Morgunblaðið - 01.04.1978, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 01.04.1978, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1978 VIÐSKIPTI VIÐSKIPTI — EFNAHAGSMÁL — ATHAFNALÍF. Erlendir punktar Að kunna sitt fag Hiö norska fyrirtæki International School Technology á að byggja upp þjálfunarmiðstöð fyrir um 50 milljónir norskra kr. og er kaupandinn ríkisrekið olíufélag í Víetnam. Fram- kvæmdin er fjármögnuð af NORAD en það er sú stofnun í Noregi er fer mað aðstoð þeirra við þróunar- löndin. Kína Fyrir stuttu var sagt frá því hér á síðunni að markaðir austan járntjalds væru að opnast vestrænum fyrirtækjum. Sama virðist vera upp á teningnum í Kína því þeir hafa gert samning við Nippon Steel í Japan um byggingu stál- iðjuvers í Shanghai. Þá hefa og borist fréttir af því að Kínverjar hafi lagt inn „smá pöntun" hjá Volvo, sem hljóðar upo á m.a. 700 börubíla. Pöntunin er alls að upphæð um 200 millj. danskra króna eða um 9.6 milljarða ísl. króna. Svíþjóð Samkvæmt upplýsingum frá Stokkhólmi hefur neyzluvöruverðlag þar í landi hækkað frá desember s.l. til janúar um 2,3%. Sé miðað við 12 mánaða tíma- bilið janúar 1976 — janúar 1977 nam hækkunin alls um 14%. Kaffiuppskeran Eftir fréttum frá Brasilíu að dæma má búast við minni kaffiuppskeru þar í landi, í ár m.v. síðasta ár. Aætlað var að uppskeran yrði um 20 millj. sekkja en nú er vart búist við meiru en 17 millj. sekkja. Aðalorsakir þessa eru sagðir vera þurrkar og einnig að áður óþekktur sjúkdómur hefur herjað á kaffiplönturnar að undan- förnu í nokkrum héruðum Brasilíu. Meiri bílasala Samband bandarískra bílaframleiðenda hefur til- kynnt að sala meðlima sinna væri um miðjan febrúar 12% meiri en á sama tíma í fyrra. Segja má að þetta sé enn eitt. dæmið um batnandi horfur á efnahagslífi Bandaríkj- anna. Engin áhætta Stjórnunarfélagiö full- yrðir aö því fylgi engin áhætta að taka þátt í námskeiði sem það stendur fyrir og hefst á þriðjudag- inn. Námskeiðið nefnist „Fyrirtækið í óstöðugu um- hverfi“ og verður þar fjall- að m.a. um hvernig hag- ræða megi sölu- og markaðsmálum í óstöðugu umhverfi. Rætt verður um á hvern hátf meigi nýta rekstrar- og markaðs- áætlanir til r að minnka óvissuna og þar með áhætt- una fyrir fyrirtækið. Einn af athyglisverðari þáttun- um er fjalla undir markaðsáætlanir er hvern- ig ný tækifæri opnast við óstöðugar aðstæður. Til að tryggj a þátttakendum sem ferskastar upplýsingar hef- ur fyrirlesari verið sóttur til Bretlands en það er John Winkler framkvæmda- stjóri. Sími Stjórnunar- félagsins er 82930, og er skrifstofa félagsins opin í dag laugardag milli 11 og 12. Úr þjóðarbúskapnum Nú í vikunni sendi Þjóðhags- stofnun frá sér rit er nefnist „Úr þjóðarbúskapnum — fram- vindan 1977 og horfur 1978“. Eins og titillinn ber með sér er fjallað um helztu þjóðhags- stærðir, þ.e.a.s. þróun þeirra á síðasta ári, um leið og reynt er að gera sér grein fyrir þróun- inni á yfirstandandi ári. Hér á eftir mun m.a. verða gerð grein fyrir nokkrum efnisatriðum þessa rits en rétt er að geta þess strax í upphafi að tölur frá 1977 cru hráðabirgðatölur en 1978 áætlaðar. Hlutfailsleg magnaukning frá f. Einkaneysla Samneysla Fjármunamyndun Útfl. vöru og þjónustu Innfl. vöru og þjónustu Þjóðarframl. brúttó Þjóðartekjur En hvers vegna nýttist batinn 1976 og 1977 ekki betur spyr sjálfsagt einhver. í sem stytstu máli má skýra það með mynd úr riti Þjóðhagsstofnunar þar sem viðskiptajöfnuðurinn er sýndur <v VIÐSKIPTAJÖFNUOUR SEM I 1970-197H ári. 1976 1977 1978 % % % 1,0 8,0 3,0 5,0 2,0 2,0 +2,6 7,5 +2,0 11,9 10,3 10,5 +1,2 18,7 1,5 2,4 4,8 3,0 5,9 7,9 3,0 sem hlutfall af þjóðarfram- leiðslunni. Á myndinni kemur skýrt fram hin neikvæða þróun 1971—77 og þá sérstaklega 1974 og 1975. JTFALl AF ÞJÓÐARFRAMLEIÐSLU Gert er ráð fyrir að einka- neyzlan, en hún nam um 62% þjóðarframleiðslunnar 1977, hafi aukist að magni um 8% á síðasta ári á móti 1% aukningu 1976. I ár er aukningin áætluð um 3%. Þróun samneyzlunnar var sú, að árið 1976 nam magnaukningin 5% en hins vegar aðeins um 2% á árunum 1977 og ‘78. Mikil breyting hefur átt sér stað í samsetningu fjármuna- myndunar. í stað síminnkandi þáttar atvinnuveganna á árun- um 1970—‘76 brá svo við á síðasta ári að hlutdeild atvinnu- veganna jókst um 37% meðan hlutdeild hins opinbera dróst saman um 16%. í heild hefur þróun fjármunamyndunar mið- að við fyrri ár verið þessi: 1975 +8,4%; 1976 +2,6%; 1977 7.5% og 1978 +2%. Hlutdeild atvinnuveg- anna í þessari síðustu tölu hljóðar upp á 4—5% aukningu m.v. 1977 en ef hlutur járn- blendiverksmiðju er undanskil- inn þá er raunverulega um samdrátt að ræða í fjármuna- myndun atvinnuveganna. Af öðrum þáttum þjóðarframleiðsl- unnar má nefna að á meðan útflutningur vöru og þjónustu jókst um 10.3% 1977 nam aukning innflutnings sömu þátta 18.7%. Á þessu ári er hins vegar gert ráð fyrir að dæminu verði snúið við þ.e.a.s. aukning innflutnings verði 1.5% en aukning útflubnings verði 10.5%. Niðurstöður af saman- tekt þessara og annarra þátta eru m.a. þær að þjóðarfram- leiðslan hafi á árinu 1976 aukist um 2.4%, 1977 um 4.8% en falli niður í 3% á þessu ári, en allar eru tölurnar miðaðar við fast verðlag. Breytingar á því sem raunverulega er til skiptanna, þ.e. þjóðartekjunum, urðu þó ekki hinar sömu vegna breyttra viðskiptakjara. 1976 jukust þær um 5.9%, 1977 um 7.9% og í ár aðeins um 3%. I heild má setja eftirfarandi töflu upp til einföldunar. -1Z J JB70 '71 -72 -73 •74 ’7S '76 '77 %pá '78 Því má síðan skjóta hér inn að ein afleiðing þeirrar þróunar sem myndin lýsir var stóraukin lántaka erlendis. Afleiðingin er hins vegar sú að hlutfallslega minna er nú til skiptanna en áður þar sem greiða þarf meira í afborganir og vexti af þessum lánum en áður hefur þekkst. Sem dæmi má nefna að endur- greiðslur erlendra lána á síðasta ári eru taldar nema um 11.1 milljarði kr. að mati Seðlabank- ans. Það skal tekið fram að þessi orsök er engan veginn sú eina en engu að síður þýðingarmikil og því sett hér fram til skýringa. Af öðrum þeim þáttum sem fjallað er um í riti Þjóðhags- stofnunar má nefna sem dæmi þróun kauptaxta, framfærslu- vísitölu og kaupmáttar. Meðaltalshækkun kauptaxta milli áranna 1977 og 1976 var 44% á móti 26% milli áranna 1976 og 1975 en aftur á móti er áætlað að milli ársins í ár og þess síðasta nemi hækkunin að meðaltali 41%. Meðaltals- hækkanir framfærsluvísitölu á þessu tímabili eru sem hér segir: 1970=100 VÍSITÖLUR KAUPMÁTTAR 1501 RÁÐSTÖFUNARTEKNA Á 1976 32%; 1977 30% og 1978 36—37%, þannig að augljólega gengur erfiðlega að glíma við verðbólgudrauginn. Kaupmátt- urinn er síðan venjulega reiknaður út frá þessum tveim- ur stærðum. Eftir 15% rýrnun hans 1975 og 5% rýrnun hans 1976 jókst hann hins vegar um 10% á síðasta ári. í ár er gert ráð fyrir 3—4% aukningu m.v. 1977.' Þjóðhagsstofnun tekur fram að kaupmáttur reiknaður út á þann hátt er að framan greinir sé ekki nákvæmur mælikvarði á breytingu á lífskjörum almenn- ings. Þar sé betra að miða við kaupmátt ráðstöfunartekna heimilanna pr. mann m.v. verð- lag einkaneyslu. Á þann hátt megi taka tillit til atriða eins og yfirborgana, vinnutíma og mis- munandi þróunar tekna hinna ýmsu tekjuhópa. Á meðfyljandi mynd má sjá hvernig kaupmáttur þessara ráðstöfunartekna hefur aukist mun meira en kaupmáttur kauptaxta. KAUPTAXTA OG MANN 1970-1978. Rádstöfunartekjur á mann 140 - 130 - 120 - 110- 100 - 1970 71 ‘72 '73 '74 '75 '76 77 spá '78 Að lokum skal tekið fram að fóðlegt enda vel að útgáfunni hér er engan veginn um tæm- staðið af hálfu Þjóðhagsstofn- andi lýsingu að ræða á innihaldi unar. þessa 36 síðna rits, sem er mjög Daglegur þjófnaður EINS og sjálfsagt flestir hafa heyrt eiga sér dag- lega stað smáir og stórir jófnaðir í verzlunum. umir kalla þetta reynd- ar bara hnupl en í öðrum tilfellum er um of miklar upphæðir að ræða til að nota megi það orð með réttu. Þjófnaður þessi getur verið í ýmsum myndum. Starfsfólk getur t.d. átt í hlut eða viðskiptavin- urinn stelur vörum beint eða að hann ein- faldlega gefur út falska ávísun til að leysa vörurnar út. Til að afla nánari frétt af stöðu þessara mála ræddi Viðskiptasíðan við verzlunarstjóra þriggja matvöruverzlana. Olafur Torfason í Kaupgarði sagði að mjög lítið hefði borið á þjófn- aði hjá sér. Hann sagðist hins vegar hafa verzlað áður í gamla bænum og þar hefði borið á þjófn- aði. Aðallega var um unglinga og eldra fólk en þessi seinni „ hópur væri ekki stór. í þeim tilfellum sem upp komst um þjófnaðina var haft samband við lögreglu og gaf það mun betri raun en að standa sjálfur í persónulegum samskipt- um við þetta fólk. Ólafur sagði að þeir hefðu nú gert ráðstafanir til að sett yrði upp sjónvarps- kerfi til eftirlits en einnig vonuðust þeir eftir því að það þjónaði þeim tilgangi að byrgja brunninn áður en fallið væri ofan í hann. Ragnar Haraldsson í Hagkaup kvað það dag- legt brauð að standa fólk að verki, mest unglinga 10 til 15 ára og eins væri eldra fólk töluvert áberandi. Eldra fólkið er lang flest um eða yfir fimmtugt og bæði karlar sem konur en upphæðirnar væru ekki stórar í flestum til- fellum. Ragnar sagði að þeir treystu mest á starfsfólk varðandi eftir- lit og þegar upp kæmist um fólkið þá væri lög- regla kölluð til ef viðkomandi er yfir 12 ára aldri. Er við spurðum hann hvort sama fólkið ætti í hlut þá sagði hanr. að svo væri í nokkrum tilfellum og sér virtist sem eldra fólkið væri þar í meirihluta. Sigurður Tryggvason í Vörumarkaðinum sagði að þeir treystu mjög á sjónvarpskerfi til eftir- lits og einnig til að fyrirbyggja þjófnað og væri t.d. einn sjónvarps- skermur rétt við inn- ganginn. Hann sagði að reynslan af þessu fyrir- komulagi væri mjög góð. Þegar upp kemst um þá fáu þjófnaði sem fram- kvæmdir eru væri um fólk á öllum aldri að ræða en þó mest um unglinga og eldri konur. Sér virtist sem allar vörutegundir hefðu að- dráttarafl en magnið væri í flestum tilfellum óverulegt. Ekki væri um sama fólkið að ræða en aftur á móti væri þetta í sumum tilfellum fólk sem verzlað hefði áður í langan tíma í Vöru-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.