Morgunblaðið - 10.01.1978, Blaðsíða 33
•' ------- ' ' --------------....
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANUAR 1978
33
félk í
fréttum
+ Samkvæmt tískunni í dag er ekki nauðsynlegt að
eiga hest til að ganga í reiðbuxum. Buxur eins og
stúlkan á myndinni er í eru geysivinsælar. Þær eru úr
grófriffluðu flaueli og sniðið er það sama og á reiðbux-
um. Jakkinn e'r síður og víður úr sams konar efni.
f Kvikmyndaleikarinn John
Wayne sem þekktastur er fyr-
ir hin mörgu kúrekahlutverk
sfn á 50 ára leikafmæli á þessu
ári. I Hollywood verður honum
sýndur margvfslegur sómi af
þessu tilefni með veislum og
hvers konar hátfðahöldum.
Fyrsta veislan var haldin rétt
fyrir áramótin og þar var
Frank Sinatra veislustjóri.
Meðal þeirra sem héldu ræður
og skemmtu voru: Bob Hope,
Lee Marvin, James Stewart og
Maureen OHara. „Stóri John“
Wayne er orðinn 70 ára og
hefur leikið í um það bil 250
kvikmyndum, hinni sfðustu ár-
ið 1976. Hann er þrfgiftur. Sfð-
asta kona hans var Philar
Wayne, en hann skildi við
hana árið 1974. Hann á 7 börn
og 20 barnabörn. „Það getur
verið að ég verði að fara að
taka Iffinu með ró, en ég er
ekki hættur að ieika,“ sagði
John Wayne. „Ég hef alltaf átt
auðvelt með að skilja kúrek-
ana mfna og hugsanagang
þeirra. Kúrekamynd að að
vera einföld og auðskilin, eng-
ar sálarflækjur þar, eða hafið
þið nokkurn tfma heyrt talað
um kúreka sem fór til sálfræð-
ings?“ segir John Wayne að
lokum.
+ Ragnheiður Þorsteins-
dóttir heitir þessi 9 ára
hnáta sem hér stýrir
svörtu mönnunum á móti
bandaríska stórmeistar-
anum William Lom-
bardy. Myndina tók RAX
á sérkennilegu fjöltefli
sem fór fram nýverið í
salarkynnum TR að
Grensásvegi 46, en þar
tefldu stórmeistararnir
Friðrik Ólafsson og Will-
iam Lombardy fjöltefli
við 58 íslenzk og banda-
rísk ungmenni. Tefldu
þeir stórmeistararnir
saman, þ.e. hvor um sig
lék ánnan hvorn leik, og
unnu 52 skákir.
Sex ungmenni, fjögur
íslenzk og tvö bandarísk,
náðu jafntefli í viður-
eigninni við stórmeistar-
ana og var Ragnheiður
eitt þessara ungmenna.
Við upphaf mótsins af-
henti Lómbardy Ragn-
heiði nýja bók um skák
sem hann sjálfur hefur
samið. Sennilega mun
bókin hjálpa henni til að
rata betur refilstigu
skákarinnar, en greini-
legt er að Ragnheiður er
þegar vel numin í skák-
listinni þar sem tveir
stórmeistarar i samein-
ingu gátu ekki unnið
hana. Þess má að lokum
geta að Ragnheiður er
systir Guðlaugar Norður-
landameistara kvenna í
skák.
■Áé**
Flugeldar
Við viljum benda á að við höfum söluumboð
fyrir eftirtalin fyrirtaeki:
Standard Fireworks Ltd. | — England
FEISTE^P^FEUERWERK
— V-Þýskaland
• STJÖRNULJÓS
ROKELDSPYTUR
Þýska alþýðulýðveldið
HANSSONS PYRO /i TEKNISKA A.B
ÞORSMÖRK
Þau félagasamtök sem selja flugelda og hafa áhuga á að
versla við okkur fyrir næstu áramót þurfa að gera
pantanir fyrir 20 janúar n.k Pöntunarlistar eru fáanlegir
á skrifstofu Landsambands hjálparsveita skáta og þar eru
veittar allar nánari upplýsingar. Skrifstofan er opin milli
klukkan 1 3 og 17 alla virka daga.
zlj-íhi.,
FLUGELDAR
Nóatúni 21, 105 Reykjavík
Sími: 91 26430