Morgunblaðið - 10.01.1978, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANUAR 1978
Sovétmenn styrkja
Eþíópíuher frekar
Nairobf, Kenýa — Beirut,
Lfbanon, 9. janúar, AP.
STUÐNINGUR Sovétmanna við
hið marxfska rlki Eþíópíu f
Ogaden-deilunni getur hæglega
steypt þessum Afrfkuhluta út f
langvarandi styrjöld að sögn hins
opinbera útvarps Sómalfu á
mánudag. Var sagt að yfirvöld f
Kreml hefðu frá og með 26..
nóvember hafið gffurlega flutn-
inga á hergögnum til Eþfópfu,
bæði þungavopnum og tæknilega
fullkomnari vopnum, hernaðar-
sérfræðingum og starfsliði. Ekki
gat útvarpið um heimildir sfnar
fyrir fréttinni.
Uppreisnarmenn í flokki
aðskilnaðarsinna i Eritreu báru á
mánudag að sovéskar og kúbansk-
ar flugvélar hefðu gert stórfelld-
ar árásir til að hjálpa hermönnum
Eþiópfu til að brjóta niður umsát-
ur uppreisnarmanna um hafnar
borgina Massawa, sem liggur að
Rauðahafi, en það umsátur hefur
staðið í mánuð. Telja báðir aðilar
að baráttan um Massawa geti ráð-
ið úrslitum um örlög Eritreu.
„Þetta er ástæðan fyrir því að
Sovétmenn hafa aukið afskipti
sín af Eritreustríðinu,“ sagði tals-
maður uppreisnarmanna. „Þeir
hafa ekki efni á að láta Eþíópíu-
menn fara halloka, því þá færu
allar þeirra ráðagerðir í þessum
hluta Afríku út um þúfur.“
Norðurlönd - Bretar:
Flugsamningur
rennur á enda
NOREGUR, Svfþjóð og Danmörk
hafa ákveðið að binda enda á
flugumferðarsamning sinn við
Bretland, sem nú er f gildi og
gerður var á fimmta áratugnum.
Hafa aðilarnir nú 12 mánuði til
stefnu til að ganga frá nýjum
samningi. Að svo komnu máli eru
löndin þvf ekki viljug að veita
einstökum brezkum flugfélögum
undanþágur.
Sendinefndir frá Norður
löndunum og Bretlandi munu
hafa borið saman bækur sínar í
Ósló í nóvember s.l. og kom þar
fram ósk þeirra fyrrnefndu um
nýjan lagagrundvöll að aukinni
flugþjónustu. A.m.k. fjögur brezk
flugfélög hafa sýnt hug á því að
greiða götu flugfélaga viðkom-
andi Norðurlanda inn í sam-
göngukerfi sitt, en ríkisstjórnir
landanna telja að þessi nýbreytni
mundi auka framboð umfram eft-
irspurn og ekki þjóna hagsmun-
um almennings. Er það álit ríkis-
stjórnanna að SAS og British Air-
ways fullnægi eftirspurn á flug-
leiðum milli Bretlandseyja og
Norðurlanda.
Búist er við að umræður hefjist
á ný í janúar og er það ætlun
Norðurlandanna að setja þá fram
nýjar tillögur Vænta má :ð mál,
sem ber á góma verði t.d. sú
staðreynd að SAS er eina stóra
flugfélagið I V-Evrópu, sem ekki
hefur flutningaréttindi f Hong
Kong og að félagið hefur ekki enn
fengið leyfi til að taka þátt í
flutningum i sambandi við olíu-
vinnslu milli Skotlands og
Noregs.
VEÐRIÐ
víða um heim
Amsterdam 4 skýjað
Berlln 2 sól
Briissel 7 skýjaB
Chicago 2 skýjaB
Kaupmannahöfn S skýjaS
Frankfurt O skýjaB
Honolulu 23 bjart
Jerúsalem 6 skýjaB
Lissabon 24 bjart
London 9 rigning
Madrid 10 skýjaB
Montreal + 7 skýjaB
Moskva 2 rigning
New York 11 rigning
Paris 5 skýjað
Róm O bjart
Singapore 29 bjart
Stokkhólmur 5 skýjað
Tókió 15 skýjað
T oronto 4 rigning
Vancouver 5 rigning
Vfn 3 skýjað
Enn eitt morðið
í Suður-Afríku
Durban, Suður-Afrfku 8, janúar Reuter
DR. Richard Turner, helzti and-
stöðumaður aðskilnaðarstefnunn-
ar, var skotinn til bana á heimili
sfnu f nótt, að sögn lögreglu.
Turner, sem var kennari 1
stjórnmálavfsindum við Háskól-
ann f Natal, hafði verið bannað að
kenna þar f fimm ár vegna af-
Framhald á bls. 25.
Jimmy Carter, Bandarfkjaforseti, leggur blóm á leiði bandarfskra hermanna sem féllu f innrásinni f
Normandí, sjötta júnf 1944, er hann heimsótti kirkjugarðinn í Frakklandsheimsókn sinni.
Blóðug helgi á Ítalíu
Rðm 9. janúar. AP — Reuter.
MIKILL órói rfkti f Róm f dag
eftir að vinstrisinnaðir öfgamenn
höfðu myrt tvo hægrisinna um
Viðskiptajöfnuður
Kínverja vænkast
Hong Kong, 8. Jan. Reuter.
KlNVERJAR nutu f fyrsta skipti
hagstæðs viðskiptajöfnuðar sfðan
1973 á sfðasta ári að sögn frétta-
stofunnar Nýjakfna f dag. Var
hagnaðurinn um sex af hundraði
hærri en f fyrra og sá mesti í 28
ára sögu Alþýðulýðveldisins.
„Þetta markar söguleg þáttaskil
eftir þriggja ára (1974—’76) mis-
heppnaða viðleitni til að gera
efnahagsáætlunina að veruleika,"
sagði fréttastofan. Var því borið
við í fréttinni að halli undanfar-
inna ára væri árangur skemmdar-
verkastarfsemi „þorparanna fjög-
urra“, en fyrirliði þeirra var
Chiang Ching, ekkja Maós for-
manns.
Bætt kjör munu, að sögn frétta-
stofunnar, gera stjórninni kleift
að verja hærri upphæðum til að
byggja upp oliuiðnaðinn og orku-
ver og greiða fyrir vélvæðingu í
landbúnaði og aðstöðu til vísinda-
rannsókna. Meira en 60 af hundr-
aði verkamanna fengu launa-
hækkun á liðnu ári, sagði f frétt-
inni.d
helgina og lögregla skotið þann
þriðja til bana.
Hinir tveir voru myrtir á
laugardag er þeir komu út úr
skrifstofu Nýfasistaflokksins f
einu af úthverfum Rómar. Vitni
segja að hópur ungmenna hafi
ráðizt að þeim og skotið á þá af
örstuttu færi. Auk þeirra særðist
einn félagi þeirra á hendi f skot-
árásinni.
Þriðji maðurinn lét Iffið f mót-
mælagöngu sem hægri menn
efndu til á sunnudag tíl að mót-
mæla morðum hinna tveggja. Til
átaka kom milli mótmælenda og
lögreglu og beitti hún táragasi f
viðureign sinni við þá. Einn mót-
mælenda mun þá hafa hafið skot-
hrfð að lögreglunni, sem svaraði
þegar f stað og hæfði ein kúla
Myrti öll börn sín
Kockford, Illinois 9. janúar AP.
LÖGREGLAN í Rockford
handtók í dag sex barna
föður og sakaði hann um
að hafa barið og myrt börn
sín aðfararnótt mánudags.
Lögregla réðst inn í íbúð
föðurins, Simon Nelsons,
eftir að kona Nelsons til-
kynnti lögreglu, að hann
hefði hringt til sín og sagt
að hann hefði myrt öll
börn þeirra.
Börnin, tvær telpur og fjórir
drengir, fundust í rúmum sínum
og höföu þau verið barin og stung-
in meö hnífi.
Lögregla sagði að veiðihnífur
og gúmmíkylfa hefðu fundizt í
íbúðinni og teldi hún líklegt að
faðirinn hefði notað þau við
verknaðinn.
Þetta gerðist...
Þctla Kerdist 10. janúar.
1976 — Sovétríkin neita að
skila Japönum aftur fjórum
eyjum f Norður-Kyrrahafi. Jap-
anir höfðu mælzt til þess að það
yrði þáttur í friðargerð land-
anna en þau höfðu enn ekki
samiö frið frá því í heimsstyrj-
öldinni síðari.
1973 — Að minnsta kosti 46
farast og yfir 300 slasast i hvirf-
ilvindi sem gengur yfir borgina
San Justo i Argentínu.
1969 — Sviþjóð kemur fyrst
allra vestrænna ríkja á fullu
stjórnmálasambandi við Norð-
ur-Vietnam.
1966 — Indverjar og Pakistan-
ar verða ásáttir um að draga
heri sína til baka úr Pakistan,
en þeir höfðu hafió stríð eftir
að stjórn iandsins féll.
1964 — Panamariki slítur
stjórnmálasambandi við Banda-
ríkin.
1957 — Harold MacMillan er
skipaður forsætisráðherra Eng-
lands.
1942 — Japanir ráðast inn á
yfirráðasvæði Hollendínga í
Austur-Indíum í heimsstyrjöld-
inni síðari.
1921 — Stríðsréttarhöld hefjast
i Leipzig í Þýzkalandi yfir
stríðsglæpamönnum úr heims-
styrjöldinni fyrri.
1920 — Þjóðabandalagið er
stofnað.
I dag eiga afmæli.
Ray Bolger, bandarískur leik-
ari og dansari (1903 —...),
Ethan Allen, bandarískur her-
maður (1739 — 1789), Lazaro
Spallanazani, ftalskur vísinda-
maður (1729 — 1799), John
Dalbgxg Action, brezkur sagn-
fræðihgur (1834 —• 1902) og
Alexander Scrabín, rússneskur
tónlistarmaður (1872 — 1915).
Hugieiðing dagsins:
„Pólitiskt vald sprettur fram
úr byssuhlaupinu." Mao Tse-
tung, leiðtogi kínverska komm-
únistaflokksins, (1893 — 1976).
hann f höfuðið. Hann lézt f nótt á
spftala eftir að hafa legið milli
heims og helju f hálfan sólar-
hring.
Atök þessi voru fyrstu alvar-
legu átökin á þessu ári, en 28.
siðastliðins mánaðar var félagi í
nýfasistaflokknum myrtur á götu
í Róm.
Vinstrisinnaður öfgahópur hef-
ur lýst ábyrgð sinni á morðunum
á laugardag, og segir í tilkynn-
ingu frá hópnum, að morðin hafi
verið refsing fyrir sprengjutil-
ræði sem hinir myrtu áttu aðild
að í Röm í sfðustu viku.
A sunnudagskvöld var eld-
sprengju kastað að húsi eins virt-
asta ritstjóra á Italíu, Felice la
Rocca, en hann slapp ómeiddur
sem og fjölskylda hans. Eldurinn
sem kviknaði var fljótlega slökkt-
ur og olli hann ekki miklu tjóni.
Sömu nótt var kastað eld-
sprengju að skrifstofu kommún-
istaflokksins, en enginn var i
henni þegar sá atburður gerðist,
og eldurinn olli litlu sem engu
tjóni.
I Napólí réðust um 50 hægri-
sinnuð ungmenni inn í kvik-
myndahús, brutu rúður, hleyptu
af byssum og kveiktu í bflum fyr-
ir utan húsið. Engan hinna 700
sýningargesta sakaði en skemmd-
ir urðu miklar.
Þá var varpað sprengju að
skrifstofu kristilegra demókrata í
Flórens, en enginn særðist og
skemmdir urðu litlar.
Minniháttar átök urðu einnig í
Róm, til dæmis var hægrisinni
stunginn hnífi, og hægrisinnar
börðu mann til óbóta f miðborg
Rómar fyrir það eitt að halda á
blaði, sem túlkar vínstrisinnuð
viðhorf.
Atök þessi eiga sér stað á sama
tíma og mikil spenna ríkir í
stjórnmálum landsins.
Fjórir flokkar hafa hótað að
láta af stuðningi sínum við stjórn
kristilegra demókrata, og þrfr
þeirra krefjast þess að kommún-
Framhald á bls. 25.