Morgunblaðið - 19.03.1978, Síða 32
Al <;I/Y S!N<;ASÍMI\'N ER:
22480
JH#reunbT«ií>tí>
JWareunblnötí)
SUNNUDAGUR 19. MARZ 1978
■- *
-- . .
'tk%
JStPfi&WíF
LjÓHm. Sigurgeir í Eyjum.
Loðnubátarnir hafa bókstaflega mokað loðnunni upp úr sjónum undanfarna daga. Langflestir
hafa farið til Vestmannaeyja með aflann og eru allar þrær orðnar fullar. Myndin sýnir einn
loðnubátanna. Stapavík SI 4, koma drekkhlaðinn af loðnu inn til Vestmannaeyja.
V anskilaskuldir Akra-
borgar og Herjólfs
um 465milljónir króna
RÍKISÁBYRGÐASJÓÐUR
hefur óskað eftir því við
fjármálaráðuneytið að
styrkir þeir, sem á fjárlög-
um eru ætlaðir útgerðum
Akraborgar og Vestmanna-
eyjaferjunnar Herjólfs,
gangi upp í vanskilaskuldir
útgerðanna, sem fallið hafa
á sjóðinn. Samkvæmt upp-
lýsingum Höskulds Jónsson-
ar, ráðuneytisstjóra í fjár-
málaráðuneytinu, hefur
þessum tilmælum Ríkis-
ábyrgðasjóðs verið hafnað.
Hins vegar sagði Höskuldur
að fjárveitinganefnd Alþing-
is yrði að taka þetta mál
17 ára stúlka
kærir 3 pilta
fyrirnauðgun
LÖGREGLUNNI í Reykja-
vík barst snemma í gær-
morgun nauðgunarkæra
frá 17 ára stúlku. Bar hún
þær sakir á þrjá pilta um
tvítugt. að þeir hefðu
nauðgað henni þá um nótt-
ina.
Rannsóknarlögregla rík-
isins hóf þegar rannsókn
þessa máls. Frumrannsókn
málsins stóð yfir þegar Mbl.
fór í prentun. Atburðurinn
átti að hafa gerzt seint í
nótt í húsi í Reykjavík.
Samkvæmt framburði
stúlkunnar slepptu piltarn-
ir henni þegar þeir höfðu
komið fram vilja sínum
gagnvart henni. Hún fór
beint heim til sín og gerði
lögreglunni viðvart um at-
burðinn. Voru piltarnir
handteknir þegar í gær-
morgun og fluttir í fanga-
geymslur lögreglunnar. Þeir
voru ölvaðir en yfirheyrslur
áttu að hefjast yfir þeim
síðdegis í gær.
sérstaklega upp, næst þegar
styrkir til útgerðanna verða
ákveðnir.
Samkvæmt upplýsingum Har-
alds Andréssonar hjá Ríkis-
ábyrgðasjóði hefur útgerð Akra-
borgar, Skallagrímur h.f., greitt
nokkuð inn á skuldina á síðast-
liðnu ári. Gjaldfallin skuld vegna
Akraborgar var um síðastliðin
áramót 190 milljónir króna, en
gjaldfallin skuld vegna Herjólfs
var þá 275 milljónir króna. A
síðastliðnu ári greiddi útgerð
Akraborgar inn á skuld sína 8 til
9 milljónir króna, en útgerð
Herjólfs ekkert. Hins vegar mun
útgerð Herjólfs hafa greitt eitt-
hvað inn á skuldina eftir áramót-
Á fjárlögum er styrkur til h.f.
Skallagríms vegna útgerðar Akra-
borgar 36 milljónir króna og
styrkur til Herjólfs er 45 milljónir
króna, vegna stofnstyrks 10 millj-
ónir og vegna mjólkurflutninga 2.5
milljónir eða samtals 57.5 milljón-
ir króna. Þessar fjárhæðir hefur
Ríkisábyrgðasjóður farið fram á
að rynnu upp í vanskilaskuldir
útgerðarfélaganna, en hefur verið
hafnað.
Metveiði hjá
loðnubátum
SÓLARHRINGSAFLINN
hjá loðnubátunum á föstu-
daginn var sá mesti í sögu
loðnuveiðanna hér við
land. Þá tilkynntu 45 bátar
afla til loðnunefndar, sam-
tals 21.820 lestir, en fyrra
metið var tæpar 20 þúsund
lestir.
Loðnuna fengu bátarnir
við Ingólfshöfða en þar var
ágætt veiðiveður. Aflanum
var landað allt frá Vopna-
firði vestur um til Akra-
ness. Mestu var landað í
Vestmannaeyjum og voru
allar þrær orðnar fullar
þar. Bræðsluskipið Norglo-
bal var við Hrollaugseyjar
og var landað í það 4000
lestum. Áformað er að
Norglobal færi sig að Vest-
mannaeyjum og taki þar á
móti loðnu. Ileildarloðnu-
aflinn á vertíðinni er nú
orðinn um 450 þúsund
lestir.
Frá því klukkan 20 á föstudags-
kvöld til hádegis í gær tilkynntu
13 bátar afla, þar af 6 bátar frá
miðnætti í fyrrakvöld til hádegis
í gær og voru þeir með 2720 lestir.
Bátarnir 13 voru þessir:
Helga 270, Álsey 150, Þórsham-
ar 480, Örn 550, Hrafn Sveinbjarn-
arson 180, Þórkatla II 230, And-
vari 220, Sigurbjörg 240, Guð-
mundur Kristinn 290, Helga II 520,
Bjarni Ólafsson 800, Eyjaver 270,
Pétur Jónsson 600 lestir.
Borgin
dregur líka
16% frá
BORGARSTJORI, Bírgir Isleifur
Gunnarsson, ákvað í fyrradag, að
Reykjavíkurborg drægi af starfs-
mönnum, sem ekki mættu til
vinnu 1. og 2. marz síðastliöinn,
og höfðu eigi gild forföll, 16% af
föstum mánaðarlaunum, en ekki
32% eins og borgarstjórn hafði
fyrir um hálfum mánuöi sambykkt
meö 10 atkvæðum. j bréfi vinnu-
málastjóra, sem dreift var fyrir
verkfallið, kom fram að sam-
kvæmt heimildarákvæöi í lögum
um réttindi og skyldur opinberra
starfsmanna, gæti tveggja daga
forföll án gildra forfalla pýtt 32%
frádrátt frá launum.
Þessi ákvörðun borgarstjóra er
samhljóöa því, sem fjármálaráðu-
neytið hefur ákveðið, að draga 8%
af launum fyrir hvorn verkfallsdag.
Tillaga borgarstjóra mun formlega
verða lögð fyrir borgarráö næst-
komandi þriðjudag, en launaút-
reikningur mun þegar hafinn sam-
kvæmt henni, þar sem hann þarf
að vera tilbúinn með sérstökum
fyrirvara nú vegna páskahátíðar-
innar, sem er að ganga í garð.
Framleiðsla Kröfluvirkjunar
gengur vel:
N ú vantar ad-
eins meiri guf u
..ÞAÐ SEM fyrst og fremst
vantar núna er meiri gufu og
það er nú verið að athuga hvernig
afla megi fjár til frekari borana
í þessu skyni." sagði Einar Tjörvi
Elíasson. yfirverkfræðingur
Kröfluvirkjunar. í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Einar Tjörvi kvað raforkufram-
leiðslu að öðru leyti ganga vel, og
afköstin væru nú rétt rúmlega 6
Jarðboranir í Eyjafirði:
Gódar vonir med bor-
holu ad Ytri-Tjörnum
TALSVERT vatn er komiö í borholu að
Ytri-Tjörnum í Eyjafirði, akammt norð-
an Laugalands, og standa vonir til aö
par geti veriö um aö ræða allt að 30
sekúndulítra af 60 til 70 stiga heitu
vatni. Tæpar tvær vikur eru síðan fyrst
kom vatn i holuna um 15 til 20 lítrar,
en síöan hefur vatnsmagn í henni
nærri tvöfaldazt — að sögn ísleifs
Jónssonar, forstöðumanns Jaröborana
ríkisins. Enn hefur holan ekki verið
mæld og þvi er árangur ekki Ijós með
fullri nákvæmni enn.
Þáð er jaröborinn Narfi, sem verið
hefur viö boranir á Ytri-Tjörnum. Hins
vegar hefur Dofri verið við boranir á
Laugalandi og nýbúiö er að mæla þar
nýjustu holuna. Aö sögn ísleifs gefur sú
hola sáralítiö og er ekki virkjanleg fyrir
Hitaveitu Akureyrar. Hann sagði, að enn
heföi ekki veriö dælt úr þeim tveimur
holum á Laugalandi, sem gefa mest
vatn, samtímis. Talið sé þó, að þegar
hafi fengizt um 150 sekúntulítrar og meö
viöbótinni frá Ytri-Tjörnum virðist því
heildarmagnið orðið um 180 sekúndu-
lítrar. Talið er að það vatn, sem
Hitaveita Akureyrar þarf, sé um 250
sekúndulítrar. Því er Ijóst, að smám
saman virðist sem menn nálgist þaö
mark.
ísleifur sagði, að nú væri verið að
undirbúa borun nýrrar holu í landi
Ytri-Tjarna, skammt frá þessari síðustu
holu, sem gefið hefur árangur. Hann
kvaö ekkert hægt að fullyrða, hve
margar holur þyrfti aö bora —
ákvarðanir um nýjar boranir væru
teknar jafnóöum eftlr því sem þörfin
virtíst vera í Ijósi þess árangurs sem
næst.
MW og er hola 9 sú sem allt
byggist á ásamt holu 11, sem er þó
mjög viðkvæm. Tvær aðrar holur
hafa einnig verið tengdar en gefa
lítið eða alls um 2 MW.
Að sögn Einars hefur hola 9
reynzt mjög vel og verið jöfn og
stöðug, en þessi hola er austasta
holan. Þarna voru einnig boraðar
hola 3 og hola 7 og 5. Hinn fyrst
nefnda gafst mjög vel í upphafi en
skemmdist og einnig skemmdust
fóðringar í holu 7 en hola 9 var
hins vegar hin eina sem hefði verið
með afskermað efra kerfi, er Einar
nefndi svo.
Hann kvað þess vegna augu
flestra beinast að þessu svæði
varðandi næstu boranir og þá að
svæðinu austur undir Kröflufjall-
inu, því að menn vildu fara lengra
frá gosstöðvunum. Hins vegar
kvað Einar geta verið einhvern
ágreining um það hvar nákvæm-
lega á þessu svæði ætti að bora og
toguðust þar á mismunandi sjón-
armið um jarðfræðilegar, jarð-
hitalegar og hreinlega rekstrarleg-
ar aðstæður á þessu svæði.
Að öðru leyti hefur verið mjög
kyrrt á Kröflusvæðinu undanfarið.
Landris heldur að vísu áfram hægt
og sígandi en jarðskjálftavirkni
hefur verið í algjöru lágmarki um
langt skeið.