Morgunblaðið - 01.04.1978, Side 15

Morgunblaðið - 01.04.1978, Side 15
MORGUNBLÁÖIÐ. LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1978 15 Opid bréf til Ellerts B. Schram alþingismanns í tilefni af umræöum þínum um þingfararkaup nú á alþingi í vetur, langar mig til að senda þér nokkrar línur. Og meö því, að ég hef aldrei haft geð til þess að klípa utan úr hlutunum, eða tala af neinni tæpitungu, gæti svo, verið að brokkgengur þætti ég á því skeiðsvelli, s'em hugur manns yfir rennur, í mörgum þenkingum hins almenna borgara um áthafnir ykkar þingmanna. Þú segist ekki fara dult með þá skoðun þína, að þér finnist laun þingmanna ekki hafa verið nógu rífleg. — I fyrsta lagi myndu þingmenn ekki sækjast eftir illa launuðu starfi. — í öðru lagi myndu menn sækjast eftir öðru starfi með þingmennskunni, og í þriðja lagi væri lífsnauðsyn að launin séu góð til að koma í veg fyrir að þingmenn þurfi að standa frammi fyrir freistingum um það, að á þá sé borið fé. Ég er hins vegar ekki í nokkrum vafa um það, að miðað við allt ábyrgðarleysi vinnu og aðstöðu þingmanna væri ekki nokkur minnsti vandi að fá tvo ganga af þingmönnum — jafnvel fyrir þau laun og fríðindi sem giltu fyrir þessa síðustu kauphækkun ykkar, og jafnvel allt upp í þrjá ganga, svo vinna mætti þar á þrískiptum vöktum, ef þurfa þætti. I öðru lagi sé ég ekki að þingmenn séu nokkuð ofgóðir til að vinna fyrir sér á annan mannlegan hátt með þingmennsk- unni, minnsta kosti yfir hábjarg- ræðistímann — en að vera eins konar, eins og áður var talið, þurfalýður á ríkisframfæri. Sé ég heldur ekki annað en t.d. bændur sem eru þingmenn stundi búskap sinn á sumrin, en vel að merkja, á fullri ríkisframfærslu á launum. Myndu þeir ekki gera það ná- kvæmlega jafnt, þótt þeir hefðu milljón á mánuði í þingfararkaup. Flestir aðrir þingmenn munu einnig dunda við eitthvað utan þingtímans, og sé ég á því engan mun, hvort sem hinn svo kjarna- ríki gyltuspeni ríkisfjárhirslunnar mjólkar þeim þetta mikið eða hitt. Fríðindi ykkar þingmanna, sem þið sjálfir hafið í jötu ykkar lagt af almannafé, eru þá einnig og ekki síður umtalsverð, og manni finnst nærri því stundum fyrir neðan velsæmi heiðarlegra manna að þiggja. Það er ekki einu sinni að þeir þurfi að éta fyrir kaupið sitt, Svo sem flestir aðrir, heldur er þeim gefið að éta þar fyrir utan, og að auki hafa frítt húsnæði, ljós og hita, margir hverjir, síma um allar jarðir fyrir ekki neitt, og þurfa aldrei að borga undir sendibréf, en sem rúsínu í allan pylsuendann, mega þeir fljúga um allar jarðir 24 sinnum á ári fyrir ekki neitt. Þessir höfðingjar búa svo til þær lostætu eða hitt þó heldur sætabrauðsreglur að sonur mmn, sem sækja varð atvinnu suður á Stokkseyri til að verka þar útflutningsverðmæti allan veturinn, fékk fyrir náð og miskunn að draga frá vegna ferðakostnaðar í atvinnu kr. 5000, en 15 þús. krónurnar, sem hann taldi fram, og engan veginn dugðu þó fyrir ferðakostnaðinum, voru strikaðar út, auðvitað allt eftir þeim reglum, sem þið „illa laun- Jens í Kaldalóni uðu“ höfðingjarnir á alþingi settu. En hvað sem þó um kaup ykkar óbreyttu þingmanna má segja, er þá hitt sínu hroðalegra að líta yfir launatekjur og fríðindi ráðherr- anna. Ég ætla þó ekki að tíunda þær hérna, en með hliðsjón að þeim ósköpum sem þeir þurftu af starfskröftum sér til aðstoðar á árinu 1976, fyrlr utan alla sína föstu starfskrafta, var á því ári hvorki meira né minna en 2.232 menn í 432 nefndum, sem kostuðu litlar kr. 161.190.269. Það er að sjálfsögðu á mæli- kvarða okkar kotbænda nokkuð stórt í sniðum ríkisbúið okkar Islendinga, enda sýnist manni að fjósamennirnir á því séu nokkuð margir, og ekkert við nögl skorið þar mannahaldið. Það er heldur ekki örgrannt um, að manni finnist einn og einn þingmaður hafa dottið í nefndarkrár, með allt uppundir milljón í tekjur þar — að ég ekki nefni þá sem fram úr skara, og eru með á þriðju milljón í nefndartekjur, og sjálfsagt ekki of vellaunaður seðlabankastjórinn okkar með þar á aðra milljón. En svo virðist ekki bera sig betur ríkisbúskapurinn en svo, þegar upp er staðið, að það verður að taka lán hjá hjúunum sínum — eins konar sparimerki — eins og af unglingunum, til að fylla upp í að geta borgað næsta árs kaup. En það verður líklega ekki fyrr en þið alþingismenn eruð búnir að sam- þykkja fóðurbætisskattinn sem hagstjórnartæki á búskap þjóðar- búsins, að efnin glæðast svo, að sparimerkjainnlánin verði með góðu móti hægt að greiða. Nei, Ellert minn Schram. Þótt það sé langt frá því, að ég beini öllum þessum árásarspjótum til þín persónulega, það dettur mér ekki í hug, þá verður bara að segjast hreint og beint, að óráðsía ykkar þingmanna á stjórnun þessa lands er orðin skelfileg. Þingmenn sem geta núið því um nasir allra blaðamanna á Islandi, að það sé illa menntuð stétt, og léleg að gildi, fyrir það eitt að bera fram þann heilaga sannleika, að alþing- ismenn ráði kaupinu sínu sjálfir. Alþingismenn sem leyfa sér að setja þau þrælalög gagnvart nokkrum þegnum þjóðar sinnar, og mismuna þeim á jafn svívirði- legan hátt og þann, að svipta þá með lagaboði ákvarðanarétti eigna sinna, eins og þið gerðuð gagnvart bændum. Ráðherra sem skrifar undir launasamninga opinberra starfsmanna upp á tugi milljarða króna, með þeim ummælum að það geti ekki staðist, slíkir menn eiga ekki að rífast um kaup sitt og hlunnindi. Þeir eiga að afhenda forseta lýðveldisins lykilinn að alþingishúsinu og viðurkenna van- mátt sinn til að stjórna þjóðarbú- inu. En að öðrum kosti að hrista af sér slenið, rísa úr öskustónni og sameinast um það sem einn maður að reisa þá rafta til veglegrar reisnar, sem nú virðast liggja niðurbrotnir sem rusl á haug, láta sjá, að þeir séu menn til þess og þess umkomnir að andæfa skútu sinni úr þeim ólgusjó óráðsíu og sundurlyndis heilli í höfn, svo að fagnaðarbylgja funi um þjóðarlík- amann eftir þann hryllingsrosa, sem óneitanlega hefur nætt um framvindu allra mála að undan- förnu. Til þess buðust þið alþingis- menn af fúsum og frjálsum vilja, að stjórna því fleyi, sem við köllum í líkingum hina íslenzku þjóð, og í þeirri einföldu trú að það mætti ykkur takast og þið væruð til þess menn, gaf þjóðin ykkur umboð, en að bregðast því trausti umbjóðenda sinna er að mínu mati svo stórt mál og örlagaríkt, að undrum sætir, að sömu mennirnir skuli leyfa sér að biðja um slíkt umboð aftur, ef þið ekki reynist þeim vanda vaxnir, að til farsælla lykta megið þið því verki ljúka, svo að viðunandi verði. Ég held t.d. að þið alþingismenn verðið að skilja það, að útilokað er að nokkurt fyrirtæki geti borið það uppi með venjulegum rekstri að borga 23—30% vexti af allri þeirri óhemjukrónutölu sem velta verður til hinna smæstu hluta, hvað þá heldur hinna stærri. Ef þið sjáið enga leið haldbærari til að tryggja sparifé þjóðarþegnanna en að leggja þessar óbærilegu dráps- klyfjar á alla þá sem á lánum þurfa að halda, sem þó jafnvel ekki duga til raungildis höfuð- stólsins, hvað þá að um raunvexti sé að ræða, held ég, að að því geti komið, að þetta verði það haft, sem geti riðið öllu starfi til sjálfsbjarg- ar að fullu. Þann 20. febrúar skrifar þú hina ágætustu grein í Morgunblaðið um verðbólgiidrauginn. Þar segir þú: Niðurstaðan verður sú, að fæstir leggja trúnað á það sem sagt er og stjórnmálamenn minnka enn í áliti fyrir einhliða málflutning. Þetta er ekki í ósvipuðum dúr og ég hef verið að ræða hér að framan, og er þessi grein þín mjög svo málefnaleg. Einnig i sama blaði er grein eftir Jónas Haralz, bankastjóra, sem virkilega ber vott um skynsamlega yfirvegun, enda þótt einnig að leiðarahöfund- ur sá er hann minnist á hafi nokkuð til síns máls. En það er merkilegt að vitandi vits, og af flestum af yfirlögðu ráði, skuli hin mest ráðandi þjóðfélagsöfl vinna beinlínis á móti þeim óbrigðulu lögmálsfræðum, sem grundvallast á stöðugu verðlagi. Með bestu kveðju. Jens í Kaldalóni. KEFLAVÍK — SUÐURNES Mallorca Ibisa Portúgal Jóhann Ingi Gunnarsson fararstjóri Úrvals verður til viðtals um val sólarlanda- ferða og sýnir litskugga- myndir. Laugardaginn 1. apríl kl. 10—12 f.h. og 14—17 e.h., ískrifstofu Nesgarðs Faxabraut 2. FEROASKR/FSTOFAN URVAL Eimskipafelagshusinu simi 26900 Suðurnesjaumboð: Nesgaröur h.f., Faxabraut 2, Keflavík, sími 3677. CHRYSLER SIMCAI00^ SUÐURLANDSBRAUT 10. SlMAR: 83330 83454 Viltu selja, viltu skipta, viltu nýjan eða viltu notaðan bíl? Við höfum úrval af notuðum bílum og nýjum í okkar glæsilega sýningarsal. Viðskiptavinir okkar, geta hreinsaö bílinn sinn innan dyra sér að kostnaðarlausu. Komiö til okkar strax í dag, ef ekki til annars, en aö skoða húsakynnin. Getum bætt við bílum á söluskrá.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.