Morgunblaðið - 18.04.1978, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1978
45
• VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
I0100KL 10— 11
• Handrið við
Gullfoss
Áfram heldur bréfritari og
nú bendir hann á atriði til
öryggisgæzlu fyrir ferðamenn sem
koma að Gullfossi:
„Að mínu áliti er nauðsynlegt að
setja upp eitthvert handrið á
gönguleiðina eða stígiun sem
liggur frá bílastæðinu við Gullfoss
nkður að fossinum. Þarna er mikil
slysahætta, hált er á gönguleiðinni
vegna bleytu og hún er líka það
mjó og menn eiga það til að fara
glannalega þar sem þeir þekkja
e.t.v. ekki svo mikið til. Þyrfti
endilega að setja upp handrið
þarna og jafnvel við fossinn
sjálfan, þ.e. á gilbarminn."
Örn kemur víðar við og minnist
á það að Lummurnar hafi náð
miklum vinsældum og telur að
auka mætti enn á vinsældir þeirra
ef gefnar væru út plötur eða
kasettur með vinsælum lögum frá
árunum um og eftir 1950. En frá
þessum málum er komið að því
máli sem fær mest rúm í skrifum
bréfritara, en það er um
• Bjórmálið
Fyrst gerir bréfritari að
umtalsefni skrif templara í blöð og
segir að þeir ávinni sér varla
vinsældir með þeim, enda hafi þeir
fengið fá atkvæði síðast er þeir
buðu sig fram á þing. Segir hann
einnig að templarar hafi lítið gert
fyrir drykkjumenn og spyr hvort
þeir vilji fremur heróín hér á landi
en „hollan og góðan bjór“ sem
bætir drykkjusiði landsmanna?
Það á ekki að láta fúskara hræra
í áfengismálum þjóðarinnar og hér
er orðið býsna mikið um fíknilyf
að ég held. Áfengismál erlendis
eru ekki neitt svo stór í sniðum
eins og templarar vilja vera láta,
kófdrykkja þekkist ekki í Vest-
ur-Þýzkalandi og hvað þá í Dan-
mörku.
Þar sem er kúgun í mat og drykk
er ofdrykkja og þar á meðal á
íslandi. Þar sem er bæði vín og
bjór og frjálsræði í vínmálum
almennt er ekkert vandamál.
Menn eiga að fá að ráða því sjálfir
hvers þeir neyta og hvers ekki. Ég
held að samtök templara eigi að
snúa sér frekar að baráttunni gegn
eiturlyfjum, en ekki útmála fregn-
ir um drykkju í öðrum löndum,
sem orka tvímælis. Mér finnst það
lágmarkskrafa að fá hingað
drykkjarhæfan bjór og fá að nfeyta
hans í friði fyrir þeim sem vilja
ekkert annað en vatnsgutl og ég tel
mig algerlega hafa farið með rétt
mál nýlega er ég sagði eitthvað á
þá leið í bréfi að vínvandamál
skapast ekki af bjórdrykkju.
Þá vildi ég aðeins minnast á
reglur um ökuleyfi og vínneyzlu. í
Þýzkalandi er leyft að drekka allt
að einum bjór án þess að fara yfir
mörk áfengismagns í blóðinu og
samkvæmt prómille-tölu hér á
landi má varla drekka nema eina
maltflösku eða jafnvel bara borða
eitt epli, ef menn vilja ekki eiga
það á hættu að missa ökuleyfið. Ég
held að megi vel breyta eitthvað
þessum reglum.
Örn Ásmundsson bifvéHv.“
• Góður fundur
Maður sem sagðist vera
mikið í félagsmálastörfum, „rétt
eins og allir aðrir Islendingar",
vildi fá að minnast aðeins á
þáttinn er var í sjónvarpinu á
sunnudagskvöld og var e.k.
kennsla í fundarsköpum:
— Ég held að mjög margir hafi
haft gagn og gaman af þessum
þætti, hann var að vísu dálítið
„hraðsoðinn" og snubbóttur, en
hann kom að sínu gagni. Mætti
jafnvel endursýna hann við tæki-
færi og minnast sérstaklega á
leiðbeiningarnar sem settar voru
fram í upphafi og væri e.t.v. ekki
úr . vegi að fá þær birtar í
dagblöðum.
Þetta er öllum nauðsynlegt að
vita og hver hefur ekki séð sjálfan
sig á þessum húsfélagsfundi
blokkaríbúenda þar sem sífellt er
deiit um eitthvað og enginn
árangur næst, fundir boðaðir á
ákveðnum tíma sem byrja ekki
fyrr en hálftíma of seint o.s.frv.
Vil ég tjá sjónvarpinu mínar beztu
þakkir fyrir þennan þátt. Jafn-
framt leyfi ég mér að minnast á
það sem nokkrir mætir íslenzku-
menn drápu á í þætti fyrir stuttu
að hefja þyrfti einhverja kennslu
í rökræðulist eða mælskulist og
væri sjónvarpið kjörinn vettvang-
ur slíkrar fræðslu.
• Meira um
turninn
Magnús Sigurjónsson
— Ég vil fá að taka undir
með Sveini Sveinssyni þar sem
hann ræðir og finnur að staðsetn-
ingu gamla söluturnsins. Eins
sjálfsagt og það er að fá þennan
gamla turn aftur í miðbæinn er
jafn sjálfsagt að velja honum stað
við hæfi, þar sem hann er til
fegurðarauka og fellur vel í
umhverfið. Nú eyðileggur hann
heildarmynd torgsins og er hindr-
un í umferð á þessu mesta
umferðarhorni landsins. Hætt er
við troðningi og pústrum þegar
starfsemi í turninum hefst og ég
hef ekki heyrt í neinum borgarbúa
sem er ánægður með þennan stað.
Við getum fagnað komu hans og
þeirri hugmynd að fá hann í
bæinn, því hann lífgar uppá og
yljar gömlum Reykvíkingum, en
þá verða líka fegrunarsérfræðing-
ar borgarinnar að taka sig° til til
að ofbjóða ekki fegurðarskyni
borgarbúa og finna stað sem hæfir
honum vel.
NÝ
Enskar og
danskar
dragtir
Kjólar stuttir
og síöir
í st. 36—50.
Blússur
í st. 36—50.
Glœsilegt úrval.
Gott verö.
Opiö laugardaga
kl. 10—12.
Dragtin,
Klapparstíg 37.
SENDING
■MANNELDISFRÆDlH
Vegna mjög mikillar eftirspurnar hefjast ný námskeiö í
manneldisfræöi í næstu viku.
NÁMSKEIÐIÐ FJALLAR MEDAL ANNARS UM EFTIRFAR-
ANDI ATRIÐI:
• Grundvallaralriði nwringarfraöi.
• Innkaup, vorulýeingar, auglýsingar.
• Réðlaggingar asm hailbrigðisyfirvöld margra Þjóða hafa birt um aaskilagar
breytingar á matarasði, til að fyrirtoyggja sjúkdóma.
• Fmðuval, garð matsaðla, matraiðsluaðfarðir (sýnikannsla) mað tilliti tií éðumafndra
réðlagginga
• Mismunandi framraiðsluaðferöir, dúka og skrayta borð fyrír mismunandi taskifsari.
• Magrunaraðfarðir. Sémémskaið. Kynnist pví sam néðurstöður nýjustu vísindalagra
rannsðkna bafa að sagja um offitu og magrunaraðfarðir.
MUNIO að varanlagur érangur naset ainungis af grundvallarpakking é vsndamélinu og
maðfarð Þaaa ar fyrír handi. Rangar magrunaraðfarðir aru mjög akaðiagar og gata
valdtd varanlagu bailautjðni.
VEIZT ÞÚ AÐ GÓÐ NÆRING HEFUR ÁHRIF Á:
• Andlagan, Kkamlngan og Mlagalngan gronka altt Irá trumbamsku.
• Mótatáduafl gagn sjúkdAmum og andtogu álagí.
• Liksmsoyngd fltna,
ADEINS RÉTT N/ERÐUR EINST AKLINGUR GETUR
VÆNST BEZTA ÁRANGURS Í NÁMI, LEIK OG STARFI.
Allar nánuri uppiýsingar sru gslnsr I sima 7420« kl. t—12 Mi. og sftir kL 7 á kriHdin.
Kristin Jóhsnnsdóttir, msnnsidisfrmóingur.
L’i melka
FRAKKAR
AUSTURSTRÆTI 14