Morgunblaðið - 18.04.1978, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1978
Raudi-
núpur
íslipp
RAUÐINÚPUR, skuttogari Rauf-
arhafnar, var væntanlegur til
Reykjavíkur seint í gærkvöldi eða
nótt en dráttarskipið Goðinn
hafði togarann í togi. Togarinn
fer í slipp í Reykjavík og er gert
ráð fyrir að viðgerðin eftir
strandið nyrðra taki minnst 3
mánuði.
Að sögn fréttaritara Mbl. eru
tveir forráðamenn útgerðarinnar
væntanlegir til Reykjavíkur í því
skyni að reyna að finna lausn á
hráefnisvanda frystihússins á
Raufarhöfn, sem upp er kominn
vegna þessa óhapps. Munu tví-
menningarnir reyna að fá leigt
skip til að unnt verði að sjá
frystihúsinu fyrir afla meðan
skuttogarinn er í slipp, en að sögn
fréttaritarans stendur og fellur
atvinnulíf á Raufarhöfn að miklu
leyti með starfrækslu frystihúss-
ins.
Þórir skipaður
vararannsóknar-
lögreglustjóri
ÞÓRIR Oddsson lögfræðingur
hefur verið skipaður vara-
rannsóknarlögreglustjóri ríkis-
ins frá 15. apríl að telja. Forseti
íslands veitti honum stöðuna að
tillögu dómsmálaráðherra.
Þórir er 36 ára gamall, fæddur
í Reykjavík 19. maí 1941 sonur dr.
Odds Guðjónssonar fyrrv.
ambassadors og konu hans Lise-
lotte Guðjónsson. Hann varð
stúdent frá MR 1961 og lögfræði-
prófi lauk hann frá Háskóla
Islands 1968. Að afloknu prófi
gerðist hann fulltrúi við sakadóm
Reykjavíkur og aðalfulltrúi varð
hann 1973. Hinn 1. apríl 1977 var
Þórir settur aðalfulltrúi við Rann-
sóknarlögreglu rikisins. Hann
hefur stundað framhaldsnám er-
lendis í rannsóknum sakamála.
Þórir Oddsson er kvæntur
Jóhönnu Ottesen viðskiptafræð-
ingi og eiga þau einn son.
Hassmálið:
Ungum manni
sleppt úr 30
daga varðhaldi
UNGUM manni var í gær
sleppt úr gæzluvarðhaldi, sem
hann hafði setið í í 30 daga
vcgna rannsóknar fíkniefna-
málsins. sem nú er á lokastigi.
Tveir menn hafa að undan-
förnu setið inni vegna þessa
máls og var hinum fyrri sleppt
á föstudaginn eftir 99 daga í
gæzluvarðhaldi.
Vegna rannsóknarinnar fór
Guðmundur Gígja lögreglu-
maður við fíkniefnadeild lög-
reglunnar í Reykjavík til Dan-
merkur og Hollands í síðustu
viku til þess að taka skýrslur af
nokkrum aðilum og fá staðfest-
ingu á atriðum í rannsókninni.
Er Guðmundur nú kominn
heim úr þeirri för.
Mál þetta snýst um innflutn-
ing á nokkrum kílóum af hassi,
en hassinu var aðallega smygl-
að hingað í notuðum sjónvarps-
tækjum.
Yfír 20 þúsund gestir
MIKIL aðsókn hefur verið að bflasýningunni Auto ‘78 sem nú
stendur yfir í Reykjavík og voru gestir hennar í gærkvöldi orðnir
um 20 þúsund. Var 20 þúsundasta gestinum afhent að gjöf
stcreohljómtæki í bfl.
Um helgina komu samtals um 14 þúsund gestir, 5000 á
laugardag og um 9000 á sunnudag, og sagði Vilhjálmur
Kjartansson framkvæmdastjóri sýningarinnar, að þrátt fyrir
þennan mikla fjölda hefðu ekki myndazt nein þrengsli, fólk hefði
dreifzt það mikið um svæðið. I kvöld verður í fyrsta sinn
tízkusýning og verður sýnd vor- og sumartízka í bflafatnaði eins
og Vilhjálmur sagði eða eins konar sportfatnaður. Verða þessar
sýningar endurteknar á miðvikudags- og föstudagskvöld.
Nokkrir erlendir gestir hafa skoðað sýninguna og lokið
iofsorði á hve vel hefur verið til hennar vandað og sagði
Viihjálmur að það gilti bæði um fyrirkomulag allt og um það
hve mikla vinnu umboðsmenn hefðu lagt í hana. Á hverjum degi
er valinn einn sýningargestur og hlýtur hann sólarlandaferð frá
Samvinnuferðum og var sá fjórði valinn í gærkvöldi. Vilhjálmur
vildi að lokum benda á að fólk gæti komið og skoðað í meira
næði í miðri viku, þá væri heldur minni aðsókn og því gæfist
betra tækifæri til að skoða bflana fyrir þá sem vildu athuga þá
nánar í ró og næði.
Prófkjör sjálfstæðismanna í Hafnarfirði:
„Sýnir veruleg-
an styrk okkar
„HIN mjög svo góða þátttaka í
prófkjörinu er mikið ánægjuefni.
Persónulega er ég mjög ánægður
með úrslitin og þakka þeim, sem
mig studdu“, sagði Árni Grétar
Finnsson, sem varð efstur í
prófkjöri sjálfstæðismanna í
Hafnarfirði um helgina. „Það var
mjög mikil breidd í framboðslist-
anum hjá okkur og ýmsir fleiri en
þeir, sem að komust, hefðu sómt
sér vel í öruggum sætum.
En varðandi skipan efstu sæt-
anna er mjög ánægjulegt, að ung
kona kemur sem nýr fulltrúi í
fimmta sætið og í sjötta sætið
kemur maður, sem var nýr í
áttunda sæti hjá okkur síðast, en
hefur nú unnið sig upp að trausti
fólks. Nýir menn eru í 8. og 9. sæti.
Allt eru þetta mjög efnilegir
menn, sem ég vænti mikils af.
Fyrir þá, sem fyrir voru, og gáfu
kost á sér, eru úrslitin góð
traustsyfirlýsing.
I heild tel ég prófkjörið sýna
yerulegan styrk okkar sjálfstæðis-
manna. Á þessu kjörtímabili hefur
verið unnið að miklum fram-
kvæmdum hér í Hafnarfirði og
þessi mikla þátttaka í prófkjörinu
sýnir að Hafnfirðingar vilja að
áfram verði unnið á þeirri braut.
Á grundvelli þessa prófkjörs
göngum við því bjartsýnir til
kosninga".
Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú
fimm bæjarfulltrúa í Hafnarfirði.
0*liver Steinn Jóhannesson, sem
skipaði fimmta sæti listans síðast,
gaf ekki kost á sér nú.
í prófkjörinu greiddu 1864 at-
kvæði og voru 85 seðlar auðir og
ógildir. Við síðustu bæjarstjórnar-
kosningar í Hafnarfirði hlaut listi
Sjálfstæðismanna 2.264 atkvæði
og mynda fulltrúar hans meiri-
hluta bæjarstjórnar ásamt tveim-
ur fulltrúum óháðra borgara.
Niðurstöður prófkjörsins urðu
þær, að 4 hlutu bindandi kosningu
sem var miðuð við 50% atkvæða-
magn: 1. Árni Grétar Finnsson
með 1130 atkvæði, þar af 496 í
fyrsta sæti, samtals 60,62%
greiddra atkvæða, 2. Guðmundur
Guðmundsson 1346 atkvæði, þar af
883 í fyrsta og annað sæti, samtals
72,21%. 3. Einar Þ. Mathiesen 1019
atkvæði, þar af 572 í fyrstu þrjú
sætin, samtals 54,66%. 4. Stefán
Jónsson 754 atkvæði, þar af 519 í
fyrstu fjögur sætin, samtals
40,45%. 5. Hildur Haraldsdóttir
Framhald á bls. 30.
Rán seldi
TOGARINN Rán frá Hafnarfirði
seldi 80.3 lestir af fiski í Hull í gær
fyrir 16.9 milljónir króna. Meðal-
verð á kíló var kr. 211.57.
Pétur Sigurðsson, formaður ASV:
AUsherjarverkfall
fljótvirkari leid
en útftutningsbann
Fulltrúaráðsfundur Alþýðusambands Vestfjarða samþykkti um
helgina að aðildarfélög þess leituðu eftir heimild til allsherjarvinnu-
stöðvunar á Vestfjörðum frá og með 24. aprfl með venjulegum
fyrirvara. Því gæti allsherjarverkfall á Vestfjörðum fyrst hugsanlega
komið til framkvæmda hinn 1. maí. Jafnframt samþykkti fundurinn
að leita eftir viðræðum við Vinnuveitendafélag Vestfjarða á þeim tíma,
sem til stefnu er.
samningana í gildi eða sambærileg
kjör — og það var tekið strax fram
í upphafi af Verkamannasam-
bandinu að ASV hefði óskað
viðræðna við vinnuveitendur þar
Framhald á bls. 30.
Úrval:
Flugleiðir
eiga 80%
Eimskipa-
félagið 20%
„EFTIR AÐ Eimskipafélag ís-
lands seldi Gullfoss, eina far-
þegaskip sitt, minnkaði áhugi
félagsins á einaraðild að ferða-
skrifstofunni, en öll farmiða-
sala og annað í sambandi við
Gullfoss fór fram hér á skrif-
stofunni. Því var það, að þegar
hlutafé skrifstofunnar var auk-
ið í fyrra ákvað Eimskipafélag-
ið að stækka ekki sinn hlut og
því urðu Flugleiðir meirihluta-
eigendur," sagði Steinn Lárus-
son, framkvæmdastjóri Ferða-
skrifstofunnar Úrvals, í sam-
tali við Mbl. í gær, en í
ársskýrslu Flugleiða fyrir 1977
kemur fram, að flugfélagið varð
á árinu meirihlutaeigandi
ferðaskrifstofunnar.
Steinn sagði, að fyrir hluta-
fjáraukninguna hefðu Eim-
skipafélagið og Flugleiðir átt
ferðaskrifstofuna Úrval til
helminga, en nú eiga Flugleiðir
80% á mqti 20% Eimskipa-
félagsins.
Pétur Sigurðsson, formaður Al-
þýðusambands Vestfjarða kvað
fundarmenn hafa litið svo á að
allsherjarvinnustöðvun væri fljót-
virkari leið að settu marki en
útflutningsbann. Á þessu stigi hafi
menn því hafnað útflutningsbanni
og verið sammála um að fara
þessa leið. I millitíðinni verður svo
vinnuveitendum á Vestfjörðum
gefið tækifæri til viðræðna og
sagði Pétur að verkfallsboðun færi
að sjálfsögðu eftir viðbrögðum
þeirra. Itrekaði fundurinn fyrri
óskir um viðræður við vinnuveit-
endur, m.a. með tilliti til yfirlýs-
ingar formanns Vinnuveitendafé-
lagsins í fjölmiðlum. Kvað Pétur
hana þó enn ekki hafa borizt ASV.
Þessi ákvörðun var samþykkt með
atkvæðum allra fundarmanna á
fulitrúaráðsfundinum.
Pétur Sigurðsson kvað það
draga úr gildi útskipunarbanns á
Vestfjörðum, að Vestfirðir voru
ekki samstíga öðrum landshlutum.
Nú kvað hann allar geymslur hafa
verið tæmdar og sagði hann að
sennilega væru stærstu frysti-
geymslur á landinu þar vestra,
nema á tveimur stöðum, Bíldudal
og Tálknafirði. Nefndi hann sem
dæmi að í Súðavík væri unnt að
geyma hálfs árs afla, þar sem
frystihúsið þar hefði keypt húsin
á Langeyri. Því yrði útflutnings-
bann mjög seinvirkt á Vestfjörð-
um, þótt það myndi að sjálfsögðu
hafa í för með sér fjármagnsskort.
Boöun slíkra aðgerða myndi taka
um 10 daga og yrðu þá allar
geymslur tæmdar og væru menn
þá byrgir með geymslurými í þrjá,
fjóra og upp í sex mánuði eftir
stöðum.
Trilluútgerð er nú að hefjast og
kvað Pétur ákveðinn ugg hafa
komið fram um að fyrst yröi lokað
á afla frá trillum eins og gerðist
í yfirvinnubanninu. Á trillunum
eru menn úr verkalýðsfélögunum,
verkamenn mestallt árið, en róa
síðan að sumri til. „Eru með
trillubakteríuna," eins og Pétur
orðaði það og kvað ólæknandi.
Morgunblaðið bar þessa ákvörð-
un ASV undir formann Verka-
mannasambands Islands, Guð-
mund J. Guðmundsson. Hann
kvaðst líta á þessa ákvörðun
Vestfirðinganna sem algjöra sam-
stöðu með aðgerðum Verkamanna-
sambandsins. í allsherjarverkfalli
fælist útflutningsbann sem bann
við annarri vinnu. Báðir hefðu
sama mark að keppa að —
Síðustu borgarmála-
fundimir verða í kvöld
SÍÐUSTU þrír borgarmálafundir
sjálfstæðismanna í Reykjavík'
verða haldnir í kvöld og verður
þar fjallað um íþróttamál,
fræðslumál og æskulýðsmál.
Fundirnir hefjast klukkan 20.30.
Fundurinn um íþróttamálin
verður haldinn í Valhöll, Háa-
leitisbraut i, 1. hæð. Málshefjend-
ur verða Sveinn Björnsson, vara-
borgarfulltrúi, Albert Guðmunds-
son borgarfulltrúi, Þórir Lárusson
formaður ÍR og Júlíus Hafstein
framkvæmdastjóri.
Fundurinn um fræðslumál verð-
ur haldinn að Hótel Esju, 2. hæð.
Málshefjendur verða Ragnar
Júlíusson borgarfulltrúi, Sigurjón
Fjeldsted skólastjóri og Gísli
Baldvinsson kennari.
Æskulýðsmálafundurinn verður
haldinn í Valhöll. Málshefjendur
verða Davíð Oddsson borgarfull-
'trúi, Bessí Jóhannsdóttir vara-
borgarfulltrúi og Áslaug Friðriks-
dóttir skólastjóri. Umræðustjóri
verður Hinrik Bjarnason fram-
kvæmdastjóri.
Sveik út 746
þús. með fölsk-
um ávísunum
Rannsóknarlögregla ríkisins
handtók s.l. föstudagskvöld 19
ára gamlan pilt, sem hafði orðið
uppvís að því að svíkja 74G
þúsund krónur út úr tveimur
bönkum á höfuðborgarsvæðinu
með því að breyta og falsa tvær
ávísanir. Viðurkenndi pilturinn
brot sitt. Honum var sleppt á
laugardag en pilturinn hafði ekki
áður komizt á skrá hjá lögregl-
unni.
Framhald á bls. 30.