Morgunblaðið - 19.04.1978, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 1978
11
Brottflutningurinn f rá
Líbanon gengur seint
Þetta gerðist
Jerúsalem, 18. apríl. AP.
ÍSRAELSMENN fullvissuftu í dag
Kurt Waldheim framkvœmdastjóra
Sameinuðu pjóðanna um að Það
vœri ætlun ísraelsmanna aö hörfa
fró Suður-Líbanon, en ágreiningur
er enn uppi um hve langan tíma
brottflutningurinn eigi að taka.
Waldheim hitti að máli Menachem
Begin forsætisráðherra og Moshe
Dayan utanríkisráðherra til þess að
kvarta yfir því hve brottflutningur
ísraelsmanna gengi seint áður en
hann ferðaðist með þyrlu til friðar-
gæzlusveita SÞ í fjöllum Suöur-Líb-
anons.
Agapova
send á hæli
Moskvu, 18. apríl. Reuter.
FLÓTTAMANNSMÓOIRIN
Antonina Agapova sem drakk
sýru pegar embættismenn höfn-
uðu síðustu beiðni hennar um að
fara úr landi verður send í
sovézkt geðsjúkrahús til með-
ferðar aö sögn tengdadóttur
hennar.
Frú Lyudmila Agapova, kona
Valentin Agapovs, sem flúði af
kaupskipi í Svíþjóð fyrir fimm
árum, sagði vestrænum frétta-
mönnum að hún heföi fengið
þessar upplýsingar hjá læknum í
sjúkrahúsinu sem hún var flutt í til
þess að hægt væri að gera að
sárum hennar.
Lyudmila sagöi að líf hennar
væri „martröð". Hún hefur reynt
að fá leyfi til að flytjast ásamt
dóttur sinni og frú Agapovu til
manns síns í Svíþjóð.
Veður
víða um heim
Amsterdam 11 bjart
Apena 20 bjart
Berlín 14 skýjað
Briissel 10 bjart
Chicago 11 rigning
Frankfurt 11 skýjað
Genf 8 skýjað
Helsinki 7 sókskin
Jóh.borg. 22 sólskin
Kaupm.höfn 12 skýjað
Lissabon 18 skýjað
London 12 skýjað
Los Angeles 22 bjart
Madrid 20 bjart
Málaga 23 skýjað
Miami 25 skýjað
Moskva 15 bjart
New York 12 skýjað
Ósló 7 skýjað
Palma Majorka 19 skýjað
París 11 skýjað
Rómarborg 14 bjart
Stokkh. 4 sólskin
Tel Aviv 21 skýjaö
Tokyó 15 rigning
Vancouver 12 skýjað
Vínarborg 12 skýjað
Hann sagöi fréttamönnum aö
Sameinuðu þjóðirnar heföu enn
áhyggjur af þeirri töf sem heföi orðið
á því að framfylgja til fullnustu
ályktun Öryggisráösins um skjótan
brottflutning.
„Forsætisráöherrann sagði mér að
þaö væri ætlun ísraelsmanna aö
hörfa frá herteknu svæöunum en að
komast yrði hjá því aö tómarúm
skapaöist eins og hann orðaði það,"
sagði Waldheim.
Yfirmaöur friðargæzluliðs SÞ t'
Miðausturlöndum, Ensio Siilasvuo
hershöföingi, og forseti ísraelska
herráðsins, Raphael Eytan hershöfð-
Ingi, hittust seinna í dag til þess aö
ræöa brottflutninginn og hvenær
honum skyldi Ijúka. Dayan sagöi að
„fullt samkomulag og full samræm-
ing“ væri í sjónmáli.
Dollarinn
á uppleid
London, 18. apríl. Reuter.
STADA dollars hélt áfram að
batna í dag vegna mikillar verð-
hækkunar hlutabréfa í Wall
Street.
í Tokyo hækkaði dollarinn um
tvö yen og seldist um tíma á
223.30 yen 222.20 yen við lokun.
Svipaöa sögu var að segja á öörum
gjaldeyrismörkuðum.
1971 — Charles Manson og þrjár
vinkonur hans dæmd tll dauöa
fyrir að myrða Sharon Tate og sex
aðra í Los Angeles.
1967 — Adenauer deyr, 91 árs
gamall.
1951 — MacArthur hershöfðingi
kemur fyrir Bandarfkjaþing og
ræðst á stjórn Trumans forseta.
1898 — Bandaríkjamenn setja
Spánverjum úrsiitakosti og krefj-
ast að þeir afsali sér yfirráðum á
Kúbu.
1859 — Austurríkismenn setja
Sardiníumönnum úrslitakosti og
krefjast að þeir afvopnist en þeim
er vísað á bug.
1824 — Byron lávarður deyr í
Grikklandi þar sem hann barðist í
frelsisstríöinu.
1783 — Bandaríkjaþing lýsir því
yfir að frelsisstríðinu sé lokið.
1775 — Frelsisstríðið í Norð-
ur-Ameríku hefst meö ósigri Breta
við Lexington og Concorde.
1587 —■ Brezkur floti undir forystu
Sir Francis Drake ræðst á Cadiz.
Afmæli dagsins: Edward Pellew
enskur flotaforingi (1752 — 1823)
— August Wilhelm Iffland, þýzkt
leikritaskáld (1759 — 1814).
Orð dagsins: Kunningi: einhver
sem við þekkjum nógu vel til að tá
lánað hjá, en ekki nógu vel til að
lána — Ambrose Bierce, banda-
rfskur rithöfundur (1842 — 1914).
Rússinn lengi
á snærum
CIA og FBI
New York, 18. apríl, AP.
ARKADY N. Schevchenko, aðstoð-
arframkvæmdarstjóri Sameinuðu
pjóðanna, hefur í mörg ár verið í
sambandi við bandarísku alríkislög-
regluna (FBI) og bandarísku leyni-
Þjónustuna (CIA), að Því er New
York Times skýrir frá í dag.
Blaðið hefur upplýsingar þessar
eftir fyrrverandi starfsmanni CIA. Þaö
segist ennfremur hafa það eftir
kunnugum aðila, aö Schevchenko
hafi boðist til að skýra stofnunum frá
því hvort sovézkir heimildamenn
stofnanna skýri þeim satt og rétt frá
ýmsum málum.
Bæöi New York Times og tímaritið
Time segja að Schevchenko vilji fá
100,000 Bandaríkjadali fyrir upplýs-
ingarnar. Hann hefur ekki ennþá sagt
upp störfum hjá Sameinuðu þjóðun-
um, og dvelst ú einhvers staöar í New
York fylki.
Alþjóöleg bílasýning
í Sýningahöllinni aó Bíldshöfóa
24 bílar sem ekki hafa
sést á Islandi fyrr
Fjöldi bíla sem hlotió hafa alþjóóleg
verólaun
TÍSKUSÝNING í KVÖLD KL. 21QQ
Sýnd veróur nýjasta vor og sumartískan
í bílklæónaói
BÍLAHAPPDRÆTTI — vinningur MAZDA 323
aðgöngumióar gilda sem happdrættismióar—þannig
eiga allir sýningargestir jafna vinningsmöguleika
GESTUR DAGSINS er valinn alla daga sýningar-
innar og hlýtur hann sólarlandaferó
meó Samvinnuferóum
Símar sýningarstjórnar 83596 og 83567