Morgunblaðið - 18.04.1978, Side 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
79. tbl. 65. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Tvö stjórnarfrumvörp um skattamál:
Sérsköttun - staðgreiðsla -
1000 milljóna skattalækkun
Gerbreyting á reglum um fyrning-
ar og söluhagnað. Onotaður per-
sónuafsláttur maka nýtist til fulls
□ ------‘-----------------------------—---------------- o
Sjá greinargerð með skattafrv. á bls. 18 og 19, fylgiskjal og töflur um áhrif skattafrv.
á skattbyrði og samanburðartölur úr gildandi lögum, frv. og frv. 1976 á miðopnu. —
ítarlega frásögn af staðgreiðslukerfi á miðopnu og umsögn fjármálaráðherra á baksiðu.
□ ----------------------------------------------------- □
Ríkisstjórnin lagði fram á Alþingi í gær tvö
skattafrumvörp — frumvarp um tekju- og eignaskatt og
frumvarp um staðgreiðslukerfi skatta, sem taka eiga gildi
1. janúar 1979. Ef miðað er við 35% hækkun tekna milli
áranna 1977 og 1978 er gert ráð fyrir heildar skattbyrði
landsmanna mundi lækka um 1000 milljónir króna með
samþykkt frumvarpsins. Talið er að tekjuskattur mundi
að meðaltali lækka um 7% af álögðum skatti. Skattar
hjóna mundu þó lækka nokkru minna eða um 5% en
einhleypra um meira eða um 11%. Skattar einstæðra
foreldra lækka skv. þessu um 7%.
Frumvarpið um tekju- og eignaskatt felur í sér
veigamiklar breytingar, bæði á skattlagningu einstakl-
inga og fyrirtækja.
Helztu breytingar eru þessar.:
• Skattlagning hjóna. Tekin er
upp takmörkuð sérsköttun hjóna.
Hvort hjóna um sig telur fram og
er skattlagt af launatekjum sínum
og atvinnurekstrartekjum. Eigna-
tekjur beggja eru skattlagðar með
tekjum þess hjóna er hefur hærri
launatekjur. Skattstigi og
persónuafsláttur hvors hjóna um
sig er hinn sami og einstaklinga.
Sá hluti persónuafsláttar, sem
ekki nýtist öðru hjóna færist yfir
til hins. Barnabætur skiptast til
helminga milli hjóna.
Eignir hjóna eru lagðar saman
til eignarskatts og helmingur
heildareigna skattlagður hjá
hvoru um sig eftir sama eignar-
skattstiga og gildir um einstakl-
inga.
• Launatekjur barna verða sér-
skattaðar hjá þeim með lágu föstu
skattahlutfalli en börn njóta ekki
persónuafsláttar.
• Frádráttarkerfi er svipað
ákvæðum gildandi laga. Frádrátt-
Framhald á bls. 30.
Segir að Moro hafi
verið tekinn af lífi
□ Sji viðtal & bls. 47 — □ hringdi í kommúnistablaðið L‘Unita í kvöld og sagði að
Q Róm, 17. apríl. AP. □ hryðjuverkamenn hefðu tekið Aldo Moro fyrrverandi forsætis-
MAÐUR sem sagði ekki tii nafns ráðherra af lífi.
Erfíðar viðræður
um Rhódesíumálið
Salisbury, 17. apríl. Reuter.
Utanríkisráðherrar Bandaríkj-
anna og Bretlands, Cyrus Vance
og David Owen, reyndu í dag að
fá bráðabirgðastjórnina í
Rhódcsíu til þess að taka þátt í
ráðstefnu allra aðila Rhódesíu-
deilunnar en tilraunir þeirra
mættu mótspyrnu.,
Allir aðilarnir fjórir sem
standa að bráðabirgðastjórninni,
þrjár hreyfingar biökkumanna
og hviti minnihlutinn, tóku fram
að samkomulagið sem tókst með
þeim fyrir sex vikum væri bezta
vonin um friðsamiega aðlögun að
myndun meirihlutastjórnar
blökkumanna.
Ian Smith forsætisráðherra
sagði á eftir, að nýskipað fram-
kvæmdaráð mundi taka tillögurn-
ar til vandlegrar athugunar og
birta yfirlýsingu þegar það hefði
tekið ákvörðun. En þegar hann var
að því spurður hvort Vance og
Owen hefði tekizt að sannfæra
framkvæmdaráðið um ágæti ráð-
stefnu allra deiluaðila svaraði
hann: „Ég efast um það.“
Þúsundir blökkumanna mót-
mæltu sáttatilraun Breta og
Bandaríkjmanna þegar viðræð-
urnar hófust í morgun eftir komu
Vance og Owens frá Pretoria.
Viðræðurnar stóðu í rúma fimm
klukkutíma og Smith sagði að þær
hefðu verið jákvæðar. Bretar og
Framhald á bls. 31
ógerningur var að fá úr því
skorið strax hvort um var að
ræða gabb eða tilkynningu frá
Rauðu herdeildunum sem rændu
Moro og tilkynntu á laugardag að
Moro hefði verið dæmdur til
dauða að loknum „alþýðuréttar-
höldum“.
„Þjónn fjölþjóðafyrirtækjanna
Aldo Moro var tekinn af lífi kl.
22.00. Flugmiði verður afhentur,"
sagði maðurinn sem hringdi í
L‘Unita. Lögreglunni var tilkynnt
um hringinguna og hún virtist í
vafa um hvort mark væri takandi
á henni.
Maðurinn hringdi kl. 22.20 (21.20
GMT). Alltaf þegar Rauðu her-
deildirnar hafa sent frá sér
fréttatilkynningar hafa fjölmiðlar
fengið hringingar frá mönnum
sem hafa ekki sagt til nafns.
Lögreglan bendir á að maðurinn
tiltók ekki að hann hringdi fyrir
hönd Rauðu herdeildanna.
Framhald á bls. 30.
AÐ MINNSTA kosti 45 fórust og 95 særðust þegar tvær
járnhrautarlestir rákust á um 30 kílómetra suður af Bologna á
laugardag. Enn er unnið að björgun farþega úr lestunum og óttast
er að fleiri lík kunni að finnast i flaki lestanna. Slysið varð með þeim
hætti að hraðlestin Feneyjar-Róm rakst á hægfará járnbrautarlest
sem farið hafði út af sporinu. Við áreksturinn ultu nokkrir vagnar
hraðlestarinnar niður bratta við hliðina á járnbrautarteinunum.
Frakkar vinna að
nifteindasprengju
París, 17. apríl. Reuter.
FRAKKAR vinna að áætlunum
um smíði nifteindasprcngju að
Mótmæli í Grúsíu
Moskvu, 17. apríl.
Reuter. AP.
EFNT var til mótmada í Tbilisi,
höfuðborg sovétlýðveldisins
Grúsíu, á föstudaginn gegn
fyrirætlunum um að láta
grúsísku ekki lengur vera
opinbert tungumál í lýðveldinu
samkvæmt fréttum sem hafa
borizt til Moskvu.
Samkvæmt fréttunum tóku
allt að 50.000 manns þátt í
mótmælunum og leiðtogi
kommúnistaflokksins í Grúsíu
lofaði því að gengið yrði að
kröfunum. En Konstanton
Kepiladz innanríkisráðhcrra
Grúsíu neitaði því í símtali að
nokkrar mótmælaaðgerðir
hefðu átt sér stað. Hann sagði
að það eina sem hefði gerzt
hefði vcrið það að ungir
Grúsíumenn hefðu haldið upp á
nýja stjórnarskrá lýðveldisins.
Fréttirnar herma að ungt fólk
í Tbilisi hafi farið út á götur til
að mótmæla ákvæði nýrrar
stjórnarskrár um grúsísku og
farið að stjórnarbyggingunni
þar sem því hafi verið iofað, að
gengið yrði að kröfum þess.
Samkvæmt gömlu stjórnar-
Framhald á bls. 30.
því er franskir embættismenn
sögðu í dag.
Vísindamenn, sem vinna við
áætlunina, hafa þó ekki fullkom-
iega sigrazt á ölltim tæknierfið-
leikum og því verður þess langt
að bíða að ljóst verður hvort þessi
umdeilda sprengja verður fram-
leidd eða ekki að sögn embættis-
mannanna.
Talsmaður landvarnaráðuneyt-
isins neitaði í dag að ræða um þá
erfiðleika sem við væri að stríða
en bætti viði „Við erum stöðugt að
gera tilraunir með kjarnorku-
vopn og ætlum ekki að láta neitt
eftir okkur hafa um þau.“
Frakkar eru staðráðnir í því að
bæta við nýjum kjarnorkuvopnum
í vopnabúr sitt þar til náðst hefur
Framhald á bls. 30.