Morgunblaðið - 04.02.1978, Side 42
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. FEBRUAR 1978
Heimsmeistaramóti skíðamanna lýkur f Garmisc Partenkirchen f V-Þýzkalandi á sunnudaginn. Þessi
mynd er hins vegar frá setningarathöfninni, sem fðr fram um sfðustu helgi.
Læknar ráölögöu henni að keppa ekki á skíðum
Þrjár ánægðar skfðakonur að lokinni svigkeppninni á þriðjudaginn, Lise Marie Morerod frá Sviss varð í
þriðja sæti, Hanni Wenzel frá Liechtenstein sigraði og brosir blftt fyrir miðri mynd og lengst til hægri er
Fabienne Serrat frá Frakklandi, sem varð önnur. 1 gær urðu þær að sætta sig við óvæntan en glæsilegan
sigur Soelckner frá Austurrfki og sjálfsagt hefur sigur hennar komið þeim eins mikið á óvart og öllum
öðrum.
ÖLLUM á óvart varð Lea Sölckner frá Austurrfki sigurvegari f svigi Heimsmeistaramóts skíðamanna f
Garmisch Partenkirchen f gær. Þessi 19 ára gamla skfðakona fékk beztan tfma f fyrri ferð og f þeirri
sfðari gaf hún ekkert eftir og náði öðrum bezta tfma. Þetta var þriðji sigur Austurríkis á HM, Josef
Walcher og Annemarie Moser-Pröll unnu brunið, en Ingemar Stenmark stórsvigið.
Pamela Behr frá V-Þýzkalandi
fékk silfrið og Monika Kaserer
frá Austurríki varð í þriðja sæti.
Tímar stúlknanna f efstu sætun-
um voru 1:24.35 á Sölckner, Behr
fékk tímann 1:25.33 og Kaserer
1:25.37. Brautin var 390 metra
löng og snjókoma gerði skíða-
konunum erfitt fyrir, hliðin vora''
50 í fyrri ferð og 51 í seinni ferð-
inni.
— Ég tók þessa keppni bara
eins og hverja aðra. Það var ekki
fyrr en á marklínunni að lokinni
seinni ferðinni að ég gerði mér
grein fyrir því að þetta var ekki
nein venjuleg keppni, sagði Lea
Sölckner að keppninni lokinni.
Það sem gerir sigur Sölkner
enn merkilegri en ella er að
vinstri fótur hennar er 1.7 sm
styttri en sá hægri og hefur það
verið svo frá upphafi. Læknar
ráðlögðu stúlkunni að keppa ekki
á skíðum vegna þess, að hún gæti
skaðazt á hrygg vegna aukins
álags á mjaðmagrind vegna styttri
fótarins. Fyrir þremur árum
skrifaði faðir íiennar undir skjal
þar sem hann féll frá hugsanleg-
um skaðabótakröfum vegna
meiðsla, sem rekja mætti til
þessarar fötlunar hennar. Þannig
fékk hún leyfi til að æfa og keppa
með austurríska landsliðinu.
Urslit í keppninni urðu þessi:
Lea Sölckner, Austurríki, 1:24.85
Pamela Behr, V-Þýzkalandi,
1:25.33
Monika Kaserer, Austurríki,
1:25.37
Perienne Pelen, Frakklandi,
1:25.67
.Fabienne Serrat, Frakklandi,
1:25.75
Hanni Wenzel, Liechtenstein,
1:26.09
Mise-Marie Morerod, Sviss,
1:26.59
Claudia Giordani, ítalíu, 1:26.87
I 19. sæti varð Annemarie
Moser-Tröll á 1:31.60, en það
nægði henni til að taka forystuna
í alpaþrikeppninni. Hanni
Wenzel er í öðru sæti í þeirri
keppni, en úrslitin ráðast ekki
fyrr en í stórsvigskeppni stúlkn-
anna á sunnudaginn. Margar
þeirra beztu áttu í erfiðleikum í
keppninni í gær. Þannig varð
Cindy Nelson í 30. sæti og banda-
rísku stúlkurnar náðu ekki að
sýna sitt bezta í keppninni í gær.
STEINUNN
í 29. SÆTI
STEINUNN Sæmundsdóttir var meðal keppenda í Heims-
meistaramóti skíðafólks f V-Þýzkalandi í gær. Varð Steinunn í 29
sæti í sviginu á tfmanum 1:35.86. 41 skíðakona lauk keppninni í
gær. Eins og kunnugt er hefur Steinunn æft með norska landslið-
inu að einhverju leyti f vetur og f sætunum rétt á undan henni
urðu beztu skíðakonur Noregs, Bente Dahlum á 1:33.19 og Torill
Fjeldstad á 1:33.19.
SIGRAÐIÖLLUM
ÁÓVARTÍSVIGI
KVENNA í GÆR
Islandsmótiðíknattspyrnuinnanhúss:
32 lið berjastf
tveimur deildum
VlKINGAR urðu íslandsmeistarar f knattspyrnu innanhúss í fyrsta
skipti á síðastliðnum vetri og eflaust hafa þeir í hyggju að endurtaka
þann leik á Islandsmótinu nú, en mótið fer fram um helgina. Það er þó
vitað mál fyrirfram að róðurinn verður erfiðari hjá liðinu og líklegri
sigurvegarar eru lið Fram, Vals og KR. Mótið hefst klukkan 14 í dag og
verður keppt á tveimur stöðum, a-flokkur, eða 1. deild, leikur í
Laugardalshöll og sömulciðis kvenfólkið, cn b-flokkur eða 2. deild
leikur í Iþróttahúsinu í MosfeUssveit. Allir úrslitaleikir fara sfðan
fram í Laugardalshöllinni á morgun og hefjast úrslitaleikirnir klukk-
an 15.20.
Lið Fram varð Reykjavikur-
meistari í innanhússknattspyrnu
á dögunum, en Asgeir Eliasson og
félagar hans unnu þá KR á hlut-
kesti eftir hörkuleik. Akurnesing-
ar héldu innanhúsmót i knatt-
spyrnu um síðustu helgi og mættu
Jón Indriðason eða Jóló eins og
hann er oftast kallaður leikur
með félögum sfnum f Þór gegn
efsta liði 1. deildar, UMFN„ f dag
kl. 13.00. Hér sést Jón skora í leik
Þórs gegn IS. (Ljósm. ÁG).
þar til leiks flest af beztu liðunum
að Frömurum undanskildum. Þá
fengu KR-ingar nokkra uppreisn
æru, en þeir unnu Val í úrslita-
leik. Hafa þeir spjarað sig vel að
undanförnu og ættu að geta náð
langt í þessu móti, en keppnin
verður erfið og Fram og Valur
trúlega erfiðastir andstæðinga
þeirra.
Leikið verður í tveimur flokk-
um eða deildum eins og áður
sagði og eru 16 lið í hvorum
flokki. Færast tvö lið á milli þann-
ig að fyrirkomulagið er eins og
venjulegri deildakeppni. Er þátt-
taka í þessu móti meiri en áður i
innanhússmóti og er áhugi greini-
lega að vaxa á íþróttinni. Auk
liðanna 32 í flokkunum tveimur
höfðu fleiri lið áhuga á að vera
með, en sendu þátttökutilkynn-
ingar of seint. Þá eru fjögur
kvennalið með í mótinu.
I a-flokki er riðlaskiptingin
þessi:
1. riðill:
Vikingur, Afturelding, KR, Fram
2. Riðill
Þróttur, R, Þróttur, N, FH,
Haukar
3. riðill
ÍA, Njarðvík, UBK, Týr, Vm.
4. riðill
Valur, Armann, Fylkir, ÍBK
I b-flokki leika eftirtalin lið
saman f riðium
1. riðill
Víðir, Hekla, UMFG, Léttir
2. riðtll
Selfoss, Skallagrímur, KS, Oðinn
3. riðill
ÍBÍ, USVS, Stjarnan, ÍK
4. riðill
Þór Vm, Einherji, Reynir S, ÍR.
í kvennaflokki leika Valur,
Fram, FH og Breiðablik.
KRMÆTIRIR
í KÖRFUNNI
ÞRÍR leikir verða í 1. deild íslandsmótsins í körfuknatt-
leik um helgina, Þór — UMFN í dag og Valur — Fram
og KR — ÍR á morgun.
i dag fer toppliðið í deildinni,
UMFN, til Akureyrar og leikur
við Þór. Verður fróðlegt að sjá
hvort Þórsarar verða Njarðvík-
ingum einhver hindrun, en það er
alls ekki ólíklegt, ef Þór nær góð-
um leik í dag. Leikurinn hefst kl.
13.00.
Á morgun, sunnudag, verða
tveir leikir í Iþróttahúsj Haga-
skólans. KI. 15.00 leika Valur og
Fram og að þeim leik loknum eða
kl. 16.30 leika KR og ÍR. Báðir
þessir leikir ættu að geta orðið
spennandi, þó svo að Valur og KR
séu sigurstranglegri og megi ekki
tapa til þess að missa ekki af
iestinni í baráttunni um ísiands-
meistaratitilinn. Hins vegar hafa
Fram og ÍR staðið sig ágætlega að
undanförnu og tapað með litlum
mun fyrir toppliðunum. Fram
með þriggja og fimm stiga mun
fyrir UMFN og KR, ÍR með fimm
og tíu stiga mun fir Val og ÍS.
Þá verða þrír leikir i 2. deild
um helgina. 1 Vestmannaeyjum
leika IV og Snæfell tvo leiki, kl.
14.00 á laugardag og sunnudag og
í Njarðvík leika UMFG og Breiða-
blik kl. 14.00 á sunnudag.
I þriðja sæti
íþriðja sinn
íþriðju greininni
WILLI Frommelt frá Liechten-
stein vann sérstakt afrek f stór-
svigskeppni heimsmeistara-
keppninnar f V-Þýzkalandi f gær.
Þessi 25 ára stórsnjalli skfða-
maður varð f þriðja sæti og sama
númer fékk hann einnig f bruni f
HM f St. Moritz f Sviss 1974 og á
ÖL f Innsbruck varð hann þriðji f'
svigi. Skyldi manninum ekki vera
farið að þykja vænt um hronzin
sfn?
Odermatter
efsturmeðal
atvinnumanna
JOSEF Odermatt frá Sviss hefur
tekið forystuna f keppni atvinnu-
skfðamanna f Bandarfkjunum. I
gær vann hann Ed Reich frá
Austurrfki f „samsfða — stór-
svigi“ og færði sigurinn honum
6.750 dollara f vasann og 20 stiga
forystu f kcppninni. Odermatt
varð annar f þessari keppni f
fyrravetur, en hefur f vetur sýnt
mikinn styrk og þénað 48.150
dollara á skfðamótum.