Morgunblaðið - 04.02.1978, Page 41

Morgunblaðið - 04.02.1978, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 1978 41 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 10—11 FRÁ MANUDEGI „Kæri Velvakandi. Mig langar til þess að fara nokkrum orðum um tillit það, eða réttara sagt tillitsleysi, sem sam- borgarar okkar sýna náunganum. Þar er víða pottur brotinn, og kannski á ég þar einhvern hlut að máli, þótt ég geri mér ekki grein fyrir því sjálf. Ég ætla að segja þér frá einu sliku atviki, og til þess að vera sanngjörn geri ég þvi skóna, að viðkomandi hafi alls ekki gert sér grein fyrir því sjálf, hverjar af- leiðingar tillitsleysi hennar hafði. Eg er ung móðir og hef nýlega eignazt mitt fyrsta barn. 1 annað skipti, sem ég fór út með það i vagni, átti ég leið um Suðurgöt- una. Þennan dag var mikið slabb á götunum og ég hélt mig innar- lega á gangstéttinni. Margir bilar óku um götuna og urðu mér ekki til ama þar til einn kom á mikilli ferð. Vissi ég ekki fyrr til en krapa- og aursletturnar skvettust yfir mig og vagninn. Um leið rak barnið upp mikið öskur. Þegar ég gáði betur að hafði skvetzt inn í vagninn og barnið fengið iskalda forarslepju framan í sig. Sennilega hef ég fengið snert af taugaáfalli, því að ég sneri strax við og vissi raunar ekki af mér fyrr en ég var komin heim, og þá jafnaði ég mig fyrst. 0 Vil forða öðrum frá því sama Það var svo ekki f.vrr en sfð- ar um daginn að ég veitti því athygli, hvernig vagninn og káp- an mín voru útleikin. En i minum huga var það smámál. þar sem öll hugsunin beindist að barninu. Vel getur verið að einhver segi að ég sé bara taugaveikluð að vera að fárast yfir þessu. Mér er alveg sama, hvað menn kalla það, en einhvern veginn fannst mér að barnið mitt væri í hættu. Og þetta bréf skrifa ég, ef það gæti orðið til þess að aðrar mæður yrðu ekki fyrir svipaðri reynslu. Ég skora á bilstjóra að sýna vegfarendum lil- litssemi, og þá sérstaklega við að- stæður sem þessar. Nú veit ég að hver er sjálfum sér næstur. Vildir þú, bilstjóri góður, fá aurslettur yfir þig, þegar þú ert gangandi vegfarandi? Hugsaðu um það, að ef allir keyrðu eins og þú, gætirðu sjálfur orðið næsta fórnarlambið. Og það sakaði ekki, þótt þú hugs- aðir lika til barnsins þins. Móðir f Vesturbænum." Þessir hringdu . . . # Kaffiverðið Arndis hringdi og sagðist hafa verið að lesa það i Morgun- blaðinu að Brasilíumenn hafi enn lækkað kaffið J kjölfar mikillar lækkunar í desember, en hér á landi hækkaði kaffiverð. Nú spyr hún, hvernig á þessu standi. Segja má að kaffi sé þjóðar- drykkur lslendinga og þvi eðli- legt að aimenningur láti sig varða verð þess. Samkvæmt þessu virðist Vel- vakandi óþjóðlegur, þvi hann drekkur litið kaffi og fylgist ekki með verði þess, en það er ósk hans að einhver, sem er þessum málum kunnugur, svari fyrirspurn Arn- dísar. ^ Enn eru það hundar Bréfið um hundana i Lækja- hverfinu hefur hleypt af stað skriðu-. Enn hringdi kona, sem kvartaði undan hundagangi. Verst þykir henni, þegar hundar EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU U <;n siN<; \ SÍMINN KR: 22480 eru látnir út á nóttunni eða mjög seint að kvöldi, eða þegar þeir koma margir saman og láta til sín heyra. Þá sagðist hún vorkenna hundunum, þeir væru oft hafðir inni meiri hluta dagsins. „Ég er fædd og alin upp i sveit," sagði hún, „og þekki hunda vel. Ég hef oft séð hunda við glugga ibúða bókstaflega grátandi. Svo vill verða, þegar þeir eru skildir eftir einir heima.“ „Þá hef ég tekið eftir þvi,“ sagði konan, „að það er eins og hundarnir geri allt til þess að vingast við ketti, sem verða á vegi þeirra úti. Þetta sá ég aldrei i sveitinni. Þar rifust þeir eins og hundur og köttur, eins og sagt er. En sennilega eru þessi gre.v svo ánægð yfir að hitta fyrir annan ferfætling. — Nei, hundar eiga ekki heima i borgum." HÖGNI HREKKVÍSI .22 ©1978 ' McNaught Synd„ lae. JLúé/rtsin - wuéwfémyœjMxi í3 Hann er að undirbna ja/zhátíð á baklóðunum. SKÁKSTYRKIR ERU SKATTFRJÁLSIR SKÁKSAM BAIMD GIRO 625000 ÍSLANDS í Í VIÐTALSTÍMI Alþingismanna og borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins verða til viðtals í Sjálf- stæðishúsinu Háaleitisbr 1 á laugardög- um frá klukkan 1 4:00 til 1 6:00 Er þar tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum og er öllum borgarbúum boðið að notfæra sér viðtalstíma þessa Laugardaginn 4. febrúar verða til viðtals Pétur Sigurðsson, alþingismaður, Ólafur B. Thors borgarfulltrúi, Hilmar Guðlaugsson, varaborgarfulltrúi. Reykjaneskjördæmi Prófkjör um val frambjóðenda á lista Sjálfstæðisflokksins við næstu alþingiskosningar i Reykjaneskjördæmi, fer fram laugardaginn 4. og sunnudaginn 5. febrúar. Kosningin stendur yfir frá kl. 10 til kl 22 báða dagana og fer fram á eftirtöldum stöðum: Kjalarnes og Kjósarhreppur Kjörstaður Fólkvangur. Kjalarnesi. Mosfellshreppur KjörstaSur Hlégarður, Mosfellssveit. Seltjarnarnes KjörstaSur Anddyri íþróttahussins Seltjarnarnesi. Kópavogur Kjörstaður Sjálfstæðishúsið, Kópavogi. Garðabær Kjörstaður Barnaskólinn v/Vifilsstaðaveg, inng. um norðurdyr. Hafnarfjörður Kjörstaður Sjálfstæðishúsið, Hafnarf irði. Vogar Kjörstaður Glaðheimar, Voqum Njarðvík Kjörstaður Sjálfstæðishúsið, Vogum. Keflavik Kjörstaður S jálf stæðishúsið, Keflavík Garður Kjörstaður Dagheimilið Gefnarborg, Garði. Sandgerði Kjörstaður Leikvallarhúsið Sandgerði Hafnarhreppur Kjörstaður Skólahúsið, Höfnum. Grindavík Kjörstaður Félagsheimilið Festi, Grindavík. Kosningin fer þannig fram, að kjósandinn kýs ákveðinn mann i ákveðið sæti framboðslistans til Alþingis. Skal þetta gert með því að setja tölustaf fyrir framan nöfn manna á prófkjörseðlinum og tölusetja i þeirri röð, sem óskað er, að þeir skipi framboðslistann Enginn prófkjör- seðill er gildur nema merkt sé við 5 menn á kjörseðli Heimilt er að hver kjósandi i prófkjöri megi kjósa 2 menn, sem ekki eru i framboði með því að rita nöfn þeirra og heimilisföng á prófkjörseðillinn. Ef þátttaka i prófkjörinu nemur Vh eða meira af fylgi Sjálfstæðisflokksins við siðustu Alþingiskosningar í Reykjaneskjördæmi, er kjöfnefnd skylt að gera þá tillögu til kjördæmisráðsfundar um skipan framboðslista flokks- ins við kosningarnar, að í þrjú efstu sæti listans skuli skipa þeim frambjóðendum, sem í þau voru kosnir Sá maður hlýtur efsta sætið í prófkjörinu, sem flest atkvæði fær í það sæti. Annað sæti hlýtur sá, sem ekki hefur hlotið efsta sætið, en hefur flest atkvæði, þegar saman eru lögð atkvæði hans í 1. og 2. sæti Þriðja sæti hlýtur sá, sefn ekki hefur hlotið 1. eða 2. sæti, en hefur flest atkvæði, þegar saman eru lögð atkvæði hans í 1 2 og 3. sæti. Siðan hljóta menn önnur sæti í prófkjörinu með sama hætti. Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.