Morgunblaðið - 18.04.1978, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1978
VIÐSKIPTI
C-
VIÐSKIPTI — EFNAHAGSMAL — ATHAFNALÍF.
Umsjón: Sighvatur Blöndahl.
Islenzka krónan hækkaði
um 123% gagnvart handa-
ríkjadollar á árinu 1977
Bandaríkjadollar lækkaði á s.l.
ári gagnvart íslenzku krónunni
um 12.3% sé miðað við
hækkanir janúar-desember
yfir árið. Sé hins vegar miðað
við vegið meðaltal allra
skráðra gjaldmiðla hérlendis á
árinu er hækkunin öllu meiri
eða 14,7%. Það stafar af því að
á árinu lækkaði bandaríkja-
dollar töluvert gagnvart öðrum
gjaldmiðli.
Ef tekið er meðaltal tveggja
ára 1976 og 1977 þannig að mið
sé tekið af meðaltalshækkun-
um hvers árs er hækkun
gagnvart bandaríkjadollar
töluvert lægri eða 9,3% og
gagnvart öðrum gjaldmiðli um
10,5%.
Orsök þess að hækkun-
in sé meðaltal tveggja ára
tekið er sú að gengisfelling á
fyrri hluta tímabilsins er ekki
eins há og á hinum seinni.
Til fróðleiks fylgir hér á
eftir tafla yfir þær hækkanir
og lækkanir sem orðið hafa á
hinum almenna peningamark-
aði í heiminum, en tekið skal
fram að þær tölur eru ekki að
öllu leyti sambærilegar:
1. japanska yenið + 22,1%
2. svissneski frankinn + 21,1%
3. þýzka markið + 11,7%
4. ensk pund + 11,5%
5. belgíski frankinn + 9,1%
6. hollenskt gyllini + 7,3%
7. franski frankinn + 5,3%
8. norska krónan + 0,5%
9. US dollar + 0,3%
clO. ítalska líran +3,7%
11. danska krónan • + 3,8%
12. finnska markið + 6,6%
13. kanadíski dollarinn + 7,5%
14. sænska krónan + 12,0%
15. spænski pesetinn + 15,6%
16. portúg. escúdos + 21,6%
í þessum útreikningum er
tekið vegið meðaltal ársins
1977, frá janúar til desember.
3,5% hagvaxtarspá
Schmidts stenst ekki
HELMUT Schmidt kanslari
Vestur-Þýzkalands sagði
nýverið í viðtali í þýzka
sjónvarpinu að allar líkur
bentu til þess að Þjóðverjum
tækist ekki að standa við hið
fyrra markmið sitt sem sagt,
að halda 3,5% hagvexti á
árinu.
Telja sérfræðingar að
með þessu sé kanslarinn að
gefa til kynna að gripið verði
til aðgerða sérstaklega
innanlands til að streitast á
móti þeirri öfugþróun sem
hefur að vissu leyti átt sér
stað undanfarna tvo mánuði,
en þá hefur hagvöxturinn
aðeins náð 2,5% markinu.
Schmidt taldi aðalorsökina
fyrir þessum vanda vera það
öngþveiti sem ríkt hefur á
peningamörkuðum heimsins
undanfarna mánuði, sérstak-
lega eftir að hagvaxtarspá
stjórnarinnar fyrir 1978 var
gefin út í lok síðasta árs. Þá
varaði Schmidt við hættu
þeirri sem af hinni miklu
hækkun marksins gagnvart
öðrum gjaldmiðli, sem að
undanförnu hefði átt sér stað
og væri það farið að skemma
samkeppnisaðstöðu þýzkra
útflytjenda verulega.
N ey darf undur
OPEC-ríkja
NEYÐARFUNDUR Samtaka
olíuútfluningsríkja OPEC, sem
halda átti í Genf 4. maí n.k.,
hefur nú verið færður til og
verður haldinn í Saudi-Árabíu
sama dag, að því er segir í frétt
saudi-arabíska dagblaðsins al-
Riyadh nýverið.
I frétt blaðsins er ekkert
getið um ástæður fyrir þessum
breytingum á fundarstað, en
sérfræðingar í olíumálum telja
þetta ótvíræðan sigur fyrir
stefnu stjórnar Saudi-Arabíu í
olíumálum.
Aðalmál fundarins mun vera
hið ótrygga ástand á gjald-
eyrisstöðu bandaríkjadollars,
sem öll olíulöndin reikna olíu-
verð sitt í. í -því sambandi
hefur þeirri hugmynd æði oft
skotið upp kollinum að
nauðsynlegt væri að breyta
þessu og fara að miða olíuverð
við annan traustari gjaldmiðil.
Frá sýningunni á Hótel Loftieiðum.
Sýning Skrifstofuvéla hf.:
Ný tölvuritvél með segul-
minnum og spjöldum kynnt
„HVAÐ er ritvinnsla?“ —
Svar við þessari spurningu
geta menn fengið á sýningu
sem nú stendur yfir á vegum
fyrirtækisins Skrifstofuvéla
h.f. á Hótel Loftleiðum. Hjá
Skrifstofuvélum fengust
þær upplýsingar að rit-
vinnsla væri frágangur rit-
aðs máls á sérstakan hátt, —
allt frá þvi að hugmynd
fæðist, þar til hún væri
fullfrágengin og vélrituð.
IBM hefur undanfarin ár
framleitt nokkrar tegundir
ritvéla, sem sérstaklega eru
gerðar fyrir ritvinnslu.
Skrifstofuvélar h.f. kynna
nú tvær af þessum vélum hér
á landi, IBM 82M og IBM
MC80. I umsögn um vélarn-
ar segir, að IBM 82M hafi
elektrónískt minni og segul-
geymslu, sem gerir ritaran-
um mögulegt að skrifa hin
flóknustu verkefni á einfald-
an hátt og þægilegan af
fyllstu nákvæmni.
Hin sjálfvirki leiðréttinga-
búnaður IBM vélarinnar auðveldar
mjög allar leiðréttingar, og flýtir
þannig lestri á próförkum. Aðrir
kostir IBM 82, vélarinnar, sem
sparar tíma ritarans við vinnslu
flókinna verkefna, eru m.a. eftir-
farandi: Sjálfvirk uppsetning á
fyrirsögnum og undirstrikunum,
sjálfvirk dálkastilling, mikill út-
skriftarhraði, 15,5 slög á sekúndu
eða 930 slög á mínútu. Hið
elektróniska minni vélarinnar
gerir ritaranum kleift að breyta,
endurbæta og umskrifa verkefnið
á hinn fjölbreytilegasta hátt.
IBM 82M hefur 100 geymslu-
minni sem geta geymt, hver um
sig, 4000 starfi eða sem næst 2
vélritaðar A4 síður. IBM MC80
ritvinnsluvélin hefur sömu eigin-
leika og 82M, en í stað 100
geymsluminna, hefur hún segul-
spjöld, þannig að geymslumögu-
leikar eru ótakmarkaðir, segir að
lokum um vélarnar.
Auk þessara ritvinnsluvéla eru á
sýningu Skrifstofuvéla ýmis annar
búnaður, s.s. ný lítil rafritvél frá
Japan, nýjar tegundir borðreikni-
véla og vasareiknivéla, bókvarpi
sem endurkastar beint af rituðu
máli á vegg, nýir þýzkir stólar
sérstaklega gerir fyrir þægindi á
setu og baki og margt fleira.
Ottó A. Michelsen forstjóri
fyrirtækisins sagði í samtali við
Mbl. að hann hefði stofnað fyrir-
tækið árið 1946, þá nýkominn frá
námi í Þýzkalandi og Danmörku.
í byrjun annaðist fyrirtækið
eingöngu viðgerðir á ýmsum teg-
undum skrifstofuvéla og tækja, en
1950 gerðist Ottó umboðsmaður
fyrir IBM hér á.landi og um það
leyti komu hingað til lands fyrstu
IBM-rafritvélarnar og skýrslu-
vélarnar.
Auk IBM véla bætti fyrirtækið
smám saman við sölu á reiknivél-
um, ljósritunarvélum, klukkum,
stimpilklukkum og klukkukerfum,
auk pappírs, og hefur verið braut-
ryðjandi með ýmsar nýjungar á
sínu sviði, t.d. kúluritvélar, raf-
reindareiknivélar o.fl.
Allt frá byrjun hefur verið lögð
megináherzla á að veita trausta og
góða viðhalds- og viðgerðarþjón-
ustu, og ekki hefur verið hafin sala
neinna tækja fyrr en eftir góðan
undirbúning, sagði Ottó.
1967 stofnaði ÍBM eigið útibú
fyrir tölvur og tilheyrandi tæki
hér á landi og var Ottó ráðinn
forstjóri þess, en jafnframt hélt
hann áfram að vera umboðsmaður
fyrir IBM-ritvélar, hljóðrita og
fleiri tæki, en Skrifstofuvélar h.f.
hafa sölu þeirra og þjónustu með
höndum. Auk IBM-tækja selur
fyrirtækið nú ljósritunarvélar,
reiknivélar, búðarkassa, frímerki-
vélar og margt fleira.
Að lokum sagði Ottó A. Michel-
sen að strax upp úr 1950 hefði
vöxtur fyrirtækisins verið mjög
hraður og stöðugur, og er fjöldi
starfsmanna nú 41, þar af 19 í
tæknideild. Árið 1977 var brúttó-
velta fyrirtækisins 584 milljónir
króna.