Morgunblaðið - 13.01.1978, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. JANUAR 1977
5
Aukning freðfiskframleiðslunnar 1977:
Um 20% á Vestfjörðum
en 4r—6% á Vesturlandi
og Reykjanesi«!aa"duTið3tal'
MORGUNBLAÐINU barst f gær
eftirfarandi frá stjórn Sambands
fiskvinnslustöðvanna:
„Vegna fréttar frá Sjómannafé-
lagi ísafjarðar, sem birzt hefur í
fjölmiðlum, þar sem fullyrt var,
„að hallarekstur fiskvinnslu-
stöðva í vissum landshlutum sé
óumdeilanlega fyrst og fremst
rakinn til óstjórnar og óhag-
kvæmni 1 rekstri...“, vill stjórn
Sambands fiskvinnslustöðvanna
taka fram eftirfarandi:
1. 1 skýrslu Þjóðhagsstofnunar er
út kom í haust og fjaiiaði um
athugun á afkomu frystihúsa
haustið 1977, kemur fram að hag-
ur fiskvinnslunnar hafi í heild
þrengst að mun á árinu er leið.
Um orsakir þessarar óheilla-
þróunar segir svo f skýrslunni:
„Hér veldur mestu að hækkun
innlends kostnaðar, launa og
verðlags, hefur verið örari en
hækkun afurðaverðs, þótt gengið
hafi sigið nokkuð og markaðsverð
verið styrkt með greiðslum úr
Verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðar-
ins.“
2. Orsök þess að sumir landshlut-
ar hafa getað mætt þessari nei-
kvæðu þróun betur en aðrir, er
aðallega sú staðreynd, að aukning
freðfiskframleiðslunnar t.d.
fyrstu átta mánuði síðasta árs
jókst á Vestfjörðum um 20% með-
an landsmeðaltal var um 13% én
aðeins um 4—6% aukning á
Vesturlandi og Reykjanesi.
3. í fyrrnefndri skýrslu er
heildartap fiskvinnslunnar áætl-
að um 3500 milljónir m.v. septem-
ber-verðlag. Sé miðað við stöðuna
um áramót, þá er tapið áætlað um
5000 milljónir, aukningin er um
43% á þremur mánuðum. Af
framansögðu ætti að vera aug-
ljóst, að er fiskvinnslan lýsir sig
vanbúna til að mæta fiskverðs-
hækkunum, er ekki um „annar-
lega röksemdafærslu" að ræða
heldur frásögn staðreynda. Því
má bæta við að hver 1% hækkun
fiskverðs mun hafa um 350 millj-
óna króna útgjaldaaukningu í för
með sér fyrir fiskvinnslufyrir-
tæki.“
Áfmæli
SJÖTUGUR er í dag, 13. janúar
Jóhann Poulsen, matsveinn,
Þjórsárgötu 4, Rvfk. Um fjölda
ára hefur afmælisbarnið verið
sjómaður á skipum hér og er nú á
Guðsteini frá Hafnarfirði. Jóhann
er fæddur í Skobun i Færeyjum.
Rafmagnsleysi
á Suðurlandi
Hveragerði, 12. jan.
1 NÓTT fór rafmagn af Eyrar-
bakka, Stokkseyri, Þorlákshöfn
og Hveragerði og voru plássin
rafmagnslaus frá klukkan hálf
fimm til um tíu í morgun. Þessi
þorp eru samtengd og eru
Hvergerðingar óhressir að missa
rafmagnið, sem gerist æði oft, því
salt sest á línuna við sjávarpláss-
in.
Þegar rafmagnið fer af Hvera-
geði missum við bæði kalt og heitt
vatn. Nú vildi svo vel til að frost-
laust var, en það er okkur mikið
áhyggjuefni, að ekki skuli vera
ráðin bót á rafmagnsmálunum,
þar sem til er gömul líná, sem
mætti nota til vara. — Georg.
Gunnlaugur M. Sigmundsson
Nýr forstöðu-
maður gjalda-
deildar fjár-
málaráðu-
neytisins
FJARMALARÁÐHERRA hefur
sett Gunnlaug M. Sigmundsson
viðskiptafræðing til að vera deild-
arstjóri i fjármálaráðuneytinu
frá 1. janúar 1978. Gunnlaugur
mun veita gjaldadeild ráðuneytis-
ins forstöðu, en Kristján Thorla-
cius, sem gegnt hefur starfinu,
hefur fengið leyfi frá störfum f
hartnær hálft annað ár.
í fréttatilkynningu, sem Morg-
unblaðinu barst í gær, þar sem
skýrt er frá því að Gunnlaugur
hefur verið settur í embættið,
segir að aðalviðfangsefni gjalda-
deildar sé gerð greiðsluáætlana
gjalda rikissjóðs og eftirfylgni
þeirra áætlana. Jafnframt sér
gjaldadeild um samantekt til-
lagna ráðuneytisins um fjárveit-
ingar til stofnana ráðuneytisins
og aóalskrifstofu þess.
Gunnlaugur M. Sigmundsson er
fæddur 30. júnf 1948. Hann hefur
verið fulltrúi i fjármálaráðuneyt-
inu frá 1. júní 1974.
Skipaviðgerðarstöð í Reykjavík:
Hagkvæmnisathug-
unum lýkur í vor
EINS OG fram kom 1 Mbl. 1 gær
stendur nú yfir hagkvæmnisat-
hugun vegna staðsetningar skipa-
viðgerðarstöðvar J Reykjavfk en 1
töllögum borgarstjóra að stefnu-
skrá 1 atvinnumálum Re.vkjavík-
ur segir að Reykjavíkurborg sé
reiðubúin til að taka þátt f að
koma upp öflugri skipaviðgerðar-
stöð f Reykjavfk. Til að afla frétta
af gangi mála hafði Mbl. samband
við Gunnar B. Guðmundsson
hafnarstjóra 1 gær. Hann sagði:
„Þessi hagkvæmnisathugun
stendur nú yfir, við höfum falið
ráðunautum að gera vissar athug-
anir sem verið er að vinna að.
Talað hefur verið um að þessum
Umboð sátta-
semjaranna
fallið úr gildi
FALLIÐ er úr gildi þriggja ára
umboð þeirra fjögurra sáttasemj-
ara, sem starfa á landinu. Féll
umboð þeirra niður 1 nóvember-
mánuði sfðastliðnum. Nú hefur
félagsdómur samkvæmt lögum
tilnefnt 1 þessi embætti að nýju,
samtals 12 manns eða 3 menn í
hvert sáttasemjara embætti.
Samkvæmt upplýsingum Hall-
grfms Dalbergs, ráðuneytisstjóra
f félagsmálaráðuneytinu, liggja
nú þessar tilnefningar hjá félags-
málaráðherra, sem hefur ekki
enn ákveðið hverjir skuli skipaðir
f embættin. Sáttasemjarinn, sem
skipaður er í Reykjavíkur-
umdæminu er jafnframt sátta-
semjari ríkisins. Sáttasemjararn-
ir fjórir eru skipaðir til næstu
þriggja ára.
Myndavíxl
1 BLAÐINU í gær víxluðust
myndir tveggja höfunda greina.
Mynd af Þóroddi Guðmundssyni
rithöfundi birtist með grein eftir
Svein Guðmundsson í Miðhúsum
og öfugt. — Eru viðkomandi
beðnir afsökunar á þessum mis-
tökum.
athugunum ljúki i apríl eða maí,
en að svo stöddu er lítið hægt að
segja frekar um málið. Þó gengur
athugunin að mestu út á hvar
skipaviðgerðarstöð verður, þ.e. í
vesturhöfninni eða í Kleppsvík-
inni við Sundahöfn.
Skipaviðgerðarstöð í Reykjavík
verður nokkuð stórt fyrirtæki, sé
tekið mið af þeim hugmyndum
sem helzt eru uppi. Þarna munu
starfa nokkur hundruð manns og
verður hægt að taka flest islenzk
skip til viðgerðar þarna. Rætt er
ýmist um slipp eða svonefnda
skipalyftu og á þessu stigi málsins
má segja að stöðin muni kosta
nokkra milljarða króna, þótt fátt
sé reyndar ljóst í þeim efnum
ennþá. Ekki liggur fyrir hvort
skipaviðgerðarstöðin verður fyr-
irtæki einstaklinga, borgarinnar
eða hvort tveggja. Borgarstjóri
ræddi þó um að ef til vill yrði
borgin eða höfnin einhvers konar
aðili að fyrirtækinu. Hluti fyrir-
tækisins verða hafnarmannvirki
og þau verða náttúrulega alltaf i
eigu Reykjavíkurhafnar".
Verkamannasam-
bandið lýsir stuð-
ningi við loðnu-
sjómennina
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Verkamannasambandi tslands:
„Fundur haldinn i fram-
kvæmdastjórn Verkamannasam-
bands Islands fimmtudaginn 12.
janúar 1978, lýsir yfir fullum
stuðningi við sjómenn á loðnu-
skipum í baráttu þeirra fyrir
hærra verði á loðnu.
Stjórnin harmar að meirihluti
yfirnefndar Verðlagsráðs sjávar-
útvegsins skuli ráðast á kjör sjó-
manna, þess launahóps, sem
þjóðarbúið byggir mest afkomu
sína á og er undirstaða fyrir
vinnu stærsta hóps launafólks i
landinu.
Skorar framkvæmdastjórnin
því á stjórnvöld að grípa strax inn
í deilu þessa, til leiðréttingar á
aflahlut sjómanna."
HANN SKARAR FRAMÚR
NYR
Straumlínulagaö vélarlok.
smekkleg vatnskassahlíf,
traustir stuðarar og vindskeið
að framan — sýnir andlit
hins nýja bíls, sem lætur fara
vet um yður í vönduðum,
þægilegum og stillanlegum
sætum, og i honum er nóg
pláss til að teygja úr sér
Allir stjornrofar eru
staðsettir i nýju mælaborði,
til að auðvelda yður
aksturinn.
ÁRGERÐ
1978
PASSAT er fáanlegur með 3
stærðum af sparneytnum, líf
legum, vatnskældum vélum
PASSAT er með framhjóladrif,
Undirvagninn er öruggur,
tvöfalt hemlakerfi
tengt, afburða fjöðrum og
breiðari felgur,
allt til að auka
ágæta aksturshæfni.
PASSAT
er fáanlegur
2ja eða 4ra dyra
ennfremur með
stórri gátt
að aftan og Station
HEKLAhf
Laugavegi 170—172 — Sími 21240