Morgunblaðið - 04.02.1978, Side 23

Morgunblaðið - 04.02.1978, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. FEBRUAR 1978 23 Greinargerð varðandi rannsókn á skilum fyrr- verandi borgarlögmanns Hér fer á eftir greinargerð frá skrifstofu borgar- stjóra varðandi rannsókn endurskoðunardeildar á skilum Páls Líndals, f.vrrverandi borgarlögmanns, á innheimtum bifreiðastæðagjöldum ogsamþykkt borg- arráðs um málið. Þá fylgja og skýrsla stjórnar endur- skoðunardeildar og bréf borgarendurskoðanda með áritun kjörinna endurskoðenda ásamt tveimur fvlgi- skjölum. Aths.: Greinargerð sú, sem vitqað er í birtist í heild í Mbl. sl. fimmtudag. I byrjun desember 1977 kom upp grunur um, að í ákveðnum tilvikum hafi ekki verið gerð skil til borgarsjóðs á innheimt- um bifreiðastæðagjöldum, sem Páll Lindal, þáv. borgarlögmað- ur, hafði veitt móttöku í marz og október 1977. Eftir að hafa í fyrstu neitað vanskilum greiddi Páll Líndal föstudaginn 9. des- ember umræddar fjárhæðir til borgarsjóðs og sagði jafnframt að af hans hálfu væri ekki um frekari vanskil að ræða. Endur- skoðunardeild hafði þá hafið nánari athugun þessara mála og strax mánudaginn 12. des- ember kom fram grunur um frekari vanskil. Þann dag sagði Páll Líndal starfi sínu lausu. Var honum þá jafnframt tjáð af borgarstjóra, að endurskoðun- ardeild óskaði eftir að gera leit að skjölum í herbergi hans og honum gefinn kostur á að vera viðstaddur, sem hann afþakk- aði. Um þetta efni fylgir skýrsla borgarendurskoðanda. Rannsókn endurskoðunar- deildar sem nær allt aftur til ársins 1965 hefur leitt í ljós, að á árunum 1971—1977 hefur Páll Líndal veitt móttöku bif- reiðastæðagjöldum að fjárhæð samtals kr. 5.069.729, sem ekki verður séð að skilað hafi verið í borgarsjóð. ínn á þessa fjárhæð greiddi Páll Líndal 9., 14. og 15. desember s.l. samtals kr. 1.973.704. Skýrslu endur- skoðunardeildar fékk Páll Lin- dal 31. janúar, en hefur síðan ekki sinnt tilmælum endur- skoðunardeildar um að koma og gera grein fyrir málinu af sinni hálfu. Ekki verður hjá því komizt að vekja athygli á, að í bréfi til borgarráðs 31.1. 1978, sem birt var í dagblöðum 2. þ.m., lætur Páll Líndal að því liggja, að á fundi borgarstjóra 12. desem- ber s.l. hafi honum fyrst verið sagt, að hann „væri borinn al- varlegum sökum af borgarend- urskoðanda". Þremur dögum áður, 9. desember s.l., hafði Páll Líndal þó greitt tæpl. kr. 775 þús., sem hann veitti við- töku í marz og október 1977. Aður hafði starfsmaður endur- skoðunardeildar rætt nokkrum sinnum við Pál Lindal um þessi vanskil og leitað eftir skýring- um hans. Samtalið 12. desember s.l. getur þvi ekki hafa komið Páli Líndal á óvart. I fyrrgreindu bréfi til borgar- ráðs og í blaðaskrifum undan- farna daga hefur Páll Lindal ítrekað fundið að rannsókn endurskoðunardeildar og jafn- framt haft í frammi óljósar að- dróttanir í garð borgaryfir- valda. Borgarráð hefur í dag ákveð- ið að vísa málinu til frekari meðferðar rannsóknarlögreglu- stjóra ríkisins. Reykjavík, 3. febrúar 1978. Frá skrifstofu borgarstjóra. Reykjavík, 30. jan. 1978. 1 byrjun desembermánaðar 1977 kom upp grunur um, að I ákveðnu tilviki hafi ekki verið gerð skil til borgarsjóðs á inn- heimtum bifreiðastæðagjöld- um. Hóf endurskoðunardeildin þegar rannsókn á máli þessu og hefur verið rannsökuð inn- heimta bifreiðastæðagjalda frá því að þau voru ákveðin með byggingarsamþykkt Reykjavík- urborgar frá 24/3. 1965 og til loka árs 1977. Rannsókn þessi Ieiddi eftir- farandi f ljós: 1. Samkv. 25. gr. byggingar- samþykktarinnar, getur borgar- stjórn heimilað, að í þeim til- vikum, þar sem ekki verður komið fyrir á lóð, nægilegum bifreiðastæðum, leyst lóðarhafa undan þeirri kvöð, ef hann greiðir andvirði þess lóðar- hluta, sem á vantar. Skal þá andvirðið miðað við verðmæti þeirrar lóðar, sem byggt er á. 2. I ljós hefur komið, að þá- verandi borgarlögmaður Páll Líndal sá um samninga þessa við viðkomandi húseigendur um greiðslu bifreiðastæðagjald- anna og virðist sem að greiðslur þessar hafi verið inntar af hendi I formi peninga, víxla og í nokkrum tilvikum skulda- bréfa. Skuldabréfin hafa þá borið vexti, en ekki vfxlar. Einnig hefur komið í ljós að Páll Líndal hefur í mörgum til- vikum sjálfur tekið við pen- ingagreiðslum og víxlagreiðsl- um. Eftirfarandi greiðslum hefur ekki, svo séð verði, verið skilað til borgarsjóðs: A. 30/6. 1971 greiðir Magnús Þorgeirsson vegna húseignar- innar nr. 7 við Bergstaðastræti Kr. 131.750.- með ávísun á Ut- vegsbanka Islands. Avfsunin er framseld af Páli Líndal án framsals borgargjaldkera (Flskj. 1, 1A, 1B, 1C og 1D). B. 6/10. 1971 greiðir Guðjón Andrésson vegna húseignarinn- ar nr. 17 við Fálkagötu Kr. 52.000,- (Sbr. yfirlýsingu Páls Lindals Flskj 2). C. 25/5. 1973 gengur borgar- lögm. frá samkomul. við Sam- vinnubanka íslands varðandi húseignina nr. 7 við Banka- stræti. 30/4. s.á hafði hann sent kröfubréf til bankans um gjald, sem næmi alls Kr. 8.750.000.— (Flskj. 3). Samkomulagið við Samvinnubankann er munn- legt og á þá leið að þeir greiði samsvarandi upphæð og Lands- banki tslands greiddi árið 1967 (Flskj 3A). Þessi ákvörðun er ekki borin undir aðra stjórnendur borgar- innar svo vitað sé. Samkv. henni er svo Samvinnubankan- um gert að greiða alls Kr. 3.500.000,- (Flskj 3B). Upp- hæðin er greidd með tveimur ávísunum, önnur að upphæð Kr. 3.000.000.— sem framseld er af Páli Lfndal og borgargjald- kera og er henni skilað f borg- arsjóð. Hin ávísunin Kr. 500.000.- er framseld í Landsb. tsl. 29/5. af Páli Líndal en ekki af borgargjaldkera (Flskj. 3C, 3D og 3E). D. 22/10. 1974 greiðir Pétur Eyfeld vegna húseignarinnar nr. 65 við Laugaveg með ávísun á Verzlunarbanka íslands að upph. kr. 100.000,- Ávísunin er frams. af Páli Líndal án fram- sals borgargjaldkera (Flskj 4 og 4A). E. 11/8. 1975 greiðir Islensk endurtrygging vegna hús- eignarinnar nr. 6 við Suðurl.br. með ávísun á Landsbanka ts- lands að upph. Kr. 540.000,- Ávísunin er framseld af Páli Lfndal án framsals borgargjald- kera (Flskj. 5, 5A og 5B). F. 13/8. 1975 greiðir Bygg- ingarfélagið Búr h/f. vegna húseingarinnar nr. 39 við Sólvallág. samkv. kvittun Páls Lfndals (Flskj 6) Kr. 170.000.U G. 24/6. 1976 er gengið frá sam- komulagi við sameignarfélagið Skólavörðustfg 16 vegna hús- eignarinnar (Flskj. 7) á heildarupph. Kr. 3.000.000.-. Greiðslur fóru þannig fram: 24/6. 1976 gr. með ávísun á Alþýðubankann Kr. 450.000.U Avísunin er framseld af Páli Líndal án framsals borgargjald- kera25/6. (Flskj 7A). 24/6. 1976 gr. með ávfsun á Alþýðubankann Kr. 550.000.U Avísunin er framseld af Páli Lfndal án framsals borgargjald- kera 16/7. (Flskj. 7B) 30/9. 1976 gr. með ávísun á Alþýðubankann Kr. 200.000.- Avísunin er framseld af Páli Lfndal án framsals borgargjald- kera 1/11. 1976 (Flskj. 7C). 5/11. 1976 gr. með ávísun á Alþýðubankann Kr. 300.000.U Ávfsunin er framseld sama dag af Páli Líndal án framsals borgarlögmanns (Flkj. 7D). Eftirstöðvar Kr. 1.500.000.- voru greiddar með sýningar- vfxli, sem ekki var fyrir hendi f vörslu borgarsjóðs, en Páll Lín- dal skilaði honum til borgar- stjóra, þegar hann var inntur eftir honum f lok desember 1977. H. 28/12. 1976 er gengið frá samkomulagi við Guðmund Axelsson vegna húseignarinnar nr. 71 við Laugaveg að heildar- upphæð Kr. 1.473.704 (Flskj. 8). Greiðslur fóru þannig fram, að upphafl. var gr. með reikn. Kr. 400.000.U, sem færður er f borgarsjóð 28/12. 1976, óg eftirst. með víxlum. Hluti af vixlunum er greiddur þannig: 31/3. 1977 með ávísun á Utvegs- banka tslands er framseld er af Páli Lfndal án framsals borgar- gjaldkera (Flskj. 8A) Kr. 373.704.U 24/10. 1977 gr. með ávísun á Útv.b. tsl. sem framseld er af Páli Lindal án framsals borgar- gjaldkera (Flskj. 8B) Kr. 400.000.U Sýningarvíxill Kr. 300.000.U fannst við athugun í skrifborði Páls Lindals 12/12. 1977. I. 14/2. 1977 er gengið frá sam- komulagi v. Þorsteinn Kristjánsson vegna húseignar- innar nr. 14 við Skólavörðustfg að upphæð Kr. 1.235.250.— Þar af er greitt með ávísun á Lands- banka tslands Kr. 635.250.- Avisunin er framseld af Páli Lindal án framsals borgargjald- kera (Flskj.9og 9A).- Vfxill f gjaldd. 25/2. 1978 fannst við athugun í skrifborði Páls Linsals 12/12. 1977 að upph. Kr.600.000,— J. 15/2. 1977 gr. Karl Stein- grímsson vegna húseingarinnar nr. 39—41 v. Bræðraborgarst. m. áv. á Sparisj. Pundið og er 0- 5t>y+*yS. 'fy/. ’?-?■ /ÍV. J7£>P.D£>£> '//r. * %. '?s Árt £>/>0. —1 ''■y'/Z ?? Ár. 6 £>£>.000. „ ■ý/i?. ?P Á. &£>£>. O£>0. &■. 2. /££>. />&£>- Kvittun innheimtudeildar skrifborði Páls Lindal. fyrir fjórum vixlum varðandi bifreiðastæðagjöld sem teknir voru úr hún framseld af Páli Líndal í maí (Flskj. 10) án framsals borgargjaldkera Kr. 67.025.- K. 5/7. 1977 gr. Bernhard Petersen h.f. vegna húseignar- innar nr. 12 v. Holts- götu/Ananaust á Landsbanka ísiands Kr. 600.000.— Ávísunin er framseld af Páli Líndal án framsals borgargjaldkera (Flskj. 11 og 11A) Tveir víxlar f gjalddaga 15/12. 1977 og 1/10. 1978, hvor að upp- hæð Kr. 600.000.— fundust við athugun í skrifborði Páls Lín- dals þann 12/12. 1977. Samtals eru þannig Kr. 5.069.729.-, sem vantar skil á í borgarsjóð þann 8/12.1977. Þann 9/12. greiddi Páll Lín- dal í borgarsjóð m. ávfsun Kr. 773.704,- þann 14/12. voru greiddar f. hans hönd í borgar- sjóð Kr. 600.000.— og þann 15/12. voru greiddar f. hans hönd í borgarsjóð Kr. 600.000.-. Þannig vantar nú þann 30/1. 1978 skil á Kr. 3.096.025,- Endurskoðunardeildin mun gera könnun á þeim þætti þessa máls, sem snýr að því, hvort farið hafi verið eftir reglum byggingarsamþykktar Reykja- víkurborgar um útreikninga á upphæðum bifreiðastæðagja- deildarinnar hélt fyrst fund um þetta mál 7“12. 1977 og hefur alls haldið átta fundi um málið. I stjórn endurskoðunardeild- ar. Bergur Tómasson, Bjarni Bjarnason, Hrafn Magnússon. Reykjavfk, 2. febrúar 1978. BT/hg. I byrjun rannsóknar á máli Páls Lindals, varðandi meðferð innheimts fjár vegna bifreiða- stæðagjalda, kom fram, að ekki voru nein gögn fyrir hendi um greiðslumáta, samkomulag eða útreikninga á því tilviki, sem varð upphaf að rannsókn þess- ari, svo og sfðari mála, sem upp komu. Páll Lindal hafði verið inntur eftir gögnum f ssum oft- ar en einu sinni og kvað hann engin gögn um þetta vera í sín- um fórum og gæti hann engar upplýsingar gefið. Þegar svo Páll segir starfi sinu lausu 12.12. 1977, skýrði borgarstjóri Páli frá þvf, að borgarendurskoðandi teldi nauðsynlegt að hirzlur Páls yrðu skoðaðar til þess að ganga úr skugga um að ekki væru þar gögn til upplýsingar f málinu. Borgarstjóri spurði Pál hvort har.n vildi vera viðstaddur, en hann kvað nei við. Að svo búnu fór Páll af skrifstofu sinni en borgarendurskoðandi ásamt Birni Kristjánssyni, starfs- manni endurskoðunardeildar, og skrifstofustjóra deildarinn- ar, Kjartandi Gunnarssyni, könnuðu gögn í skrifborði Páls með vitund borgarstjóra og skrifstofustjóra borgarstjóra. Teknir voru úr skrifborðinu fjórir vfxlar varðandi bifreiða- stæðagjöld samkvæmt með- fylgjandi kvittun innheimtu- deildar, en innheimtudeild voru afhentir víxlarnir til varð- veislu og innheimtu. Ennfrem- ur gögn um þær greiðslur er þeir þrir aðilar, sam samþ. vixl- ana, áttu að greiða fyrir bif- reiðastæðagjöld. Að öðru leyti varðandi atvik þennan dag vegna þessa máls, vísast til minnisblaðs Björns Kristjánssonar, sem fylgir hér með. Það er rangt, að ég hafi nokk- urn tíma sakfellt Pál Líndal Framhald á bls. 24

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.