Morgunblaðið - 01.04.1978, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1978
3
Heimilað að veiða 35 þús-
und lestir af síld n.k. haust
— lOþús. t meira en í fyrra
Ráðstefna um heil-
brigðisþjónustu
fyrir aldrað fólk
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu eftir áramót, þá lagði
Ilafrannsóknastofnunin til við
sjávarútvegsráðuneytið, að heim-
iluð yrði veiði á 35 þúsund lestum
af síld á hausti komanda. og nú
hefur ráðuneytið ákveðið að svo
vcrði. í fyrra var heimilað að
veiða 25 þús. lestir, en veiðin
Færðin
vegum
VÍÐA á landinu eru vegir nú vel
færir flcstum bflum, en reyndar
var færð farin að versna sums
staðar á ný. sagði Arnkell Einars-
son hjá vegaeftirlitinu þegar
Morgunblaðið ræddi við hann í
gær.
í gær var greiðfært frá Reykja-
vík um Borgarfjörð í Dali og allt
vestur í Reykhólasveit, nema hvað
Brattabrekka var ófær.
Af Vestfjörðum var það. að
frétta, að fært var frá Patreksfirði
á Barðaströnd. Þá var í gær veitt
aðstoð yfir Hálfdán, milli Bíldu-
dals og Patreksfjarðar, en búizt
var við að vegurinn lokaðist
fljótlega. Ófært var fyrir Dýra-
fjörð, en fært um Gemlufallsheiði
og um Önundarfjörð til Flateyrar.
Annars 'voru fjallvegir á norðan-
verðum Vestfjörðum ófærir, að-
eins var fært frá Isafirði til
Bolungarvíkur og Súðavíkur.
Greiðfært var í gær yfir Holta-
vörðuheiði til Hólmavíkur og
reyndar var greiðfært milli
Reykjavíkur og Akureyrar. Lokið
var við að moka veginn til
Siglufjarðar í gær, ennfremur var
verið að moka veginn um Ólafs-
fjarðarmúla og út frá Akureyri
var verið að ryðja veginn um
Dalsmynni til Húsavíkur. Frá
Húsavík var síðan fært í Mývatns-
sveit. Vegurinn um Tjörnes var
ruddur í fyrradag, en í fyrrinótt
Messuklæði
ófundin
EKKI hefur tekizt ennþá að hafa
upp á messuhökluni Fríkirkjunnar
í Reykjavík, sem stolið var fyrir
rúmlega viku. Messuhöklarnir eru
þrír og er það tilfinnanlegt tjón
fyrir kirkjuna að tapa þeim. Allt
kapp er lagt á að upplýsa þennan
þjófnað, sem mun vera einsdæmi
á Islandi.
reyndist alls 328 lestir. Jafnframt
hefur verið ákveðið, að hring-
nótabátar fái að veiða á tímabil-
inu 20. september til 20. nóvem-
ber. en gert er ráð fyrir, að
reknetabátarnir fái að veiða á
tímabilinu 20. ágúst til 20.
nóvembcr. Skipting heildarafla-
magns milli hringnótabáta ann-
góð á
í gær
skóf á nesinu og var vegurinn
orðinn ófær á ný í gærmorgun. A
austanverðu Norðurlandi var
versnandi veður, en vegurinn úr
Kelduhverfi til Þórshafnar var þó
talinn fær í gær. Austan Þórs-
hafnar voru allir vegir ófærir og
í Vopnafirði er mikil ófærð. A
Austfjörðum voru flestir vegir á
Héraði færir stórum bílum og
jeppum, en ófært var um Vatns-
skarð til Borgarfjarðar og enn-
fremur um Fjarðarheiði. Odds-
skarð var einnig ófært en verið var
að ryðja það. Suður með fjörðum
var greiðfært og það alla leið til
Reykjavíkur.
TÍU frambjóðendur eru í próf-
kjöri Alþýðuflokksins sem fram
fer í Grindavík nk. sunnudag.
Atkvæðisrétt hafa allir Grindvík-
ingar sem hafa náð 18 ára aldri
þegar kosningar til bæjarstjórn-
ar fara fram, og ekki eru
flokksbundnir í öðrum stjórn-
málasamtökum.
Kjörstaður verður í félagsheim-
ilinu Festi og stendur kjörfundur
yfir frá kl. 10-22.
Frambjóðendurnir eru: Guð-
brandur Eiríksson skrifstofu-
stjóri, sem býður sig fram í öll
sæti, Jón Gröndal kennari, sem
býður sig fram í 4. og 5. sæti, Jón
Hólmgeirsson bæjarritari, í öll
sæti, Jón Leósson, sem býður sig
fram í öll sætin, Lúðvík Jóelsson
verkamaður, sem býður sig fram í
öll sætin, Pétur Vilbergsson sjó-
maður, býður sig fram í öll sætin,
ars vegar og reknetabáta hins
vegar hefur enn ekki verið
ákveðin.
í fréttatilkynningu frá sjávarút-
vegsráðuneytinu segir, að veiðar
með reknetum verði áfram leyfis-
bundnar, og veiðar með hringnót
verði einnig háðar sérstökum
leyfum ráðuneytísins eins og veriö
hefur síðan síldveiðar í hringnót
hófust aftur hér við land haustið
1975. Verða veiðileyfin háð skil-
yrðum um framkvæmd veiðanna
og um meðferð afla,
Þá segir, að við úthlutun leyfa
til hringnótaveiða gildi eftirfar-
andi reglur.
1. Þeir bátar, sem fengu leyfi til
hringnótaveiða s.l. ár og nýttu
þau, sitja í fyrirrúmi um leyfi á
næstu vertíð.
2. Bátar 105 rúmlestir og minni
Framhald á bls. 26
r
Ok á staur
UM níuleytið í gærmorgun var
fólksbifreið ekið á ljósastaur á
Reykjanesbraut gegnt Slökkvi-
stöðinni. Skall bifreiðin harkalega
á staurnum. Ung stúlka ók bílnum
og slasaðist hún töluvert, hlaut
ákverka á andliti, höfuðmeiðsl og
óttast var að hún hefði slasast
innvortis. Var hún lögð inn á
spítala.
Sigmar Sævaldsson rafvélavirki,
býður sig fram í öll sætin, Svavar
Árnason bæjarfulltrúi, býður sig
fram í öll sætin, Sverrir Jóhanns-
son, sem býður sig fram í öll sætin,
og Sæunn Kristjánsdóttir, sem
býður sig einnig fram í öll sætin.
NÚ STENDUR yfir í Domus
Medica ráðstefna er fjallar um
heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða.
Er hún haldin á vegum lækna-
ráða sjúkrahúsanna þriggja í
Reykjavík og heilbrigðis- og
tryggjngamálaráðuneytisins.
Dalborg
seldi í
Glasgow
RÆKJUTOGARINN Dal-
borg frá Dalvík seldi um
75 lestir af rækju í Glas-
gow í Skotlandi fyrir helg-
ina. Þegar Morgunblaðið
hafði samband við Jóhann
Antonsson, framkvæmda-
stjóra Söltunarfélags Dal-
víkinga í gær, sagði hann
að endanlegt söluverð fyrir
aflann væri enn ekki kom-
ið, en myndi liggja fyrir
eftir helgi.
K.B. Andersen
kemur í apríl
Utanrikisráðherra Danmerkur
K.B. Andersen og frú koma í
opinbera heimsókn til íslands
dagana 13.—15. apríl næstkom-
andi, að því er segir í fréttatil-
kynningu frá utanríkisráðuneyt-
inu.
Skoðana-
könnun lok-
ið í Borgarnesi
Hnrgarnesi 31. marz.
SKOÐANAKÖNNUN sjálf-
stæðismanna í Borgarnesi um
skipan lista til komandi
sveitarstjórnarkosninga á vori
komanda fór fram í gær. 75
manns tóku þátt í skoðana-
könnuninni, og féllu atkvæði
þannig, að Björn Arason fékk
59 atkvæði, Örn Símonarson 56,
Jóhann Kjartansson 47, Kristó-
fer Þorgeirsson 32, María
Guðmundsdóttir 21, Guðmund-
ur Ingi Waage og Jón Helgi
Jónsson 16 atkvæði.
Sitja ráðstefnu þessa nála-gt 170
manns. læknar, hjúkrunarfræð-
ingar. félagsráðgjafar, stjórnend-
ur sjúkrahúsa og dvalarheimila
og aðrir sem afskipti hafa aí
málefnum aldraðra.
Tilgangur þessarar ráðstefnu er
að fá fram sem gleggstar upplýs-
ingar um uppbyggingu og skipulag
öheilbrigðis7jónustu fyrir aldraða
áíslandi í dag og kanna möguleika
á sameiginlegri stefnumörkun
hinna fjölmörgu aðila sem að
þessum málum vinna.
í gær voru sett 18 erindi eftir að
dr. Gunnlaugur Snædal hafði sett
ráðstefnuna og Matthías Bjarna-
son heilbrigðisráðherra flutt
ávarp. Meðal efna er tekin voru
fyrir má nefna: Nýting sjúkrahús-
anna í Reykjavík, heimilislækna-
þjónusta, yfirlit yfir þjónustu
Grundar, viðhorf sveitarfélaga,
heimahjúkrun, könnun á högum
aldraðra í Kópavogi, endurhæfing,
félagsaðstoð, tryggingakerfið, geð-
verndarmál, fólksfjöldaspár og
öldrunarlækningar.
I dag eru á ráðstefnunni al-
mennar umræður og stefnumörk-
un og lýkur henni um hádegið með
umsögn læknaráða spítalanna.
2 deildir í
eina stofnun
FRÁ og með 1. apríl verða
sameinaðar í eina stofnun Upp-
lýsingaþjónusta Bandaríkjanna
og menningarmáladeild banda-
ríska utanríkisráðuneytisins.
Nefnist stofnunin upp frá því
International Communication
Agency en það mun engar
breytingar hafa í för með sér á
starfsemi upplýsingaþjónust-
unnar né bókasafnsins hérlend-
is.
„Aprílgabb”
Sinfóníunnar
í kvöld
Aprflgabb Sinfóníuhljómsveit-
ar íslands verða tónleikar í
Háskólabíói í dag, laugardag.
sem hefjast kl. 23.30 og eins og
sæmir þessum degi hefur hljóm-
sveitin fengið til liðs við sig fjóra
erlenda gesti til að stjórna og
taka þátt í gamninu.
Einn þeirra er háðfuglinn og
tónlistargagnrýnandinn Denby
Richards, sem hefur sviðsett
áþekka tónleika á þessum degi alls
12 -sinnum í London við mikla
hrifningu. Þá er að nefna tón-
skáldið og stjórnandann Joseph
Horovits, sem hér stjórnar tveim-
ur verkum eftir sjálfan sig, m.a.
hinum fræga jass-konsert fyrir
pianó og hljómsveit, en þar verður
einleikari Rhonda Gillespie frá
Ástralíu. Þá mun enska tónskáldið
Paul Patterson stjórna einu verki
eftir sig, er hann nefnir Rebecca.
Stefnt er að mjög léttri efnis-
skrá á þessum tónleikum, þar sem
hljómsveitin á að bregða á leik í
orðsins fyllstu merkingu.
Grindavík:
10 í framboði í próf-
kjöri Alþýðuflokks