Morgunblaðið - 03.05.1978, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1978
FRAMSTULKURNAR
SIGRUÐU TVÖFALT
SIGURGANGA meistaraflokks kvenna í Fram heldur áfram, á sunnudagskvöld sigruðu
þær FH í úrslitaleik bikarkeppninnar 13—11 og voru þær svo sannarlega vel að sigrinum
komnar, hafa þær því sigrað tvöfalt í ár, bæði í íslandsmóti og bikar. Síðastliðin tvö
ár hefur þessi flokkur unnið öll mót nema eitt þrátt fyrir töluverðar breytingar á liðinu.
Er ekki hægt að segja annað en að það sé vel af sér vikið.
Fram-liðið barðist v«l allan slapp úr gæslunni. 1 FH-liðið
tímann og lék vörnina af hörku, vantaði meiri baráttu og kraft, of
kom vel út á móti skyttum FH og fljótt var gefið eftir í vörninni og
Leikur þessara liða á sunnudag
var ekki jafn vel leikinn og síðari
leikur liðanna í úrslitakeppninni
um íslandsmeistaratitilinn. FH
reyndi aftur að nota þá aðferð að
taka tvær úr umferð, þær Guðríði
og Oddnýju, og enn á ný sönnuðu
þær Jóhanna Sigrún og Jenný getu
sína með því að leika ljómandi vel
á móti vörn FH og þrátt fyrir góða
markvörslu Gyðu náði Fram þegar
öruggri forystu og hélt henni til
loka leiksins. Staðan í leikhléi var
8—5 og minnsti munur í síðari
hálfleik var tvö mörk.
stoppaði línuspil liðsins svo til
alveg. Við þennan góða varnarleik
varði markvörðurinn þau skot sem
fóru í gegn en helmingur marka
FH var úr hröðum upphlaupum
eða vítaköstum. Bestar hjá Fram
voru þær Jóhanna og Jenný, þá var
Oddný sterk í vörninni og Guðríð-
ur er mjög efnileg, mjög skotviss
og hefur gott auga fyrir að gefa á
samherja í góðum færum, þá
skapaði hún alltaf ógnun er hún
sóknin var ekki nægilega mark-
viss. Kristjana lék vel af útispilur-
um, svo og Hildur, þá stendur
Gyða alltaf fyrir sínu í markinu.
Liðið virkaði oft á tíðum eins og
það væri hálf þreytt, vantaði meiri
snerpu.
Mörk Frami Jóhanna, 4. Jenný
4, Guðríður 4 (2v), Sigrún 1.
Mörk FHi Svanhvít 3, Katrín 2,
Hildur 2, Kristjana 3, Sólveig 1.
ÞR.
HKSKORAÐI
EKKIÍHEILAR
23 MÍNÚTUR
FYRRI aukaleik HK og KR á sunnudaginn um rétt til að leika í 1.
deild næsta keppnisti'mabil lauk með stórsigri KR, 22—15, eftir að
staðan hafði verið 10—9 HK í vil í leikhléi. Leikurinn sem fram fór
í Laugardalshöllinni var bráðskemmtilegur á að horfa og mikið var
um góð tilþrif af hálfu beggja liða.
fyrri hálfleik jafnframt því sem
hann skoraði gullfalleg mörk. HK
kom KR-ingum á óvart með mjög
hröðu spili og tókst þeim að ná
forystu í leiknum og um tíma var
3 marka munur HK í vil.
Símon Unndórsson var í miklum
ham í leiknum og gekk HK illa að
hemja hann, fékk Símon of mikið
ráðrúm og skoroS' 1" l^roriugí
ieiKmaður hvert markið af öðru í
fyrri hálfieik með uppstökkum og
föstum skotum, þrátt fyrir að
varnarleikur HK væri sérlega
sterkur allan fyrri hálfleik og
markvarsla Einars Þorvarðssonar
með því besta sem sést. Það var
gerbreytt HK-lið sem lék seinni
hálfleik. Var allur vindur úr liðinu
og sú kraftmikla barátta, sem
einkennt hafði leik þess í fyrri
hálfleik, var horfin, menn reyndu
skot alltof fljótt og úr slæmum
skotfærum og það ásamt ekki
alveg réttum innáskiptingum að
mati undirritaðs varð liðinu að
falli.
KR-ingar hafa sjálfsagt fengið
þá lexíu hjá Geir þjálfara sínum
í leikhléi að þeir skyldu ekki
vanmeta HK því meiri festa og agi
var í leik liðsins eftir leikhlé.
Haukur og Björn léku báðir vel og
skutu á réttum stað á Einar sem
Ilaukur Ottesen íyrirliði KR.
gekk mun verr að v.erja frá þeim
skotin. Þá léku KR-ingar vörnina
af meiri hörku og ákveðni og
skilaði það sér fljótt. Jóhannes og
Ævar léku bnr y'ádlr vel. Um
miðjan síðari hálfleik hafði KR
tekið forystu, 14—12, og smájók
hana út leikinn.
Á 57. mínútu leiksins var staðan
orðin 20 gegn 12 og var aldeilis
með ólíkindum hve HK-mönnum
lá oft á að skjóta á mark KR í
vonlitlum færum. Var oft á tíðum
eins og Stefán Halldórsson og
Björn Blöndal væru að keppa um
markatitil en ekki í leik sem þarf
að spilast af varfærni.
Bestu menn KR-inga í þessum
leik voru Símon Unndórsson og
Emil Karlsson, en liðið í heild átti
nokkuð góðan dag og lék oft
ljómandi vel. Hjá HK voru þeir
Karl Jóhannsson og Einar
Þorvarðarson markvörður bestu
menn.
Mörk KR: Símon 7, Haukur 4,
Björn 5, Kristinnn 2, Sigurður 2.
Mörk HK: Karl 4, Ragnar 3, Jón
2, Hilmar 2, Stefán 1, Björn 1.
- Þr.
Valsstrákarnir, sem urðu meistarar í 5. flokki á Akureyri íyrir 10 dögum. Með knöttinn í fremstu
röðinni er Guðni Bergsson fyrirliði flokksins og sá er tryggði liðinu meistaratitil með marki úr
aukakasti eftir að leiktima lauk í síðasta leiknum. F'yrir aftan eru þjálfararnir Jón H. Karlsson
og Stefán Gunnarsson og Þórður Sigurðsson, formaður Handknattleiksdeildar Vals.
FH MEISTARI
í 2. FL. KARLA
ÚRSLIT í 2. fl. karla í íslandsmótinu í handknattleik urðu þau að
FII sigraði. Þróttur varð í öðru sæti og Þór frá Akureyri í þriðja.
FII lék við Þór á sunnudag og sigraði 13>11 eftir nokkuð jafnan leik,
staðan í leikhléi var 7«3 FH í hag. Bestu menn FH í leiknum voru
þeir Sveinn Bragason, bráðefnilegur ungur handknattleiksmaður, og
unglingalandsliðsmarkvörðurinn Sverrir Kristjánsson. FII hafð’,?.A-—
sigrað Þrótt, og Þróttur sigraði Þór, ,««uuroum. Þjalían
pH-piltanna a«<naugfíson og hefur hann í vetur þjalfað þau
tvö FH-lið. sem unnið hafa til íslandsmeistaratitla. þriðja flokk karla
og 2. flokk karla.
- Þr.
Sigurður I*. Sigmundsson í
keppni. Þessi mynd birtist í
blaðinu Trostberger Taghlatt og
sýnir Sigurð sigra í Franz-Korb
hlaupinu.
SIGURÐURSTENDUR
SIG MJÖG VEL YTRA
SIGURÐUR I*. Sigmundsson. einn fremsti frjálsíþróttamaður Ilafnfirðinga. dvelur um þessar mundir
í bænum Trostberg í SuðurÞýzkalandi. Ætlar Sigurður að dvelja á þessum stað við a fingar, keppni og
störf fram á sumar. en þangað fór hann í lok marz.
Það sem af er dvölinni hefur Sigurður tekið þátt í þremur víðavangshlaupum, og að jafnaði staðið
sig með ágætum. Þann 1. aprfl hljóp hann 2.5 kflómetra hlaup í ba num Traunstein og varð annar af
1G keppendum. í Teisendorf þann 9. aprfl keppti Sigurður í 3.2 km hlaupi sem haldið var í minningu
Franz Korb, þekkts íþróttamanns fyrr á árum, og gerði sér lítið fyrir og sigraði. Lohs keppti Sigurður
í 2.7 km hlaupi í Trostberg 15. aprfl og varð í iiðru sæti af 20 keppendum.
í bréfi til Mbl. la'tur Sigurður vel af dvölinni í Trostfw'rg. Hann segir fólk þar syðra kannast við Hrein
Halldórsson. en segir þó aíltof marga halda Hrein vera Norðmann. Einnig lætur Sigurður vel af aðsta-ðum
til a finga og segir a'fingar sínar ganga vel.
- — ágás.
Oddný Sigsteinsdóttir og Guðjón Jónsson, þjálfari Fram.
„SAMHELDNI
OG BARÁTTA"
— ÞAÐ VAR ánægður fyrirliði Fram, scm gekk af velii er Fram hafði
tryggt sér sigur bæði í íslandsmóti og hikarkeppni kvenfólksins.
Kossar og hamingjuóskir komu úr hverju horni og gleðin leyndi sér
ekki mcðal aðstandenda Framliðsins.
Oddný Sigsteinsdóttir, fyrirliði Fram, sagði að þær hefðu átt von
á því bragði frá FII að taka tvær úr umferð. — Þá kom til kasta
ungu stúlknanna og þær stóðu sig með prýði, sagði Oddný.
— Það var gífurleg barátta í liðinu og mikil samheldni og þessi
atriði öðrum frekur færðu okkur þennan þriðja íslandsmeistaratitil,
sagði Oddný. — Við æfðum alveg hæfilega mikið í vctur. Það hcíur
verið rétt stígandi í þessu hjá okkur og síðustu leikirnir voru mjög
skemmtilegir. Leikreynslan var þung á metunum og hún kemur bezt
í Ijós þegar spennan er mest, sagði Oddný að lokum. — þr.
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIRUDAGUR 3. MAÍ 1978
25
Geir Hallsteinsson sækir að vörn Víkinga, en vel var tekið á móti og Geir hafði ekKl árangur sem erfiði ao pessu sinni. (Ijósm. Mbl. RAX).
Yfirburða sigur Víkings
í úrslftum bikarkeppninnar
VÍKINGUR varð á laugardaginn bikarmeistari í handknatt-
leik eftir að hafa sigrað FH í úrslitaleik keppninnar í
Laugardalshöll 25<20. Víkingarnir sýndu einn sinn bezta
leik í vetur og höfðu þeir umtalsverða yfirburði yfir FH.
Voru Víkingarnir mjög vel að sigrinum komnir. Þessi sigur
gat ekki komið á betri tíma fyrir Víkingana, sem vafalaust
hafa verið langt niðri eftir hið nauma tap fyrir Val í
íslandsmótinu. Það fer ekki milli mála að tvö beztu
handknattleikslið landsins munu verða fulltrúar íslands í
Evrópumótunum í haust, Víkingur og Valur.
Það var greinilegt strax í
upphafi leiksins að Víkingarnir
ætluðu ekki að missa af þessum
titli líka. Þeir byrjuðu leikinn með
miklum látum og fundu fljótt
leiðina í mark FH-inga. FH
svaraði jafnharðart fyrir sig með
fremur ódýrum mörkum og gripu
Víkingarnir þá til þess ráðs að
hvíla Kristján landsliðsmarkvörð í
nokkrar mínútur en settu hann
svo inná aftur. Var Kristján þá
allur annar maður og varði mjög
vel það sem eftir var leiksins. Fóru
Víkingarnir brátt að síga framúr
og þegar 20 mínútur voru búnar af
leiknum höfðu þeir náð fjögurra
marka forskoti og í hálfleik var
staðan 15:11. —-
J seinni nameiKnum juku Vík-
ingarnir muninn ennþá meira.
Þeim tókst að ná upp frábærlega
sterkri vörn í seinni hálfleik og
skoruðu FH-ingarnir þá ekki mark
í 15 mínútur. Á meðan skoruðu
Víkingarnir 5 mörk og staðan
breyttist í 23:15. Þar með var
munurinn orðinn 8 mörk og
stefndi í 10 mörk en þá fóru
Víkingarnir að slappa af og
FH-ingarnir náðu að minnka
muninn í fimm mörk áður en lauk.
í fyrri tveimur viðureignum FH
og Víkings í vetur hefur FH hlotið
3 stig en Víkingur 1 stig. Að þessu
sinni var það aldrei spurning
hvort liðið væri betra. Víkingarnir
höfðu yfirburði á öllum sviðum
handknattleiksins, í sókn, vörn og
markvörzlu. Vörnin var mjög
sterk meiri part leiksins og
sóknarleikurinn oft á tíðum frá-
bærlega vel útfærður. Þá átti
Kristján Sigmundsson stórleik í
marki Víkings og hann varði
hvorki meira né minna en fjögur
vítaskot. Auk Kristjáns áttu bezt-
an dag í liði Víkings þeir Viggó
Sigurðsson, Árni Indriðason,
Björgvin Björgvinsson, Þorbergur
aðalsteinsson, hinn bráðefnilegi
Sigurður Gunnarsson og síðast en
ekki sízt Ólafur Jónsson, sem
orðinn er harðskeyttur hornamað-
ur og geysisterkur varnarmaður.
FH-ingar náðu sér aldrei vel á
strik í þessum leik enda ekkert
grín að mæta Víkingunum þegar
þeir eru í ham. Geir Hallsteinsson
var að venju drýgsti sóknarmaður
FH-inga í þessum leik. Hann hafði
góðan stuðning af Janusi Guð-
laugssyni í fyrri hálfleik en í þeim
seinni bar lítið á Janusi og kemur
það ekki á óvart, því fyrr um
daginn hafði hann leikið með
knattspyrnuliði FH gegn Keflvík-
ingum í Litlu-bikarWoppnUmi.
Kraúmi Kagnarsson og Guð-
mundur Árni Stefánsson stóðu sig
báðir allvel en hvorugur þeirra
virtist vera í góðri æfingu.
Mörk Víkingsi Viggó Sigurðs-
son 6, Ólafur Jónsson 4, Sigurður
Gunnarsson 4 (2 v), Þorbergur
Aðalsteinsson 4, Árni Indriðason
2, Björgvin Björgvinsson 2, Magn-
ús Guðmundsson, Páll Björgvins-
son og Skarphéðinn Óskarsson 1
mark hver.
Mörk FHi Geir Hallsteinsson 6
(1 v), Guðmundur Árni Stefánsson
4 (1 v), Þórarinn Ragnarsson 4 (1
v), Janus Guðlaugsson 4, Árni
Guðjónsson og Valgarð Valgarðs-
son 1 mark hvor.
Misnotuð vítaskoti Víti var
dæmt ógilt hjá Viggó Sigurðssyni
og Kristján Sigmundsson varði
fjögur vítaskot, tvö frá Þórarni
Ragnarssyni og eitt frá Geir
Hallsteinssyni og Guðmundi Árna
Stefánssyni.
Brottvisanir af leikvellii Janus
Guðlaugsson, Magnús Ólafsson,
Þorbergur Aðalsteinsson og Jón G.
Sigurðsson reknir af velli í 2
mínútur hver.
Karl Jóhannsson og Gunnar
Kjartansson dæmdu leikinn og
stóðu þeir sig vel báðir tveir. —
Bikarmeistarar Víkings. þjálfarar og stjórnarmenn. í aftarí röðt Hannes Guðmundsson, Steinar Birgisson,
Þorsteinn Jóhannsaoii, Þorbergur Aðalsteinsson, Erlendur Hermannsson. Sigurður Gunnarsson, Ólafur
jonsson. Páll Björgvinsson. Guðjón Guðmundsson og Karl Benediktsson. í fremri röði Árni Indriðason,
Jón G. Sigurðsson, Kristján Sigmundsson, Heimir Guðjónsson, Björgvin Björgvinsson. Viggó Sigurðsson
og með á myndinni eru lukkutröll meistaraflokks Víkings. (ljósm. RAX).
ÞESSIR hressilegu Víkingar sigruðu í bikarkeppni 2. flokks í handknattleik. í
úrslitaleiknum unnu þeir Þrótt 18.16 í skemmtilegum leik. (Ljósm. Kristján).