Morgunblaðið - 04.02.1978, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 04.02.1978, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. FEBRUAR 1978 11 Dr. Magni Guðmundsson: F1 j ótandi gengi Ýmsar hliðar peningamála hafa verið ræddar í greina- flokki mínum hér í Morgun- blaðinu. Vil ég ógjarnan vikja frá því efni án þess að fara nokkrum orðum um fljótandi gengi. Fljótandí gengi er aðferð til að fást við vanda alþjóðlegrar verðbólgu. Hugsum okkur ríkisstjórn, sem náð hefir tök- um á verðlagsþróuninni heima fyrir. Með samræmdri stefnu miðbanka og fjárlaga — og e.t.v. að viðbættri tekjustefnu — hefir henni lánazt að koma almennu verðlagi niður fyrir það, sem tíðkast í grannríkjun- um. Hvernig getur slík ríkis- stjórn varið land sitt gegn verð- hækkunum í öðrum heimshlut- um? Svarið er: Hún getur látið gengi gjaldmiðilsins fljóta — og þar með einangrað hagkerf- ið frá verðþenslu að utan. Eftir því sem verðlag ytra stígur í samanburði við verðlag innan- lands, mun gengið þá þokast upp og þurrka út áhrif erlendu vöruverðshækkananna. Málið horfir að sjálfsögðu öðruvísi við, ef verðlagsþróun- inni er öfugt farið, eins og hjá okkur. Verðbólga á Islandi er mun meiri en í viðskiptalönd- um okkar, og afleiðingin er gengissig. Það leiðir til hækk- unar á verði innfluttra vara og á þátt í að magna verðbólguna hér heima. Því má til sanns vegar færa, að ekki hafi verið timabært fyrir okkur að taka upp fljótandi gengi svo snemma. Bíða hefði mátt, unz verðlag yrði stöðugra og tæki að nálgast það, sem viðgengst í nágrannalöndunum. Nú fer því fjarri, að allir hag- fræðingar aðhyllist fljótandi gengi. Sumir óttast, að það dragi úr einbeitni ríkisstjórna og vilja þeirra til að standa gegn verðbólgu og gera nauðsynlegar ráðstafanir í þvi skyni að stemma stigu við henni. Þegar stjórnvöld vita, að þau geta látið gengið síga og þannig spornað við óhagstæð- um greiðslujöfnuði, nægir þeim það, og þau kunna að sofna á verðinum. Vinningurinn við fljótandi gengi í opnu hagkerfi er einmitt sá, að það gerir unnt að reka örvandi peninga-pólitík til að tryggja fulla atvinnu, án þess að eiga á hættu að valda halla á utanrikisviðskiptum vegna of mikillar eftirspurnar eftir erlendum vörum. Gengis- sigið sér við þvi. Meiri hluti þeirra hagfræð- inga, sem fylgja Chicago- skólanum með Milton Fried- man í broddi fylkingar (nefnd- ir „monetarists"), hafa til skamms tima verið hlynntir fljótandi gengi einstakra landa. Þetta er að vísu ekki samstæð- ur hópur, og gætir töluv.erðs skoðanamunar meðal þeirra. En æ fleiri í hópnum hneigjast nú til fylgis við breytta útgáfu af gamla gull-fætinum. Prófess- or vqn Hayek hefir í nýlegu riti (1975) mælt kröftuglega með föstu gengi milli þjóða, sem eiga viðskipti. Hans megin rök- semd er sú, að fast gengi skapi stjórnmálamönnum strangan aga í efnahagsmálum, en þeim hætti annars — þrátt fyrir góð áform — til að láta undan síga fyrir þrýstihópum og leiðast út i verðbólgumyndandi opinber- ar framkvæmdir. Þegar þeir hafi vissu fyrir því, að gengis- sig geti hindrað greiðsluhalla við útlönd, Iinist þeir í viðnám- inu gegn auknu peningafram- boði. Aðrir höfundar í þessum flokki (monetarists) vilja lög, sem taka ákvörðunarvald um peningamagn i umferð úr hönd- um ríkisstjórnar og ríkisbanka (Rowley & Peacock, 1975). Enn aðrir hafa stungið upp á nefnd eða ráði, er skv. sérstöku laga- boði sé falið að stjórna vexti peningaframboðs, og megi framboðið ekki á einu ári víkja meira en 2% frá lang-tíma aukningu þjóðarframleiðslunn- ar, eins og hún er metin af ráðs-mönnum eða hagfræðing- um, sem þeir tilnefna (Jay, 1976). Þessa er getið hér til fróðleiks. Skal nú litið hratt yfir það, sem sagt hefir verið um banka- vexti, verðtryggingu sparifjár og gengissig í fjórum blaða- greinum. íslendingar hafa um áratugi þekkt kaupgjalds- og verðlags- skrúfu. Hún varð til þegar á stríðsárunum, er verð landbún- aðarafurða og kaupgjald á eyr- inni hækkuðu á víxl. Þegar ákveðið var nýlega að láta vexti fylgja verðbólgunni, hófst vaxta- og verðlagsskrúfa. í nútíma þjóðfélagi tækniþró- unar eru framleiðslutækin óhóflega dýr. Fiskiskip eða verksmiðja kostar hundruð milljóna króna. Með aukinni sjálfvirkni . fækkar starfsliði fyrirtækja. Af þessu leiðir, að vextir verða jafnvel enn stærri þáttur í framleiðslukostnaði en sjálf vinnulaunin. Vaxta- og verðlagsskrúfan getur orðið enn aðsópsmeiri en kaupgjalds- og verðlagsskrúfan varð nokkru sinni. Með fljótandi gegni á tíma, þegar verðlag heima fyrir er hærra en erlendis og hrað- hækkandi, kemur nýr verð- bólguvaldur til sögunnar. Það er gengissig, er blæs upp verð innfluttra vara. Innfluttar vör- ur nema hvorki meira né minna en þriðjungi þjóðarteknanna. Má af því ráða umfang verð- hækkana af þessum sökum og víxlverkana í öllu kerfinu. Við höldum þannig þrem verðbólguskrúfum gangandi. Við erum ekki á leið út úr vand- anum, heldur sogumst dýpra í hringiðu verðbólgunnar. Við búum okkur undir að lífá við verðbólgu til frambúðar, en ekki að losna við hana. Ég hefi gert mér far um að skýra þetta fyrirbæri og lagt á fáein ráð, m.a. til að tryggja hag sparifjár- eigenda, og vænti ég mér þó ekki neins árangurs. Of margir menn í ábyrgðarstöðum á Is- landi eru orðnir verðbólgu- blindir, ef svo mætti segja. Það er fullkomlega ljóst, að peningamálin eru veikasti hlekkurinn í hagstórn hérlend- is. Með gjörbreyttri stefnu á því sviði einvörðungu má valda straumhvörfum. Lagfæring skattalaganna, sem þarf þó ekki að leiða til skattahækkana, mun geta hjálpað mikið. „Vettvangur”, nýtt frétta blað á Sauðárkróki VETTVANGUR, nýtt blað, hefur hafið göngu sina á Sauðárkróki. Kom fyrsta tölublaðið út 20. janúar s.l. Útgefandi blaðsins er Vett- vangur á Sauðárkróki en Hreinn Sigurðsson er ábyrgðarmaður. Þetta fyrsta tölublað er 8 blaðsíður, og Hreinn Sigurðsson, sem fylg- ir blaðinu úr hlaði, segir m.a.: „Á undanförnum árum hefur þeirri hugmynd margoft verið hreytt að stofna til blaðaútgáfu á Sauðárkróki. Var þá rætt um þetta sem nokkurs konar héraðsblað, sem flytti fréttir og greinar um skagfirzk málefni. En einhverra hluta vegna komst þessi mhugmynd aldrei í framkvæmd Vafalaust má ýmsu þar um kenna og þá ekki sízt aðstöðuleysi til prentunar. Nú þegar prentsmiðja er á staðnum hafa viðhorf breytzt til hins betra og nú með útkomu þessa 1. tölublaðs hefur Vett- vangur göngu sína. Blaðinu er ætlað að koma út á þriggja vikna fresti eða oftar ef ástæða þykir til. Því er ætlað að vera vettvangur fyrir frjáls skoðana- skipti, en ekki flytja harðsoðin sjónarmið einhvers ákveðins stjórnmálaflokks" Að lokum segir Hreinn Sigurðsson að skagfirzk mé'efni muni væntanlega verða uppistaðan i fréttum þess Innflutningur á iðnaðar- vörum verði gefinn frjáls Hin árlega fjáröflunarsamkoma Kristniboðsfélags kvenna verður í Betaníu, Laufásvegi 13, I kvöld og hefst kl. 8.30. Þar verður fluttur kristniboðsþáttur, happdrætti, einsöngur og hugleiðing. Allir eru velkomnir á skemmtun þessa. Fasteignasalan EIGNABORG sf. Hamraborg 1 • 200 Kópavogur • Símar 43466 & 43605 Höfum til sölu: 2ja herbergja ibúð við Hliðaveg. Verð 7.5 — 8 M. 2ja herbergja einstaklingsibúð i kjallara við Njarðargötu verð 5.5 M Útb. 3.5 M. 3ja herb. ibúð við Melgerði i tvibýlishúsi. Verð 8.5 til 9 M. 3ja herbergja ibúð við Kársnesbraut. Mjög góð ibúð. Verð 1 1 .5 M 3ja herbergja ibúð við Borgarholtsbraut. Góð íbúð með bílskúrsrétti. Verð 10 M. 3ja herbergja ibúð við Furugrund. Verð 10.5 M. óskar eftir skiptum á gömlu húsi eða sérhæð, má þafnast viðgerðar 3ja herbergja íbúð Skálaheiði. Verð 9 M. 3ja herbergja ibúð i kjallara við Kvísthaga. í góðu standi. Verð 9 —10 M. Makaskipti í vesturbæ i Rvk. koma til greina. 3ja herbergja ibúð við Laugarveg. Þarfnast viðgerðar. Gamalt hús. Verð 5.5 M. 4ra herbergja ibúð á jarðhæð við Kópavogsbraut. Góð íbúð. Verð 1 1.5 — 12 M. 4ra herbergja sérhæð við Fifuhvammsveg ca. 110 ferm stór bilskúr. Sunnan megin i Kópavoginum. Verð 1 4.5 M. 4ra herbergja ibúð við Asparfell með bilskúr 1 20 ferm góð ibúð. Verð 16 — 16.5 M. 4ra herbergja ibúð við Asparfell. Mjög góð ibúð. Verð 1 5 — 1 5.5 M. 4ra herbergja sérhæð við Kársnesbraut. Verð 9 M. 4ra herbergja ibúð á jarðhæð við Digranesveg. Verð 1 1 —1 1.5 M 4ra herbergja íbúð við Grenigrund i Kópavogi. Gamalt hús. Verð 12 M. 5 herbergja góð sérhæð með stórum bílskúr við Melgerði. Glæsileg eign. 1 35 ferm. Verð 1 6 — 1 7 M Skipti á stærra einbýlishúsi með risi kemur til greina. 5 herbergja góð sérhæð við Skólagerði. Stór bilskúr Verð 1 7.5 M. ca. 145 ferm. Skipti á minna húsnæði austarlega i Kópavogi koma til greina. 5 herbergja litið einbýlishús við Digranesveg Gamalt en litur vel út. Verð 8.5—9 M. 5 herbergja stórglæsileg íbúð með vönduðum innréttingum. Stór bílskúr. Útsýni afburða fallegt. Á Kópavogsbraut. Sunnan megin í Kópavogi. Verð 20 M Raðhús við Arnartanga Mosfellssveit. Timburhús 100 ferm. Verð 14.5 M. Iðnaðarhúsnæði af ýmsu tagi i Kópavogi. Upplýsingar aðeins á skrifstofunni. Ekki i síma. Tilbúið undir tréverk. — I smíðum. 2ja og 3ja herbergja ibúðir á miðbæjarsvæði Kópavogs. Afhendast tilbúnar undir tréverk i maí á þessu ári. Sameign verður öll frágengin. Verð 8.8 — 10 M. 2ja 3ja og 4ra herbergja ibúðir á M.iðbæjarsvæði Kópavogs. Afhendast í maí 1979. Skemmtilegur og hagstæður staður. Sameign verður öll fullfrágengin. Yfirbyggð bilastæði. Allar frekari upplýsingar á skrifstof- unni. Einbýlishús i Mosfellssveit við Helgaland. Stærð 196 ferm Seljast fokheld í lok júní á næsta ári. Brennt stál á þaki Tvöfalt gler i gluggum. Útihurð og svalahurð. Lóð sléttuð. Verð 1 3 M. Raðhús í smiðum í Mosfellssveit selst fokhelt. Verð 9 M. íbúð á efstu hæð — Topp ibúð — i miðbæ Kópavogs. Stærð 130 ferm stórar suðursvalir. Stórkostlegt útsýni. Selst tilbúin undir tréverk. Sameign fullfrágengin. Yfirbyggð bilastæði. Afhent i mai á þessu ári. Verð 1 5.5 M. Vilhjálmur Einarsson, sölustj. Pétur Einarsson, Lögfr. FRAMKVÆMDASTJÓRN Vcrzl- unarráðs Islands samþykkti á fundi slnum nýverið eftirfarandi um innflutning á sælgæti, kex, brauðvörur, kaffi og smjörlfki: Á árinu 1960 var mörkuð sú stefna að gera utanrikisverzlun- ina frjálsari og afnema innflutn- ingshöft. Stærstur hluti innflutn- ings er nú orðinn frjáls til mikilla hagsbóta fyrir þjóðarheildina. Enn er þó nokkur hluti innflutn- ings háður leyfum, jafnvel þrátt fyrir gagnstæðar skuldbindingar i samningum okkar við aðrar þjóð- ir. Verzlunarráðið telur, að efna- hagslegur ávinningur af frjálsum utanríkisviðskiptum sé óumdcil- anlegur og hvetur stjórnvöld þvi til að halda áfram á markaðri braut og gefa innflutning frjálsan á þeim iðnaðarvörum, sem eru enn háðar innflutningsleyfum. “ Kaupendaþjónustan Benedikt Björnsson Igf Jón Hjálmarsson sölum. i. Til sölu Höfum í einkasölu 3ja herb. velendurnýjaða ibúð í háhýsi við Hátún. Höfum kaupanda að 4ra til 5 herb. íbúð i Háaleiti eða á Stóragerðissvæði. íbúðin borgast upp á mjög skömmum tima 0pið i dag frá kl. 2-6. Þingho.tsstr*ti 1 5 Kvöld- og helgarsími 30541., SííTlÍ 10 2 20

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.