Morgunblaðið - 18.04.1978, Side 23
MÓRGÚNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1978
31
Leiðrétting
I blaðinu á sunnudag var farið
rangt með nafn fulltrúa ITT Space
Communications, sem átti lægsta
tilboðið í jarðstöðina fyrir fjar-
skiptasamband við gervihnött.
Hann heitir Antony J. Bafile.
— Sérviðræður
Framhald af bls. 48
Snorra, hvort hann óttaðist ekki
að samningar tækjust við VMSÍ,
en síðan sætu önnur sambönd
innan ASÍ eftir. Hann kvað svo
ekki vera út af fyrir sig. Númer
eitt væri að ná sem fyrst réttlæt-
inu fram og umbjóðendúr Verka-
mannasambandsins væru upp
undir helmingur umbjóðenda Al-
þýðusambandsins. Hins vegar
sagðist Snorri viðurkenna það, að
skemmtilegra væri að geta lokið
öllum samningunum í einu. Ef það
væri ekki hægt, væri næst bezti
kosturinn þessi. Hann kvað félögin
hafa þetta frelsi og ef félögin í
Verkamannasambandinu gæfu því
samningsumboð væri ekkert við
þvi að segja, félögin réðu því og
hann kvaðst ætla að þetta væri
gert af mjög yfirlögðu ráði.
Verzlunarmenn hefðu einnig lýst
yfir sérstöðu og væru þeir að
semja sér.
Jón Helgason, formaður Verka-
lýðsfélagsins Einingar á Akureyri,
kvaðst líta á þessa ráðstöfun
VMSÍ sem eðlilega ráðstöfun eftir
það sem á undan væri gengið. „Við
getum ekki verið með alla tross-
una á eftir okkur í sambandi við
þessar aðgerðir. Við erum fyrst og
fremst að hugsa um okkur í þessu
tilliti. Þar er garðurinn lægstur og
þar á að taka til hendi.“ Jón sagði
að sér myndi finnast undarlegt, ef
þetta mál yrði ekki tekið eðlilegum
tökum af vinnuveitendum.
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður VMSI, kvað sambandið
aldrei sem slíkt hafa óskað eftir
viðræðum við vinnuveitendur fyrr.
Hins vegar hefðu einstök félög
innan þess gert slíkt, t.d. Dags-
brún og einnig hefðu Norðurland
og Austurland samið sérstaklega.
Verkamannasambandið hefði hins
vegar aldrei formlega gert þetta.
Ef hugur fylgir máli í tali
vinnuveitenda — sagði Guðmund-
ur, væri nú einstakt tækifæri til
þess að laga kjör hinna lægstlaun-
uöu og framkvæma láglauna-
samninga. „Leggjum við ofurkapp
á að Vinnuveitendasambandið
svari okkur og við teljum þetta
prófstein á vilja þeirra."
Barði Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bands Islands, kvað sambandið
enn ekki hafa tekið afstöðu til
beiðni VMSI um viðræður, en í dag
yrði framkvæmdastjórnarfundur
og yrði um málið fjallað á honum.
Hann kvað Verkamannasamband-
ið aldrei hafa óskað formlega eftir
viðræðum fyrr, en hins vegar
hefðu sérviðræður við það farið
fram eftir að allsherjarviðræður
við ASI hefðu verið komnar af
stað. Væri slíkt ekki óalgengt, en
þannig hefðu viðræður aldrei fyrr
borið að, sem óskað væri nú eftir.
Morgunblaðið spurði, hvort hér
væri því ekki einstakt tgekifæri til
þess að semja um kjör láglauna-
fólks án þess að kauphækkunin
gengi upp úr um allt launakerfið.
Hann kvað alltaf hafa orðið
samkomulag um að ákveðin teg-
und vinnu ætti að hafa lægsta
kaup. Væru til hliðstæðir samn-
ingar eins og hjá Iðju og
verzlunarmönnum. Hann kvað
lægst taxta, sem nú væri samið
fyrir og raunhæft væri að ræða
um, vera þann sama hjá Iðju og
Verkamannasambandinu, 114.399
krónur á mánuði. Væri það 2.
taxtinn, en 1. taxtinn er ekki
notaður.
Barði kvað hins vegar þessi lágu
laun eiga við afskaplega fáa. Á
fimm ára tímabili milli áranna
1972 og 1977 kvað hann samkværút
upplýsingum Þjóðhagsstofnunar
rauntekjur kvæntra verkamanna
með tvö börn hafa aukizt um 29%.
Á sama tíma hafi heildarlauna-
"kostnaður aukizt um 382%. Megin-
ástæða þessarar þróunar hafi
verið verðbólgan. Nú væri gert ráð
fyrir brúttótekjum fjögurra
manna fjölskyldu miðað við árin
frá 1972 að upphæð 3.698.000
krónur.
Barði kvað laun verkakvenna í
svokölluðum bónushúsum hafa
verið yfir 200 þúsund krónur á
mánuði. Hann kvað svo mikið af
vaktavinnu og hvetjandi launa-
kerfum í gangi, að þessar læstu
tölur væru í raun mjög lítið
notaðar. Ef þessar lágu tölur
hækkuðu, hækkaði þetta kaup allt
hlutfallslega. Hann kvað láglauna-
samninga geta gengið um mjög
skamman tíma, en þar sem verið
væri sí og æ að semja um
krónutöluhækkanir skerti það
sífellt launahlutföll og kallaði að
lokum á sprengingu.
Barði kvað í raun enga skil-
greiningu til ■ á hinum lægst
launuðu og í raun tilheyrðu
láglaun ekki neinni ákveðinni
stétt. Fráleitt væri eins og ástand-
ið væri að álykta að þar sem
maður væri innan ákveðinnar
stéttar, væri hann þar með lág-
launamaður. Ef hins vegar grund-
vallartala bónusvinnunnar lækkar
í sambandi við tímakaupið, getur
svo farið, að hið hvetjandi launa-
kerfi verði ekki lengur hvetjandi
og enginn vilji vinna samkvæmt
því. Er það því mjög hæpið einnig.
Eru hvetjandi launakerfi í dag
mjög mörg, bónuskerfi, premíu-
kerfi, ákvæðisvinna o.fl.
„Mjög mörg ljón eru á veginum,"
sagði Barði, „á meðan starfsstétt-
irnar hafa ekki komið sér saman
um hvaða launahlutföll eiga að
vera á milli þeirra."
Salisbury. Upphaflega vonuðu
Bretar og Bandaríkjamenn að
ráðstefna allra deiluaðila gæti
jafnvel hafizt í næstu viku. En nú
telja þeir að liðið geti margar
vikur og jafnvel mánuður áður en
hægt verði að halda ráðstefnu.
— Flúin til
Kanada
Framhald af bls. 47.
hafa rænt mormónanum Kirk Ander-
son og haft hann í haldi í þrjá daga.
Anderson segist hafa verið hlekkj-
aður við rúm og hafa verið neyddur
til að hafa mök við McKinney, sem
er fyrrverandi fegurðardrottning
Wyoming-fylkis í Bandaríkjunum.
Hún hefur neitað ásökunum Ander-
sons.
— „Græða
ekkert...
Framhald af bls. 47.
aðilja, hefðu veikt það álit sem
hann hefur notið út á við.
„I bréfum þessum hefur Moro
farið fram á að sér yrði sleppt
lausum eins og „öðrum pólitísk-
um föngum". I bréfunum er
mjög slæmur tónn og þar ásakar
hann meðal annars fyrrverandi
samráðherra sína út af
Lockheedmálinu og segir þá
hafa tekið harða afstöðu gegn
sér.
Almenningur hér virðist því
standa með stjórnvöldum í því
að láta ekki deigan síga í
þessum efnum og semja alls
ekki við ræningjana."
— Palistínumenn
Framhald af bls. 47.
hvort Palestínuskæruliðar hygð-
ust snúa aftur til Suður-Líbanon.
ísraelsmenn hafa margoft lýst
því yfir að þeir muni ekki fara frá
Suður-Líbanon fyrr en þeir séu
öruggir um að gæzluliðar S.Þ. geti
komið í veg fyrir að skæruliðarnir
snúi þangað aftur.
— Velferðarríkið
Framhald af bls. 37.
2. skilyrðanna, 3. þeirra möguleika
sem þaö býöur uþþ á — og þeirra
möguleika sem það lokar fyrir.
Fleiri og fleiri starfa í þágu
velferöarinnar, skattarnir hækka og
hækka, skattarnir sem veröa aö
greiöast. Ekkert er ókeypis.
Aö endingu: Þeir sem eru skapandi
verða stööugt færri, þ.e. þeir sem
láta eitthvaö af sér leiöa.
„Vörurnar" og „verömætin" á
hillunum á lager þjóöfélagsins eru
tæmdar, þaö er gengið á þær þar til
þær eru alveg auöar. Ekkert eftir.
Síöasta skilyröiö er: Allir starfa hjá
ríkinu í pýramidanum. Þjóöfélagiö er
aöeins ríkiö.
Einræðisríkið. Því er stjórnaö af
einræöisherrum sem ekkert hafa eða
gefa fólkinu.
Það er ómögulegt. Þaö hefur
aldrei veriö mögulegt, og það verður
aldrei mögulegt aö ríkið (eöa „tilver-
an") geti skapað öllum fullt öryggi við
allar aðstæður, — frá fæöingu til
dauða.
Lokamyndin: allir sitja í steinpýra-
mídanum, þar sem ekkert grær,
ekkert sprettur, ekkert er skapaö,
búiö til, bætt, endurbætt enda er það
ekki hægtj
Pýramídinn stendur bara þarna í
ófrjórri eyðimörkinni miöri.
An vatns, án fæöu — án Ijóss. í
pýramídanum éta þeir sem enn halda
lífi hver annan. Svo ríkir alger kyrrö.
Engum árangri hefur þó verið náö í
baráttunni fyrir velferöaríkinu.
Hrörnunin er löngu hafin og hún
heldur áfram að „dafna".
Þetta er skopstæling af velferöar-
ríkinu, einhliöa, afbökuö einfölduö,
ýkjur, — En....
Sigurd Madslund 1977
— Minning
Símonía
Framhald af bls. 39
frá okkur, hinn 25. febrúar síðast-
liðinn.
Nía var kona sem ætíð var
gaman að hitta, alltaf kát og
hress, og góður vinur vina sinna.
Hún var fædd í Vestmannaeyjum
6. febrúar 1925, dóttir hjónanna
Ingveldar Pálsdóttur og Páls
Gunnlaugssonar sjómanns, 23.
óktóber 1943 giftist hún eftiriif-
andi manni sínum, Karli Guð-
mundssyni útgerðarmanni, og
eignuðust þau 3 börn, Mörtu og
Inga sem eru gift og búsett í
Vestmannaeyjum og Áróru 11 ára.
Nía var góð eiginkona, móðir,
tengdamóðir og amma. Er því
missir þeirra allra mikili. En við
skulum minnast þess að þeir sem
mikið missa hafa líka mikið átt.
Með þessum fáu orðum vil ég og
fjölskylda mín þakka henni og
manni hennar þá góðvild og þær
ánægjustundir sem við áttum
saman þessi ár. Eiginmanni og
öðrum ástvinum hennar vottum
við dýpstu samúð, og biðjum þann
sem öllu ræður að halda sinni
verndarhendi yfir þeim.
Blessuð sé minning hennar.
Kristín Magnúsdóttir
— Rhódesíu-
málið...
Framhald af bls. 1.
Bandaríkjamenn sögðu að þær
hefðu verið gagnlegar.
Owen sagði um tillöguna um að
haldin yrði ráðstefna allra deilu-
aðila til að leysa deiluna, að
Rhódesíumenn hefðu samþykkt að
hugleiða hána vandlega enda væri
ekki farið fram á skyndiákvörðun.
Hann sagði að viðræðunum yrði
haldið áfram en vildi engu um það
spá hvenær eða hvar hugsanleg
ráðstefna allra deiluaðila yrði
haldin.
Þetta er fyrsta heimsókn banda-
rísks utanríkisráðherra til
Rhódesíu. Það voru stuðnings-
menn Abel Muzorewa biskups sem
stóðu að mótmælunum gegn tillög-
um Breta og Bandaríkjamanna.
Þeir stöðvuðu umferð og hvít kona
sást kasta silfurpeningum í brezk-
an embættismann og hrópa „Júd-
as“.
Leiðtogar skæruliða Föður-
landsfylkingarinnar samþykktu á
laugardag að sækja ráðstefnu
allra deiluaðila ásamt Smith.
Suður-Afríkumenn gáfu í skyn í
gær að þeir væru fylgjandi hug-
myndinni. En lítill árangur virðist
hafa orðið af viðræðunum í
varahlutir
íbílvélar
Stimplar,
slífar og hringir
Pakkningar
Vélalegur
Ventlar
Ventllstýringar
Ventilgormar
Undirlyftur
Knastásar
Tímahjól og kefljur
Olíudælur
Rokkerarmar
Þ JÓNSSON&CO
Skeifan 17 s. 84515 — 84516
Umboð fyrír amerfskar, enskar og
japanskar bifreiðir. Allt á sama stað
erhjáAgli
CONCORD 2ja dyra 6 cyl. 258
cid. vél sjálfskiptur meö vökva-
stýri, aflhemlum, upphitaöri
afturrúöu og „De Luxe“ út-
færslu þ.e.: Hallanleg sæti meö
plussáklæöi, viöarklætt mæla-
borö, vinyl toppur, teppalögö
geymsla ásamt hlíf yfir varahjól,
hliðarlista, krómlista á bretta
kanta, síls og kringum glugga,
klukka, D/L hjólkoppa, D78x14
hjólbaröa meö hvítum kanti,
gúmmíræmur á höggvörum,
og vönduö hljóöeinangrun.
amCONCORD
Ótrúlega lágt verð, en staðreynd samt sem áður.
Ath. tilgreind verðáætlun miðast við gengisskráningu í dag.
Allt á sama Staó Laugavegi 118-Símar 22240 og 15700
EGILL VILHJÁLMSSON HE