Morgunblaðið - 04.02.1978, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 1978
5
Geta ekki bodid eins hag-
stæð fargjöld og Útsýn
— segir Ingólfur Guðbrandsson
um hópferðir Norræna félagsins
Snorri Öm Snorra-
son og Södenberg
á háskólatónleikum
FERÐASKRIFSTOFAN Útsýn
hefur mótmælt þvf, að Norræna
félagið geti boðið upp á hagstæð-
ustu fargjöld til Norðurlanda, en
Ingólfur Guðbrandsson, forstjóri
Útsýnar, segir að hann hafi feng-
ið það staðfest hjá Flugleiðum, að
engir sérsamningar hafi verið
gerðir við Norræna félagið um
fargjöld og það eigi þvf ekki kost
á neinum öðrum fargjöldum en
þeim, sem standa hvers konar
félagasamtökum til boða, sé viss-
um skilyrðum fullnægt.
Ferðaskrifstofan Útsýn boðaði
fréttamenn á sinn fund i gær og
sagði I'ngólfur þar, að Norræna
félagið gæti ekki boðið eins hag-
stæð fargjöld til Norðurlanda og
Útsýn. Sagði Ingólfur einnig:
„Fréttir af ferðaþjónustu Nor-
ræna félagsins I fjölmiðlum að
undanförnu eru þess eðiis, að
Ferðaskrifstofan Útsýn hlýtur að
mótmæla þeim á opinberum vett-
vangi. Formaður félagsins,
Hjálmar Ölafsson, lætur hafa
eftir sér í Þjóðviljanum hinn 29.
jan. s.l. að með því að skipta ekki
við ferðaskrifstofu hyggist
Norræna félagið halda fargjöld-
um eins lágum og unnt sé og að
ferðir þeirra séu ódýrustu
Norðurlandaferðir, sem völ er á.
Fargjald það, sem tilgreint er í
frétt þessari, er ekki I gildi og er
löngu úrelt. Hér er því miðiað
villandi upplýsingum, hvort sem
um er að kenna fákunnáttu eða
vísvitandi blekkingum. Hins
vegar eru í gildi svonefnt _Topp-
fargjald, sem er lægra en hóp-
ferðagjald Norræna félagsins og
auk þess hagstætt einstaklings-
fargjald, sem gildir í 8—21 dag og
er einnig mun lægra, þegar hjón
eða fjölskylda ferðast saman.
Þannig getur fargjald í vissum
tilvikum lækkað um meira en
helming frá skráðu fargjaldi, en
slík fargjöld hafa ferðaskrifstofur
einar rétt á að selja I umboði
flugfélaganna".
Þá greindi Ingólfur Guóbrands-
son frá því, að Ferðaskrifstofan
Útsýn hefði sent þeim viðskipta-
minnum skrifstofunnar bréf, er
ferðazt hafa á afsláttarfargjöld-
um í nafni Norræna félagsins, og
boðið þar upp á áframhaldandi
þjónustu með sama hætti og verið
hefur, þó að þátttöku Norræna
félagsins sé lokið, en félagið hafði
ritað Útsýn bréf og tilkynnt að
það ætlaði ekki að notfæra sér
þjónustu skrifstofunnar við
Norðurlandaferðir í nafni félags-
ins. Segir í þvi bréfi m.a., að Út-
sýn hafi sjálfstæða deild og sér-
hæft starfsfólk til að annast þessa
þjónustu og veitir Útsýn hana
þessum viðskiptavinum að
kostnaðarlausu, þ.e. að ekki er
tekið sérstakt afgreiðslugjald
fyrir þessa þjónustu.
Þá var frá því skýrt á fundinum
að samvinna hefði tekizt milli Út-
sýnar og Félags fsl. bifreiðaeig-
enda um að gefa félagsmönnum
F.Í.B. kost á ferðum til Norður-
landanna. Verður félagsmönnum
gefinn kostur á allmörgum ferð-
um til Danmerkur, Svíþjóðar og
Noregs og verða menn að ferðast
út í hóp, en geta ráðið heimferðar-
degi og dvalið erlendis allt að þrjá
mánuði.
CAMILLA Söderberg blokk-
flautuleikari og Snorri Örn
Snorrason gftar- og lútuleikari
leika saman á Háskólatónleikum
laugardaginn 4. febrúar.
A efnisskrá eru renaissance-
dansar fyrir blokkflautu og lútu
eftir Bossinensis, Jacob van Eyck,
Caroso og Dowland, fantasía fyrii*'
blokkflautu eftir Telemann og
sónata fyrir blokkflautu og gítar
eftir sama. Einnig verða flutt
verk eftir 20. aldar tónskáld,
Nocturnal op. 70 fyrir gitar eftir
Benjamin Britten og Musica da
Camera eftir Hans Martin Linde,
sem er fæddur 1930.
Camilla Söderberg og Snorri
Örn Snorrason stunda framhalds-
nám í Basel. Þau komu fram
nokkrum sinnum á tónleikum f
Skálholtskirkju í fyrrasumar og
vakti leikur þeirra mikla athygli.
Tónleikarnir verða haldnir í
Félagsstofnun stúdenta við
Hringbraut og hefjast þeir kl. 17.
Aðgangur er öllum heimill og
kostar 600 kr.
Píanótónleikar á Akranesi
Akranesi, 3. febrúar.
PÍANÓHLJÓMLEIKAR
verða í sal fjölbrautaskól-
ans á Akranesi á þriðjudag-
mn. Brezki píanóleikarinn
Philip Jenkins leikur verk
eftir Mozart, Faure, Alvin,
Chopin og Sjymanovsky.
Þetta verður f fyrsta skipti, sem
Jenkins leikur á Akranesi, en tón-
leikarnir hefjast klukkan 20.30.
Þetta eru aðrir tónleikar Tónlist-
arskólans á þessu starfsári. Júitus.
Fyrirlestur í Norræna húsinu
KLUKKAN 17 f dag verður fyrir-
lestur f Norræna húsinu á vegum
Kristilegs stúdentafélags. Flytur
sr. Heimir Steinsson rektor Skál-
holtsskóla fyrirlestur er hann
nefnir Á tæpu vaði og ræðir þar
um skólaskipan og menningar-
mál.
Fyrirlesturinn hefst sem
fyrr segir kl. 17 og er öllum opinn.
Fyrrverandi borgarlög-
maður krefst rannsóknar
á meðferð á hirzlum sínum
PALL Lfndal, fyrrverandi borgar-
lögmaður, hefur farið þess á leit
við rannsóknarlögreglustjóra að
hann láti rannsaka, hvort Bergur
Tómasson borgarendurskoðandi
hafi gerzt sekur um refsivert at-
ferli „með þvf að brjóta upp læst-
ar hrizlur f skrifstofu minni
Austurstræti 16, hinn 12. des. s.l.,
þ.e. á þeim tíma, sem ég gegndi
starfi borgarlögmanns". Bréf
Páls til rannsóknarlögreglustjóra
fer hér á eftir:
Til rannsóknarlögreglu ríkis-
ins.
Hér með fer ég þess á leit við
yður, herra rannsóknarlögreglu-
stjóri, að þér látið rannsaka, hvort
Bergur Tómasson borgarendur-
skoðandi hafi gerzt sekur um
refsivert atferli með þvf að brjóta
upp læstar hirzlur í skrifstofu
minni Austurstræti 16, hinn 12.
des. s.l., þ.e. á þeim tíma, sem ég.
gegndi starfi borgarlögmanns.
Virðist mér, að atferli Bergs
brjóti í bága við 228. gr. 1. mgr.
almennra hegningarlaga nr.
19/1940, sbr. 66. gr. stjórnarskrár-
innar nr. 33/1944. Enginn dóms-
úrskurður, skv. 48. sbr. 51. gr.
laga um meðferð opinberra mála
hefur verið kveðinn upp, svo að
mér sé kunnugt, þannig að veitt
geti honum eða öðrum heimild til
að leita í hirzlum mínum, hvað þá
að brjóta þær upp.
Eins og fram kemur í hjálagðri
greinargerð var ekki einu sinni
farið fram á það við mig af borg-
arendurskoðanda, að ég afhenti
lykla að skrifborðinu, sem brotið
var upp. Fæ ég því ekki séð, á
hvaða heimild umrætt atferli hef-
ur byggzt.
Ég álft, að svonefnd „stjórn
endurskoðunardeildar", sem ég
tel, að varla sé til að lögum, sbr.
lög nr. 58/1961 og samþykkt um
stjórn borgarmálefna Reykjavík-
ur 10. ág./1964 gr. 35, beri ábyrgð
á þessu, þar sem hún hefur látið
þetta óátalið svo og borgarstjór-.
inn f Reykjavík svo og aðrir við-
staddir borgarfulltrúar, er sam-
þykktu þetta háttalag með þögn
sinni á borgarstjórnarfundi 2.
febrúar s.l.
Ljósrit af greinargerð minni til
borgarráðs frá 31. janúar 1978
fylgir hér með.
Virðingarfyllst,
Páll Lfndal.
Bíllinn
ffyrir islcmd
Peugeot hefur oröiö sigurvegari í erfiöustu þolaksturskeppnum
veraldar oftar en nokkur önnur gerö bíla. Þetta sýnir betur en
nokkuð annað, að Peugeot er bíllinn fyrir íslenzka staðhætti.
HAFRAFELL HF.
VAGNHÖFÐA7
SÍMI: 85211
UMBOÐIÐ Á AKUREYRI
VÍKINGUR SF.
FURUVÖLLUM Í1
SÍMI: 21670