Morgunblaðið - 01.04.1978, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1978
17
Ordí
tíma
tölud
í öðru tölublaði fréttabréfs
Eimskipafélags íslands sem
nefnist Eimskip, gerir Valtýr
Hákonarson skrifstofustjóri
félagsins að umtalsefni mikil-
vægi þess að ávallt séu til óháðir
íslenskir farmflytjendur til að
tryggt sé að frjáls verzlun haldi
velli. í upphafi þessarar greinar
ræðir Valtýr þó um þær breyt-
ingar sem orðið hafa i þjóðfélag-
inu almennt og afleiðingar þess
að umskiptin hafa ekki ávallt
notið nægiiegrar viðurkenning-
ar. Þar sem Viðskiptasíðan er
þeirrar skoðunar að þessi upp-
hafsorð Valtýs eigi erindi til
sem flestra birtast þau hér.
„Liingum var ég læknir
minn,
lögfræðingur, prestur,
smiður, kóngur. kennarinn.
kerra. plógur. hestur.“
Þessi víðfleyga staka íslenzks
bónda, sem kveðin var vestur í
Kanada, lýsir eftirminnilega
þeirri fjölhæfni, sem forðum var
lífsnauðsynleg til þess að hinn
heimafengni baggi yrði þeim
hollur, er hans varð að afla.
Samtíð okkar hefur gert þessa
gömlu búvizku að öfugmæli.
Hagsæld nútíma þjóðfélags
byggist á víðtækri verkaskipt-
ingu inn á við og miklum
samskiptum við aðrar þjóðir.
Öflun sérþekkingar og einbeit-
ing að hagnýtingu hennar er í
dag arðvænlegra þjóðfélaginu
en fjölfræði þúsundþjalasmið-
anna og þess vegna þjóðhollari
stefna.
Nútíma velferðarþjóðfélag
fær vart þrifizt án stöðugs
hagvaxtar, og þó að hugtakið
hagvöxtur sé misjafnlega vin-
sælt í seinni tíð þá virðist
enginn vilja missa af ávöxtum
hagvaxtar. Við verðum þess
vegna að samræma aðgerðir
okkar stefnu samtímans til
aukins hagvaxtar, hverfa frá
gamalli búvizku einyrkjans til
hagfræði nútímans, sérhæfing-
ar og verkaskiptingar. Þessi
gerólíka stefnumörkun krefst
algers endurmats gamalgróinna
hugmynda. Þau áttaskipti eru
oft tímafrek og torveld. Má víða
sjá þess merki í þjóðfélagi
okkar, að hagvöxtur hefur beðið
hnekki vegna þess að miklvægi
verkaskiptingar og sérhæfingar
var vanmetið."
markaðinum sagði Sig-
urður að lokum.
Guðjón Guðjónsson
verzlunarstjóri í Glæsi-
bæ sagði að ekki bæri
mikið á þjófnaði hjá sér
enda væri starfsfólkið
vel á verði og eins væri
gott útsýni yfir verzlun-
ina.
Mest eru þetta ung-
lingar en þó virtist sér
sem allir aldursflokkar
ættu hlut að máli.
Nýlega var t.d. tekin
kona með vörur fyrir um
11 þúsund krónur. Guð-
jón taldi að ein ástæða
fyrir því hversu fáir
væru teknir væru góðir
starfshættir lögreglu en
þeir hefðu lagast mikið
að undanförnu sagði
hann að lokum.
Atli Heimir Sveinsson:
Brottvikning Ragn-
ars Björnssonar
Það er mjög óvanalegt þegar
þekktasta organleikara okkar er
fyrirvaralaust vikið frá störfum
við Dómkirkjuna í Reykjavík.
Sóknarnefnd Dómkirkjunnar
hefur reynt að gera grein fyrir
ástæðum uppsagnarinnar í blöðum
nýlega, en sú greinargerð var að
mínu mati sambland af sparða-
tíningi, dylgjum og hálfsannleik.
Ragnar Björnsson hefur líka
svarað þeim skrifum í Mbl. á
skírdag s.l.
En það er ýmislegt undarlegt við
uppsögn þessa. Var sóknarnefnd
hér ein að verki, eða var yfirmönn-
um kirkjumála tilkynnt hvað til
stóð? Hér á ég við dómprófast,
biskup, ráðherra kirkjumála,
söngmálastjóra þjóðkirkjunnar og
fleiri aðila, sem málið hlýtur að
vera skylt, og hefðu væntanlega
getað tekið í taumana, áður en í
slíkt óefni er komið.sem nú er.
Halldór Laxness hefur sagt
eitthvað á þá leið, að er íslending-
ar deila, þá þrátti þeir endalaust
um einskisverð aukaatriði en
fyllist skelfingu, þegar minnst sé
á aðalatriði. Slíkt virðist mér vera
að gerast í þessu máli.
Málefni Dómkirkjunnar eru
raunar ekki einkamál sóknar-
nefndarinnar eða prestanna,
heldur mál er varðar landsmenn
alla. Dómkirkjan er höfuðkirkja
landsins. Þar fara fram allar
mikilvægustu kirkjuathafnir
ríkisins, og augu fjölmiðla beinast
einkum að henni á öllum stór-
hátíðum.
Enginn virðist hugsa um hag
kirkjunnar —' þeirrar stofnunar,
sem allir þykjast þjóna, en að
þessu máli standa. Slík framkoma
Dómkirkjunnar gagnvart einum
besta og þekktasta tónlistarmanni
þjóðarinnar hlýtur að vera henni
mikill álitshnekkir og torvelda
samvinnu hennar í framtíðinni við
alla listamenn landsins.
Dómkirkjan í Reykjavík hefur
átt því láni að fagna, að á
undanförnum áratugum hefur hún
ekki eingöngu haft í þjónustu sinni
merka kennimenn, heldur einnig
mikla listamenn. Ég þarf væntan-
lega ekki að minnast á hið mikla
starf Sigfúsar Einarssonar, og
síðar dr. Páls Isólfssonar, en hann
jók hróður og álit dómkirkjunnar
víða um lönd með snilldarlegum
orgelleik sínum, og kynnti löndum
sínum trúarlegar tónbókmenntir.
Ragnar Björnsson er verðugur
arftaki dr. Páls, og hefur fetað í
fótspor hans. Hann hefur haldið
tónleika víða um lönd og hvar-
vetna verið velkominn gestur,
enda hlotið frábæra dóma fyrir
orgelleik sinn. Hann nýtur mikils
álits meðal starfsbræðra sinna
erlendis, enda listamaður á
alþjóðamælikvarða. Um þetta er
mér persónulega kunnugt. Hann
hefur einnig staðið fyrir flutningi
fjölmargra trúarlegra kórverka í
Dómkirkjunni. Sóknarnefnd
virðist ekki kunnugt um neina
verðleika Ragnars sem listamanns
— allavega verður það ekki ráðið
af greinargerð hennar varðandi
uppsögnina.
Ég vona að sóknarnefnd láti sig
einhverju skipta hvort fyrsta
flokks organisti eða fjórða flokks
situr í sæti dr. Páls Isólfssonar.
Menn á borð við Ragnar Björnsson
liggja ekki á lausu á Islandi. Og ég
vona einnig að sóknarnefnd heyri
mun á góðum og lélegum orgelleik.
Og að lokum þetta: Hér er um
leiðindamál að ræða sem komið er
í hnút, en hann verður að leysa.
Kirkjan predikar umburðarlyndi,
sáttfýsi og skilning meðal manna.
Nú er tækifæri að reyna á þetta í
verki, því ekki stendur á Ragnari,
samkvæmt ítrekuðum yfirlýsing-
um hans í blöðum, að leysa þetta
leiðindamál.
Atli Heimir Svcinsson.
Vortónleikar
Karlakórsins
Stefnis
KARLAKÓRINN Stefnir í Mos-
fellssveit heldur árlega vortón-
leika sína nú í aprílbyrjun. Á
efnisskrá eru lög eftir innlcnda
og erlenda höfunda, m.a. Gunnar
Thoroddsen ráðherra en lag
hans „Nú til hvíldar halla ég
mér“ við ljóð Steingríms Thor-
steinssonar hefur ekki fyrr verið
flutt af karlakór hér.
Fyrstu tónleikarnir verða í
Félagsgarði í Kjós laugardag 1.
apríl. Miðvikudag 5. apríl verða
tónleikar að Fólkvangi. á Kjalar-
nesi og í Hlégarði í Mosfellssveit
föstudaginn 7. apríl. Síðustu
tónleikarnir verða þar mánudag
10. apríl og hefjast allir tónleik-
arnir kl. 21.
Stjórnandi karlakórsins er Lár-
us Sveinsson trompetleikari og
Guðni Þ. Guðmundsson annast
undirleik. Einsöngvarar eru Þórð-
ur Guðmundsson og Halldór
Vilhelmsson.
Mikið um
að vera í
Akraneshöfn
Akranesi, 31. marz.
ÞAÐ ER óvenjulega mikið um að
vera í Akraneshöfn þessa dagana.
Öll loðnuskipin eru komin að
austan. sum með slatta, en önnur
tóm og beðið er cftir veðri til
vesturs, þaðan sem menn eiga von
á loðnugöngu.
Vöruflutningaskip koma með
kísilgúr til sementsverksmiðjunn-
ar, byggingavörur fyrir Grundar-
tangaverksmiðjuna og mörg vöru-
flutningaskip hlaðast sjávarafurð-
um til útflutnings. — Það er engu
líkara en að menn óttist hafnbann
á íslandi á næstunni, líkt og
Þjóðverjar settu á Bretland í
stríðinu. — Skarðsvík, eitt þeirra
skipa sem skemmdust mest í
höfninni á Akureyri í óveðrinu
þegar loðnuflotinn sigldi til hafnar
í vetur, er hér einnig og býst til
þorskveiða, en kemur síðar inn til
viðgerðar hjá Skipasmíðastöð Þor-
geirs og Ellerts h.f.
Afli hefur verið tregur á línu og
í net að undanförnu.
Júlíus
AICI.VSINCASIMINV ER:
22480
JHoremibloöib
Allterþá þrennter!
NÝSMURSTÖÐ
við Stórahjalla í Kópavogi
\m Á 8Íða8tliðnu ári opnaði Esso
nýja og gUesUega bensínstöð og verslun
við Stórahjalla í Kópavogi.
■ Einnig var tekin í notkun stórgóð
þvottaaðetaða á bifreiðum.
m Nú laugardaginn 1. apríl kemur
8VO rúsínan, sem er ný smurstöð á sama
8tað.
MEÐ ÞESSARIÞRENNINGU
ERUM VIÐ STAÐRÁÐNIR ÍAÐ VEITA
ÞJÓNUSTU SEM VIÐ ERUMSTOLTIR
AF OG GERIR ÞIG ÁNÆGÐAN.
VERTU VELKOMINN