Morgunblaðið - 01.04.1978, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 01.04.1978, Qupperneq 39
! frá Kolstöðum, en þau voru samtíða í skólanum. Kristín var tvíburi, en hinn tvíburinn sem var stúlka dó nokkurra daga gömul. Systkini Kristínar voru: Guðrún, lést 1947, ógift; Ari vegavinnu- verkstjóri í Borgarnesi, kvæntur Ólöfu Sigvaldadóttur og Þorsteinn bóndi Skálpastöðum kvæntur Þór- unni Vigfúsdóttur. Kristín og Bjarni giftust 7. júlí 1928. Þau eignuðust fjögur börn: Guðmund og Svein bændur á Brennistöðum, þeir eru ókvæntir; Sólveigu Helgu húsfreyju á Akranesi, gift Amanni Gunnarssyni véivirkja, og Eystein bónda í Eskiholti, kvæntur er hann Katrínu Hjálmarsdóttur húsmæðrakennara frá Reykjavík. Hjónin í Eskiholti verða mér og mínu fólki minnisstæð, en ríkust er minningin í hugum barna þeirra og barnabarna sem þau helguðu líf sitt. Öllum aðstandend- um Kristínar Guðmundsdóttur eru færðar sámúðarkveðjur á þessum vetrardegi þegar hún er kvödd hinstu kveðju frá Stafholtskirkju. Mig langar til að láta fylgja þessum orðum hluta úr ljóðaflokki Þorgeirs Sveinbjarnarsonar sem hann kallaði Landslag og birtist í bókinni; Vísur um drauminn (1965): fer á undan og beygir klettana. Vekur landinu ljósrödd, líf sandinum, ■samhljóm moldinni. Einn sér eyðist tónninn og deyr, í fylgd með öðrum aldrei. Leið hans liggur burt frá þögninni. Jóhann Hjálmarsson. Afmælis- og minn- ingar- greinar Að marggefnu tilefni skal athýgli v'akin á þvf, að af- mælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á f mið- vikudagsblaði, að berast f sfð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mcga ekki vera f scndihréfsformi eða bundnu máli. Sé vitnað til Ijóða eða sálma skal höfundar getið. Greinarn- ar þurfa að vera vélritaðar og með góðu Ifnubili. MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1978 39 Eiríkurbigimimdar- son -Minningarorð Allt á sína tíð og sinn tíma, eins er það með okkur mennina og mannsævina, þeir eru misjafnir mannanna dagar, bæði að lengd og gæðum. Nú þegar Eiríkur Ingi- mundarson er horfinn úr okkar jarðneska heimi og við sem eftir lifum og þekktum hann um langa tíð lítum til baka, sjáum við manninn sem lifði langan oggóðan ævidag. Eiríkur Ingimundarson var fæddur að Sörlastöðum á Seyðis- firði þann 24. júlí 1890. Þar ólst Eiríkur upp hjá foreldrum sínum Ingimundi Eiríkssyni útvegsbónda og hans konu Rannveigu Helgu Rasmusdóttur Lynge. Eignuðust þau hjón 10 börn. Ingimundur á Sörlastöðum var beykir að iðn og vann að smíðum samhliða land- búnaði og sjávarútvegi. Um hann var sagt; fjörmaður vél viti borinn og hagmæltur vel. Ungur að árum fór Eiríkur að vinna hvers konar störf hjá foreldrum sínum, bæði til sjós og lands. Snemma léku öll störf í höndum hans, því að eðlisfari var Eiríkur mjög vel laginn og lagtæk- ur við hvað sem hann lagði hönd að. Var sama hvort var um járn eða tré að ræða er hann vildi smíða úr. Þegar Eiríkur var 17 ára gamall fór hann að læra skipa- smíði hjá Ingvari ísdal, skipasmið á Seyðisfirði. Var hann í því námi í 1 ár. Nokkru seinna fór Eiríkur suður til Reykjavíkur og var þar í 1 ár að læra húsasmíði hjá Steingrími Guðmundssyni, tré- smíðameistara (tengdaföður Her- manns Jónassonar, fyrrv. ráð- herra). Eftir að Eiríkur kom aftur heim til Seyðisfjarðar stundaði hann sjóinn á sumrin og var þá um árabil formaður á litlum dekkbát- um, en vann á veturna við báta- og húsasmíði o.fl. er með þurfti. Á þessum árum fram undir miðjan þrítugsaldur var Eiríkur ennþá ókvæntur. En allt á sinn tíma, eins var það með Eirík, hans tími var í nánd að eignast eiginkonu. Sumarið 1926 réð hann til sín unga og dugmikla stúlku er átti að vinna í landi við bátinn hans. Þessi stúlka, Magnhildur Láretta Björnsdóttir, varð hans eiginkona þá um sumarið. Séra Sveinn Víkingur, sem þá var prestur á Dvergasteini, gifti þau Eirík og Lárettu þann 8. júlíl926. Þetta sama sumar byggði Eiríkur nýtt íbúðarhús í landi Sörlastaða, er þau ungu hjón fluttu í strax að byggingu lokinni. Var þetta hús nefnt Alfa. Þar áttu þau Eiríkur og Láretta heima í hálfan annan áratug og þar fæddust börnin þeirra fimm, tvær stúlkur og þrír drengir.. Á þessum búskaparárum þeirra hjóna þar var Eiríkur mikill þarfamaður fyrir sitt byggðarlag. Þegar eitthvað fór aflaga hjá nágrönnum hans var hann einatt fenginn til að lagfæra það sem í ólagi var. Eiríkur gat oftast gert það sem gera þurfti. Heima hjá sér hafði hann litla járnsmiðju og smíðaði í henni ýmsa hluti fyrir sjálfan sig og aðra, m.a. axir og hefiltennur og það sem að tré- smíðunum laut heima fyrir smíð- aði hann í trésmíðahefilbekknum. Oft vildu vélarnar í mótorbátun- um verða stopp. Þá var gott að fá Eirík um borð til að líta ofan í mótorhúsið og athuga hvað að var. Það kom oft í hans hlut að koma vélunum í gang á ný eftir að hugur hans og hendur höfðu lagst á eitt með að finna það sem að var. Eitt var það enn á iðnaðarsviðinu er Eiríkur vann að. Var það skósmíði. Á tímabili smíðaði hann skóna á fjölskyldu sína og gerði við skó fyrir nágrannana. Eiríkur og Láretta fluttu suður í Njarðvíkur árið 1940 að Narfa- koti. Þar bjuggu þau í hálfan annan áratug. Þar í Njarðvíkum kunnu þau hjón vel við sig og þar ólust börnin þeirra upp. Eftir að Eiríkur kom þangað vann hann að mestu leyti við skipasmíðar um 16 ára skeið. Vann þó á þeim árum af og til aðra smíðavinnu. Síðasta vorið sem þau hjón Láretta og Eiríkur bjuggu í Narfakoti, fékk Eiríkur sér húslóð upp með Akurbrautinni. Byrjaði hann á húsbyggingu þar seinni part maí- mánaðar þá um vorið. Vann yngsti sonur hans sem þá var 15 ára gamall að þeirri byggingu með föður sínum. Hafði Eiríkur þá á sama tíma með höndum byggingu timburhúss austar í hverfinu. Þeir feðgar slógu ekki slöku við vinnu- brögðin og unnu að miklum dugnaði alla virka daga, en aldrei un helgar. Verkin og afköstin hans Eiríks skiluðu sér þar sem annars staðar með miklum ágætum, þó ekki sýndist neinn sérlegur hraði þar á ferð. Húsið var fullsmíðað utan og innan, þar með allar hurðir og innréttingar í byrjun októbermánaðar um haustið, og flutti fjölskyldan þá inn í nýja húsið sitt sem fékk nafn húsbónd- ans og byggingameistarans, og var nefnt Eiríksstaðir. I þessu nýja húsi áttu þau hjón heima í röska tvo áratugi eða þar til húsmóðirin Magnhildur Lá^retta dó þann 5. febrúar 1976. Eftir að Eiríkur hætti skipasmíðinni fór hann að vinna á Keflavíkurflugvelli við ýmiss konar smíðavinnu. Var hann í því starfi í nærfellt 20 ár. Á þeim árum hafði hann trésmíða- verkstæði í risbyggingunni á húsi sínu. Smíðaði hann þar marga góða húsmuni o.fl. fyrir ýmsa kunningja sína fjær og nær. Eiríkur var mjög heilsugóður fram á miðjan níunda ævitug, en skömmu eftir að hann missti konu sína fór heilsu hans hnignandi. Var hann þó einatt eitthvað að starfa þá helst við veiðarfæri eftir því sem sjónin leyfði en hún hafði mikið dofnað síðustu 1—2 árin. Vorið 1976 fór Eiríkur sem vist- maður á Dvalarheimilið Ás i Hveragerði. Var hann þar við góða aðbúð fram á haust en flutti þá á nýja Dvalarheimilið Garðvang í Garði. Var hnann þar í ágætum félagsskap og umhyggju, þar til hann fór á sjúkrahúsið í Keflavík. Þar var hann við bestu aðhlynn- ingu og hjúkrun. Þar lést hann að kveldi mánudagsins 27. marz síðastliðinn. Það er margs að minnast frá dögum þeirra Lárettu og Eiríks. Það var einatt gott að koma inn á þeirra myndarlega heimili, hús- móðirin glöð og gestrisin, hús- bóndin veitull og viðræðugóður. Eiríkur var mikill bókamaður, víðlesinn og mjög fróður um marga hluti. Hann kunni frá mörgu skemmtilegu að segja. Gat hann oft hlegið hátt þegar eitt- hvað spaugilegt var til umræðu. Margar ferðir kom hann Eiríkur að Tjarnarkoti til foreldra minna og eins eftir að móðir mín dó, til Finnboga föður míns. Finnborgi hafði róið frá Hánefsstöðum á Seyðisfirði og höfðu þeir Eiríkur margt að spjalla frá Seyðisfirði á þeim tímum. Það er mikill sjónarsviptir að sjá ekki lengur þennan stóra og myndarlega mann hann Eirík á Eiríksstöðum á gangi um byggðar- lagið sitt sem hann tók svo mikla tryggð við, en eins og fyrr var sagt á allt sinn tilverutíma og nú var það elzti karlmaðurinn í Njarð- víkunum sem hvarf af okkar lífssviði, sóma- og heiðursmaður- inn Eiríkur Ingimundarson. Börn þeirra Magnhildar Lárettu Björnsdóttur og Eiríks Ingi- mundarsonar eru Helga Sigríður, búsett í Bandaríkjunum N-Amer- iku, Svanfríður Olöf, búsett í sama landi, Ingimundur, slökkviliðs- maður, búsettur í Innri-Njarðvik, Sveinn Rafn, slökkviliðsstjóri, búsettur í Njarðvík, Ástvaldur, yfireldvarnaeftirlitsmaður, bú- settur í Kópavogi, og Gunnbjörn, sonur Lárettu, búsettur í Reykja- vík. Afkomendur þeirra hjóna munu nú vera 35 að tölu. Kveðja frá skrifstofufólki Sementsverksmiðju ríkisins Þegar fregnin um lát Svavars Pálssonar, framkvæmdastjóra, barst hingað til aðalskrifstofu Sementsverksmiðjunnar á Akra- nesi að morgni hins 14. febrúar s.l. setti aila hljóða og svo mun víðar hafa orðið raunin á. Það var eins og hjól tímans stöðvaðist og ysinn í önn dagsins hljóðnaði þessa morgunstund. F’regnin lamaði og vart var trúað að rétt væri heyrt, þrátt fyrir það, að síðustu spurnir af æðrulausri baráttu hans við erfið- an sjúkdóm bentu til þess, að naumast yrði vörnum haldið uppi öllu lengur og að senn mundi draga að daghvörfum. Staðreyndinni, sem fregnin flutti, varð eigi breytt og eigi umflúin — „en hér féll grein af góðum stofni grisjaði dauði meira en nóg.“ Það er eftirsjón að sérhverjum samferðamanni, sem fellur frá, og allra helst þegar mikill hæfileika- maður og drengur góður er burt- kallaður langt um aldur fram. Við, sem eftir dveljum, finnum „til skarðs við auðu ræðin allra, sem áttu rúm á sama aldarfari" og enn frekar finnum við til þegar við sjónum blasir hið auða rúm, sem varð við fráfall Svavars og það skarð, sem ófyllt er. I fáum kveðjuorðum verður hvorki rakinn æviferill né önnur persónusaga Svavars í einstökum atriðum, enda mun það gert af öðrum, sem eftir hann mæla. Við, samstarfsfólk um áraskeið, geymum minninguna um ágætt samstarf, drengilegt viðmót og skilningsrík viðbrögð, ef til var leitað. Um hógværð, skilning og háttprýði i hvívetna í umgengni allri, um festu og öryggi í fram- kvæmdum og ákvörðunum. Um hæglátt fas, sem rót sína mun hafa átt í eðli hans og uppeldi nema hvort tveggja sé og innri menningu, er veitti honum yfir- vegaða rósemi hugans og öryggi á lífsferð allri. Við minnumst hins sívökula óþreytandi áhuga og önn við að rækja öll störf á hinn bezta hátt og staðfesta þannig þann trúnað og það traust, sem hann hvarvetna naut meðal samskiptamanna inn- anlands og utan. Öll loforð efndi hann, því orð skulu standa og heit, sem efna skyldi, þurfti eigi að rita niður með vottum. Orðheldni hans var óbrigðul. Sánnleikurinn var hon- um leiðarljós og heiðarleikinn kjölfestan. Hann leið önn fyrir, ef svik fundust í munni saniskipta- manna. Ráðhollur var hann, ráðs- vinnur og hollvinur þeim sem hann kaus sér að vini. Eðlislæg þörf til þess að veita liðsinni og líkn þeim sem þess þurftu var honum í brjóst lagin, enda sló þar hjarta sem kunni að finna til og næmi sem vísaði veginn og léði orku til athafna og hæfni, sem gerði kleift að finna hina farsælustu lausn hverju sinni svo drýgst notin yrðu af. Þegar ég nú í marzmánuði sá Eirík í síðasta sinn, þar sem hann lá í rúmi sínu á Sjúkrahúsinu í Keflavík, gat ég rætt við hann dálitla stund. Var hann þá furðu hress og hafði sem oftar gaman- mál á vörum og er ég ræddi um aldur hans sagði Eiríkur hlægj- andi m.a.: Eg er orðinn allt of gamall og ætti að vera farinn fyrir löngu. Og nú er hann dáinn, blessaður. Hafi hann bestu þakkir fyrir langa og góða samtíð með mér, minni fjölskyldu, foreldrum og frændum. Guð blessi minningu þeirra ágætu hjóna, Lárettu Björnsdóttur og Eiríks Ingi- mundarsonar. Innilegar samúðar- kveðjur til barna þeirra, vensla- manna og afkomenda. Guðmundur A. Finnbogason. Yfirsýn hans yfir rekstur fyrir- tækis og hin ýmsu viðskipti þess var nánast með eindæmum. Það var eins og hann læsi í huga sínum allar færslur og hreyfingar við- skipta. Hafði á reiðum höndum stöðu hvers viðskiptamanns, hvenær greiða skyldi og hversu r.iikið. Þessi hæfileiki hans verði hvort- tveggja í senn að vera styrkur hans og veitti honum öryggis- kennd við dagleg verkefni í stjórnun fjármála og viðskipta, en háði honum að vissu marki, að loknu starfi — oft síðla kvölds — því samvizka hans bauð honum að þetta skyldi ekki falla úr huga hans og hann unni sér vart hvíldar frá erli og önn stjórnunarstarfa vegna umhugsunar um hag og framtíð fyrirtækisins, og þreytti hann meir en margur gerði sér grein fyrir og jafnvel hann sjálfur. Hin víðfeðma og ætíð tiltæka þekking hans á öllu er að fjármál- um og fjárhagsmálum laut aflaði honum mikils trausts á sviði viðskipta og efnahagsmála og auðveldaði honum alla ákvörðun- ártöku og gerði honum kleift að sjá oft fyrir um þróun þeirra mála og draga af þeim ályktanir, sem allir voru kannski eigi ásáttir um, en reynslan sýndi að glöggskyggni hans og skarpi hugur sagði þar rétt fyrir um. Leiftrandi athugasemdir hans lýstu upp allar hliðar máls og sýndi sumar þeirra í nýju ljósi og aukaatriðin urðu aldrei að aða’atr- iðum. En nú er dagsverkinu lokið. Stóllinn auður. Erill og ys starfs- ins hljóðnaður á skrifstofu hans. Þögnin tjáir staðreyndir. Lífið krefst fórna og þó að hlekkur bresti í keðju þess, krefst hið sama líf, að því sé haldið við og þess vegna kemur maður í manns stað. Annar mun setjast í hið auða sæti, en það, sem var, kemur aldrei aftur fyrir ytri sjónir. Er aðeins geymt í minning- unni og i hinni innri sjón er lýsir og veitir brautargengi. Því skal minning um madan dreng og mikilhæfan ylja okkur og verða styrkur í þeirri viðleitni að halda merki hans á loft — vinna störfin í þeim anda og með því hugarfari, sem hann var fyrir- Framhald á hls. 45. Svavar Pálsson —Minningarorð !

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.