Morgunblaðið - 04.02.1978, Page 21

Morgunblaðið - 04.02.1978, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. FEBRUAR 1978 21 t>A'P VttffeWR Aí> BANNA N\FTEÍHt>*SPKENó3UWA», HWN ÓSNUN VÍO BEÍN'Sf1i‘l&ÍNN • f .) Wæ v- v ''JM mm mm 7 ^ ~~r ^ Óréttmætar dylgjur Rússa á Norðmenn — segir Whiteley hershöfðingi — Kaupmannahöfn, 3. feb. AP. YFIRMAÐUR herafla Atlants- hafsbandalagsins á N- Atlantshafi, Sir Peter Whiteley, sagði á föstudag að gagnrýni Sovétmanna á Norðmenn væri ósanngjörn en Sovétmenn hafa veizt að Norðmönnum fyrir að leyfa bandalaginu að stunda her- æfingar á landi sfnu. A fundi forsætisráðherra Norðurlanda f Helsinki f desem- ber s.l. snupraði Alexei Kosygin, forsætisráðherra Sovétrfkjanna, Norðurlöndin fyrir að láta Atlantshafsbandalaginu eftir að- stöðu á svæðum nærliggjandi Sovétríkjunum. Skýrði danski forsætisráðherrann, Anker Jörgensen, svo frá að viðræðurn- ar hefðu verið mjög harðorðar á köflum. Sovéskum fjölmiðlum hefur einnig orðið tfðrætt um veru v-þýzka hersveita f Noregi. A blaðamannafundi í Kaup- mannahöfn kallaði Whiteley hers- höfðingi árásir Sovétmanna „frekar ósanngjarnar". Hann sagði að sú stefna Norðmanna að leyfa ekki erlendum hersveitum að hafast við í landinu á friðar- timum væri óbreytt. Hann bætti hins vegar við að nauðsynlegt væri að sýna hverju og einu aðildarlandi bandalagsins að bandamenn eru reiðubúnir og gætu komið skjótt til hjálpar, ef þörf krefði. Kom fram hjá honum að v-þýzkar hjálparsveitir hefðu tekið þátt i æfingum bandalagsins í Noregi um árabil. Hann kvað hjálparsveitir hafa skipulagt sjúkraskýli og merkjakerfi en hins vegar hefði það aldrei verið ætlunin að leyfa v-þýzkum her- sveitum að þjálfa þar. Einnig benti Sir Peter Whiteléy á að erlendar hersveitir hefðu aldrei æft í Finnmerkurhéraðinu, en þar liggja saman landamæri Sovétríkjanna og Noregs. A fundinum lagði hershöfðing- inn áherzlu á að Atlantshafs- bandalagið væri í eðli sinu varna- bandalag, byggt upp sem mótvægi við hernaðarmætti Varsjárbanda- lagsins, en hann yxi nú hröðum höndum á Eystrasalti, á Kola- eyjaklasanum og í Múrmansk, sem ekki er alls fjarri Noregi. Hann sagði að Sovétmenn ógnuðu nú jafnvæginu með því að hafa flutt tvær vel útbúnar sveitir til Kola, en við norska jaðarinn beint á móti væri aðeins einni norskri sveit til að dreifa. Kom fram hjá honum að samstarf Noregs og bandalagsins hefði batnað mjög á síðastliðnum þremur árum og hefðu Norðmenn gefið ríflegan tíma og land til æfinga. Varðandi ástæður þessa kvaðst hann ekki efast um að aukinn þrýstingur Sovétmanna ætti hér hlut að máli. Af öðrum atriðum er Sir Peter Whiteley gerði skil má nefna nifteindasprengjuna. Sagði hann að vanræksla Vesturveldanna við að tryggja varnir sínar hefðu orsakað ójafnvægi gagnvart herj- um Varsjárbandalagsins og væri smíði nifteindasprengjunnar leið til að jafna vogarskálarnar á ný. I máli sinu vék hann að Eystrasalti og kvað Atlantshafsbandalagið hafa á prjónunum „dugandi áform“ til að hefta útþenslu sovéska flotans og siglingar hans út og inn á Eystrasalt. Haldeman rýf- ur loks þögnina New Y’ork, 3. febrúar. Reuter. FYRRUM yfirmaður starfs- mannahalds Hvíta hússins, Haldeman, er I þann mund að rjúfa fjögurra ára þögn. Að. sögn útgefanda hefur hann nýlokið við bók sem svara munu öllum spurningum f sambandi við Watergate-hneykslið, sem ekki hefur verið svarað hingað til. Varaforseti Times fyrirtækisins segir að bókin, „The Ends of Pow- er“, sem er að koma út þessa dagana sé svo spennandi og mikil- væg að hún sé meðhöndluð eins og bókmenntaperla. Utgefandinn segir að upplýst sé i bókinni hvað hafi verið á hinni 18 mínútna eyðu, sem þurrkuð var út af einni af hinum frægu segulbandsspól- um og enn fremur hver hina dul- arfulli heimildarmaður „Deep Throat'* sé. Utgefandinn hefur það eftir Kissinger fyrrum utanríkisráð- herra að aðeins einn maður þekki Watergatehneykslið 90 prósent. Það sé Haldeman. Hin tíu pró- sentin liti ef til vill aldrei dagsins ljós. Þetta gerðist 4. febrúar 1977 — Starfsmenn bandarísku upplýsingaþjónustunriar skýra frá þvi að Sovétmenn og Banda- rfkjamenn séu að reyna að framleiða geisla, sem tortimt geti kjarnorkueldflaugum á lofti. 1966 — Japönsk farþegavél hrapar I Tokýóflóa og láta 133 farþegar lifið. 1961 — Hryðjuverkamenn hefja árásir i Angóla, sem er nýlenda Portúgala. 1945 — Roosewelt, Churchill og Stalin koma saman á Yaltaráð- stefnunni. 1938 — Adolf Hitler tekur að sér ráðuneyti hermála i Þýzka- landi og skipar Ribbentrop utanríkisráðherra. 1904 — Stríð Rússa og Japana brýzt út, er Japanir gera umsát- ur um Port Arthur. 1901 — Bandariskí herinn und- ir forystu Willíams C. Gorgas hefst handa við að útrýma gulu- veiki á Kúbu. 1874 — Brezkir herir undir for- ystu Garnet Wolseley brenna borgina Kumasi i Ghana og binda enda á Ashanti-striðið. 1789 — Georg Washington er kjörinn fyrsti forseti Banda- ríkjanna. 1783 — Stríð Englendinga og Bandaríkjamanna endar. Afmæli eiga f dag: George Lioo. brezkur leikritahöfundur (1693—1739), Carl Michqel Bellman, sænskt Ijóðskáld (1740—1795), Friedrich Ebert, þýzkur stjórnvitringur (1871—1925), Charles A. Lindberg, bandariskur flug- methafi (1902—1974), Betty Friedan, bandarísk kvenrétt- indakona (1921— ), Ida Lupino, leikkona fædd i London (1918— ). Hugleiðing dagsins: Sagan er satt að segja litið annað en skrá yfir glæpi, ógæfii og axarsköft mannkyns" Edward Gibbon, enskur sagnfræðingur (1737—1794). Dýr myndi Hafliði allur llullinKun. Finnlamli. 3. fcb. AP. HÉRAÐSDÓMUR í Finniandi úrskurðaði nýlega að málmiðnaðarfyrirtæki bæri að greiða 10,500 finnsk mörk (u.þ.b. 580,000 ísl. kr.) í skaðabætur til starfsmanns er missti tvo fingur við vinnu sína. Sagði í úrskurðinum að slysið hefði átt sér stað vegna ófullkomins öryggisútbún- aðar. Samkvæmt mati þessu er þvi jafnvirði eins fingurs um 290,000 isl. kr. VEÐUR víða um heim Amstcrdam 2 skýjad Aþcna 12 sólskin Rcrlín 2 snjór Brússcl 8 heiðskfrt <hioago -9 snjór Frankfurt 4 ngning <*onf 5 skijaó Helsinki 0 bjart Jóhanncsarb. 26 sólskin Kaupmannah. 0 snjór Lissabon 16 sólskin l.ondon 7 sólskin Los Angeles 19 heidskfrt Madrid 16 heiðskfrt Málaga 16 skýjað Miami 24 skijað Moskva •10 bjart New York ■3 hjart Ósl6 -2 snjór Palma 10 léttskijaó París 7 léttskýjaó Róm 6 sólskin Stokkh. 0 skýjaó Tel Avtv 18 skíjaó Tokfó 6 heióskfrt Yancouver 2 rigning Yfnarborg 2 snjór FLUGLEIÐIR HF. J Flugleiðir h.f., v/Loftleiða h.f. ætla frá og með maimánuði 1978 að ráða ailmargar nýjar flug- freyjur og flugþjóna til starfa. í sambandi við væntanlegar umsóknir skal eftirfarandi tekið fram: 1 Umsækjendur séu á aldrinum 20—26 ára Þeir hafi góða aimenna menntun. gott vald á ensku og öðru erlendu tungumáli, helzt þýzku, frönsku eða norðurlandamáli. 2. Umsækjendur séu reiðubúnir að sækja kvöldnám- skeið i febrúar/marz n k. (3—-4 vikur) og ganga undir hæfnispróf að þvi loknu 3. Á umsóknareyðublöðum sé þess greinilega getið. hvort viðkomandi sæki urrr ktaifið til lerrgri eða skemmri tima 4. Umsóknir um endurráðningu flugfreyja, sem áður hafa starfað hjá Loftleiðum h f , skulu hafa borizt starfsmannahaldi fyrir 1 0 þ.m 5. Umsóknareyðublöð fást í starfsmannahaldi félagsins á Reykjavíkurflugvelli og Lækjargötu 2 og skulu umsóknir hafa borizt starfsmannahaldi félagsins fyrtr 10 þ m

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.