Morgunblaðið - 29.01.1978, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JANUAR 1978
21
Samhengið milli mataræðis og krans-
æðastíflu er sannað mál
(Sjá Krans-
æðastíflu)
STRIPALINGARI
Kvenfrelsiskonur í samtökum
nokkrum f Bretlandi, Lincoln
Women’s Action Group“, voru
orðnar langþreyttar á dagatölum
þeim sem víða eru .gefin út með
flennistórum myndum af nöktum
konum í „óvirðulegum stelling-
um“. Þær voru heldur vondaufar
um það, að þær fengju þetta
bannað. Þær tóku þvf til þess ráðs
að reyna að jafna metin og gáfu
út sitt eigið dagatal — með
flennistórum myndum :f berum
körlum. „Konum ber sami réttur
og körlum til þess að geta keypt
og skoðað kynæsandi myndir",
sagði Emma de Winter, málsvari
samtakanna. „Og myndirnar okk-
ar taka hinum fram f þvf, að þær
eru ekki óvirðulegar; við lftil-
lækkum ekki fyrirsáta okkar eins
Borgað í
sömu mynt
og oftast er farið með konur á
nektarmyndum. Við höfum í
rauninni ekkert við það að at-
huga, að gefin séu út dagatöl með
myndum af nöktum konum. Við
erum bara á móti því, að þær séu
rúnar allri virðingu, sýndar eins
og gripir — söluvara".
Ekki urðu allir jafnhrifnir af
framtaki samtakanna. Konurnar
urðu að fara f fjórar prentsmiðj-
ur áður en þær fengu dagatalið
prentað. A dagatali þessu eru sjö
Ijósmyndir af berum körlum,
þ.á.m. einum, sem situr og er að
lesa opinbera skýrslu um jafn-
réttismál, öðrum sem liggur á
teppi, styður hendi undir kinn og
hefur fjaðrakúst milli tannanna,
og vöðvafjalli klæddu lauf-
blaði...
Emma de Winter kvað karlana
hafa' verið óðfúsa að sitja fyrir.
Hver þeirra fékk fimm punda
þóknun. Þess er ekki getið hvern-
ig konur hafa tekið myndunum.
Aftur á móti tóku staðarblöðin
þeim heldur illa. Kom þeim
saman um það, að karlarnir á
nektarmyndunum væru örugg-
lega þess konar náungar, sem
standa f húsasundum á sfðkvöld-
úm og leysa niður um sig, þegar
konu verður gengið fram hjá ...
BLAÐAMENNSKAI
Það líSur sjaldan langt milli þess,
að bandarisku leyniþjónustunnar
CIA er getið í fréttum. Nú siðast
komst upp. að hún hafði lengi not-
fœrt sér fréttamenn og fjölmiðla,
bandariska og annarra þjóða, til þess
að koma á flot röngum fréttum,
fengið þvi framgengt að öðrum frétt-
um var stungið undir stól o.s.frv.
Þótti flestum Ijótt að heyra. Margir
blaðamenn höfðu hörð orð um þá
Njósnarar
í hjáverkum
félaga sina, sem gengið höfðu erinda
leyniþjónustunnar og kváðu þeim
sæmst að skammast sin en leyni-
þjónustan ætti að hinu leytinu að
skammast sin fyrir það. að hún leiddi
þá á glapstigu. Fáir gerðust svo
djarfir að mæla þessu bót. en til voru
þeir þó. Þeirra á meðal uppgjafa-
sendiherra bandariskur. sem komst
svo að orði, að fréttamaður hefði
fyrst og fremst skyldu að gegna við
föðurtand sitt. en blaðið þvi næst.
Væru fréttamennirnir. sem gengu er-
inda CIA sannir föðurlandsvinir og
ættu allan heiður skilinn. En Banda-
riskjaþing stofnaði rannsóknarnefnd
i snatri og hóf að yfirheyra
CIAmenn. Það líður varla svo mán-
uður nú orðið, að ekki sé stofnuð
rannsóknamefnd til höfðus CIA,
enda munu CIAmenn öfunda starfs-
bræður sina austantjalds mjög. Þar
eru ekki rannsóknarnefndirnar. . .
Stanfield Turner. flotaforingi og
yfirmaður CIA. brá við skjótt og lýsti
yfir þvi, að leyniþjónustan mundi
hætta að véla bandariska frétta-
menn til undirfertis og svika. Aftur á
móti fékkst hann ekki til þess að lofa
neinu um erlenda fréttamenn. Þeir
munu þvi þurfa að halda á öllum
sinum siðferðisstyrk framvegis sem
hingað til. að þeir láti ekki freistast
þegar CIAmenn berja að dyrum og
sýna þeim i veskið.
En þeir eru fleiri freistararnir en
CIAmenn einir. Sannleikurinn er
nefnilega sá. að flestar leyniþjónust-
ur i heiminum notfæra sér fjölmiðla
og fréttamenn. þegar þær geta. Það
hefur lengi verið á vitorði, að margir
sovézkir fréttamenn erlendis eru
starfsmenn sovézku leyniþjónust-
unnar KGB. Aftur á móti mun það
ekki jafn kunnugt, að margar aðrar
leyniþjónustur. sú brezka til dæmis
að nefna. hafa lengi haft fréttamenn
á mála. Að visu er frægt dæmið af
Framhald á bls. 37.
Hættulegasti óvinur hjartans i
kólesterinið, sem fyrst og fremst
kemur i likamann með dýrafitu.
Aukamagnið af kólesterini sezt að
i hinum örsmáu kransæðum hjart-
ans og þrengir þær meir og meir.
Þegar siðan litið blóðrennsli lokar
algerlega leiðinni, nær ekkert blóð
lengur til hjartavöðvans. Eftir ör-
skammta stund — en það getur
verið um minútu að ræða — deyja
frumur hjartavöðvans vegna
skorts á súrefni.
Likaminn þarf daglega 500 til
1000 milligrömm af kólesterini
— og þetta magn framleiðir hann
sjálfur. 300 milligrömm af
kólesterini i viðbót úr fæðunni
getur likaminn einnig ráðið við. En
flest fólk gengur lengra með mat-
aræði sinu. Gotthard Schettler.
prófessor i hjartasjúkdómum.
Heidelberg. segir: „900 milli-
grömm eru alls ekki sjaldgæf".
300 milligrömm af kólesterini
— hið daglega hámarksmagn —
fást i: 100 grömmum af smjöri —
300 grömmum af svinafeiti —
einu hænueggi — 400 grömmum
af hænsnakjöti — 70 grömmum
af lifur — 10 grömmum af heila
— 400 grömmum af svinakjöti
(mögru) — 400 grömmum af
nautakjöti — 1000 grömmum af
ýsu — 350 grömmum af 45% osti
— 1000 grömmum af 30% osti.
Sem sagt: Margt fólk getur
meðtekið meira en 300 milli-
grömm af kólesterini daglega. án
þess að kólesterin-innihald blóðs-
ins aukist. Likaminn framleiðir þá
minna af sinu eigin kólesterini. En
hjá fimmta hverjum Þjóðverja
bregzt þetta jöfnunarkerfi, án þess
að menn viti nákvæmlega ástæð-
una til þess.
Hægt er að ganga úr skugga
um. hvort kerfið sé i lagi, með þvi
að kanna kólesterin-innihald
blóðsins. en það er auðgert nú á
dögum. Með magninu allt að 200
milligrömm (i 100 millilitrum af
blóði) er ekki um aukna hættu á
kransæðastiflu að ræða. Upp að
250 milligrömmum eykst hættan
nokkuð. en eftir það verulega. Og
við magnið frá 300 milligrömmum
er hættan um fimmföld miðað við
hið eðlilega.
Það sem ennfremur getur aukið
á hættuna á kransæðastiflu, er:
0 Sigarettureykingar
0 Sykursýki
0 Of mikill likamsþungi.
En þó eru menn ekki öruggir
gegn kransæðastiflu, þótt ofan-
greind hættuatriði séu ekki fyrir
hendi. Flugmaðurinn hjá Luft-
hansa. Hans-Oieter Gades og
fimmtarþrautarkempan Wolfgang
Köpke reyktu hvorugur og höfðu
ekki meira kólesterin i blóði en
eðlilegt er.
En — þeir störfuðu undir þrýst-
ingi. i spennu („stressi"). Eins og
féhirðir Sósialdemókrataflokksins.
Wilhelm Dröscher, en um hann
Framhald á bls. 37.
gerðist líks ....
Hinir fordæmdu
RICHARD Arens, kunnur bandarískur lögfræðingur, sem mikil af-
skipti hefur haft af mannúðarmálum, hefur lýst yfir opinberlega að
stjórnvöld í Paraguay stefni að þvi leynt og ljóst að gjöreyða indíánum
landsins. Þessi ásökun kemur fram i skýrslu til „Survival
International", sem eru samtök með bækistöð I London sem gera sitt
itrasta til að hjálpa hinum svokölluðu „lituðu” kynþáttum, sem nú er
svo komið fyrir víða um heim að þeir
eru nánast útlagar i sínum eigin heima-
löndum. Arens, sem er prófessor í al-
þjóðarétti við Temple háskóla í
Philadelphiu, var í Paraguay í ágúst og
september s.l. að kynna sér hagi frum-
byggjanna. Hann segir í skýrslu sinni
að allskonar skæðir sjúkdómar herji
þessar manneskjur, sem auk þess sé
ýmist hreinlega slátrað ellegar misk-
unnarlaust þræikaðar og jafnvel
hnepptar í ánauð. Hinn bandaríski
prófessor telur sem fyrr er sagt að
stjórnvöld standi á bak við þétta, en
nefnir að auki „framkvæmdamenn” ýmiskonar og átelur trúboðana á
þessum slóðum fyrir slælega frammistöðu. Þá fer hann þungum orðum
um þátt ianda sinna, Bandaríkjamanna, sem styðji einræðisstjórn
Alfredos Strössners með fjárframlögum og vopnasendingum og leggi
meira upp úr verslunarhagsmunum sinum í Paraguay en almennum
mannréttindum.
Og meira af svo góðu
Embættismenn i Ástralíu, sem eiga að stuðla að hnökralausri sambúð
frumbyggja og hvítra manna þar í landi, hafa nú vaxandi áhyggjur af
þessum málum. I skýrslu, sem þeir hafa tekið saman og birt opinber-
lega, lýsa þeir yfir þeirri skoðun að ef ekki verði hér breyting á, hljóti
jafnvel að skapast samskonar ástand i álfunni og nú er í Suður-Afríku.
Hinir svörtu frumbyggjar Ástralíu telja nú um 110.000 sálir, og hefur
afstaða hvítingjanna til þeirra síst skánað síðustu árin. I skýrslu
embættismannanna eru tíunduð óhugnanleg dæmi um þetta. í Suður-
Astralíu leiddi könnun til dæmis í ljós, að þar þykja kynþáttafordómar
ekki einasta sjálfsagðir heldur „eðlilegir" með hvítu íbúunum. í
skýrslunni segir orðrétt um afstöðu þeirra hvítu í suðurhéruðunum:
„Sú skoðun var iðulega látin í ljós að einfaldasta lausnin væri að smala
frumbyggjunum saman á einhverju útskerinu og varpa að þeim
sprengjum”.
Skáldin og hugmyndafrædin
Ritstjórn sovéska bókmenntaritsins „Literaturnaya Rossia" tilkynnti
fyrir skemmstu, að henni hefði borist „opinber fyrirmæli” um að birta
fleiri sögur eftir erlenda höfunda — „og fletta þannig ofan af
miskunnarleysi hins svokallaða frjálsa heims“. Þá hefur stjórnendum
ritsins ennfremur verið uppálagt að eigin sögn að „bregðast harðar við
og vera einarðari í fordæmingu sinni á þeim verkum innlendra
höfunda sem skortir hugmyndafræðilegan þroska”. „Literaturnaya
Rossia” er málgagn Sovéska rithöfundasambandsins, og fylgja fyrrver-
andi boð í kjölfar herferðar á hendur öðru bókmennariti sovésku,
Novy Mir, sem i síðastliðnum mánuði hlaut opinberar ákúrur fyrir það
hátterni meðal annars að birta ljóð „með röngurp pólitískum og
hugmyndafræðilegum blæ“!
Sitt lítid af hverju
Hjá spilavítinu í Monte Carlo hafa menn hvorki fengist til að játa því
né neita að argentiskur stóriðjuhöldur hafi nýlega unnið sem svarar
540 milljónum króna á einni nóttu. „Við værum ekki það sem við erum
ef við svöruðum svona fyrirspurnum,” er viðkvæðið hjá ráðamönnum
þarna þá þeir eru spurðir.. . Sovéskur hótelstjóri, sem varð uppvis að
því að úthýsa gestum nema þeir greiddu honum mútur fyrir gisting-
una, hefur verið dæmdur til átta ára fangabúðavistar að Pravda
upplýsti á dögunum... Sænskum foreldrum, sem þóttust vera að gefa
börnum sinum tónbönd úr Disney-myrid i jóiagjöf, brá heldur en ekki í
brún þegar mergjaðir klámsöngvarar byrjuðu að berast útúr herbergj-
um blessaðra rollinganna. Mistökin höfðu orðið hjá norsku fyrirtæki,
sem sér Sviunum líka fyrir músikinni í klámmyndir þeirra. .. Edward
Koch, hinn nýi borgarstjóri í
New York, hefur lýst yfir að
kynvillingar hafi jafnan rétt
við aðra til vinnu hjá borginni.
Koch, sem er piparsveinn, var
sakaður um kynvillu í
magnaðri óhróðursherferð sem
hafin var gegn honum þegar
baráttan um borgarstjóra-
embættið stóð sem hæst. Hann
þverneitaði áburðinum.
Hinn frjálsi fimmtungur
Einungis þriðjungur allra þjóða má heita frjáls, er niðurstaða óháðra
mannréttindasamtaka i Washington sem kalla sig „Freedom House"
Þau telja að mjög hafi þokast í frelsisátt á nýliðnu ári á Indlandi og
Spáni, en á hinn bóginn hafi ástandi hrakað á sama tímabili í að
minnsta kosti níu iöndum, sem telja samtals 124 milljónir íbúa.
Samkvæmt könnun „Freedom House“ býr einungis naumur fimmtung
ur allra jarðarbúa við þokkalegt frelsi.