Morgunblaðið - 04.02.1978, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 1978
Þannig ímyndar listamaðurinn Tom Stimpson sér að umhorfs hafi verið i farþegarýminu þegar neyðarástandið
átti sér stað.
Almáttugur - Við
erum að hrapa...
ÞOTAN sveif i loftinu með
slokknaða hreyfla og i talstöðinni
sagði rödd flugstjórans að vélin
væri að steypast i Atlantshafið
Þotan, af gerðinni Boeing 727
frá National Airlines, sveif niður
um 8000 fet á tæpum fimm min-
útum. en hún var á leiðinni frá
Miami, Flórída, til Newark i New
Jersey með 103 farþega innan-
borðs. Flugstjóranum Reynalddo
Anllo tókst á siðustu stundu að
koma einum hreyfli af fjórum i
gang og þotan hækkaði flugið
skyndilega i eðlilega flughæð og
lenti hálfri klukkustundu siðar
heilu og höldnu i Jacksonville Í
um hundrað kílómetra fjarlægð.
„Athugaðu mælana" sagði Anllo
flugstjóri við aðstoðarflugmanninn
Arthur McNatt um leið og hann
virti fyrir sér sjóndeildarhringinn
fyrir utan Aðstoðarflugmaðurinn
kvað allt vera i fínasta lagi og
veðurútlit væri hið bezta Flórída-
sólm skein inn um gluggana i flug
stjórnarklefanum og fyrir hinum
þaulvana og starfsreynda flugstjóra
var þetta ósköp venjulegt flug, allt i
ákjósanlegasta lagi Hann velti fyrir
sér hvort ekki væri tilvalið að kalla á
fyrstu flugfreyju og fá morgunkaff
ið
Anllo flugstjóri vissi ekki að ein
hræðilegasta stund flugferils hans
var að renna upp Það átti fyrir
honum að liggja sem og öllum
öðrum innanborðs og það. sem
allir flughræddir farþegar óttast —
að allir hreyflar vélarinnar stöðvuð-
ust um leið og hún keyrði á sex
hundrað milna hraða um háloftin
Flugfreyjurnar fjórar i Ijósbleiku
einkennisbúningunum sinum voru i
þann mund að bera fram morgun-
verðinn, eggjahræru og rúnstykki
fyrir 103 svanga farþega um leið
og vélin flaug yfir strandlengju
Flórida. klifraði upp í 33 þúsund
feta hæð og stefndi i átt til norðurs
Nákvæmlega klukkan 10 13 þenn-
an eftirminnilega laugardagsmorg-
un hófst atburðarás sú, sem flug-
heimurinn veltir enn vöngum yfir
— hræðilegu flugslysi var afstýrt á
ævmtýralegan hátt — frekar likara
atriði úr ..stórslysamynd" en raun-
veruleikanum.
Rödd Anllo flugstjóra tilkynnti
flugumferðastjórninni i Miami að
einn hreyflanna hefði stöðvast Vis-
ir á mælaborðinu sýndi að fyrsti
hreyfillinn var á núlli Flugvélstjór-
inn Dominic Fote ýtti á takka til að
reyna að koma hreyflinum í gang
aftur. þegar flugstjórinn æpti til
hans og sagði honum að setja meiri
hraða á hreyfla, tvö og þrjú og það
strax
Þeir farþegar, sem voru á varð
bergi þegar þetta átti sér stað, urðu
undir eins varir við minnkandi há-
vaða frá hreyflunum og flugfreyj-
urnar íitu óttaslegnar hver á aðra
Með stökustu ró byrjaði flugstjór-
inn að kanna mögulega flugvelli til
nauðlendingar
„Eg býst við því að við lendum i
Jacksonville. ef við komum hreyfl-
inum ekki i gang,” sagði flugstjór
inn um leið og hann bað aðstoðar-
flugmanninn að segja sér stefnuna
En kl 10 15 tveimur mínútum síð-
ar var hin stóiska ró flugstjórans
horfin því vandræðin í sambandi
við stöðvun hreyfilsins voru orðin
að neyðarástandi Með hryllingi
fylgdist vélstjórinn með stöðvun
annars hreyfils á mælaborðinu —
vísirinn datt niður á núll „Kapteinn
við erum búnir að tapa öðrum
hreyfli,” sagði hann og um leið og
hann sleppti orðinu sýndi annar
vísir að þriðji hreyfillinn var að
missa kraft „Guð minn almáttugur
— síðasti hreyfillinn hefur stöðv
ast Við erum að hrapa!”
í miklu fáti ýtti flugstjórinn é
hvern takkann á fætur öðrum um
leið og hann reyndi að tilkynna
rólegri röddu í hátalarann hina
venjulegu tilkynningu hristing á
vélinni vegna ókyrrs lofts: „Góðir
farþegar Við megum eiga von á
smá ókyrrð í lofti og leggjum til að
þið spennið saetisólarnar "
Frú Goodwin, sem sat framar-
lega í gluggasæti leit á manninn við
hliðina á sér alls ókunnugan með
angist í augum Sömu hugsanirnar
hafa eflaust flogið gegnum huga
þeirra og hófu þau samræður í því
skyni að yfirvinna óttann
Frá hreyflunum heyrðist nú ekk-
ert hljóð og farþegarýmið tók að
hallast ískyggilega Flugvélin sveif i
loftinu og stefndi næstum lóðrétt
niður
Eldri kona kallaði á hjálp, barns-
grátur heyrðist og titrandi rödd
flugfreyjunnar sagði' í hátalarann
„Góðir farþegar Við undirbúum
lendingu á sjó " Þrjár flugfreyjur
gengu eftir farþegarýminu og tóku
fram björgunarvesti Um leið duttu
súrefnisgrimur niður úr loftinu Óp
farþega urðu hærri. skelfing flug-
freyjanna augljósari og vélin stefndi
óðfluga niður
Frú Goodwin, sem áður var
minnst á sagði síðar að á þessari
stundu hefði hún hugsað um af-
mæli sextán ára sonar sins, sem
haldið var daginn áður Þann dag
hafði hún talað við flesta sína ætt-
mgja og nánustu vini Sagðist hún
jafnframt hafa kvatt alla með hinum
mestu innileikum, eins og hún
hefði skynjað einhvern fyrirboða
Eins og flestir hinna farþeganna var
hún sannfærð um að hinsta stundin
væri runnin upp og á þeirri stundu
vildi hún vita af einhverjum öðrum
nálægt sér Þegar hún leit i augu
ókunna mannsins við hlið sér, sá
hún sama óttann Hræðsluna við
að vera einn Þau tókust i hendur
og maðurinn, sem er sölumaður i
New York. sagði henni frá trú sinni
Hún sagðist trúa á Guð þótt hún
sækti ekki kirkju reglulega og mað-
urinn sagði að þau skyldu biðja um
fyrirgefningu synda sinna Þau
skyldu einnig biðja um lif Rólegt
yfirbragð hans fékk frú Goodwin til
að halda stillingu sinni Allt i kring-
um þau voru farþegar að berjast við
að troða sér i björgunarvestin og
flugfreyurnar hlupu fram og aftur
eftir farþegarýminu til að aðstoða
þá, sem átti/ í erfiðleikum
Gömul kona á þriðja farrými
brotnaði niður þegar henni varð
það á að toga i streng þannig að
björgunarvestið þandist út Tvær
flugfreyjanna hálf báru hana inn i
fyrsta farrými og reyndu að róa
hana
Grátur kvað viða við og fátið var
óskaplegt
í flugstjórnarklefanum var enn
ýtt á takka til að reyna að koma
Framhald á bls. 24
• •
Sendiráðs-
maður flýr
London, 3. febrúar. AP.
SENDIMAÐUR a-þýzku
stjórnarinnar í London
hefur flúið til V-
Þýzkalands að því er
áreiðanlegar heimildir
hermdu á föstudag. Sagt er
að a-þýzkir embættismenn
hafi hins vegar hindrað
konu hans og dóttur frá því
að fara á eftir honum.
Starfsmaður v-þýzka sendiráðs-
ins í Löndon staðfesti í gær að
Bernhardt Weiske, aðstoðarmað-
ur í a-þýzka sendiráðinu, hefði á
þriðjudag farið fram á tilskilin
skilríki til að fá að fara til V-
Þýzkalands. Einnig hefur verið
frá þvf skýrt að tveir starfsmenn
a-þýzka sendiráðsins hafi farið
með eiginkonu Weiskes og dóttur,
sem er sjö ára gömul, til flug-
vallarins með það fyrir augum að
„snara þeim til Prag“. Þetta varð
þó ekki úr þar eð brezka lög-
reglan bjó svo um hnútana að öll
fjögur misstu af vél sinni eftir að
hafa setið í yfirheyrslum á flug-
vellinum.
Þá greindi brezka dagblaðið
„Daily Mail“ frá því i dag að þær
mæðgur væru í haldi í a-þýzka
sendiráðinu og væru starfsmenn
þess að reyna að telja konuna á að
kalla mann sinn aftur. Sagði blað-
ið að búist væri við að flogið yrði
með þær mæðgur til A-Berlínar í
dag. Nýjustu fréttir herma hins
vegar að flugvél þeirri, er flytja
átti þær til A-Berlínar, hafi verið
snúið til Varsjár sökum óhag-
stæðra veðurskilyrða.
Ekki tókst að fá opinbera aðila í
viðkomandi sendiráðum til að tjá
sig um málið í dag og skýrði
„Daily Mail“ frá því að það hefið
hvorki verið viðurkennt né því
neitað að Weiske hefði flúið til
V-Þýzkalands.
Ástmögur íra
úr heimi hallur
Dyflinni. 3. feb. AP.
HAMLET, eða „Ástmögur Ir-
lands“ eins og aódáendum hans
var tamt að kalla hann, er nú
horfinn á braut. Ifann var sjö
ára gamall og þó eitt kynsael-
asta kynbótanaut, er Irar hafa
átt. Þessi ágæti graðungur
fannst örendur á bás sfnum i
sæðingarstöð f Dyflinni á föstu-
dag.
Álitið er, að afkomendur
Hamlets telji nú um 75000 vítt
og breitt um heiminn. Hann
varð eitt sinn tilefni illvigra
deilna i irska þinginu, er upp-
víst varð að mjólkurbú eitt
skattlagði bændur óhóflega fyr-
ir þjónustu hans. Að sögn
starfsmanns mjólkurbúsins var
banamein Hamlets hjartaáfall
—“ en það vill bera við með
starfskrafta á hans sviði," bætti
hann við.
„Setja verður lög
gegn Christianíu
sem hundaæðinu”
Einkaskoyti til Mbl.
HÆSTIRÉTTUR Danmerkur hef-
ur staðfest að „frfborgin"
Christfanfa í Kaupmannahöfn
skuli rýmd fyrirvaralaust, 1 úr-
skurði réttarins segir að Christ-
fanfa hafi sfðan 1. aprfl 1976 ekki
haft nokkrun lagalegan rétt til að
nota sér landsvæði landvarnar-
ráðuneytisins, en að hæstiréttur
geti aðeins metið lagalegan til-
verurétt Christfanfu.
Segir að hann geti af þeim
sökum ekki sagt til um hvort
Christíanía á sér einhvern til-
verurétt frá félagslegu eða mann-
úðlegu sjónarmiði. Um hið siðar-
nefnda beri þingi og ríkisstjórn
að taka ákvörðun.
Engin hefur hug á að i odda
skerist með Christíaníu og lög-
gjafarvaldinu. „En i okkar lýð-
ræðislandi verðum við að hafa
svigrúm til að stöðva tilrauna-
starfsemi" segir háskólafyrir-
lesarinn J.T. Kejding. „Þegar við
fengum hundaæðið inn í landið
settum við lög gegn því. Það verð-
um við líka að gera með tilliti til
Christíaníu“.
Meira af
eitruðum
ávöxtum
finnast
Mannskaði í Olpunum
af völdum skríðufalla
París, Genf, Cervinia, 3 feb AP
SNJÓSKRIÐUR, sem ruddust niður
úr Ölpunum á föstudag, grönduðu að
minnsta kostí 10 manns auk þess
sem 4 er saknað og samgöngur
tepptar við fjallaþorp i þremur að-
liggjandi löndum
Talið er að öflugir stormar hafi
hrundið skriðunum af stað. en þeim
fylgdi mikil snjókoma í fjöllum Frakk
lands, Italíu. Austurríkis og Sviss.
Lausasnjór tók að renna fyrirvaralaust
um nóttina og æddi hann yfir vegi og
járnbrautarteina auk þess sem bifreiðar
og þorp uröu viöa hart úti Margir
útivistarstaðir í fjöllunum, smábæir og
þorp eru emangruð af völdum flóð
anna ítalskar hjálparsveitir með sér-
þjálfaða hunda fundu tvo ítala, 1 5 ára
gamla stúlku og 51 árs gamlan mann
á lífi sem höfðu þá venð i 24 klukku-
stundir undir snjófargi nærri Cervina
og fengið taugaáfall Hins vegar er víst
talið að sex aðrir, þrir belgiskir ferða
menn og þrir ítalir hafi látið lifið i
skriðu sem féll á fimmtudagskvöld
Þorp eitt í Frakklandi, nærri Cham-
onix, varð illa úti af völdum snjóskriðu
og fórust þar fjórir i trékofa að sögn
björgunarmanna Þeir bættu við að
fjögurra ferðamanna, sem fóru frá hót-
eli við Le Lavancer i grenndinni, væri
enn saknað í Cervina grófust nokkrir
bilar undir snjónum og var svipaða
sögu að segja á útivistarstað nærri
Innsþruck, en þar hvarf vöruflutninga-
bíll undir snjóinn Þar munu þó ekki
hafa orðið meiðsli á mönnum í Sviss
meiddust hins vegar vagnstjóri og þrir
farþegar. er lest fór af teinum þar sem
skriða hafði fallið yfir Þá hefur verið
skýrt frá þvi að nokkur þorp i austur-
hluta Sviss hafi orðið sambandslaus
við umheiminn um stundarsakir I Be-
dretto-dalnum aðstoðuðu þyrlur hers-
ins v.ð að flytja konur, aldraða og börn
úr fjallakofum eftir að skriður höfðu
slitið rafmagnslínur Einnig voru nokkr-
ir staðir á Alpahálendi Frakklands sem
urðu rafmagnslausir og margir vegir,
sem að skiðabúðum liggja, lokuðust
Björgunarlið frá Chamonix flutti brott
hóp unglinga frá París, er var við
skiðaæfmgar i Frasserands
Af þeim sex, er létu lifið, var þriggja
manna belgísk fjölskylda
Haag, 3 febrúar. AP
APPELSÍNUR með kvikasilfurs-
snnihaldi fundust víðsvegar I Hol
landi i dag og hert var á eftirliti þar
og í fleiri londum Hollenskir leyni-
lögreglumenn fóru i dag til
Wiesbaden til þess að hafa samráð
við þýzku lögregluna, sem einnig
rannsakar mengaða ávexti, sem
fundist hafa i V Þýzkalandi.
Hollenska dómsmálaráðuneytið seg-
ir að Interpool hafi verið beðið um
aðstoð tií að ganga úr skugga um hvort
beint samband sé á milli ávaxtanna
sem fundist hafa i löndunum
í Brússel sagði talsmaður fyrirtækis
sem flytur inn israelska ávexti að
eitrunin í hollensku appelsinunum
hefði dregið úr sölu á öllum appelsín-
um, jafnvel frá öðrum löndum en
ísrael
í Bremen i V-Þýzkalandi veiktist tólf
ára gömul stúlka i dag þar sem hún
hafði borðað eitraða appelsínu