Morgunblaðið - 18.04.1978, Blaðsíða 42
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1978_
ÞRÓTTARAR HÖFÐU
YFIRBURÐI í LEIK
RISANNA f BLAKINU
Á lauKardaginn fór fram í
íþróttahúsi Hagaskólans úr-
slitaleikur í hikarkeppninni f
blaki. Áttust þar við risarnir í
íslensku blaki, ÍS o« -Þróttur.
Var fyrirfram búist við jöfnum
og spennandi leik þar eð
viðureÍKnir þessara liða hafa
ávallt verið skemmtilegar í
vetur og hvergi gefið eftir. i>að
fór þó svo að bikarinn hélt
kyrru fyrir f heimkynnum
Þróttara sem sigruðu næsta
auðveldlega 3—0.
Gangur leiksins í megin-
atriðum var þessi: í upphafi
fyrstu hrinu virtist jafnræði
með liðunum en ÍS var þó alltaf
yfir þar til staðan var orðin 7—6
en þá hófu Þróttarar að sækja
af kappi og fengu stúdentar ekki
rönd við reist og náðu aðeins
tveim stigum til viðbótar. Lauk
því hrinunni 15—9.
Önnur hrinan hófst með
svipuðum hætti nema að nú
voru Þróttarar yfir. Héldu þeir
2ja til 3ja stiga mun þar til
komið var í 8—5 en þá tók að
draga sundur og lauk hrinunni
Í5-9.
Örvaðir af velgengnini komu
Þróttarar vígreifir til leiks og
létu kné fylgja kviði. Vissu
stúdentar ekki fyrr en staðan
var orðin 9—1 Þrótti í vil og
Leikmenn Þróttar. Á laugardaginn tókst þeim með mjög góðum leik á móti stúdentum að verja
bikarmeistaratitil sinn.
tókst þeim aldrei að minnka
muninn. Lauk hrinunni 15—6,
og þar með leiknum og var
fögnuður Þróttara mikill.
Það sem fyrst og fremst gerði
gæfumuninn í þessum leik var
að baráttuvilji Þróttara var
mun meiri og þeir grimmari í
vörn. Einnig var framspil
stúdenta nú lélegra en nokkru
sinni og varð sóknin því næsta
bitlítil. Þó tókust í fyrstu tveim
hrinunum fallegir skotskellir
hjá Indriða Arnórssyni, en er
leið á leikinn tókst Þrotturum
að girða fyrir þá og hvarf þar
sterkasta vopn stúdenta.
Bestir Þróttara í þessum leik
voru Guðmundur Pálsson og
Gunnar Árnason að ógleymdum
Valdemar Jónassyni. Einnig var
Matthi Eliasson traustur að
vanda.
Hjá stúdentum stóð enginn
uppúr, helst að Sigfús Haralds-
son sýndi lit.
Dómarar voru Þorvaldur
Sigurðsson og Guðmundur
Oddsson og dæmdu ágætlega.
þs/kpe
Gústaf úr
leik á NM
GÚSTAF Agnarsson náði ekki að
verja Norðurlandatitil sinn f
lyftingum á Norðurlandamótinu.
sem fram fór f Kotka í Finnlandi
um helgina. Gústaf byrjaði á því
að reyna við 160 kíló í snörun,
sem hefði verið nýtt Norðurlanda-
met. Virtist Gústaf vera á góðri
leið með að fara upp með þyngd-
ina. en rann þá skyndilega og féll
með þeim afleiðingum að hann
tognaði á hné og varð að hætta
frekari keppni. Sigurvegari í
flokknum varð Finni og lyffti
hann samtals 340 kflóum en
Gústaf hefði átt að fara létt með
þá þyngd ef allt hefði gengið eins
og við var búist.
íslendingarnir fengu engin verð-
laun á mótinu. Már Vilhjálsmsson
varð 4. í sfnum flokki, samtals
270 kíló. Ágúst Kárason 7. í 100
kflóa flokki, samtals 267 kfló.
Birgir Borgþórsson 5. í sínum
flokki og setti 2 unglingamet, 160
kfló f jafnhöttun og 280 kfló f
samanlögðu.
Reykjavikurmeistari, þvf næst
bikarmeistari og nú um
helgina ráku ÍS-stúlkurnar
endahnútinn á glæsilegan vet-
ur með þvf að vinna íslands-
meistaratitilinn. Þess má geta,
að ís hefur aldrei áður unnið til
verðlauna f kvennakörfuknatt-
leik og er þessi árangur þvf enn
athyglisverðari.
I leiknum á laugardaginn skoraði
KR fyrstu körfuna, en siðan gerði
Kolbrún Leifsdóttir næstu 8 stig
fyrir ÍS. ÍS hafði forystuna framan
af, hafði t.d. 15:9 um miðjan fyrri
hálfleikinn, en þá kom mjög góður
kafli hjá KR og staðan breyttist í
22:17 KR í vil á stuttum tíma. ÞetU
var þó fljótt að breytast, þvíað ÍS
skoraði næstu 10 stig og hafði yfir
í leikhléi, 40:30.
í síðari hálfleik léku ÍS-stúlkurnar
skynsamlega, greinilega ákveðnar í
að missa ekki niður fengið forskot.
Það heppnaðist og munurinn varð
aldrei minni en 7 stig, 50:43 um
miðjan hálfleikinn. Þrátt fyrir að ÍS
missti sinn bezta leikmann,
Kolbrúnu Leifsdóttur, út af, tókst
KR ekki að ógna sigrinum. Lokatöl-
ur urðu sem fyrr sagði 62:51.
Lið IS lék mjög vel að þessu sinni
og var nú búið að finna svar við
svæðisvörn KR auk þess sem hittnin
var í góðu lagi. Kolbrún Leifsdóttir
lék mjög vel og átti stærstan þátt í
sigrinum. Þá var Guðný Eiríksdóttir
góð, sérstaklega undir lokin er hún
skoraði margar glæsilegar körfur.
Ragnhildur Steinbach og Þórdís
Kristjánsdóttir áttu einnig ágætan
leik.
KR-liðið hefur oft leikið betur en
aö þessu sinni. Sérstaklega var
frammistaða þeirra í fráköstum
léleg og kann það að hafa haft
úrslitaáhrif. Linda og Erna Jóns-
dætur og Emelía Sigurðardóttir
voru að venju drýgstar við að skora
og stóðu fyrir sínu. Þá átti Arndís
Sigurgeirsdóttir ágætan leik.
Stigin fyrir ÍS: Guðný 22, Kolbrún
19, Ragnhildur 9. Þórdis 6, Sigurlaug
4 og Hanna 2.
Stigin fyrir KR: Linda 15, Erna 13,
Emelía 11, Arndís og Sólveig 4 hvor,
Björg og Olga 2 hvor.
Dæmdar voru 24 villur á ÍS, en 20
á KR. ÍS fékk 13 vítaskot og hitti 8,
en KR fékk 30 vítaskot og hitti 7,
sem er afleit hittni.
Dómarar voru Kristbjörn Alberts-
son og Erlendur Eysteinsson og
dæmdu þeir mjqg vel.
ÁG
KR-INGAR ENN
MEISTARAR í
MIKIL spenna hefur nú færst í keppnina í 2. flokki íslandsmótsins
í körfuknattleik, en þar leika til úrslita lið Fram og UMFN. Liðin
léku nú um helgina tvo leiki, sem áttu að skera úr um úrslitin og
fór fyrri leikurinn fram í Njarðvík. Var það allan tímann mjög
spennandi leikur og skiptust liðin á um að hafa forystuna. Að
venjulegum leiktíma loknum var staðan jöfn, 62—62. Varð þá að
framlengja leikinn og mörðu þá Njarðvíkingar sigur 72—71.
Seinni leikurinn fór fram í
íþróttahúsi Hagaskólans á
sunnudaginn. Var það ekki síður
spennandi viðureign. Framarar
tóku forystuna og voru komnir
í 38—22 í fyrri hálfleiknum, en
með elju og miklum barningi
minnkuðu þeir muninn niður í 6
stig og var staðan í hálfleik
38-32.
Njarðvíkingar tóku síðan for-
ystuna í seinni hálfleik og voru
mestan hluta hans 5—6 stig
yfir. En Framarar höfðu ekki
hugsað sér að gefa titilinn
átakalaust frá sér og komust
yfir þegar skammt var til
leiksloka. Voru bæði liðin nú
komin í mikil villuvandræði,
enda hart barist á báða bóga.
Framarar tryggðu sér síðan
sigurinn á síðustu mínútum
leiksins, en lokatölur urðu
68—64. Verða liðin því að reyna
með sér í* þriðja skiptið og
verður það hreinn úrslitaleikur.
GG.
FYRSTA FLOKKI
NorðarUnda-, Rokjavlknr. bikar ok Islandsæeistarmr ÍS, Aftari röö l.v, Oirk Dunbar
þjálfari, Kolbrún Jónadóttir, Kolbrún Leifsdóttir. Rairnhildur Steinbaeh, Ester
Adansdóttir. Marsrét Eirfksdóttir og Siirurlaug Karlsdóttir. Fremri röö f.Vj Anna
BJönc Aradóttir, Valcerðnr Sigurðardóttir, Þórdís Anna Kristjánsdóttir, Hanna
InxibjörK Birgisdóttir ag Gnðný Eiríksdóttir. (Ljósm. GG)
GLÆSILEGUR
ÁRANGURÍS
(S varð á laugardaginn ís-
landsmeistari f mfl. kvenna f
körfuknattleik, er liðið sigraði
KR í úrslitaleik suður í Njarð-
vík með 62 stigum gegn 51.
Sigur ÍS var mjög verðskuldað-
ur og er árangur liðsins f vetur
einstakur. Liðið varð f haust
sigurvegari f Norðurlandamóti
stúdenta, sfðan varð það
KR-INGAR fóru létt með íslandsmótið f 1. flokki karla og voru
þeir reyndar öruggir sigurvegarar áður en þeir léku síðasta leik
sinn gegn stúdentum. Leikurinn gegn ÍS var þó engin
undantekning frá því, sem á undan var gengið, en KR-ingar
sigruðu með 21 stigs mun, 94—73 eftir að staðan var 48—24 f
hálfleik.
KR-ingar tóku strax 20 stiga
forystu í leiknum, en slökuðu á
þegar á leikinn leið enda sigur-
inn allann timann öruggur.
Stigahæstir KR-inga voru Gísli
Gíslason með 21 stig, Hilmar
Viktorsson með 18 og unglinga-
landsliðsmaðurinn Garðar Jó-
hannsson með 10 stig.
Hjá ÍS-mönnum (eða ÍS-ung-
um eins og þeir eru kallaðir) var
Ólafur Thoroddsen bestur, en
einnig var Axel Jónsson góður,
en báðir skoruðu þeir félagar 20
stig.
Fyrir einn KR-inga var þessi
“>«mr merkur áfangi. Er sá hinn
kunni Guðmundur Pétursson,
sem e.t.v. er þekktari fyrir
markvörslu sína á þeim tímum
er KR var meira stórveldi í
knattspymu en nú. Guðmundur
varð nú í 10. sinn í röð
íslandsmeistari með 1. flokk KR
og í 12. sinn á síðustu 13 árum,
en 1967 sigruðu Ármenningar
KR-inga í úrslitaleik. Eru fáir
sem geta státað sig af slíkum
sigurferli sem Guðmundur, en
hann varð einnig íslandsmeist-
ari með meistaraflokki KR 1974
auk fjölda verðlauna, sem hann
hefur unnið til í knattspýra-
unni.
GG
íslandir og RcykjavíkoræoÍKtarar 1. floklw. KR< Aftari röð frá vinstri, Halldór
KristjánsKon. Jón Otti Ólafsson fyrirHói liðsins. Sófus Guðjónsson. Garðar Jóhannsmn.
Þorvaldur Blöndal. Hilmar Viktorsson. Carsten Jón Kristinsson. Neðri röð f.v. Gunnar
Inin'mundarson. Gunnar Gunnarsson. Guðmundur Pétursson oit GúiH Gíslason Auk þess
rru á myndinni lukkupollar Hðsins þeir Hrlxi Gunnar Helxason of Hörður Ganti
Gunnarsson. Á myndina vantar þá Hjört Hansson. Birifi Guðbjörnsson. Ólaf Finnsson.
Davið. Jrnsson og Pálma Siithvatsson. (Ljm GG/ÓT)