Morgunblaðið - 15.03.1978, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1978
25
fclk í
fréttum
Jones
+ Það er orð-
ið langt síðan
heyrst hefur
til söngvar-
ans Tom
Jones hér á
landi. Hann
yfirgaf Bret-
land fyrir
nokkrum ár-
um vegna
skattamála
meðal annars
og hefur nú
sest að í
U.S.A. Meðan
hann bjó í Bretlandi var
hann stöðugt með lög á
vinsældalistum og á
skjánum. í dag býr Jones
í Hollywood og hefur að
eigin sögn aldrei haft það
betra. Hann er nýbúinn
að gefa út plötu og eitt lag
af henni er þegar komið á
vinsældalista. Og hann
fær álíka marga áheyr-
endur, þegar hann kemur
fram, og Frank Sinatra.
Tom Jones er sonur
námuverkamanns og varð
oft var við andúð og
fyrirlitningu þess vegna
meðan hann bjó í Bret-
landi. Honum var m.a.
neitað um inngöngu í
golfklúbb í St. Georges
Hill í Bretlandi þess
vegna. En í Bandaríkjun-
um er nóg að eiga seðla,
þá standa manni allar dyr
opnar. Tom Jones er 39
ára gamall og á einn son
með konu sinni Lindu.
Þau hafa verið gift í 20 ár
og Mark sonur þeirra er
jafngamall og faðir hans
var, þegar hann komst
upp á tindinn.
+ Eddie Kidd, 18 ára gamall ofur-
huKÍ. slapp lifandi en ekki alveg
óskaddaður frá einu mesta dirfsku*
verki sínu til þessa. Hann var
statisti fyrir leikarann Harrison
Ford í kvikmynd, sem verið er að
gera. Hann átti að stökkva á
mótorhjóli yfir 30 metra breitt gil.
Myndin gerist í síðari heimsstyrj-
öldinni og segir frá 2 breskum
flugmönnum og flótta þeirra undan
Þjóðverjum. í atriðinu var hinn
flugmaðurinn „leikinn* af tusku-
dúkku. sem hundin var við Kidd.
Vegna myndarinnar varð Eddie að
stökkva án þess að hafa öryggis-
hjálm. Honum tókst ekki aðeins að
stökkva þessa 30 metra heldur
nokkrum metrum betur, en lending-
in var frekar ómjúk. En Eddie slapp
betur en á horfðist. Ifann meiddist
á vinstri hendi og nokkur rifbein
brotnuðu.
idpj itlW Bilsby Skurvogne A-S Industribakken 1. Sengelöse. 2630 Taastrup. Danmark. Talsimi 09—02-99 47 08 Starfsfólksvagnar. skrifstofuva«nar. ibúðarvagnar. geyinsluvagnar. hreinlætisvajjnar. (iððfúsleKa biðjið um uppl vsingapésa.
oc ALFA-LAVAL
Drykkjarkerin nú fyrirliggjandi.
S.imband islenzkra samvinnutelaga
VÉLADEILD
Armula3 Reykjavik simi 38900
Sinfóníuhljómsveit
íslands
Óperutónleikar
í Háskólabíói, fimmtudaginn
16. mars kl.-20.30
Stjórnandi Wilhelm Bruckner-Ruggeberg
Einsöngvarar Astrid Schirmer, sópran
Heribert Steinbach. tenór
ásamt Karlakór Reykjavikur.
Flutt verða óperuverk eftir Beethoven og Wagner
Tónleikarnir verða endurteknir laugardag 18. mars
kl. 15.00
Aðgöngumiðar að báðum tónleikum i bókabúð Lárusar
Blöndal og bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar.
Hækkað verð
Til áskrifenda: Athugið dagsetningu áskriftartónleík-
ana, sem er 16. mars en ekki 15 mars eins og
stendur i tónleikaskrá.
Sinfóníuhljómsveit íslands.
Úrvals japanskir
höggdeyfar í allar gerdír
flazda bifreiða
Ótrúlego lógt veró
Höggdeyfar aö framan kr. 5.990 pr. st.
Höggdeyfar að aftan kr. 4.990 pr. st.
BÍLABORG HF.
SMIÐSHÖFÐA 23 - VARAHLUTAVERSLUNIN - SÍMI 81265