Morgunblaðið - 01.04.1978, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. APRIL 1978
21
Grafíksýning í
Norræna húsinu
Kjartan Guðjónsson er hér við stækkanir á blýantsteikningum sínum, sem hann sýnir ásamt olíu-
og vatnslitamyndum á Kjarvalsstöðum.
Kjartan Guðjónsson
sýnir á Kjarvalsstöðum
Á LAUGARDAG 1. apríl verður
opnuð í Norræna húsinu sýning á
grafikmyndum. Er það sænski
listamaðurinn Sixten Haage sem
þar sýnir 20 verk og í írétt frá
Norræna húsinu segir. að hann sé
talinn í röð fremstu grafík-lista-
manna í Svíþjóð.
Han-n stundaði listnám í Stokk-
hólmi á stíðsárunum og síðan í
állt tólf grafíkblöð, sem Sixten
Haage nefnir „Europa-sviten", en
alls eru á sýningunni um 20 verk,
og eru þau öll til sölu. Sýningin er
opin á venjulegum opnunartíma
bókasafnsins, frá klukkan 14 til 19
daglega fram til 10. apríl.
Sixten Haage setur sjálfur upp
sýninguna, og dvelst hér á landftil
8. apríl.
KJARTAN Guðjónsson listmál-
ari opnar laugardaginn 1. apríl
málverkasýningu á Kjarvals-
stöðum. Verður sýningin opnuð
kl. 15 á laugardag og stendur
hún yfir til 10. apríl.
Alls eru á sýningunni rúmlega
100 myndir, olíumálverk, vatns-
litamyndir og teikningar. Teikn-
ingarnar eru 35 og er efni þeirra
tekið úr Sturlungu. Allar eru
rhyndirnar gerðar á síðustu 2—3
árum eða frá því að Kjartan hélt
síðustu einkasýningu sína árið
1975. Þetta er fjórða einkasýn-
ing Kjartans.
Teikningarnar úr Sturlungu
stækkaðar á Ijósmyndapappír,
en frumgerðin er blýantsteikn-
ing. Sagði Kjartan að þettá væri
í fyrsta sinn sem teikningar
væru stækkaðar þannig, eftir
því sem hann vissi til, en
Kristján Magnússon annaðist
stækkanirnar. Sýning Kjartans
er opin á venjulegum sýningar-
tíma kl. 14—22 um helgar og
16—22 virka daga. Seinna í
aprílmánuði verður hluti þess-
arar sýningar hengdur upp í
Gallerí Háhól á Akureyri.
Sixten Ilaaxe sýnir 20 ({rafíkmyndir í bókasafni Norræna hússins dagana 1.—10.
april.
París 1945—47 og hefur tekið þátt
í sýningum víða, m.a. Póllandi
Finnlandi, Júgóslavíu, Italíu, Vest-
ur-Þýzkalandi og Bandaríkjunum
og hafa flest listasöfn í Svíþjóð
keypt eftir hann verk.
Meginuppistaða sýningarinnar í
Norræna húsinu er röð mynda, í
Bátur endursmíð-
aður i Bátalóni hf.
NÝLEGA var lokið við að
endursmíða fiskibát úr stáli
í Bátalóni h.f. í Hafnarfirði.
Báturinn, sem er frá Stykk-
ishólmi og hét áður Sigur-
von SH 35, hefur hlotið
nafnið Sigurður Sveinsson
SH 36 og er samkvæmt
nýjustu mælingu 104 rúm-
lestir.
Þorbergur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Bátalóns h.f.,
sagði í viðtali við Morgun-
blaðið, að vegna yfirþykktar
á stáli í bol bátsins umfram
kröfur, hafi verið talið hag-
kvæmt að framkvæma mjkl-
ar breytingar og viðgerð á
honum. Yfirbygging öll var
endurnýjuð og henni gjör-
breytt. Sett var ný harðviðar-
innrétting í brú, borðsal,
eldhús og mannaíbúðir, skipt
um aðalvél, ljósavél og öll
helztu siglinga- og fiskleitar-
tæki.
Þorbergur kvað viðgerðina
hafa tekið mun lengri tíma
en upphaflega hafi ráð verið
fyrir gert, en hún hófst á
síðastliðnu sumri. Var þá
miðað við að báturinn yrði
búinn til háhyrningsveiða og
í því sambandi stóð til boða
erlent lán bátseiganda. Vonir
manna um að mega nýta það
fjármagn brugðust þó, þrátt
fyrir yfirlýstan vilja áhrifa-
manna um að nýta erlent
lánsfé til innlends iðnaðar —
sagði Þorbergur. Kvað hann
hér skjóta nokkuð skökku við,
þegar það hefur verið venja
Islendinga undanfarna ára-
tugi að byggja upp skipa-
smíðaiðnað erlendis með er-
lendum lántökum.
Af þessum sökum stöðvuð-
ust framkvæmdir við bátinn
í 2 til 3 mánuði unz nýir
kaupendur tóku við skipinu.
Kom þessi seinkun mjög illa
við fleiri viðskiptaaðila
skipasmíðastöðvarinnar.
Utgerðaraðili Sigurðar
Sveinssonar er Sigurður s.f. í
Stykkishólmi. Skipið er útbú-
ið á tog-, net- og línuveiðar.
Skipstjóri verður Sigurður Á.
Hreiðarson, Stykkishólmi.
Tveir sýna
í Galleríi
Suðurgötu 7
TVEIR listamenn opna í dag,
laugardag. sýningu á verkum
sínum í Gallerí Suðursötu 7.
Eru það þeir Friðrik Þór
Friðriksson og Steingrímur
Eyfjörð Kristmundsson.
Sýning þeirra stendur yfir til
sunnudagsins 16. apríl og er
opin daglega kl. 16—22 og kl.
14—22 um helgar. Gallerí
Suðurgata 7 hefur skipulagt
sýningar fram á haust og mun
í sumar einkum kynna erlenda
list.
Ljósmyndasýning
Nönnu í Klausturhóhun
DAGANA 1.—14. apríl sýnir
dansk-íslenzki ljósmyndarinn
Nanna Biichert um 60 myndir í
húsnæði Guðmundar Axelssonar,
Klausturhólum. Sýningin verður
opin alla daga frá 2—6.
Nanna Búchert fæddist árið
1937 í Kaupmannahöfn, en ólst
upp við Laugaveginn. Hún átti
íslenzka móður, en danskan föður.
Þau dóu bæði þegar hún var lítil,
svo níu ára gömul kom hún í fóstur
til ömmu sinnar í Reykjavík,
Herdísar Jónsdóttur. Hún tók
stúdentspróf frá menntaskólanum
hér, en giftist síðan til Danmerk-
ur.
Um skeið las hún fornleifafræði
við háskólann í Höfn, en 1969 fór
hún að taka ljósmyndir. Fyrst
voru það aðallega fréttamyndir og
þess háttar fyrir dagblöð og
tímarit. Hún hefur tekið þátt í
ýmsum sýningum í opinberum
stofnunum og galleríum í Kaup-
mannahöfn og út um land, svo og
í Hamborg og Stuttgart. 1977 var
hún kynnt í Kunstnernes Sommer-
udstilling og þetta árið tekur hún
þátt í vorsýningunni á Charlotten-
borg.
Fyrirlestrar
um skúlptúr
Á Kjarvalsstöðum mun Aðal-
steinn Ingólfsson halda tvo fyrir-
lestra um þróun skúlptúrs á 20.
öldinni. Verður hinn fyrri á
þriðjudaginn 5. apríl kl. 18 og
nefnist „Frá Rodin til járnsuðu".
Síðari fyrirlesturinn verður viku
síðar og nefnist „Súrrealismi til
láðlistar".
í frétt frá listráði Kjarvalsstaða
segir að Gestur Ólafsson hafi
nýlokið við að halda röð fyrirlestra
um þróun byggingarlistar á þess-
ari öld og hafi aðsókn verið allgóð
og rætt hafi verið um að gefa
fyrirlestrana út í bókarformi.
Sigurður Sveinsson SH 36 á reynslusiglingu í Hafnarfjarðarhöfn eftir breytingarnar.
Ljósm.: RAX
Jóhannes
Jóhannesson
sýnir á Loftinu
Jóhannes Jóhanncsson listmál-
ari opnar í dag laugardaginn 1.
apríl. sýningu á Loítinu við
Skólavörðustíg í Reykjavík. Sýn-
ir hann þar 20 myndir og stendur
hún ylir í 2 vikur.
Jóhanjies Jóhannesson hefur
áður sýnt verk sín á Loftinu.
Var það fyrir þremur árum og
var hann fyrstur til að sýna sín
verk þar. Bjóst hann jafnframt
við að verða sá síðasti þar sem
fyrirhugaðar eru breytingar á
rekstri Loftsins.
Á sýningunni eru sem fyrr
segir 20 myndir, vatnslitamynd-
ir sem eru e.k. tilraunir eins og
listamaðurinn orðaði það, til-
raunir til undirbúnings við
olíumálverk. Sýningin verður
opnuð í dag kl. 14, en hún verður
annars opin á venjulegum verzl-
unartíma.
Jóhannes Jóhannesson listmál-
ari.