Morgunblaðið - 29.01.1978, Blaðsíða 5
Samskipti
hersins og
íslendinga
..Leikritið fjallar um þann
póker sem leikinn er á heiðinni,
bæði af hernum á Keflavíkur-
flugvelli og íslendingum,"
sagði Björn Bjarman, í viðtali
við Mbl., en Björn er höfundr
nýs sjónvarpsleikrits, ..Pókers",
sem frumflutt verður i kvöld.
Björn sagðist ekki hafa séð
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JANUAR 1978
5
leikritið, þar sem hann hefur
legið á spítala í Lundúnum með
„brotna bringu". Leikritið lýsir
starfi leigubifreiðarstjóra í
Keflavík og þau áhrif sem varn-
arliðið hefur á starf hans og
hann sjálfan
Það var tekið upp i sumar og
var það allt tekið upp ,,á staðn-
um", en ekkert tekið upp i
stúdíói Leikritið hefur verið
unnið nú að undanförnu, en
vegna sjúkrahúslegu sinnar
hefur Björn ekki átt þess kost
að fylgjast með því verki og var
hann því ófær um að segja
nokkuð um það
„Póker" mun verða boðið
öðrum Norðurlöndum til sýn-
inga i næsta mánuði, en eins
og kunnugt er hafa Norður-
löndin gert samning um skipti
á sjónvarpsefni.
Leikstjóri leikritsins er Stefán
Baldursson, en með aðalhlut-
verk fara Sigmundur Örn Arn-
grímsson, Róbert Arnfinnsson,
Valgerður Dan og Kristbjörg
Kjeld. Baldur Hrafnkell Jóns-
son sá um kvikmyndun, Snorri
Þórisson um myndatökuna en
hljóðupptakan og hljóðsetning
var i höndum Odds Gústafs-
sonar.
Leikritið hefst klukkan 20.30
og er 70 minútna langt.
Atriði úr hinu nýja íslenska sjónvarpsleikriti „Póker" sem
frumflutt verður i kvöld.
ENGAR ÓDÝRAR LAUSNIR!
Picture no. 3003
Fólk er misjafnt, svo og
Irtsjónvörp. Sérhver
ákveður, hve mikið er
fjárfest í litsjónvarpi.
Samt sem áður er
enginn vafi á, að (náin)
tengsl eru milli verðs
og gæða.
Bang&Olufsen
litsjónvörp eru ekki
meðal þeirra ódýrustu
á markaðinum. Þú
munt fljótlega uppgötva
.ivers vegna.
Bang & Olufsen
Irttækin hafa til að bera
gæði, sem öruggt er að
sumir vildu ekki vera
án — og sem aðrir
framleiðendur geta
ekki boðið.
Bang&Olufsen
Varanleg
litgæði:
Leiðrétta
litstillinguna
50x á sekúndu
Skipholti 19 R.
S. 29800 (5 línur)
27 ár í fararbroddi
Picture no. 3006