Morgunblaðið - 10.01.1978, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANUAR 1978
3
V. Ashkenazy Joseph Kalichstein
Sinfóníutónleikar:
Ashkenazy stjóm-
ar, einleikari banda-
rískur píanóleikari
VLADIMIR Ashkenazy verður
stjórnandi á næstu tónleikum
Sinfóníuhljómsveitar tslands en
einleikari verður Joseph Kala-
chistein, bandarfskur pfanóleik-
ari af fsraelskum uppruna. Á
efnisskránni á tónleikunum f
Háskólabfói n.k. fimmtudags-
kvöld verða Tvær myndir eftir
Bartok, pfanókonsert nr. 2 eftir
Chopin og Sinfónfa nr. 3 eftir
Brahms.
1 fréttatilkynningu Sinfóníu-
hljómsveitar Islands um tónleik-
ana segir svo:
Vladimir Ashkenazy er þegar
orðinn íslenskum tónleikagestum
kunnur sem afbragðs stjórnandi
ekki sfður en píanósniilingur.
Hann er nýkominn úr langri tón-
leikaferð sem náði yfir hálfan
hnöttinn: Skandinavfu, England,
Honolulu, Japan, Kóreu, Hong-
kong, Astralfu og Suður Afrfku.
Auk þess hefur hann fengist við
hljómsveitarstjórn til plötuupp-
töku. I desember síðastl. stjórnaði
hann flutningi Philharmonic
hljómsveitarinnar á Sinfóníu nr.
5 eftir Tsjaikovsky fyrir Decca, og
ennfremur 2 Mozart konsertum
þar sem hann var bæði einleikari
og stjórnandi, og fleiri slíkar upp-
tökur eru í undirbúningi. Arið
1979 er fyrirhuguð tónleikaferð
The Philharmonic um Þýskaland
með Ashkenazy sem stjórnanda.
Pianóleikarinn Joseph Kalich-
stein fæddist í Tel Aviv 1946, en
fluttist til Bandarfkjanna árið
1962. Eftir að hafa unnið tvær
píanókeppnir þar, fór hann í sína
fyrstu tónleikaferð til Evrópu
árið 1970 og hélt tónleika í helstu
borgum í Bretlandi, Þýskalandi,
Frakklandi og Austurríki og var
jafnframt einleikari með
Fflharmóníuhljómsveit Israels á
listahátfð í Flandern. Síðan hefur
frami hans farið sívaxandi jafnt í
Evrópu sem Bandarikjunum, og
hann hefur farið tvisvar á ári
hverju til tónleikahalds í Evrópu.
Hljómplötur hans hafa ■ einnig
hlotið einróma lof tónlistargagn-
rýnenda.
Björgólfur Guðmundsson:
„Gegni ekki trúnaðarstörf-
um fyrir Sjálfstæðisflokkinn
á meðan málið er í athugun”
— ÉG HEFI ikveðiS að gegna ekki
að svo komnu máli trúnaSarstörfum
fyrir SjálfstæSisflokkinn i meSan
athugun stendur yfir i þætti þeirra
fyrirtækja, sem ég veitti forstöSu. i
þvi mili, sem nú er til rannsóknar.
sagSi Björgólfur GuSmundsson i
samtali viS Mbl. i gær.
Samkvæmt þessu hafa varamenn
tekið við trúnaðarstörfum. sem Björg-
ólfur gegnir fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Edgar Guðmundsson verkfræðingur.
varaformaður Landsmálafélagsins
Varðar, mun taka við formannsstörfum
á meðan athugunin stendur yfir og
Valgarð Briem hrl. hefur tekið við for-
mennsku i kjörnefnd sjálfstæðisfélag-
anna i Reykjavik vegna komandi kosn-
inga til þings og borgarstjórnar.
Það hefur komið fram áður i fréttum
af rannsókn á hinu meinta misferli
fyrrverandi deildarstjóra ábyrgðadeild-
ar Landsbankans, að fyrirtæki. sem
Björgólfur veitti forstöðu, nutu lánafyr-
irgreiðslu deildarstjórans. Um þetta
mál hafði Björgólfur Guðmundsson
eftirfarandi að segja
..Fyrirtæki. sem ég hefi veitt for-
stöðu. hafa mjög i nokkrum fjölmiðlum
verið tengd þessu máli og reynt að
nota þessi tengsl i pólitiskum tilgangi,
en tengslin voru fólgin i þvi. að fyrir-
tækin nutu persónulegrar lánafyrir-
greiðslu deildarstjórans i nokkrum
mæli undanfarin ár Var ekki annað
vitað en að um eigið fé deildarstjórans
væri að ræða Hefir þegar verið gefin
skýrsla til rannsóknarlögreglunnar um
þessi viðskipti fyrirtækjanna og
deildarstjórans. auk þess sem öll bók-
haldsgögn fyrirtækjanna hafa staðið
rannsóknurum til boða
Þess var vænst. að athugunin á
þætti fyrirtækjanna lyki á skömmum
tima, en svo virðist sem rannsókn
málsins sjálfs ætli að reynast tafsamari
en gert var ráð fyrir og þvi liggja ekki
fyrir enn niðurstöður og þar eð vænta
má, að málið verði áfram notað i
pólitiskum tilgangi, ekki sist vegna
Alþingis- og sveitarstjórnarkosninga i
ár. hefi ég ákveðið að gegna ekki að
svo komnu máli trúnaðarstörfum fyrir
Sjálfstæðisflokkinn "
29 leikrit
en ekkert
nógu gott
EKKERT leikverk hlaut náð fyrir aug-
um dómnefndar i Leikritasamkeppni
ListahátíÖar, en dómnefndin hefur
nýverið lokið störfum. Samkeppn-
inni bárust 29 leikrit, allt einþátt-
ungar.
Niðurstaða dómnefndarinnar varð
sú, að þrátt fyrir að allmörg þeirra
leikrita sem bárust væru kunnáttusam-
lega samin, þá væri ekki tilefni til að
veita neinu þeirra verðlaun Listahátið-
ar
í dómnefdinni áttu sæti Davíð
Oddsson, Bríet Héðinsdóttir. Erik
Sönderholm, Hjörtur Pálsson og
Sigríður Hagalín
Höfundar eða fulltrúar þeirra geta
vitjað leikritanna til Guðrúnar S Jóns-
dóttur, gjaldkera Listahátiðar, á skrif-
stofu Norræna hússins (opið 9— 1 6
dagl ) og verða þau afhent samkvæmt
uppgefnum dulnefnum.
Prófkjör framsóknarmanna í Reykjavík:
„Slík bandalagsstofn-
un er illa sæmandi”
MORGUNBLAÐIÐ hafði f gær samband við þá frambjóðendur í
prófkjöri framsóknarmanna til Alþingiskosninga, sem ekki eru 1
þvf fjögurra frambjóðenda prófkjörsbandalagi sem sagt var frá f
Morgunblaðinu s.I. faugardag, og innti þá álits á bandalagsstofn-
uninni en f þvf eru þeir Þórarinn Þórarinsson, Einar Agústsson,
Sverrir Bergmann og Jón Aðalsteinn Jónsson.
Guðmundur G. Þórarinsson
verkfræðingur sagði að þessi
bandalagsstofnun hefði komið
sér mjög á óvart. „Ég held að
það sé mjög óvenjulegt í próf-
kjöri,“ sagði Guðmundur, ,,að
menn geri bandalög og það um
öll sætin sem skipta máli. Eg
hélt að það væri eðli prófkjara
að menn biðu sig fram sem ein-
staklingar og síðan réðu kjós-
endur úrslitum. Mér finnst slík
bandalagsstofnun mjög óeðli-
leg."
Kristján Friðriksson iðnrek-
- andi sagðist „telja slíka banda-
lagsstofnun vera illa sæmandi“.
„Sumir þeirra sem standa utan
við bandalagið voru hvattir til
að bjóða sig fram í prófkjörinu,
en síðan mynda þeir sem hvöttu
þá bandalag gegn þeim. Sjálfir
kalla þeir þetta bandalag
„hræðslubandalag" og er það
vel til fundið. Ég vona að fólk
svari þessu með sjálfstæðri
hugsun. Þessi prófkjör sem nú
hafa tíðkazt eru breyting frá
því sem áður var því nú geta
menn almennt án flokksbind-
ingar haft áhrif á það hverjir
sitja á Alþingi. Ég bauð mig
fram vegna þess að ég tel að
efnahagsmálin séu á óheilla-
braut og þróunin horfi til fá-
tæktar að óþörfu.“
Sigrún Magnúsdóttir kaup-
maður sagðist sem minnst vilja
tala um þetta bandalag, bezt
væri að láta úrslit prófkjörsins
leiða vilja fólks í ljós. „Þessi
bandalagsstofnun gerir þó
það,“ sagði Sigrún, ,,að við hin
eflum baráttuna þar sem þessir
fjórir „blokkera“ af fyrstu fjög-
ur sætin sem eru bindandi."
Geir Vilhjálmsson sálfræð-
ingur sagðist telja að fólk vildi
ekki láta binda hendur sínar á
Framhald á bls. 25.
Bolungarvík:
Atvinnuástand að ná sér
eftir fiskveiðibannið
Bolungarvfk, 9. Janúar.
ATVINNUASTAND hér er rétt
að ná sér eftir fiskveiðibannið f
desember og allir bátar farnir
til veiða, annars hefur atvinnu-
ástandið verið ágætt. Hingað er
von á nýju stóru skipi innan
tfðar og hefur f þvf sambandi
tveimur bátum verið lagt. Nú
eru gerðir hér út nokkuð marg-
ir meðalstórir bátar en aðeihs
einn stór Ifnubátur og einn
skuttogari.
Veður hefur verið mjög gott
undanfarnar vikur, lítill snjór
þannig að færð er hér óvenju-
góð miðað við árstíma.
Menningarlff hefur gjarnan
goldið þess að hér er jafnan
mjög mikil atvinna, en nú ný-
verið hélt kvennadeild Slysa-
varnafélagsins heljarmikla
skemmtun, sem þótti takast
með ágætum og á næstunni
verður hér árlegt þorrablót
bæjarbúa.
Gunnar.
Grundarfjörður:
Undirbúningur vetrar-
vertíðar gengur vel
Grundarfjörður, 9. janúar
UNDIRBUNINGUR fyrir
vetrarvertfðina er hér f fullum
gangi og hefur gengið vel. Nú
og togarinn er væntanlegur inn
f þessari viku með góðan afla.
Veður hefur verið mjög gott
undanfarnar vikur og færð á
vegum eftir þvf mjög góð, lftill
snjór.
Atvinnuástand hefur verið
mjög gott hér að undanförnu,
þó aflinn hafi ekki alltaf verið
upp á það besta.
Emil.
Stokkseyri:
Vinna við sjóvarnar-
garðana á langt í land
Stokkseyri, 9. janúar
UNNIÐ er af fullum krafti að
þvf að endurbyggja sjóvarnar-
garðana sem skemmdust f
óveðrinu f desember s.l. Þó á
það verk ennþá töluvert lagt f
land. þar sem um miklar fjár-
hæðir er að ræða. Tekist hefur
að ná einum þeirra báta sem
fóru hér upp á bryggju f óveðr-
inu á flot og mun hann verða
sendur f slípp, sennilega til
Njarðvfkur og jafnvel hefur
komið til tals að setja f hann
véiina úr einum hinna báta,
sem fóru hér á land f desember,
og skemmdust allmiklu meira.
Atvinnuástand hefur verið
mjög bágborið undanfarnar
vikur, en nú eru allar líkur á að
eitthvað glæðist úr seinna í
þessari viku eða þeirri næstu,
þegar fluttur verður fiskur frá
Hafnarfirði, nokkurs konar
skiptifiskur, því Hafnfirðingar
hafa fengið helming þess afla
sem skuttogarinn Bjarni
Herjólfson hefur landað, en
Stokkseyringar eru eigendur
hans að einum þriðja.
A morgun verður hér stór-
streymt aftur, en veðurfræðing-
ar spá ágætisveðri svo ekki ætti
að vera hætta á öðrum eins
ósköpum eins og gengu hér yfir
siðast er svo var.
Steingrfmur.
Hrísey:
Atvinnuleysi síðan um jól
Hrfsey, 9. janúar
HÉR HEFUR færð og veður
verið með ágætum f janúar,
mjög Iftill snjór. Sfðan fyrir jól
hefur rfkt hér nokkurt atvinnu-
leysisástand, þar sem ekkert
hefur verið unnið f frystihús-
inu, fyrst vegna veiðibannsins f
12 daga, sfðan vegna viðgerða á
skipinu okkar Snæfelli. Og bú-
ist er við að þetta atvinnuleysi
vari a.m.k. út þennan mánuð,
en þá vonum við að úr fari að
rætast.
Aramótin gengu fyrir sig með
sinum hefðbundna hætti i
ágætu veðri og dönsuðu menn
fram á morgun
í haust var byrjað á viðgerð-
um og nýbyggingum á hafnar-
garðinum og er gert ráð fyrir að
því verki ljúki innan skamms,
en það þýðir stórbætta hafnar-
aðstöðu og möguleika fyrir
stærri skip að leggjast að.
Sigurður.
Eskifjörður:
Vel heppnaðir tón-
leikar Eskjukórsins
Eskifirði. 9. jan.
ESKJUKORINN hélt jólatón-
leika hér á Eskifirði á föstu-
dagskvöldið. Á efnisskránni
voru 13 sönglög, kór- og ein-
söngslög. Einsöngvarar voru
Georg Halldórsson og Aðal-
steinn Valdimarsson. Þá léku
Violetta Smidova og Pavel
Smid einleik á pianó.
Var kórnum, einsöngvurum
og hljóðfæraleikurum mjög vel
fagnað af áheyrendum. Þurfti
kórinn að syngja mörg aukalög.
Söngsstjóri er Violetta
Smidova og einleikari Pavel
Smid. Mjög fjölmennt var á tón-
leikunum og tókust þeir sér
staklega vel. Þetta er í annað
sinn sem kórinn býður upp
tónleika og væntanlega verða
þeir þriðju í vor. Þetta er annað
árið sem kórinn starfar og fer
ekki milli mála að vel hefur
tekizt til á ekki lengri tíma og
kórfélagar hafa lagt á sig mikið
starf svo að sem bezt mætti
takast.
—Ævar