Morgunblaðið - 10.01.1978, Blaðsíða 40
auí;lVsin(;asiminn ek:
22480
JR#rgtmbIaöií)
aik;i,Vsin(;asíminn er:
22480
ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1978
Jarðhræringarnar fyrir norðan:
Vegurinn um Keldu-
hverfi mjög illa farinn
Lindarbrekku, Kelduhverfi,
9. janúar. Frá Þórleifi
Olafssyni, blaóamanni
Morgunblaðsins.
VEGURINN um Kelduhverfi, frá
Lyngðsi að Veggjarendum, er nú
mjög illa farinn af völdum jarð-
hræringanna, sem hér hafa verið
frá þvf f gærmorgun. A nokkrum
stöðum hafa komið stór skörð f
veginn og á einum stað, við
Veggjarenda, er vegurinn nú
ófær fólksbflum og illfær jeppum
sökum gliðnunar. Jarðskjálfta-
hrinan, sem hófst hér f gærmorg-
un, stóð svo til sleitulaust þar til á
nfunda tfmanum í kvöld. Skjálft-
ar f dag voru færri en f gær og
nótt, en þá varð engum svefnsamt
f Kelduhverfi. Þar sem lætin voru
mest varð fólk sjóveikt, ef það
reyndi að liggjá fyrir f rúmunum.
En á hinn bóginn hafa skjálftarn-
ir f dag verið miklum mun öflugri
Rúm 5 kg. af
fíkniefnum
gerð upp-
tæk í fyrra
Fíkniefnadómstóllinn og
ffkniefnadeild lögreglunnar f
Reykjavík gerðu upptæk rúm
5 kg af ffkniefnum á nýliðnu
ári. Er það allmiklu minna
magn en árið 1976, en þá voru
gerð upptæk 16—17 kg af
ffkniefnum en allt það ár
upplýstist um innflutning á
um 40 kg af ffkniefnum.
Samkvæmt upplýsingum Ás-
geirs Friðjónsonar saka-
dómara voru á síðasta ári gerð
upptæk 4,6 kg af hassi, tæpt
hálft kg af marihuana, 16
grömm af amfetamíni, 165
LSD-töflur og eitt og hálft
gramm af kókafni. Er þetta í
fyrsta skipti sem innflutning-
ur á því efni til landsins er
upplýstur.
Loðnuverðið
kemur í dag
,.ÉG á von á þvi að við góngum frá
verðákvörðuninni á morgun." sagði
Sveinn Finnsson, framkvæmdastjóri
verðlagsráðs sjávarútvegsins, er
Mbl. ræddi við hann í gærkvöldi eftir
fund yfirnefndar um loðnuverðið. en
fundurinn stóð til um ktukkan 23 i
gærkvöldi. Ekki kvaðst Sveinn þó
vilja gefa neitt upp um málið í gær-
kvöldi.
Enginn fundur var i gær um
almenna fiskverðið fyrir komandi
vetrarvertið en yfirnefnd sú. sem um
það fjallar, heldur fund í dag.
og nokkrir skjálftar hafa mælzt á
bilinu 4 til 4,7 stig á
Richterkvarða.
Hjörtur Tryggvason, starfsmað-
ur Orkustofnunar, sem hefur
unnið að mælingum hér í dag,
sagði blm. Mþl., að gliðnunin í
Kortsnoj
stendur til
vinnings
Sjá bls. 18
u
□
□ -
□ -
KORTSNOJ stendur til vinn-
ings f biðskák hans og
Spasskys frá 17. einvfgisskák-
inni, sem tefld var í gær.
Biðskák þeirra úr sextándu
umferð Iauk með jafntefli á
laugardag, þannig að Kortsnoj
er með 8'A vinning og Spassky
7'A . Vinni Kortsnoj biðskák-
irfa f dag skortir hann aðeins
einn vinning á sigur f einvfg-
inu.
Kelduhverfi væri líkast til orðin
70 til 80 sentimetrar, en hann tók
jafnframt fram, að gliðnunin gæti
allt eins verið meiri, þar sem ekki
hefði gefizt tími til nákvæmra
mælinga. Hjörtur hefur farið um
allan Öxarfjörð i dag og kvað
hann ekki hafa opnast sprungur í
austanverðum firðinum, eins og
til dæmis við Skóga. Hins vegar
sagði Hjörtur, að skjálftarnir síð-
degis og í kvöld hefðu verið
snarpastir i austanverðum Öxar-
firði og eins í kringum Fjallabæ-
ina. Hjörtur sagði ennfremur að
hann og hans aðstoðarmaður
hefðu staðið á móts við sprungu
við bæinn Hlíðargerði, þegar einn
af stærri skjálftunum kom, og
hefðu þeir þá horft á sprungu-
veggina dragast sundur og saman.
Sagði Hjörtur þetta hafa verið
stórkostlega sjón.
Fólk í Kelduhverfi sagði blm.
Mbl. í kvöld, að fólk i austanverð-
um Öxarfirði væri fullt óhugnað-
ar, þegar það minntist stóra
skjálftans, s.em kom við Kópasker
13. janúar 1976, eða fyrir rétt
tæpum tveimur árum, en þá var
atburðarásin mjög lik og nú hefur
verið.
Vísindamenn mæla nýja sprungu nyrzt í Gjástykki í
gær. Sjá viðtöl á bls. 23. Ljósm. Mbl: Rax.
Fjársvikamálið í Landsbankanum:
Peningar voru fluttir á
bankareikninga erlendis
Uppvíst orðið um fjársvik á ánmum 1970 og 1972
MORGUNBLAÐIÐ hefur það
eftir áreiðanlegum heintildum,
að við rannsókn á meintu misferli
fyrrverandi deildarstjóra Lands-
bankans hafi komið í Ijós að hon-
um hafi tekizt að koma hluta þess
fjár, sem hann hafði út úr bank-
anum og/eða viðskiptafyrirtækj-
um hans á bankareikninga er-
lendis, Ifklega f Sviss og ef til vill
Bretlandi. Þá hefur IVlbl. það
einnig eftir áreiðanlegum heim-
ildum, að lausleg athugun hafi
leitt f Ijós að hið meinta misferli,
sem nú er í rannsókn, nái a.m.k.
afturti! ársins 1970.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins mun deildarstjórinn
fyrrverandi hafa komið pening-
um til útlanda með því að gefa
fyrirmæli um að ákveðnar pen-
ingagreiðslur væru inntar af
hendi vegna eins viðskiptafyrir-
tækis Landsbankans til aðila er-
lendis og breyta síðan orðsending-
um til viðskiptabanka Landsbank-
ans erlendis á þann’ veg og
greiðslurnar skyldu renna inn á
tiltekna bankareikninga í fyrr-
greindum löndum.
Sleitulaust er unnið að því að
kanna bókhald Landsbankans
aftur i tímann.
Hefur Mbl. fregn-
að, að við fyrstu athugun á bók-
haldi ársins 1972 hafi vaknað
grunur um að deildarstjórinn hafi
það' ár haft af bankanum og við-
skiptavinum hans 2,6 milíjónir
króna en síðan hafa komið í ljós
gögn, sem kunna að hækka þessa
tölu allverulega. Þá mun hafa
vaknað grunur eftir lauslega at-
hugun á bókhaldi ársins 1970, að
deildarstjórinn hafi það ár haft
a.m.k. eina milljón króna út úr
bankanum og/eða viðskiptavin-
um hans.
Færeysk skip halda til
loðnuveiða við ísland
Þórshöfn, 9 janúar
VERIÐ er að undirbúa færeysk skip á
loðnuveiðar við ísland. Veiðileyfi
verða gefin út á morgun, þriðjudag,
og munu fyrstu skipin þá halda til
loðnuveiðanna, enda þótt loðnumið-
in séu nú norður af íslandi.
Átta færeysk skip mega stunda
loðnuveiðarnar í einu og má heildarafli
færeysku skipanna á íslandsmiðum
vera 35.000 tonn, en í fyrra var afla-
hámarkið 25.000 tonn
Síldarmjölsverksmiðjan i Fuglafirði
ákvað í dag fast loðnuverð og mun hún
kaupa kílóið á 42 aura færeyska, sem
eru jafnvirði 1 5,29 króna íslenzkra
Arge.
Munaði engu að ég
yrði sjóveik í rúminu
— segir Lilja Jónasdóttir, húsfreyja Lyngási —
Lyngási. Kelduhverfi 9 janúar
Frá Þórleifi Ólafssyni.
blaðamanni Morgunblaðsins
„ ÞAÐ ER óhætt að segja að ég
hafi sofið lltið sem ekkert í nótt.
Það var rétt undir morguninn að
ég gat dúrað eitthvað. Það skiptir
reyndar ekki svo miklu máli, þvi ef
ég reyndi að leggjast fyrir, munaði
engu að ég yrði sjóveik I rúminu,"
sagði Lilja Jónsdóttir. húsfreyja i
Lyngási I Kelduhverfi, i samtali við
blaðamann Mbl. í gærkvöldi.
I skjálftahrinunni. sem gekk hér
yfir fyrir tveimur árum. varð Lyngás
illa úti og höfðu Lilja og eiginmaður
hennar, Sigvaldi Gunnarsson, lýlok-
ið viðgerðum á húsinu nú fyrir jóla-
hátiðina í þessari skjálftahrinu nú
virðast ekki hafa orðið stórvægilegar
skemmdir á ibúðarhúsinu i Lyngási,
en Lilja sagði, að húsið væri þó farið
að gefa sig aftur á einum stað
„Við höfum ekki þurft að taka
niður úr hillum. en hins vegar hefur
húsið gengið fram og til baka og I
stærsta kippnum, sem kom um
klukkan sjö í kvöld. hélt ég að húsið
ætlaði að leggjast saman." sagði
Lilja. „Skjálftunum fylgdu mikil læti
og virtust þeir koma úr öllum áttum,
stundum komu þeir beint að neðan,
eins og einhver vildi komast upp
Sigvaldi Gunnarsson sagði að fólk
væri verulega hrætt við frekari
skjálfta, þar sem flest húsanna i
Kelduhverfi væru mikið skemmd
eftir skjálftana 1975 og 1976
Að lokum má geta þess áð húsdýr
eru ákaflega hrædd, þegar jarð-
skjálftakippirnir koma og þá sérstak-
lega hestar og hundar, sem bókstaf-
lega tryllast