliði UMFN: „Mér finnst, að dómgæzl- an í þessum leik hafi ekki verið neitt verri en gengur og gerist. Mér fannst mikið ósamræmi vera f dómunum, en ég játa það að maður hefur svo sem oft séð það verra. Valsmenn áttu góðan leik og sigurinn gat lent hvorum meg- in sem var.“ Torfi Magnússon, fyrirliði Vals: áttumeóðan leik, sérstak- ! léjp tyjÉflðNtojk og áttum skil- ið að siðHpHMM^^Ian var léleg eins og alíTsf/én það er af og frá, að dómarrarnir hafi verið hlut- drægir ó| vitleysurnar, sem þeir gerðu bitnuðu ekki síður á okkur en Njarðvíkingum." ÁG Mark Christensen skorar fyrir Þór á móti IR, allt kemur fyrir ekki þó Jón Jörundsson og Ágnar Friðriksson reyni hvað þeir geta til að stöðva Norðanmennina. (Ljósm.GG.) ÍR-ingar að tryggja sæti sitt ÞAÐ ER ekki beint hægt að segja að sigur ÍR yfir Þór » íslandsmótinu i körfuknattleik hafi verið sannfærandi, er liðin áttust við í íþróttahúsi Hagaskólans á laugardaginn. Tveir mínútu langir kaflar sinn í hvorum hálfleiknum tryggðu ír sigur. en i hinar 38 minúturnar var jafnræði með liðunum. Lokatölur voru þvi 102—81 ÍR i hag. Það var mikið skorað á fyrstu mínút- um leiksins. og skiptu liðin stigunum bróðurlega með sér En á 1 5 minútu fyrri hálfleiks náðu ÍR-ingar að skora 1 0 stig gegn engu stigi Þórsara Var sá munur í hálfleik. en þá höfðu ÍR-ingar skorað 59 stig gegn 49 stigum Þórs Er þetta óvenju mikið skor i emum hálfleik. en segja má að varnir beggja liðanna hafi enn verið í jólaleyfi Seinni hálfleikur var ekki i nokkru frábrugðinn hmum fyrri og þegar 8 minútur voru liðnar af hálfleiknum skoruðu IR-mgar 13 stig i röð og var munurinn á liðunum þá orðinn 23 stig En það serh eftir var leiksms skoruðu liðin jafnt á báða bóga En úrslitin urðu sem sagt 102—81 ÍR i vil Nokkur harka var i leiknum og auk þess bar á nöldri emstakra leikmanna og vildu þeir kenna dómurunum um allt, sem miður fór, en sannleikurmn er sá að menn svifast einskis til að fela eigið getuleysi enda bæði liðin nánast æfingalaus eftir náðugt jólafrí Bestir i liði ÍR voru Erlendur Markús- son og Agnar Friðriksson Var þetta jafnframt besti leikur Agnars i vetur Þá voru Kristmn og Jón Jörundsson sæmilegir. en hafa báðir átt betri leik en þeir sýndu gegn Þór í liði Þórs var Mark Christiansen langbestur að vanda Þá átti Jón B Indriðason ágætan leik £n lið Þórs er með þeim galla. að skiptimenn eru af mjög skornum skámmti Er varla að vænta að liðið geri stóra hluti í vetur. en hins vegar eru margir leikmanna Þórs i mikilli framför. Stig ÍR skoruðu Erlendur 2 7. Agnar 24. Kristmn 16. Jón 13. Þorstemn Hallgrimsson og Stefán Kristjánsson 8 stig hvor, Sigurður Valur Halldórsson 4 stig og Kristján Sigurðsson 2 stig. Stig Þórs skoruðu Mark 30 stig. Jón B 18 stig, Eirikur Sigurðsson 10 stig. Jóhann Gunnarsson 9. Jóhannes Magjnússon 8 og Þröstur Guðmunds- son 6 stig Dómarar voru Erlendur Eysteinsson og Hilmar Viktorsson og gerðu þeir sig ekki seka um nein meiriháttar mistök í dómgæzlu sinni. en margt hefði mátt fara betur GG Dýrmæt stig tii Framara ÞAÐ VAR ekki fyrr en um miðjan seinni hálfleik. að Ii5 Fram og Ár- manns fóru að leika kórfuknattleik sem sæmir 1. deildar liðum. en þessi botnlið áttust við i islandsmótinu í körfuknattleik á laugardaginn í iþróttahúsi Hagaskóla. Framarar höfðu allan timann frumkvæðið i leiknum. en það var aðeins að þakka góðum leik Guðsteins Ingimarssonar og Sámonar Ólafssonar. f lok leiksins skildu 10 stig liðin og Ármenningar urðu enn að bita i það súra epli að tapa, 91—81. Sem fyrr segir hföðu Framarar frumkvæðið allan leikinn en munur- inn á liðunum var aldrei mikill f hálfleik var staðan 40—37 fyrir Fram. f seinni hálfleik færðist nokkur harka i leikinn og fékk þá Ómar Þráinsson gula spjaldið fyrir hrindingar. en hann lét sér það að kenningu verða og átti mestan þátt i ág ætum lokaspretti Framara, sem tryggði þeim tvö dýrmæt stig i bar- áttunni um sæti i Úrvaldsdeildinni næsta ár. Draumur Ármenninga um sæti i þeiria deild er að likindum búinn. en þó má með nokkurri sann- girni segja að lið Ármanns er of gott til að leika með annarrar deildar liðum. Lið Fram hefur valdið vonbrigðum i vetur þvi að við meiru var búist eftir allan þann liðsauka sem þeim hefur bæst. Þeir Símon Ólafsson og Guðsteinn Ingimarsson voru bestu menn Fram og óhætt er að segja að Simon hafi haldið Fram á floti i vetur. En i leiknum gegn Ármanni átti Ómar Þráinsson ágætan sprett i lok leiksins. Það blæs ekki byrlega hjá Ár- menningum og nú eru þeir kyrfilega bundnir á botninum og hafa enn ekkert stig fengið. í leiknum gegn Fram var Atli Arason bestur að vanda og er hann sá eini Ármenn- inga sem eitthvað kveður að. Þá átti Guðmundur Sigurðsson ágætan leik, en hann er leikmaður sem aldrei gefst upp þótt móti blási. en heldur er hann harðhentur og nýtur þvi litilla vinsælda hjá andstæðingum sinum. um félag þeirra. Stig Fram skoruðu: Simon 29, Guðsteinn 21, Þorvaldur Geirsson og Ómar Þráinsson 14 stig hvor. Sigurður Hjörleifsson 7 stig og Björn Jónsson 4 stig. Stig Ármanns skoruðu: Atli 27, Wood 15. Jón Björgvinsson 14, Björn Christiansen 8 stig. Guðmund- ur Sigurðsson 8 stig. Jón Stein- grimsson 6 stig og Hallgrimur Gunnarsson 3 stig. Dómarar voru þeír Þráinn Skúla- son og Gisli Gislason og var dóm- gæsla þeirra ekki gallalaus. en áhorfendur virtust fylgjast meira með þeim en sjálfum leiknum og segir það best til um gæði leiksins. GG

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.