Morgunblaðið - 29.01.1978, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JANUAR 1978
‘
lp«ip
á''.
FUNA
OFNAR
Höfum hafið framlelðslu nýrra
miðstöðvarofna úr stálprófilsrörum.
Ofnarnir eru sérstaklega gerðir fyrir
íslenskar aðstæður, verk íslenskra
fagmanna. Leitið tilboða, mjög stuttur
afgreiðslufrestur og hagkvæm kjör.
Ofnasmiója
Suóurlands
Hveragerói
Símar: 99-4134 og 99-4566.
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
ÞU AUGLYSIR UM ALLT LAND ÞEGAR
ÞU AUGLYSIR I MORGUNBLAÐINU
Sjötugur á morgun:
Þórleifur Bjarna-
son rithöfundur
Mér er í barnsminni hár maöur
grannur sem dvaldist gjarnan
heima á Siglufirði sumarlangt og
mat síld fyrir Samvinnufélag ís-
firðinga. Þórleifur hét hann
Bjarnason, ísfirskur kennari. Allt
í einu er matsmaður þessi og
kennari orðinn þjóðfræg persóna,
höfundur fagurrar bókar sem
meira var vandað til útgáfu á en
venja var á stríðsgróðatímum
seinni heimsstyrjaldar. Sú nefnd-
ist Hornstrendingabók. En eftir
það fækkaði ferðum Þórleifs
Bjarnasonar til Siglufjarðar. Má
vera að hann hafi lagt af þann
göfuga starfa að meta sild. Og
nokkurn veginn jafnsnemma
hvarf silfurfiskurinn að mestu
frá Norðurlandi. ildrei heyrði ég
það þó kennt hornstrendskri fjöl-
kynngi.
Strák í menntaskóla berst í
hendur stutt skáldsaga, Svo kom
vorið. Einhvern veginn varð raun-
in sú að þvi skáldverki gat hann
ekki gleymt þótt margt af því sem
þá fór með hvað mestum dyn um
stræti sé löngu brotið og týnt. En
saga Þórleifs var hljóðlát og gædd
svipuðum töfrum og margt gam-
alt stef úr gleymdu kvæði.
Síðan kom Tröllið. Og enn varir
spurningin um hvað það sagði.
Hitt er tæpast vafa bundið að fá
skáldverk eigum við hæfari til
kvikmyndunar. Örlagasaga
rammíslensks fólks í hrikalegu
umhverfi, þar sem atvinnuhættir
mótast af einangrun og baráttu
við harðleikin náttúruöfl, á brýnt
erindi við hitaveitufólk á geim-
ferðaöld.
Og þó var ef til vill hugljúfust
bókin um bernskuheim Þórleifs
dagana hjá afa og ömmu. Þar töfr-
ar hann fram horfna tíð og okkur
skilst að hann er vaxinn úr grasi á
fornöld íslenskra lífshátta. Samt
hefur honum skilað fram á atóm-
öld og sjötugur er hann á morgun.
Gátum stöðvað Hitler
- segir gamafl þingmaður
að binda enda á vaidaferil hans,
ef boðað hefði verið til allsherjar-
verkfalls. Hins vegar segir hann
að verkalýðsfélögin hafi litið svo
á, að Hitler hafi komizt til valda
með löglegum hætti.
Högner sakar sósíaldemókrata
um að hafa vanmetið Hitler og
segir að leiðtogi þeirra, Otto Wels,
hafi talið Hitler og stormsveitir
hans brandarakarla frá Bæjara-
landi.
Friedrich Stampf, einn af leið-
togum sósíaldemókrata, taldi að
sögn Högners, að púðri væri eytt
að óþörfu ef efnt yrði til alfs-
herjarverkfalls, og betra væri að
geyma púðrið þar til síðar.
Hann sakar einnig Miðflokkinn,
sem var íhaldssamur og kaþólsk-
ur flokkur, um að hafa vanmetið
Hitler. Hann segir að sá flokkur
hafi viljað að Þjóðverjar semdu
við páfann, hvað sem það kostaði
og Hitler hafi lofað að gera það.
Högner segist sjálfur hafa gert
sér grein fyrir hættunni sem staf-
aði frá Hitler, frá upphafi og haf-
ið baráttu gegn honum í Bæjara-
landi 1920. Hann varaði kjósend-
ur enn við Hitler 1932 og sagði:
,(Þegar Hitler sezt f sæti Bis-
marcks verður það mesti smánar-
dagur i sögu Þýzkalands."
LYKILL HF. — BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Smiðjuvegi 20
ÖNNUMST FLESTAR VIÐGERÐIR A BÍLUM:
Vélaviðgerðir Rafkerfi
Stillingar Sjálfskiptingar
Hemlaviðgerðir Ljósastillingar
OPIÐ FRÁ KL. 7,30 —18,00 — SÍMI 7 6650
Munchen 27. janúar AP
WILHELM Högner, sem var þing-
maður þegar nazistar komu til
valda í Þýzkalandi fyrir 43 árum,
segir f viðtali við AP af því tilefni
að andstæðingar Hitlers hefðu
getað sigrazt á honum áður en
hann treysti sig f sessi.
Hitler komst til valda 30. janúar
1933, en treysti sig ekki í sessi
fyrr en að afloknum kosningum,
sem nazistar efndu til, þegar þing-
ið samþykkti 23. marz að veita
Hitler alræðisvald.
Högner segir að lögreglan hafi
á þessum tíma verið á bandi
Weimar-lýðveldisins, sem Hitler
leysi af hólmi, og hægt hefði verið
Ekki átti greinarkorn þetta að
verða nein úttekt á ritstörfum
Þórleifs Bjarnasonar enda margt
ótalið, svo sem snjallar smásögur,
leikrit og kennslubækur. Hins
vildi ég aftur á móti géta að við
kennslu mun Þórleifur hafa verið
töframaður engu síður en á rit-
vellinum. Og námstjóri var hann
ágætur, virtur og dáður af kenn-
urum og skólastjórum frá Hval-
firði vestur að Djúpi.
En þó að Þórleifur Bjarnason sé
ágætur af ritstörfum sínum,
kennslu og námstjórn er hann þó
bestur sem félagi og vinur,
skemmtinn, margfróður og tröll-
tryggur.
Alúðarkveðjur og heillaóskir
sendum við hjónin honum norður
yfir fjöll og þökkum heila og
trausta vináttu og glaðar, gengnar
stundir.
Guð gefi Þórleifi Bjarnasyni
tóm til að skýra okkur íslending-
um og helst sem flestum öðrum
frá því hvað tröllið sagði.
Ólafur Haukur Arnason.